Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 72
56 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverð-
launanna voru kynntar á þriðjudag í Lista-
safni Reykjavíkur. Tuttugu ár eru liðin frá
því að fyrst var tilnefnt til verðlaunanna og
var tilnefningahátíðin sú stærsta hingað til.
Verðlaun eru veitt fyrir bækur í tveimur
flokkum, flokki skáldverka og flokki fræði-
bóka, en í samstarfi við Bandalag þýðenda
og túlka er einnig tilnefnt til Íslensku
þýðingaverðlaunanna.
Þriggja manna dómnefnd velur verð-
launabækur úr hópi þeirra tilnefndu og
veitir forseti Íslands verðlaunin á Bessa-
stöðum í lok janúar. - ag
TILNEFNT TIL ÍSLENSKU
BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA
STÓR HÁTÍÐ Tilnefningahátíðin í ár er sú stærsta hingað til, en tuttugu ár eru frá því að fyrst var tilnefnt til verðlaunanna.
Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR Bjarni Bjarnason og Magnús Sigurðs-
son létu sig ekki vanta í Listasafn Reykjavíkur á þriðjudaginn.
STÆRSTA TILNEFNINGAHÁTÍÐIN TIL ÞESSA Egill Örn Jóhanns-
son hjá Forlaginu og Jónas Skúlason mættu í Listasafn Reykja-
víkur á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ólafur Josephsson hefur lengi gert út einmenningssveitina
Stafrænn Hákon og gefið út margar plötur undir því
nafni, síðast plötuna Gummi árið 2007. Jólatón-
list hefur lengi verið Ólafi hugleikin og hann
hefur sett á netið sínar útgáfur af frægum
jólalögum. Í ár heiðrar hann jólaarf Helgu
Möller og tekur fyrir tvö sígild jólalög með
Helgu, „Hátíðarskap“ og „Heima um jólin“.
Þessa netútgáfu kallar hann vitanlega Möll-
erinn. Magnús Freyr Gíslason syngur með
Ólafi í lögunum.
„Jólalögin hennar Helgu Möller verða bara
að heyrast um jólin og því fannst mér kom-
inn tími til að taka þau,“ segir listamað-
urinn. Möllerinn og öll hin jólalög-
in með Stafrænum Hákoni eru
aðgengileg frítt á netinu á
slóðinni shakon.com/christ-
mas. - drg
Heiðrar Helgu Möller
Í HÁTÍÐARSKAPI Ólafur
Josephsson er Stafrænn
Hákon.
Á fjórðu plötunni sinni vill
söngkonan Rihanna vera klúrari
og meira töff en á poppsmellum
eins og „Umbrella“. Platan heit-
ir Rated R og kemur með við-
vörunarmiða vegna sóðaorð-
bragðs. Tónlistin er harðari og
hrárri en áður og Rihanna tekur
fyrir persónuleg málefni, eins
og stormasamt samband sitt við
Chris Brown. „Það getur hver
sem er búið til poppsmelli en
ekki allir gert góðar plötur,“
segir Rihanna, sem vill sanna
sig á þessari plötu sem lista-
mann, en ekki bara vera popp-
díva. Undirtektir gagnrýnanda
hafa verið mjög góðar. „Ein
af poppplötum ársins,“ lýsti
Rolling Stone til að mynda yfir.
Hrá Rihanna
RATED R Rihanna vill sanna sig með
nýjustu plötu sinni.
„Það má segja að þetta sé alhliða aðstoð við
myndlistarmenn,“ segir Margrét Áskelsdóttir
listfræðingur, en hún hefur stofnað Fram-
kvæmdafélag listamanna, eða Frafl, ásamt
vinkonu sinni Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur
lögfræðingi. Félagið stofnuðu þær í nóvember
og er markmið þess að skapa ný tækifæri
fyrir myndlistarmenn, sjá um kynningu og
sölu á verkum og gæta réttinda þeirra.
„Þegar ég útskrifaðist úr listfræðinni fór
ég að vinna fyrir myndlistarkonuna Rakel
McMahon. Stuttu eftir það leitaði Snorri
Ásmundsson til mín og allt í einu var ég
orðin eins konar aðstoðarkokkur þessara
listamanna. Ég fann að mig vantaði meiri
undirstöðu því ég kunni ekki inn á lögin. Þá
leitaði ég til Hörpu Fannar og við ákváðum
að gera þetta saman, stofnuðum fyrirtæki
og erum í frumkvöðlafræði í HR núna, sem
hefur hjálpað okkur mikið við uppbygging-
una,“ útskýrir Margrét og segir þær stöllur
hafa í mörgu að snúast, enda starfsemin tekið
stakkaskiptum eftir að þær stofnuðu fyrir-
tækið og starfsemin meira verkefnatengd.
„Við erum að gefa út bók með Snorra
Ásmundssyni, Beauty swift generation revolu-
tion, undirbúa sýningu með Rakel McMahon í
Kronkron og svo erum við með saumaklúbba-
kynningar á myndlist sem við köllum gjarn-
an Tupperware-kynningar,“ segir Margrét
brosandi. „Þá erum við að taka hámenning-
una sem myndlistin er á annað stig svo það
má segja að það sé pínulítill gjörningur í leið-
inni,“ bætir hún við og segir örfá kvöld vera
laus í saumaklúbbakynningar í desember, en
áhugasamir geta sent póst á frafl@frafl.is. - ag
Stofnuðu Framkvæmdafélag listamanna
ÖNNUM KAFNAR Margrét og Harpa Fönn hafa í mörgu
að snúast í nýstofnuðu fyrirtæki sínu, en þær gefa út
bók og undirbúa myndlistarsýningu auk þess sem þær
halda saumaklúbbakynningar á myndlist.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Breska söngkonan Lily Allen
ætlar að taka sér eins eða
tveggja ára frí frá upptökum og
tónleikum til að einbeita sér að
öðrum verkefnum. Allen, sem
er 24 ára, ætlar að snúa sér að
útgáfufyrirtæki sínu, opna tísku-
búð og einfaldlega slaka á heima
hjá sér. „Síðustu tónleikarnir
mínir verða með Dizzee Rascal
í O2-höllinni í mars. Eftir þá er
ekkert annað í bígerð,“ sagði
Allen. „Ég ætla að einbeita mér
að því að vera á bak við tjöldin.
Mig langar að styðja við bakið á
nýjum listamönnum.“
Lily Allen
tekur sér frí
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Nike 150 Eau De Toilette For Man
Spray 150 ml, 3 gerðir
Glæsilegar vörur. Góð verð.
Verð frá 699 kr.
Kíktu í heimsókn:
Förðunarfræðingur veitir ráðgjöf.
Spennandi kaupauki fylgir með.
Verið velkomin.
Í dag er kynning á Golden Rose förðunarvörum kl: 13-17.