Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 74
58 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Pöbba-spurningakeppni fótbolta-
síðunnar Sammarinn.com sem
hefur verið haldin á Enska barnum
er orðin að vikulegum viðburði.
Spurningakeppnin hófst í sumar
og var þá haldin mánaðarlega.
„Við erum dottnir í þennan viku-
lega pakka því aðsóknin er að auk-
ast. Fyrst var þetta mikið til sama
fólkið sem var að koma en núna er
alls konar lið að mæta,“ segir Kol-
beinn Tumi Höskuldsson, annar af
ritstjórum síðunnar. Hann stjórnar
einnig Fótboltaþættinum á Útvarpi
Sögu ásamt hinum ritstjóra síðunn-
ar, Birni Berg Gunnarssyni. Spyr-
ill á næsta spurningakvöldi, sem
verður í kvöld klukkan 20, verð-
ur íþróttafréttamaðurinn Hörður
Magnússon.
Spyrja einu
sinni í viku
KOLBEINN OG BJÖRN BERG Kolbeinn
Tumi Höskuldsson og Björn Berg Gunn-
arsson stjórna pöbba-spurningakeppni á
Enska barnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nicole Richie er nú með sinn eigin
sjónvarpsþátt í smíðum. Richie,
sem er þekkt fyrir
að leika í raunveru-
leikasjónvarps-
þáttum og hanna
skartgripi og föt,
sagði frá þættinum
á heimasíðu sinni á
mánudag, en hann
verður sýndur á
ABC-sjónvarps-
stöðinni í Banda-
ríkjunum.
„Ég er svo spennt
að segja frá því
að ég er að búa til
hálftíma gaman-
þátt sem ég mun
leika í og framleiða. Þátturinn
mun fjalla um unga og efnilega
nútímakonu sem reynir að halda
jafnvægi á milli starfsframans
og fjölskyldulífsins. Hún þarf að
takast á við allar þær hugmyndir
sem eru uppi um hlutverk kvenna.
Við erum enn á byrjunarstigi en
ég get ekki beðið eftir að segja frá
meiru á næstunni,“ segir Richie á
heimasíðu sinni.
Framleiðir
gamanþátt
Fréttablaðið hefur að
undan förnu greint frá því
að bókaútgefandinn Jóhann
Páll Valdimarsson sé mað-
urinn á bak við fjölmargar
ljósmyndir sem prýða bæk-
ur Forlagsins. Þótti því rétt
að heyra í Jóhanni sjálfum.
„Ég hef í lífinu eiginlega aldrei átt
nein önnur áhugamál, vinnan hefur
alltaf átt hug minn allan. Ég get
ekki einu sinni farið í bíó án þess
að hugsa um bækur en þegar ég
er að sinna ljósmyndunum, vinna
þær og framkalla þá gleymi ég
bæði stund og stað,“ segir Jóhann
Páll í samtali við Fréttablaðið. Að
undanförnu hafa birst molar um
að Jóhann bæði kápumyndina af
Vigdísi Finnbogadóttur sem prýð-
ir ævisögu forsetans fyrrverandi.
Þá hafi hann einnig myndað flesta
rithöfunda sem eru á mála hjá For-
laginu og þar að auki hafi Jóhann
myndað fyrir þær bækur sem not-
ast við ljósmyndir, eins og ævisögu
Snorra Sturlusonar. „Mér var meira
bara ýtt út í þetta en að ég hafi
tranað mér fram. Þetta var kannski
hluti af sparnaðaraðgerðum og nú
er svo komið að áhugamálið er orðið
hluti af vinnunni, eins kaldhæðnis-
lega og það kann að hljóma.“
Ljósmyndaáhugi útgefandans
kviknaði fyrst í kringum sautján
ára aldurinn en þá fékk hann sína
fyrstu myndavél. Hún var frem-
ur frumstæð en útgefandinn kom
sér upp framköllunargræjum og
hóf myndavélina á loft. „Svo komu
stafrænu myndavélarnar og í fram-
haldi af því fór ég að læra á mynd-
vinnsluforrit, fór á námskeið og
hef verið nokkuð duglegur við að
lesa mér til um ljósmyndun og ljós-
myndavinnslu,“ segir Jóhann en
hann á í dag Canon Mark 2. „Góð
ljósmynd er hins vegar ekki háð
bestu tækninni, það er augað sem
skiptir mestu máli.“ Jóhann við-
urkennir engu að síður að hann sé
heillaður af græjum og tækninýj-
ungum. Hann sé ekkert annað en
stór strákur. „Ég hef alltaf verið
mikið fyrir dót; hvort sem það eru
talstöðvar, sjónaukar eða tölvur.
Mér hefur hins vegar ekki fund-
ist neitt nýtt koma að undanförnu
nema þessir GSM-símar en þeir eru
í mínum huga verkfæri djöfulsins
og fara létt með að rústa tilveru
fólks,“ segir Jóhann í fullri alvöru
enda sjálfur ekki með neitt slíkt
djöflatól.
En það eru ekki bara rithöfund-
ar og viðfangsefni þeirra sem eiga
hug Jóhanns allan. Hann segist til
að mynda síðustu fimm árin hafa
gert meira af því að fara í Skorra-
dalinn í Hvalfirðinum í sérstak-
ar ljósmyndaferðir. Og svo mynd-
ar hann kýr og sjálfan sig inni á
klósetti. „Kýrnar virka þannig á
mig að þær hafi ekki hugmynd um
hvað er að gerast í kringum sig, þær
eru algjörlega hrekklausar. Inni á
klósettum er síðan ákaflega sér-
stök birta og ég á margar mynd-
ir af sjálfum mér inni á klósettum
úti um allan heim.“ Jóhann útilok-
ar hins vegar að hann muni opna
ljósmyndasýningu eða gefa út bók
með myndum eftir sjálfan sig. „Nei,
ég vil ekkert vera að monta mig af
þessu, þetta er bara áhugamálið
mitt.“ - fgg
Bókaútgefandinn á bak við linsuna
INNI Á KLÓSETTI Jóhann Páll segist fara með myndavélina sína hvert sem er, meira
að segja inn á klósett enda sé birtan þar engri lík.
Söngkonan Lady Gaga prýðir for-
síðu janúarheftis breska Elle og
þykir furðu venjuleg. Í viðtali við
blaðið sagðist hún í framtíðinni
vilja mann og börn eins og hver
annar. „Eftir átta til tíu ár mundi
ég vilja börn fyrir pabba minn
til að leika við. Og mig langar í
eiginmann sem elsk-
ar mig og styður,
alveg eins og allir
aðrir. Ég mundi
aldrei taka
karlmann
fram yfir
frama minn ein-
mitt núna, og ég
mundi aldrei
elta karlmann
út um allt,“
sagði söng-
konan, sem
spjallar einnig
við blaðamann um
fyrri störf sín. „Ég
var mjög fær og fékk
mikið þjórfé. Ég klædd-
ist alltaf háum hælum og
sagði sögur.“
Gaga fékk
mikið þjórfé
FÆR ÞJÓNN Lady Gaga vann
áður sem þjónn og sagðist hafa
verið fær í því starfi.
Þú færð Michelin dekkin hjá
Hjólbarðaþjónustu N1
...og hef ég þó prófað fjölda vetrardekkja gegnum
tíðina, negld og ónegld, nú síðast undir EuroRAP
mælingabílnum. Dekkin gefa frábært grip við allar
aðstæður og eru hljóðlát og endingargóð. Best af
öllu er þó, að eyðslan er 0,52 lítrum minni á
hundraðið en á sumardekkjunum sem bíllinn kom
á frá framleiðanda.“
„Michelin X-ICE eru bestu
vetrardekk sem ég hef
prófað hingað til...
Ólafur Kr. Guðmundsson,
tæknistjóri EuroRAP á Íslandi og dómari í Formúlu 1.
Það er sama hvort ekið er í slabbi, snjó, slepju eða
fljúgandi hálku - gripið í þessum ónegldu dekkjum
er alveg undursamlegt.“
Gylfi Guðjónsson, ökukennari
„Michelin X-ICE eru bestu
vetrardekk sem ég hef
nokkru sinni kynnst á 40
ára ferli sem ökukennari.
„Michelindekkin best“
Michelin X-Ice vetrardekkin komu bestút í árlegri vetrardekkjakönnun norsku samtakanna NAF, systurfélags FÍB.
- DV, 21. nóvember.