Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 78
62 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Davíð Þór Viðarsson mun að öllum líkindum ganga frá samningum
við sænska B-deildarfélagið Öster á næstunni. Hann var staddur í
Svíþjóð í gær þar sem hann ætlaði að skoða aðstæður hjá félag-
inu. „Ef okkur líst vel á bæinn mun ég væntanlega gangast undir
læknisskoðun. Ef ég stenst hana verður væntanlega ekkert
eftir nema að skrifa undir samninginn,“ segir Davíð Þór.
„En ég tel að líkurnar á því að ég semji við félagið séu
miklar. Miðað við það sem ég hef heyrt um bæinn þá er hann
ágætur,“ bætir hann við.
Öster var úrvalsdeildarfélag fyrir fáeinum árum en féll um
tvær deildir á jafn mörgum árum. Liðið er nú komið upp í næst-
efstu deild og ætlar sér stóra hluti á næstu árum.
„Mér líst vel á þau markmið sem félagið hefur sett
sér. Þetta er ekkert risastórt skref á mínum ferli en
þetta er tilbreyting og ég held að ég þurfi á því að
halda að prófa eitthvað nýtt,“ segir Davíð Þór. „Ég
hef rætt við Helga Val Daníelsson sem lék með
Öster í nokkur ár og hann gat mælt með því að
ég færi til liðsins.“
Davíð Þór hefur áður staðið til boða að fara í atvinnumennsku en
nú segir hann að tími sé kominn til að slá til.
„Ég er búinn að vinna titilinn heima fimm sinnum og þar
hefur allt gengið ótrúlega vel. Ég var með besta þjálfara
sem ég hef haft á Íslandi – Heimi Guðjónsson – og mér
fannst tími til kominn að breyta til. Ég vildi fá að upplifa
nýja hluti og búa í öðru landi.“
Davíð Þór var reyndar á mála hjá Lilleström í Noregi í
tvö ár en annars hefur hann alla tíð leikið með FH.
„Það er mjög erfitt fyrir mig að kveðja FH en ég held
að allir viti að ef ég spila á Íslandi aftur kemur aðeins
til greina að spila með FH. Ég tel að FH-ingar skilji mína
afstöðu vel.“
Samningur hans við FH rennur út um áramótin og
fer hann því án greiðslu frá félaginu. „Það hjálpaði
vissulega til að vekja áhuga liða á mér og ég tel
líklegt að ég hefði ekki fengið jafn góðan samning,
hefði þurft að kaupa mig. Miðað við landslagið í pen-
ingamálunum í dag skipti það miklu máli.“
DAVÍÐ ÞÓR VIÐARSSON: STADDUR Í SVÍÞJÓÐ OG MUN LÍKLEGA SEMJA VIÐ ÖSTER
Þarf á því að halda að prófa eitthvað nýtt
> Stóðst læknisskoðun
Ólafur Ingi Skúlason er búinn að gangast undir læknis-
skoðun hjá því félagi sem hann hefur átt í samn-
ingaviðræðum við síðustu vikur. Hann vill
þó ekki greina frá því hvaða félag það er en
danskir fjölmiðlar hafa fullyrt að það sé Sönd-
erjyskE sem Sölvi Geir Ottesen leikur með.
„Læknisskoðunin gekk mjög vel og ég ætti
að geta tjáð mig meira um þetta um helg-
ina,“ sagði Ólafur Ingi. Hann lék áður með
Helsingborg í Svíþjóð en félagið stað-
festi á heimasíðu sinni á dögunum
að Ólafur Ingi myndi yfirgefa félagið.
FÓTBOLTI Katrín Jónsdóttir landsliðsfyrirliði
hefur ákveðið að halda áfram í knattspyrnu
og á hún nú í viðræðum við Val um nýjan
samning.
Hún sagði í sam-
tali við Fréttablað-
ið í gær að önnur
félög hefðu einnig
sýnt henni áhuga, þeirra
á meðal eitt frá Norður-
löndunum.
„Ef ég á að segja alveg
eins og er finnst mér það nú
ólíklegt að ég komi til með að
skoða það af mikilli alvöru,“
segir Katrín. „Eins og stendur er það
langlíklegast að ég leiki með Val á næsta
tímabili.“
Katrín er 32 ára gömul og á að baki lang-
an feril með Val, Breiðabliki, Stjörnunni
og Kolbotn í Noregi þar sem hún varð Nor-
egsmeistari. Hún hefur verið lykilmaður í
íslenska landsliðinu og verður væntanlega
áfram.
„Atvinnumennskan horfir öðruvísi við
mér en mörgum ungum stelpum sem eru að
hefja sinn ferill. Ég fékk að prófa að vera úti
í dágóðan tíma en ég er nú komin með fjöl-
skyldu og vinnu, sem flækir málin talsvert
fyrir mér,“ segir Katrín.
Undankeppnin fyrir HM 2011 í Þýska-
landi hófst í sumar og stefnir Katrín á að
taka þátt í þeim landsliðsverkefnum sem
eru fram undan.
„Ef okkur tekst að komast inn á HM held
ég áfram í tvö ár, annars finnst mér lík-
legt að ég hætti næsta haust þótt það sé
aldrei hægt að fullyrða neitt um það,“
segir hún.
Katrín segir einnig að hún hefði
ekki verið tilbúin að hætta í haust
eins og hún var að íhuga. „Ég er
enn mikla löngun til að spila og
var ekki tilbúin að hætta. Meðan svo er
verður maður að halda áfram.“
Katrín hefur fjórum sinnum orðið
Íslandsmeistari með Breiðabliki (1991,
1992, 1994 og 1996) og fimm sinnum
með Val, fyrst árið 2004 og svo undan-
farin fjögur ár. Hún á að baki 92 lands-
leiki og hefur skorað í þeim fimmtán
mörk. Hún er þriðji markahæsti leik-
maður í sögu landsliðsins, á eftir
Margréti Láru Viðarsdóttur og
Ásthildi Helgadóttur. - esá
Katrín Jónsdóttir telur langlíklegast að hún verði áfram í Val á næsta tímabili:
Erlent félag hefur áhuga á Katrínu
LANDSLIÐSFYRIRLIÐINN
Katrín Jónsdóttir á EM í Finnlandi í
sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/OSSI AHOLA
KÖRFUBOLTI Það er allt í blóma hjá
Marvini Valdimarssyni þessa dag-
anna, hann fer á kostum með Ham-
arsliðinu í Iceland Express-deild
karla og er nýbúinn að eignast
dóttur. „Það er tóm hamingja hjá
manni,“ segir Marvin enda heilsast
dótturinni og kærustunni vel.
Marvin er á sínu sjöunda tíma-
bili í úrvalsdeild og hafði mest
skorað 15,2 stig að meðaltali vet-
urinn 2004-05.
„Það er búið að vera bíða eftir
því í nokkur ár að maður næði
almennilegu tímabili,“ segir Mar-
vin í léttum tón en hann segist
blómstra í góðu andrúmslofti í
blómabænum. „Það er góður andi
í liðinu og Gústi þjálfari er búinn
að búa til helling fyrir mig. Ég hef
alltaf vitað hvað ég get og maður
þurfti kannski að læra á sjálfan
sig,“ segir Marvin. Hann er þakk-
látur fyrir að spila við hlið Svavars
Páls Pálssonar sem hefur gefið 5,1
stoðsendingu að meðaltali í leik og
stóran hluta þeirra á Marvin. „Það
eru forréttindi að vera með stórum
manni í liði sem er svona virkilega
góður sendingamaður því hann er
oft með sendingar eins og fram-
úrskarandi bakvörður. Við erum
búnir að spila saman í sjö til átta
ár og þekkjum hvor annan mjög
vel,“ segir Marvin.
Marvin kom fullur sjálfstrausts
til leiks í haust eftir að hafa skorað
31,1 stig að meðaltali í 1. deildinni
í fyrravetur.
„Ég ætlaði að standa mig mun
betur sóknarlega en ég hef gert
í úrvalsdeild síðustu ár. Ég átti
afbragðstímabil í 1. deildinni í
fyrra og ég vildi fylgja því eftir.
Ég vildi ekki detta niður í ein-
hverja meðalmennsku í úrvals-
deild. Það var það sem ég var að
einblína mest á að vera virkari í
sóknarleiknum. Ég þarf þess líka
því það er hellings ábyrgð á mér.
Við erum ekki með breiðasta hóp-
inn í deildinnni og þá þarf
maður að eiga góða leiki,“
segir Marvin.
Mikilvægi Marvins
fyrir Hamar leynir sér
ekki í tölfræðinni. Hann
er búinn að skora 33,0
stig að meðaltali í fjór-
um sigurleikjum liðsins
en í tapleikjunum fimm
hefur hann „bara“ skoraði
19,6 stig í leik. „Við erum með
svo ungt lið að það er á ábyrgð
mína og Svavars að taka af
skarið. Þetta eru bara
guttar sem eru
með okkur
í Hamri ,“
segir Mar-
vin en tveir
af f i mm
byrjunar-
liðsmönn-
um Ham-
ars eru
fæddir
eftir 1990. „Oddur og Raggi eru
að standa sig alveg fáránlega vel á
sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeild.
Þeir eiga hrós skilið fyrir það. Páll
Helgason er líka þvílíkt öflugur
þegar hann kemur inn af bekknum.
Þetta eru strákar sem maður átti
ekki von á að myndu springa
út en eru að gera það alla-
vega enn sem komið er.
Það hjálpar okkur hell-
ing,“ segir Marvin.
Hamar er í 8. sæti
deildarinnar með átta
stig en þau hefðu auð-
veldlega verið tíu ef
liðið hefði ekki misst
niður 16 stiga forskot
í fjórða leikhluta á móti
KR. „Það var hræði-
legt að tapa þessum KR-
leik en hann fer bara
í reynslubank-
ann,“
segir
Mar-
vin
og
bætir við: „Okkar markmið er að
vinna hvern einasta heimaleik þó
svo að við séum búnir að tapa á
móti Njarðvík en okkur fannst við
eiga að vinna hann. Við ætlum að
vinna heimaleikina og svo verð-
ur þetta barátta út í gegn í úti-
leikjunum þar sem við munum
reyna að stela einhverjum sigr-
um. Okkar markmið er að fara í
úrslitakeppnina.“
Marvin hefur skorað 25,6 stig
að meðaltali í fyrstu níu leikjum
Hamars en hann hefur meðal ann-
ars skorað 3,0 þriggja stiga körfur
að meðaltali í leik. Marvin er mik-
ill skorari og getur skorað allstaðar
á vellinum en það hefur ekki alltaf
verið þannig.
„Ég byrjaði sem leikstjórnandi og
gat ekki skotið fyrr en ég var orðinn
tvítugur. Þá var ég með alveg von-
laust skot og skoraði bara úr snið-
skotum og með því að keyra upp að
körfu. Pétur Ingvarsson lét mig í
þá stöðu sem hentaði mér betur og
svo fór maður bara að skjóta eins
og vitleysingur í Hveragerði. Ég er
ekki með fallegasta skotið en það
virkar ágætlega,“ segir Marvin og
sjálfstraustið spilar einnig stóra
rullu í velgengninni.
„Ég veit að ég get hitt og ég get
verið mjög eigingjarn stund-
um. Ég stend bara og fell
með því. Ef maður
ætlar að vera skorari
og skotmaður þá verð-
ur maður að vera eigin-
gjarn. Maður verður að
taka skotin því það þýðir
ekkert að hika.“
ooj@frettabladid.is
Ekki fallegt skot en það virkar
Marvin Valdimarsson er loksins sprunginn út að mati margra. Hann hefur farið á kostum með Hamri í Ice-
land Express-deildinni í vetur og er sem stendur stigahæsti íslenski leikmaðurinn í deildinni með 25,6 stig í
leik. Marvin segist ekki hafa kunnað að skjóta á körfuna fyrr en hann var orðinn tvítugur.
SPRUNG-
INN ÚT Í
BLÓMA-
BÆNUM
Marvin
Valdimars-
son. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ÓSKARÓ
KÖRFUBOLTI KR-ingar heimsækja
í kvöld Keflvíkinga í Iceland
Express-deild karla og enn á ný
„hafa þeir heppnina með sér“ og
mæta liði sem hefur ekki Banda-
ríkjamann innanborðs.
Keflvíkingar ráku í gær Banda-
ríkjamanninn Rashon Clark og
mæta KR með í Toyota-höllinni
í kvöld með alíslenskt lið. Þetta
verður sjöundi leikur KR-liðsins
af tíu þar sem það mætir Kana-
lausu liði.
KR-ingar mættu FSu og Tinda-
stóli áður en þau lið voru komin
með sína Bandaríkjamenn, mættu
Blikum á meðan þeir voru að
skipta um Kana og þegar KR-ingar
spiluðu við Grindvíkinga voru þeir
nýbúnir að reka Kanann sinn eftir
tap á móti Njarðvík alveg eins og í
tilfelli Keflavíkur nú. - óój
MÓTHERJAR KR Í VETUR
FSu Kanalausir
ÍR Kanalausir
Tindastóll Kanalausir
Grindavík Kanalausir
Njarðvík Kanalausir
Fjölnir Með Kana
Hamar Með Kana
Breiðablik Kanalausir
Stjarnan Með Kana
Keflavík Kanalausir
Iceland Express-deild karla:
KR-ingar sleppa
við Kanana
EINI KANINN Semaj Inge hefur verið
eini Bandaríkjamaðurinn á vellinum í 6
af 9 leikjum KR í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GLÆ
SILE
G O
PNU
NAR
TILB
OÐ!
GRE
NSÁ
SVE
GI 1
1
NÝ
STÓ
RGL
ÆSI
LEG
SPO
RTV
ÖRU
VER
SLU
N!
WWW.BETTERBODIES.SE