Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 80
64 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið tilkynnti í gær hvernig
liðin sem taka þátt í úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu munu skiptast í styrk-
leikaflokka. Dregið verður í
riðlana á morgun.
Í raun er bara einn styrkleika-
flokkur í drættinum. Átta sterk-
ustu liðin eru saman í flokki og
geta því ekki lent saman í riðli.
Raðað er í hina flokkana eftir
landsvæðum. Þannig eru þær
átta Evrópuþjóðir sem ekki kom-
ust í efsta styrkleikaflokk saman
í einum flokki. Á meðal þeirra
eru Frakkland og Portúgal, sem
hafa verið meðal sterkustu knatt-
spyrnuþjóða álfunnar en þurftu að
fara í gegnum umspil í und-
ankeppninni til að komast
til Suður-Afríku.
Við niðurröðun í
styrkleikaflokka var
ákveðið að miða við
stöðu liða á heims-
lista FIFA í október
– ekki í nóvember.
„Okkur fannst
staðan í október gefa bestu
myndina af stöðu bestu lið-
anna sem taka þátt í keppn-
inni,“ sagði Jerome Valcke,
framkvæmdastjóri FIFA.
„Ákvörðunin var tekin í október
enda áttu liðin sem tóku þátt í
umspilinu færi á að spila fleiri
leiki en önnur lið og komast þannig
ofar á listann.“
Liðin frá Asíu, Eyjaálfu og Norð-
ur- og Mið-Ameríku eru saman í
flokki annars vegar og suður-
amerísk og afrísk lið hins vegar.
Sá fyrirvari er reyndar settur
á að lið úr efsta styrkleikaflokki
geta ekki dregist í riðla með öðrum
liðum úr sömu álfu. Það á reyndar
ekki við um Evrópuþjóðirnar enda
ekki hjá því komist að fimm riðl-
ar verði skipaðir tveimur Evrópu-
þjóðum hver.
Liðin 32 skiptast í fjóra flokka
og verður dregið í átta fjögurra
liða riðla á morgun. Bein útsend-
ing verður frá drættinum á RÚV
og hefst hún klukkan 17.00. - esá
Dregið á morgun í riðla fyrir úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Suður-Afríku:
Frakkland og Portúgal ekki í efsta flokki
FLOKKARNIR Á HM
Efsti styrkleikaflokkur:
Suður-Afríka, Brasilía, Spánn, Holland,
Ítalía, Þýskaland, Argentína, England.
2. fl. (Asía, Eyjaálfa, N-Ameríka):
Japan, Suður-Kórea, Norður-Kórea,
Ástralía, Nýja-Sjáland, Bandaríkin,
Mexíkó, Hondúras.
3. flokkur (Afríka og S-Ameríka):
Fílabeinsströndin, Gana, Kamerún,
Nígería, Alsír, Paragvæ, Chile, Úrúgvæ.
4. flokkur (Evrópa):
Frakkland, Portúgal, Slóvenía, Sviss,
Grikkland, Serbía, Danmörk, Slóvakía.
THIERRY HENRY
Lagði upp umdeilt mark sem
kom Frökkum á HM.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Ray Wilkins, aðstoðar-
knattspyrnustjóri Carlo Ancelotti
hjá Chelsea, segir að góður
húmor Ítalans hafi hjálpað honum
mikið til að komast inn í hlutina
hjá enska félaginu. Chelsea hefur
aðeins tapað tveimur af 21 leik
undir stjórn Ancelottis og er sem
stendur með fimm stiga forskot á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Það hefur ekki reynst Ancelotti
erfitt að aðlagast hlutunum á
Brúnni. „Ég hef verið sérstaklega
hrifinn af hans persónulegu hlið.
Hann er mjög fyndinn og alltaf
að segja brandara. Ég þarf reynd-
ar að þýða brandarana ef hann
ætlar að gefa meira af sér í þá,“
segir Wilkins.
„Hann segir leikmönnum mikið
af bröndurum og honum gengur
vel að eiga við leikmennina.
Húmorinn hans á örugglega sinn
þátt í því hversu vel gengur inni á
vellinum,“ segir Wilkins en tekur
jafnframt fram að Ancelotti
þekki vel stund og stað sem passa
fyrir góðan brandara.
„Ancelotti er besti þjálfari í
heimi,“ segir Didier Drogba, sem
hefur farið á kostum síðan Ance-
lotti tók við liðinu. „Ég elska það
hvernig hann stjórnar liðinu og
hvernig hann róar okkur niður.
Við vinnum vel fyrir hann með
bros á vör. Hann er líka mjög
fyndinn, bæði á æfingasvæðinu
sem og í búningsherberginu, þar
sem alltaf er mjög gott andrúms-
loft,“ segir Drogba. - óój
Carlo Ancelotti:
Brandararnir
slá í gegn
ANCELOTTI Kann að slá á létta strengi.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Keflvíkingar þurfa að
spila fyrstu heimaleiki sína í
Pepsi-deild karla næsta sumar
á heimavelli nágranna sinna í
Njarðvík. Þetta kemur fram á
vefsíðunni fotbolti.net.
Ákveðið hefur verið að taka
upp grasið á Keflavíkurvelli
næsta vor og samkvæmt heim-
ildum fótbolta.net munu heima-
leikir á móti Breiðabliki, Fylki,
Selfossi, Haukum og Fram fara
fram á Njarðvíkurvelli. Líklegt
er að fyrsti leikurinn á nýlögð-
um Keflavíkurvelli verði á
móti Íslandsmeisturum FH í 10.
umferð.
„Reykjanesbær kemur til með
að setja upp stúku sem verður
byggð fljótlega,“ sagði Þorsteinn
við Fotbolti.net. „Upphaflega var
hugmynd um að hún tæki 350
áhorfendur en að öllum líkindum
endar hún í 500,“ sagði Þorsteinn.
Kvennalið Keflavíkur spilar
heimaleiki sína í 1. deild kvenna
næsta sumar á Iðavöllum 7 sem
er æfingasvæði félagsins. - óój
Pepsi-deildarlið Keflavíkur:
Spilar heima-
leiki í Njarðvík
FLUTNINGUR Hólmar Örn og félagar
þurfa að sætta sig við að spila í Njarð-
vík.