Fréttablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 82
66 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
IE-deild kvenna:
KR-Grindavík 81-56
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 28, Signý
Hermannsdóttir 17, Guðrún Þorsteinsdóttir 10,
Unnur Tara Jónsdóttir 10, Helga Einarsdóttir 9,
Jóhanna Sveinsdóttir 3, Brynhildur Jónsdóttir 2,
Hildur Sigurðardóttir 2.
Stig Grindavíkur: Jovana Stefánsdóttir 15, Mary
Sicat 15, Michele DeVault 12, Berglind Magnús-
dóttir 4, Íris Sverrisdóttir 4, Helga Hallgrímsdóttir
4, Katrín Rúnarsdóttir 2.
Hamar-Njarðvík 85-71
Stig Hamars: Sigrún Ámundadóttir 22, Koren
Schram 20, Kristrún Sigurjónsdóttir 15, Fanney
Guðmundsdóttir 11, Guðbjörg Sverrisdóttir 9, Íris
Ásgeirsdóttir 6, Hafrún Halfdánardóttir 2.
Stig Njarðvíkur: Shantrell Moss 30, Harpa
Hallgrímsdóttir 15, Ólöf Pálsdóttir 9, Helga Jónas-
dóttir 7, Auður Jónsdóttir 6, Heiða Valdimarsdóttir
2, Anna Ævarsdóttir 2.
Keflavík-Valur 83-37
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 19, Bryndís
Guðmundsdóttir 17, Kristi Smith 16, Pálína
Gunnlaugsdóttir 7, Marín Rós Karlsdóttir 6, Hrönn
Þorgrímsdóttir 5, Rannveig Randversdóttir 4,
María Jónsdóttir 2, Halldóra Andrésdóttir 2, Eva
Guðmundsdóttir 1, Sigrún Albertsdóttir 1.
Stig Vals: Hrund Jóhannsdóttir 13, Birna
Eiríksdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 6, Sigríður
Viggósdóttir 4, Hanna Halfdánardóttir 2, Berglind
Ingvarsdóttir 1.
Enski deildabikarinn:
Man. City-Arsenal 3-0
Tevez, Wright-Phillips (69.), Weiss.
Blackburn-Chelsea Leik ekki lokið
Kalinic, Emerton - Drogba, Kalou.
Evrópudeildin:
Anderlecht-Dinamo Zagreb 0-1
FC Timisoara-Ajax 1-2
Slavia Prag-Genoa 0-0
Valencia-Lille 3-1
Celtic-Hapoel Tel Aviv 2-0
HSV-Rapid Vín 2-0
Levski Sofia-Villarreal 0-2
RB Salzburg-Lazio 2-1
FC Sheriff-Steaua Búkarest 1-1
FC Twente-Fenerbahce 0-1
AEK Aþena-Everton 0-1
0-1 Diniyar Bilyaletdinov (6.)
BATE Borisov-Benfica 1-2
ÚRSLIT
HANDBOLTI Framarar eru í miklum
vandræðum fyrir leikinn gegn
Gróttu í kvöld en fjóra sterka leik-
menn mun vanta í liðið. Haraldur
Þorvarðarson er meiddur, Andri
Berg Haraldsson og Lárus Jónsson
í leikbanni og svo var Magnús Stef-
ánsson að meiðast illa á ökkla og
verður ekki með næstu vikurnar.
„Þetta lítur ekki vel út og
ökklinn er stokkbólginn. Ég er
bara í gifsi og á hækjum. Ég veit
ekki hversu alvarlegt þetta er fyrr
en í næstu viku þegar bólgan hefur
hjaðnað,“ sagði Magnús, sem spilar
væntanlega ekki meir á þessu ári.
Hann segist vera orðinn þreyttur á
meiðslum en hann fingurbrotnaði í
tvígang í fyrra á sama fingrinum.
Gengi Fram í vetur hefur verið
afleitt og stjórn félagsins greip til
þess ráðs á dögunum að reka Viggó
Sigurðsson úr starfi þjálfara.
„Það er öðruvísi andrúmsloft
eftir að Viggó fór. Það er styttra
í spaugið hjá mönnum og einhvern
veginn eins og yngri strákarnir
eigi auðveldara með að koma út úr
skelinni,“ sagði Magnús, sem ber
Viggó annars vel söguna en segir
að hans aðferð hafi ekki gengið
upp núna.
„Viggó er ákveðinn og hvass en
það hentaði kannski ekki liðinu á
þessum tíma. Það vantaði að hafa
leikgleðina meira í fyrirrúmi og
sérstaklega þar sem breiddina
vantaði. Það var eitthvað dauft
yfir mönnum.“
Magnús segir að arftaki Vigg-
ós, Einar Jónsson, hafi ekki breytt
miklu enn sem komið er.
„Það er ekki hægt að breyta
miklu á stuttum tíma en hann
hefur komið með einhverja punkta
sem hann náði ekki í gegn þegar
Viggó var með liðið. Það hjálp-
ar vonandi því við erum að leika
langt undir getu og þurfum að fara
að rífa okkur upp,“ sagði Magnús
Stefánsson.
- hbg
Framarar særðir gegn Gróttu eftir að Magnús Stefánsson meiddist – betra andrúmsloft með nýjum þjálfara:
Styttra í spaugið hjá mönnum eftir að Viggó fór
Á HÆKJUM Magnús Stefánsson verður ekki með Fram á næstunni eftir að hafa meitt
sig illa á ökkla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ítalinn Federico
Macheda hefur framlengt samn-
ing sinn við Manchester United
til loka tímabilsins 2014.
Macheda sló í gegn á síðasta
tímabili er hann skoraði sigur-
markið í uppbótartíma í deildar-
leik gegn Aston Villa en það var
hans fyrsti leikur með aðalliði
United.
„Allir hjá félaginu gera sér
grein fyrir hversu hæfileikarík-
ur hann er. Vonandi heldur hann
áfram að bæta sig á næstu árum,“
sagði Alex Ferguson, stjóri Unit-
ed, um hinn átján ára gamla
Macheda. - esá
Federico Macheda:
Samdi við Unit-
ed til 2014
FÓTBOLTI Bókin íslensk knatt-
spyrna 2009 kom út í gær. Bókin
er sem fyrr rituð af Víði Sigurðs-
syni íþróttafréttamanni en þetta
er í 29. bókin í samnefndum bóka-
flokki.
Víðir spjallar í bókinni einnig
við Atla Guðnason FH-ing, Vals-
stúlkuna Sif Atladóttur og lands-
liðsþjálfarana Ólaf Jóhannesson
og Sigurð Ragnar Eyjólfsson.
Bókaútgáfan Tindur heiðraði
við útkomu bókarinnar í gær
þá þrjá leikmenn sem lögðu upp
flest mörk í Pepsi-deild karla síð-
asta sumar. Knattspyrnudeild
Selfoss fékk síðan sérstök heið-
ursverðlaun. - hbg
Íslensk knattspyrna 2009:
Komin í
bókabúðir
HÖFUNDURINN Víðir með bókina sína í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI KR vann í gær nokk-
uð öruggan sigur á KR, 81-56, á
heimavelli í Iceland Express-deild
kvenna. Þetta var tíundi sigur KR
í deildinni og er liðið enn með fullt
hús stiga. Fátt virðist geta stöðv-
að KR-inga en Grindavík var fyrir
leikinn í gær búið að vinna fjóra
leiki í röð.
KR-ingar byrjuðu mjög vel og
náðu mjög snemma um tíu stiga
forystu. Liðið lék afar sterkan
varnarleik sem Grindvíkingar áttu
í vandræðum með framan af.
En í öðrum leikhluta fóru Grind-
víkingar sjálfir að bíta frá sér með
öflugum varnarleik. Í kjölfarið
gengu sóknirnar betur og gestun-
um tókst að halda í við KR-inga.
Staðan í hálfleik var 38-28.
En snemma í síðari hálfleik var
ljóst að KR-ingar ætluðu ekki að
hleypa Grindvíkingum nær en það.
Signý Hermannsdóttir átti stórleik,
bæði í vörn og sókn, og þær Guð-
rún Gróa Þorsteinsdóttir og Mar-
grét Kara Sturludóttir voru einn-
ig afar erfiðar viðureignar fyrir
gestina. Unnur Tara Jónsdóttir
og Helga Einarsdóttir áttu einnig
fínar innkomur.
Hildur Sigurðardóttir meiddist
í baki í leiknum og gat því lítið
spilað með KR.
„Fyrir voru tveir leikstjórnend-
ur hjá mér meiddir og var ég því
ekki með leikstjórnanda í leiknum
lengst af,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari KR, eftir leik-
inn. „Þar að auki var ég með mína
sterkustu varnarmenn í villu-
vandræðum og því var þetta eig-
inlega aldrei 100 prósent öruggt
hjá okkur. En sem betur fer tókst
okkur að leysa þetta vel og ég
var mjög ánægður með hvernig
við kláruðum leikinn miðað við
aðstæður.“
Benedikt sagði einnig að fyrir
utan Hildi eru fjórir leikmenn KR
frá vegna meiðsla – þeirra á meðal
hin bandaríska Jenny Pfeiffer-Fin-
ora. „Það reyndi mikið á breiddina
og það kom á daginn að hún hélt
vel í kvöld,“ bætti hann við.
Grindavík sýndi inn á milli hvað
í liðið er spunnið og náði á köflum
að standa vel í KR-ingum. En betur
má ef duga skal.
„Við vorum skrefinu á eftir KR
stærstan hluta leiksins, bæði í
vörn og sókn. KR-ingar eru með
mjög gott lið og ef okkur ætlar að
takast að vinna það verðum við að
vera á fullu allar 40 mínúturnar,“
sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari
Grindavíkur.
Hann segir ljóst að KR er í sér-
flokki í deildinni eins og er. „En
það er enn nóg eftir og ég tel að
mitt lið eigi helling inni. Við
náðum að vinna fjóra leiki í röð og
við þurfum ekki nema að fínpússa
leik og þá eigum við möguleika.“
eirikur@frettabladid.is
KR-ingar virðast óstöðvandi
KR vann sinn tíunda sigur í jafnmörgum leikjum er liðið vann lið Grindavíkur
á heimavelli örugglega, 81-56, í Iceland Express-deild kvenna í gærkvöldi. Liðið
hefur átt í þónokkrum meiðslavandræðum en það virtist ekki koma að sök.
Í FRÁKASTINU Margrét Kara Sturludóttir var stigahæst KR-inga í gær með 28 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Ron Artest, leikmað-
ur LA Lakers, er ekki hættur
að ganga fram af fólki en hann
hefur nú viðurkennt að hafa neytt
áfengis í miðjum leik á meðan
hann spilaði með Chicago Bulls
en það var á árunum 1999-2002.
Þá erum við ekki að tala um
einn kaldan heldur var hann í
hörðu áfengi. Artest valdi nefni-
lega að fá sér Hennessy koníak.
„Ég átti það til að fá mér
Hennessy í hálfleik. Ég geymdi
flöskuna í klefanum mínum. Ég
keypti koníakið venjulega bara
í búð sem er rétt hjá höllinni,”
sagði Artest í viðtali við Sporting
News-tímaritið.
Artest fer annars um víðan völl
í viðtalinu og greinir meðal ann-
ars frá því að hafa drukkið mikið
og reykt slatta af kannabisefnum
þegar hann var 19 ára faðir.
Svo segist hann ekki sjá eftir
slagsmálunum í Detroit um árið
er hann stökk upp í stúku og
lamdi áhorfanda. Hann segir að
það hafi einfaldlega ekki verið
neitt annað í boði.
Blaðið kemur annars út 7.
desember næstkomandi og verð-
ur eflaust rifið úr hillunum. - hbg
Ron Artest:
Fékk sér koníak
í hálfleik
RON ARTEST Á engan sinn líkan.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Manchester-liðin munu
mætast í undanúrslitum enska
deildabikarsins þetta árið en átta
liða úrslitin kláruðust í gær.
Arsenal sótti City heim og Ars-
ene Wenger, stjóri Arsenal, tefldi
fram óreyndum strákum gegn
feikisterku liði City. Kjúklingar
Wengers stóðu í City fram í síðari
hálfleik þegar City skoraði þrjú
mörk.
Fyrst skoraði Carlos Tevez
með frábæru skoti í slána og inn
eftir magnað einstaklingsfram-
tak. Shaun Wright-Phillips skor-
aði einnig glæsilegt mark eftir
einstaklingsframtak en hann setti
boltann efst í markhornið. Stór-
kostleg mörk bæði tvö. Það var
svo hinn ungi Slóvaki Vladimir
Weiss sem skoraði síðasta markið
á lokamínútu leiksins.
Chelsea hvíldi einnig leikmenn
og lenti í kröppum dansi gegn
Blackburn sem komst yfir í leikn-
um. Chelsea svaraði með tveim
mörkum áður en Emerton jafn-
aði fyrir Blackburn. Leiknum var
ekki lokið þegar Fréttablaðið fór
í prentun en framlenging var þá í
gangi.
Búið er að draga í undanúrslit
og þar mætast Manchester-liðin og
svo Aston Villa gegn sigurvegaran-
um í leik Chelsea og Blackburn.
- hbg
Átta liða úrslitum enska deildabikarsins lauk í gær – varalið Arsenal tapaði gegn Man. City:
Manchester-liðin mætast í undanúrslitum
GLÆSILEGT MARK Carlos Tevez skoraði fyrsta mark City í gær með glæsilegu skoti
sem fór í slána og inn. NORDIC PHOTOS/AFP