Fréttablaðið - 03.12.2009, Síða 86
70 3. desember 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
„Ég byrja daginn á því að fá
mér gúlsopa af lýsi, eina dós
af Landliebe-jógúrti og glas af
nýpressuðum gulrótarsafa.“
Ásgeir Páll Ágústsson, útvarpsmaður og
söngvari.
LÁRÉTT
2. uss, 6. bardagi, 8. mánuður, 9.
hrökk við, 11. í röð, 12. kambur, 14.
bátur, 16. tveir eins, 17. fornafn, 18.
eyrir, 20. þessi, 21. fullnægja.
LÓÐRÉTT
1. plat, 3. umhverfis, 4. alls, 5. per-
sónufornafn, 7. vörubíll, 10. geisla-
hjúpur, 13. tala, 15. gróft orð, 16. kóf,
19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. suss, 6. at, 8. maí, 9. brá,
11. mn, 12. burst, 14. kajak, 16. kk,
17. öll, 18. aur, 20. sá, 21. fróa.
LÓÐRÉTT: 1. gabb, 3. um, 4. samtals,
5. sín, 7. trukkur, 10. ára, 13. sjö, 15.
klám, 16. kaf, 19. ró.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Gunnar Hansson.
2 Sex milljarðar króna.
3 Þorbjörn Jensson.
„Þetta var fínt. Þetta voru bara
einhverjar pylsur og dót sem hann
notaði fyrir putta,“ segir rithöf-
undurinn Þórarinn Leifsson.
Hann vakti mikla athygli á
Forum-bókamessunni í Kaup-
mannahöfn nýverið þar sem hann
kynnti mannætusögu sína Leynd-
armálið hans pabba. Færeyskur
kokkur útbjó fyrir gesti sérstak-
an fingramat sem líktist manna-
kjöti og olli uppátækið öngþveiti
fyrir utan bás forlagsins Torgard
sem gefur út bækur Þórarins í
Danmörku. Einnig var boðið upp
á trönuberjadjús í staðinn fyrir
blóð.
„Fólk var að narta í þetta en
ég hafði ekki mikla lyst á þessu
sjálfur,“ segir Þórarinn, sem var
fárveikur meðan á kynningunni
stóð. „Ég vissi ekkert hvað ég hét.
Við vorum að fara í svolítið þunga
ferð, ég og konan mín (rithöfund-
urinn Auður Jónsdóttir), og ég
fékk svínaflensuna á leiðinni út.
Maður var bara eins og uppvakn-
ingur allan tímann,“ segir hann.
Til að bæta gráu ofan á svart fékk
hann blóðtappa í fótinn þegar
hann kom heim til Íslands. Spiluðu
þar inn í strembin lestarferðalög
erlendis. „Þetta var skrautlegur
nóvembermánuður en ég er að
jafna mig, sem betur fer.“
Leyndarmálið hans pabba fjall-
ar um systkini sem komast að
því að pabbi þeirra er mannæta.
Bókin hefur fengið góðar viðtökur
í Danmörku og hefur útgefandinn
Torgard einnig tryggt sér réttinn
á nýjustu bók Þórarins, Bókasafni
ömmu Huldar. Hún kemur út þar í
landi á næsta ári.
Þórarinn útilokar ekki að
endurtaka mannætuatriði sitt í
öðrum löndum til að kynna Leynd-
armálið hans pabba. Fyrst prófaði
hann það á bókamessu í Bologna
á Ítalíu og hafði upp úr krafsinu
útgáfusamning við þýskt forlag.
„Finnar eru að þýða hana. Ég
hugsa að Finnar hafi húmor fyrir
þessu. Þeir eru með mjög góðan
húmor,“ segir hann og býst við að
bókin komi út þar í landi næsta
haust.
Jafnframt má geta þess að við-
tal við Þórarin birtist í bóka-
blaði danska blaðsins Politik-
en 12. desember næstkomandi
þar sem mannætubókin verður
aðalumræðuefnið. freyr@frettabladid.is
ÞÓRARINN LEIFSSON: MEÐ SVÍNAFLENSU Í DANMÖRKU
Bauð upp á gervimanna-
kjöt í Kaupmannahöfn
„Eftir að ég byrjaði að spila undir
hjá Björgvini hefur mér allt-
af fundist jólin koma eftir þessa
tónleika. Maður kemst í svo mikið
jólaskap,“ segir Magdalena Dubik,
fiðluleikari og fegurðardrottning
Reykjavíkur.
Björgvin Halldórsson verður í
sérlega fögrum félagsskap á jóla-
tónleikum sínum í Laugardalshöll-
inni um helgina því Magdalena
verður hluti af strengjasveitinni
sem spilar þar undir. Það hefur
hún reyndar einnig gert undan-
farin jól sem aukamanneskja í
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
skemmt sér prýðilega. Hún hefur
einnig spilað með Ragga Bjarna
og hljómsveitinni Skítamóral á
tónleikum á Rúbín og hefur því
farið um víðan völl í íslensku
poppi upp á síðkastið. „Það er
rosalega gaman að spila með alls
konar fólki og tónlistin þeirra er
æðislega góð. Ég var alin upp aðal-
lega í klassískri tónlist og það er
öðruvísi að spila popptónlist en
alveg jafn gaman.“
Nýverið kom út mynddiskur með
síðustu jólatónleikum Björgvins
og eins og kannski gefur að skilja
er Magdalena áberandi á stórum
sjónvarpsskjá fyrir aftan Björg-
vin. Hún óttast ekki að skyggja
á sjálfan Bó á tónleikunum um
helgina. „Mér finnst bara gaman
að vera með. Þetta eru algjörlega
tónleikarnir hans.“ - fb
Fegurðardís í félagsskap Bó
MAGDALENA DUBIK Fegurðardrottningin
spilar undir hjá hverjum popparanum á
fætur öðrum hér á landi.
„Twitter er alveg málið í dag,“ segir Íris
Hólm, söngkona í Bermuda. Íris er tónlistar-
maður mánaðarins á bandarísku vefsíðunni
Studio Noize og er þar farið fögrum orðum
um söng hennar, lagasmíðarnar og hljóm-
sveitina. „Daði Georgsson hljóðmaður er
búinn að vera hörkuduglegur að setja mynd-
bönd af hljómsveitinni á netið. Við erum búin
að byggja okkur góðan grunn á Twitter og
við erum með yfir 2.000 aðdáendur,“ útskýr-
ir Íris og segir samskiptavefinn vissulega
skapa tækifæri. „Kona sem heitir Lady Prod-
ucer skrifar á Studio Noize síðuna og var
rosalega hrifin af laginu sem við gáfum út í
sumar, Dreaming of Bermuda. Við höfum líka
fengið fyrirspurnir á Twitter frá litlum plötu-
fyrirtækjum sem vilja forvitnast um hvort
við séum að plana að koma til Bandaríkjanna.
Þótt maður taki öllu með hógværð er rosalega
gaman að fá svona viðbrögð,“ bætir hún við.
Íris gekk til liðs við hljómsveitina fyrir
rúmu ári og hefur verið iðin við að semja
texta bæði á íslensku og ensku. „Eftir að
mannabreytingar urðu í hljómsveitinni fórum
við að íhuga að búa til tónlist fyrir fleiri
en Íslendinga og við höfum sett stefnuna á
erlendan markað. Boltinn er farinn að rúlla
hér heima og líka úti að okkur sýnist. Þótt það
sé ekki í bígerð núna væri rosalega gaman að
fara á tónleikaferðalag úti. Ég hef til dæmis
aldrei komið til Bandaríkjanna svo það væri
alveg brilljant að fara þangað,“ segir Íris,
sem er önnum kafin við tónleikahald með Ber-
muda, en upplýsingar um sveitina má finna á
bermuda.is og á twitter.com/bermudaz.
Bermuda vekur athygli á Twitter
VEKUR ATHYGLI Hljómsveitin Bermuda er með yfir
2.000 fylgjendur á Twitter-síðu sinni og hefur vakið
athygli útgefenda og veftímarita í Bandaríkjunum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
NAMMI NAMM! Þórarinn Leifsson bauð upp á fingramat sem líktist mannakjöti á
bókamesssu í Kaupmannahöfn nýverið. Hann man reyndar lítið eftir veislunni enda
voru bæði hann og eiginkonan, Auður Jónsdóttir, komin með svínaflensu þegar
þau lentu í Kaupmannahöfn.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Morgunblaðið
greindi frá því
í gær að tón-
listarmann-
inum Ben
Frost, sem
hefur verið
búsettur á
Íslandi
síðastliðin
fjögur
ár, var
synjað
um framlengingu á landvistarleyfi.
Að sjálfsögðu var stofnaður stuðn-
ingshópur undir heitinu Keep our
Ben Frost in Iceland á samskipta-
síðunni Facebook þar sem þess er
krafist að Frost fái að dvelja áfram
á landinu.
Sjónvarpsmaðurinn
Egill Helgason
er kominn til
Berlínar og ætlar
hann að sjá
tónleika
með Paul
McCartn-
ey. Sem
betur
fer fyrir
Egil þá
er Berlín
með
ódýrari
borgum í Evrópu svo kortunum
hans hans ætti ekki að blæða
svo. Það er líka ýmislegt á sig
leggjandi til að sjá Palla bítil, sem
er orðinn 66 ára.
Og meira af Þýskalandi því fylkis-
sjónvarpsstöðin í Hessen ætlar
að sýna þrjá þætti um vetrarríkið
Ísland í næstu viku.
Þættirnir eru
styrktir af
Icelandair en
það er Arthúr
Björvin Bolla-
son sem er kynnir
þeirra. Meðal
þeirra fjölmörgu
sem þar koma
fram eru Einar
Kárason, Páll
á Húsafelli
og Kjartan
Ragnarsson.
- sm, drg, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
M
YN
D
/N
ILS B
JER
VIG
/B
O
G
M
A
R
K
ED
ET