Vikan - 02.03.1961, Qupperneq 18
Fáeinar hárgreiðslur
Nú er kvenfólk farið að leita sér ör-
lítillar tilbreytingar frá sléttu og
stuttu greiðslunni. Hún er ekki leng-
ur eins og hjámur í öllum tilfellum.
Þessar fjórar greiðsur hér eru ný-
komnar frá París og eru í stuttu
máli sagt mjög smekklegar, en engin
af stúlkunum er með hár, sem nær
niður á herðar, ekki enn þá. Og at-
hugið, að „túberingar“ eru ekki not-
aðar við neina af greiðslunum, og
reyndar eru £ær löngu úr sögunni í
tízkumiðstöðvunum, £ó að fólk yfir-
leitt sé lengi að sætta sig við það.
1B VIKAN
GILBEHX ROY
Léttar kápur
Nú, þegar daginn er farið að lengja
og vorið er ekki svo ýkjalangt undan,
langar áreiðanlega margar konur til
að fá sér léttari kápur. Nú þarf ekki
lengur eingöngu að hugsa um skjólið
í flíkunum, við getum farið að rétta
úr okkur óg líta í kringum okkur.
Hér eru örfáar mvndir af léttum og
nvtzkulegum yfirhöfnum.
Smekkleg kápa úr ryðrauðu tweed-
pfní. Einfaldleiki kápunnar gerir
hana mjög glæsiiega. Stórir, flösku-
vrænir hnappar og taska og hanzkar
? sama lit undirstrika einfaldleika
kápunnar.
Þessi þrískipta og fallega dragt
er úr grænni og svartri Shetlands-
ull. Þilsið er þröngt, og jakkinn fell-
ur lauslega um mittið. Sjalið er jafn-
sítt pilsinu, þegar það er lagt yfir
berðarnar, og með kögri að neðan.
Þröng, flöskugrænt pils úr ullarefni
og jakki, sem nær niður á mjaðmir,
en að aftan verður jakkinn jafnsíður
og kápa. Hár skinnkragi. Dragtar-
kápa þessi minnir mikið á kjólföt,
en hað snið virðist nokkuð ryðja sér
rúms í kvenfatnaði.
Bast
Hér koma tveir ein-
faldir og skemmtilegir
hlutir, fléttaðir úr garð-
basti.
Byrjið á að leggja
bastið í bleyti í um
klukkutima. Þá verður
það mjúkt og eftirgefan-
legt. Takið 15 þræði af
basti í fléttuna, og skipt-
ið þeim í þrjár 5 þráða
samstæður, og hnýtið
saman. Byrjið síðan að
flétta, og fléttið hvorki
of fast né of laust. Hald-
ið nú áfram að flétta,
þar til endarnir fara að
þynnast og verða ójafn-
ir. Þá eru aftur fundnir
15 þræðir og þeim skipt
niður eins og hinum,
síðan fléttaðir við flétt-
una, svo að lítið beri á.
-- Ágætt er að hafa sam-
skeytin með um 6 cm millibili. Byrjið á
að leggja fyrstu nýju þráðarsamstæðuna
yfir þá, sem stytzt er í fléttunni, og látið
endana standa út fyrir. Fléttið áfram um
3 brugðninga, en látið þá gamla þráðinn
út úr fléttunni; þá á nýi þráðurinn að vera
nægilega fastur.
Fléttið nú áfram, og gerið ný samskeyti
á sama hátt. Haldið áfram að flétta um
3% m langa fléttu í körfuna og 4 m langa
í vagninn (gjarnan eina 7% m langa
fléttu). Breidd fléttunnar á að vera um
1—2 cm.
Takið nú fléttuna, og klippið alla enda
af, og þurrkið hana með strokjárni. Viss-
ara er að hafa léreftsstykki á milli strok-
járnsins og fléttunnar, til Þess að hún
dökkni ekki um of. Við þessa aðferð verður
fléttan flatari og um leið þægilegri til
mótunar.
Framhald á bls 32.
VUCAN 23