Vikan


Vikan - 02.03.1961, Síða 35

Vikan - 02.03.1961, Síða 35
—- Ég hélt, að þú hefðir áhyggjur af Nancy, sagði Emily. — Já, ég hef áhyggjur af Nancy! Þú lætur þér þó ekki til hugar koma, að ég muni láta hana vera eina í þessu bátaskýli? Emily svaraði ekki strax. — Nei, það held ég ekki, sagði hún síðan — En ef þú spillir þvi, sem er svo fagurt, Walter Fenton, máttu reiða þig á, að daginn, sem Nancy giftist, skil ég við þig. Og þá situr þú einn uppi, gamall, illgjarn nöld- urseggur. Og nú ætla ég að fara að hátta, ég hef hugsað mér að sofa. Emily gekk hnarreist upp stigann. Hvort hún var reið eða glöð, gat Walter Fenton ekki dæmt um. Hún gekk ætíð um á sama hátt, hvernig svo sem henni var innanbrjósts. Walter Fenton sat enn nokkra stund og horfði niður í gólfið, — svo gekk hann út og í áttina til bátaskýlisins. Fljótlega veitti hann því eftirtekt, að mölin brast undan skósólum hans, og hann laut niður og tók af sér skóna. Mölin særði hann í iljarnar, en hann laumaðist bak við bátaskýl- ið, án þess að hans yrði vart. Jimmie var auðheyrilega nýkominn. Hann heyrði rödd Nancy: — Jimmie, ert það þú? .—• Já, ... ert það þú, Nan? — Hver í ósköpunum ætti Það ann- ars að vera? — Ne — nei, en maður getur aldrei vitað ... Það er naumast, að það er myrkur hérna inni. Hvar ertu, Nan? — Ég sit hérna megin. — Komdu hingað. — Nei, kom Þú hingað. Walter Fenton vissi aldrei, hvort færði sig til hins. — Hugsaðu þér ... Þetta er sein- asti dagurinn okkar, Nan. Eg vildi óska, að ég þyrfti ekki að fara heim í skólann og allt það. Ferð þú líka í skóla, þegar Þú kemur heim, Nan? — O, ég veit það ekki. Ég hef ekki ákveðið það enn þá. Líklega geri ég það samt. — Ætlar þú að skrifa mér, Nan? — Já, ef þú skrifar mér fyrst, — annars ekki. — Ég ætla að skrifa þér á hverjum degi, Nan. — Þú segir þetta bara. — Nei, það get ég svarið, Nan. Ég hef aldrei á ævinni sagt þetta áður ... Það er að segja, — aðeins einu sinni. En ég var fljótur að jafna mig eftir það. — En þú sagðir mér, að þú hefðir aldrei kysst aðra stúlku en mig. — Það hef ég ekki heldur, Nan, — það var ekki hægt að kalla það koss. Það var alls ekki eins ... eins og að kyssa Þig. Viltu kyssa mig núna, Nan? — Ég er ekki alveg viss um, hvort ég á að gera Það. — Hver veit Það, ef þú veizt það ekki? — Mamma mín. — Hún veit víst allt. Þú átt lík- lega góða móður, Nan ... En viltu þá kyssa mig? — En pilturinn kyssir alltaf fyrst. — Já, en þá ... Þá verð ég að kyssa þig fyrst, Nan. — Hm, hm? Walter Fenton leið eins og hann væri úti í kirkjugarði. Hann vissi ekki, hver kyssti hvern. — Þarna sérðu, Nan. Það varst Þú, sem gerðir Það. — Nei, það er ekki satt, það varst þú, sem kysstir mig. — Kannski gerðum við það bæði. Þögn. Walter Fenton vildi komast burt. En hann var orðinn svo stirður í hnjánum, að hann þorði sig hvergi að hræra. — Heyrðu, Nan. Hvernig væri það, ef við gætum kysst hvort annað eins og okkur langar til? — Við yrðum fljótt þreytt á því. — Ekki ég, það get ég svarið, Nan. Þögn. — Heldur þú, að þú yrðir ekki leiður af ... þvl? MALMGLUGGAR f/f Lælvjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022. — Aldrei, Nan. — Viltu lofa mér nokkru? — Já, hverju sem er. — Viltu lofa mér því að kyssa aldrei aðra stúlku, nema ég leyfi þér það? —- Mig langar ekki til að kyssa neina aðra en þig. — Er það alveg vist? — Alveg víst. Vilt þú lofa mér þvi sama? — Já, ef mamma mín segir, að ég megi það. — Nú kyssi ég þig aftur, Nan. — Heldur þú kannski, að einhver hindri það? Þögn. — 1 þetta sinn gerðum við það þó bæði, var það ekki, Nan? — Jú, það er víst. — Nan, það er langt til næsta sumars, finnst Þér það ekki? — Ekki, ef þú skrifar mér. Þögn. — Jimmie, þú verður að fara núna. — Svona fljótt? — Já, Jimmie, ég ... ég er að fara að gráta — Ó, Nan. — Vertu svo góður að fara, Jimmie. Ég ætla að gráta. — Já, en Nan! — Kysstu mig einu sinni enn, — og svo ætlar þú að fara, er það ekki? Þögn. * — Vertu sæl, Nan. — Vertu sæll, Jimmie. Þögnin þyrmdi yfir Walter Falton. Svo heyrði hann fótatak Jimmies I mölinni. Honum leið einkennilega, hann var eitthvað svo undarlegur og innantómur. Hann fann, að einhvern tíma á lifsleiðinni hafði hann farið á mis við eitthvað, sem hann gæti aldrei bætt sér upp. Hann óskaði þess af öllu hjarta, að hann hefði átt það með Bmily, og hann fann til dapur- legrar öfundar í garð þessa unga pilts, sem hafði hlotnazt það. Hann braut heilann um, hver það hefði ver'ð Hann heyrði að Nancy gekk út á bryggjuna, og gægðist úr fylgsni sínu. Hún settist yzt á bryggjuna og horfði á mánann, sem var að koma upp. Þegar Walter læddist á sokkaleist- unum niður að bryggjunni, heyrði hann fótatak Jimmies fjarlægjast. Hann gekk varlega út á bryggjuna, en eitt borðið marraði undan þunga hans. — Þú lofaðir að koma ekki aftur, Jimmie, sagði Nan. —■ Þetta er ekki Jimmie, Nan, sagði Walter Fenton. — Það er bara ég. — Ó, ert það Þú, pabbi. Walter Fenton settist við hlið dótt- ur sinnar. 1 tunglskininu sá hann, að vangi hennar var tárvotur. Hann tók varlega utan um hana. — Ég gleymdi að spyrja hann um eftirnafnið, pabbi — Það gerir ekkert til, vina min, sagði Walter Fenton. — En hann kemst ekki hjá því að skrifa það á bréfin til mín, er það, pabbi? — Auðvitað gerir hann það, sagði Walter Fenton. — Nancy sat kyrr og sagði ekki neitt. Hún vafði handleggjunum um hnén. Það var rétt eins og máninn brosti við henni. — Er ekki veröldin dásamleg, pabbi ? — Jú, vina mín, hún er dásamleg. — Og heldur hún ekki alltaf áfram að vera það, pabbi? — Jú, ég vona það, elskan min, ég vona það. Nancy andvarpaði djúpt og sagði: — Ó, pabbi, ég vildi óska, að mán- inn og allt stæði S stað um alla ei- lífið. Getur þú ekki komið því til leið- ar, pabbi? — Ég skal reyna, væna mín. Og einhvern veginn tókst Walter Fenton að láta mánann standa kyrr- an eitt andtartak. ENDIR. Nýtt útlit Nú tækni Málmgluggar fyrir verzlan- ir og skrifstofubyggingar í ýmsum litum og formum. Málmgluggar fyrir verk- smiöiubyggingar, gróður- hús, bílskúra o fl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.