Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 11. desember 2009 11
REYKJAVÍK Borgarfulltrúi Sam-
fylkingar vill vita hvað eigi að
koma í staðinn fyrir núverandi
fyrirkomulag
brunavarna
á Reykjavík-
urflugvelli,
en Flugstoðir
hafa boðað að
setja á stofn
sinn eigin við-
bragðshóp í
stað slökkvi-
liðsmanna.
Borgarfull-
trúinn, Dagur
B. Eggertsson, segir þetta vekja
spurningar um hvort flugvöllur-
inn ætli að reiða sig á viðbúnað
slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins áfram, án þess að greiða
fyrir „þann viðbúnað sem nauð-
synlegur er vegna reksturs
flugvallar inni í miðri borg“.
Um þetta lagði Dagur fram fyr-
irspurn í níu liðum í borgarráði
í gær. - kóþ
GARÐABÆR Grunnþjónusta verður
ekki skert, gjaldskrár hækka ekki
og öll störf verða varin, samkvæmt
fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir
næsta ár. Mæta á fyrirséðum sam-
drætti í tekjum með sparnaði og
hagræðingu í rekstri stofnana.
Gert er ráð fyrir að tekjur drag-
ist saman um 7-8 prósent á milli
ára og að útsvarstekjur verði tæp-
lega 3,6 milljarðar. Áætlanir gera
ráð fyrir rekstrarafgangi upp á 67
milljónir króna.
Í frétt á heimasíðu Garðabæjar
kemur fram að skuldastaða bæjar-
ins sé góð og að nánast allar skuld-
ir séu í íslenskum krónum. Lang-
tímaskuldir nema um 2,1 milljarði.
Til stendur að greiða niður skuld-
ir um 340 milljónir á næsta ári.
Framkvæma á fyrir um 450 millj-
ónir án lántöku.
Hvorki stendur til að hækka
útsvarshlutfallið, en það er 12,46
prósent, né fasteignagjöld.
Auka á fjárveitingar til barna-
og unglingastarfs og lögbundinna
verkefna um félagslegt öryggi og
velferð.
Halda á áfram þeim aðhaldsað-
gerðum sem gripið var til á þessu
ári og er ekki talin þörf á sérstök-
um aðgerðum þar til viðbótar. Í
þeim fólst meðal annars lækk-
un launa stjórnenda. Verða þau
óbreytt út næsta ár.
Í fjárhagsáætluninni var tekið
mið af áherslum þeim sem lagðar
voru til grundvallar á opnum íbúa-
fundi.
- bþs
Mæta á tekjusamdrætti í Garðabæ með sparnaði og hagræðingu hjá stofnunum:
Þjónusta ekki skert og öll störf varin
FRÁ GARÐABÆ Útsvar í bænum verður
óbreytt á næsta ári.
BRETLAND Maður vopnaður skamm-
byssu með hljóðdeyfi var hand-
tekinn við heimili Tonys Blair,
fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, við Connaught Square
í London, fyrr í vikunni. Vegfar-
endur veittu manninum athygli og
tilkynntu lögreglu um hann. Þegar
lögregla kom á staðinn mætti hún
manninum, sem er af albönsk-
um uppruna, og kvaðst hann hafa
fundið byssuna í ræsinu. Maðurinn
var handtekinn og reyndist byssan
hlaðin. Hann er enn í haldi lögreglu
sem bíður eftir niðurstöðum úr
fingrafara- og DNA-rannsókn. Lög-
regla segir Blair aldrei hafa verið í
hættu. - asg
Albanskur maður í Bretlandi:
Með byssu við
heimili Blairs
STJÓRNSÝSLA Setning heilbrigðis-
ráðherra á gjaldskrá Lyfjastofn-
unar var ekki í samræmi við lög,
samkvæmt áliti umboðsmanns
Alþingis þar sem ekki lágu nægi-
lega traustir útreikningar að baki
gjaldskránni.
Kvartað var til umboðsmanns
yfir gjaldskránni, meðal annars
því að einstaka kostnaðarliðir
hafi ekki verið reiknaðir út með
traustum og vönduðum hætti.
Umboðsmaður taldi sig ekki
hafa forsendur til að fullyrða
hvort gjöldin hefðu verið ákvörð-
uð of há, þar sem útreikningar
ráðuneytisins hefðu ekki verið
fullnægjandi. - bj
Álit umboðsmanns Alþingis:
Lyfjagjaldskrá
ekki lögmæt
DAGUR B.
EGGERTSSON
Sparnaður í brunavörnum:
Vill vita um
flugöryggið
ORKUMÁL Stjórn Samorku, sam-
taka orku- og veitufyrirtækja,
mótmælir ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar um að leggja nýja skatta
á raforku og heitt vatn, skatta
sem draga munu úr lífsgæðum
landsmanna og samkeppnishæfni
íslensks atvinnulífs, eins og segir
í tilkynningu frá samtökunum. Þá
segir að nýju skattarnir dragi úr
gegnsæi verðlagningar á raforku
og heitu vatni.
„Aldrei hafa áður verið lagðir
beinir skattar á raforku eða heitt
vatn hér á landi. Frumvarpið
vísar til „umhverfis- og auðlinda-
skatta“, en fjallar um hvorugt,
heldur er þetta einfaldlega skatt-
ur á orkunotkun landsmanna, til
tekjuöflunar í ríkissjóð,“ segir í
tilkynningu frá Samorku.
Stjórn Samorku:
Mótmælir nýj-
um sköttum á
orku og vatn
DANMÖRK Tæplega sjötugur íbúi
í Frederiksberg á Sjálandi kom
í veg fyrir rán á heimili sínu á
miðvikudagskvöld og stökkti
ræningjanum á flótta.
Þegar dyrabjöllu mannsins var
hringt stóð þar fyrir utan stór-
vaxinn maður með hníf sem hann
otaði að íbúanum. Sá nýkomni
ætlaði svo að ryðja sér leið inn í
íbúðina en þá sló gamalmennið
hann í brjóstið og stuggaði við
honum.
Ræninginn lagði til manns-
ins með hnífnum og veitti honum
skeinu á höfuðið en forðaði sér
við svo búið á hlaupum og hefur
lögregla ekki fundið hann enn.
- asg
Eldri borgari í Danmörku:
Lumbraði á
hnífamanni
Þú getur komið með þína gjöf í næsta útibú og við
komum henni í réttar hendur. Aðstaða til pökkunar
á staðnum. Gjafirnar eru ætlaðar börnum að 18 ára
aldri og verður úthlutað innan þess sveitafélags
sem þær berast.
Gjafasöfnun
Hjálparstarfs kirkjunnar og
Mæðrastyrksnefndar í útibúum
Íslandsbanka um land allt
Reykjavík og nágrenni:
Háaleitisbraut 58
KirkjusandiKringlunni 4-6
Lækjargötu 12
Suðurlandsbraut 30
Stórhöfða 17
Þarabakka 3
Eiðistorgi 17, Seltjarnarnesi
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Garðatorgi 7,Garðabæ
Hamraborg 14a, Kópavogi
Þverholti 2, Mosfellsbæ
Landsbyggðin:
Hafnargötu 91, Reykjanesbær
Dalbraut 1, Akranesi
Hafnarstræti 1, Ísafirði
Skipagötu 14, Akureyri
Stóragarði 1, Húsavík
Miðvangi 1, Egilsstöðum
Búðareyri 7, Reyðarfirði
Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum
Austurvegi 9, Selfossi
Samstarfsverkefni Starfsmannafélags Íslandsbanka,
Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar.
Útibúin okkar eru á eftirfarandi stöðum: