Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 32
eins og dæmi frá Evrópu og Banda-
ríkjunum sanna.
Vilhjálmur: Punkturinn með
pistlinum hjá mér var að benda á
að Svartfjallaland er ekki fordæmi
fyrir okkur, eins og haldið hefur
verið fram í umræðu. Það sem
Heiðar er að tala um er tilraun sem
mér vitanlega hefur hvergi verið
reynd og er í rauninni eitt stórt
plat að því leyti að ekki er um að
ræða einhliða upptöku alvöru evru
heldur einhvers sem menn kjósa
að kalla evru. Síðan er vonin sú að
fólk „kaupi“ platið í nægilega mikl-
um mæli til að það fljóti í einhvern
tíma í það minnsta.
Heiðar: Aftur ferðu með rangt
mál Vilhjálmur. Þegar ég er nýbú-
inn að telja upp mörg ríki þar sem
einhliða upptaka hefur heppnast
stórvel segir þú að þetta sé tilraun
sem hvergi hafi verið reynd. Það er
ekki hægt að ræða með rökum við
menn sem eru blindir á allt annað
en pólítískt ætlunarverk sitt; að
koma Íslandi í ESB.
Ég hef ekkert á móti ESB, en
menn eiga að fara þangað á tveim-
ur fótum og leita að samningi, ef
vilji er fyrir hendi, en ekki fjór-
um. Ef aðalástæðan er að fá fyr-
irgreiðslu hjá ESB er betra heima
setið en af stað farið.
Evrur, krónu og skeinipappír
Vilhjálmur kýs að kalla allar evrur
sem ekki eru í evrulöndum sem
platevrur. Þegar menn skilja ekki
einföldustu uppbyggingu banka-
kerfa er hægt að kalla alla pen-
inga plat, nema þá sem hönd á
festir, seðla og mynt. Allir hlutir
hafa verð. Verði í evrum, krónum,
skeinipappír og ýmsu öðru. Það er
ekkert vandamál að setja evruverð
á krónueignir.
Til Íslands hafa komið þeir sem
hafa framkvæmt einhliða upptöku
upp á síðkastið, Manuel Hinds, yfir-
maður hjá AGS sem einn sá fyrir
hrun Sovétríkjanna þar á bæ og
framkvæmdi skiptin í El Salvador.
Alonzo Perez sem framkvæmdi
skiptin hjá Ecuador, og starfar
nú hjá London School of Econom-
ics, og Daniel Gros, sem var einn
af arkitektum evrópska myntsam-
starfsins og framkvæmdi skiptin
fyrir Svartfellinga.
Andri Haraldsson: Heimur-
inn hefur áður reynt fastengingu
gjaldmiðla og stundum hefur það
virkað þegar ein þjóð festir gengi
sitt við annan gjaldmiðil, og stund-
um ekki.
Það sem Heiðar hefur verið
að tala um er að ganga skref-
inu lengra en að bara festa geng-
ið við einhvern gjaldmiðil – hann
vill í raun byggja nýjan gjaldeyr-
isforða í erlendri mynt, og lifa svo
og hrærast í þeirri mynt. Það þýðir
um leið að íslenski seðlabankinn
sem úrræði hættir að vera til. Það
þýðir líka að fjárfestingar á Íslandi
verða verðlagðar með öðrum hætti.
Á endanum myndum við ætla að
fjármagnsflæði til og frá Íslandi
myndi stjórnast af ytri þáttum með
meiri hætti en nú er.
AGS mælir með einhliða upptöku
Vandamálið sem Vilhjálmur bendir
á er raunverulegt og engin leið að
horfa framhjá því. Væri mat Seðla-
bankans krónunni í óhag þegar
krónunum væri skipt í evrur væri
í raun verið að stela peningum af
almenningi. Ef það væri evrum í
hag myndi gjaldeyrisforðinn hugs-
anlega tæmast.
Heiðar: AGS er ekki svartsýnni
en svo á einhliða upptöku að sjóð-
urinn mælti sérstaklega með henni
í skýrslu í vor fyrir ríki í Austur-
Evrópu. AGS hefur sagt á fundum
á Íslandi að þeir myndu ekki setja
sig upp á móti slíku. Lánin þeirra
væru því enn til staðar, en ódreg-
in. Gjaldeyrisforði, og varaforði
banka, er þannig stærð að svo lengi
sem menn telja hana duga, er hún
óþörf. Á sama hátt ef menn telja
forðann of lítinn, er sama hvern-
ig hann er nýttur, þá verður allt-
af áhlaup.
Andri: Ég held ég skilji það sem
þú segir sem svo: skipt er nægi-
lega hratt um gjaldmiðil og ekki
lagt í langtíma aðlögunarferli
með skiptingu á krónum í evrur,
þá leysist vandamálið vegna þess
að það myndast ekkert tækifæri
til að stunda skortsölu í krónum
– þær væru einfaldlega ekkert til.
Og vegna þess að svo mikill hluti
peningamagnins er bundinn verð-
ur ekkert uppnám. Fólk fer bara
að nota evrur. Ég er ekki viss
um að þetta sé rétt, en látum það
standa.
En hvað með bankastarfsemi?
Hvað með lán sem eru í krón-
um? Hvað með þau peningamark-
aðstæki sem Ísland hefur notað
í gegnum gengisfellingar til að
draga úr neyslu? Það sem ég sé
ekki að fullu útskýrt er hvernig
þetta muni hjálpa eða hindra fyr-
irtækin og fólkið í landinu.
Vilhjálmur: Þegar ég segi að
þetta hafi hvergi verið reynt, þá á
ég við einhliða upptöku með þeim
hætti sem þú lýsir – ekki til að
mynda það sem var gert í Svart-
fjallalandi, sem var allt annað. Í
þeim dæmum sem þú nefnir þá
voru stórir hlutar hagkerfanna
þegar komnir í aðra mynt í reynd
og miklu minni stabbi af gömlu
myntinni sem þurfti að verja með
varasjóðum. Í íslenska dæminu þá
er upphæð kviks fjármagns miklu
stærri hlutfallslega miðað við
gjaldeyrisvarasjóðinn, sérstak-
lega ef verið er að tala um nettó-
sjóðinn.
Hvatt til hraðupptöku evru
AGS mælti ekki með einhliða upp-
töku evru í Austur-Evrópu með
þessum hætti sem hér er lýst,
heldur hvatti ESB til að skoða
hraðupptöku alvöru evru í þessum
ríkjum, sem er einmitt það sem ég
vildi gjarnan sjá á Íslandi.
Heiðar: Í apríl lak skýrsla AGS
til Financial Times. Þar var mælt
með einhliða upptöku evru ef ekki
fengist fyrirgreiðsla hjá ECB.
Allt þetta tal um lánveitanda
til þrautarvara er sérkennilegt.
Seðlabanki Íslands var enginn lán-
veitandi til þrautarvara. Hann dró
úr peningamagni í umferð þegar
mest á reyndi, í krónum, og útveg-
aði engan gjaldeyri. Eins er ECB
enginn lánveitandi til þrautarvara,
heldur ríkin í hverju landi, sem
ekkert seðlaprentunarvald hafa.
Þú heldur því síðan fram að
Ísland sé ekki þegar búið að kasta
krónunni, líkt og önnur lönd hafa
sagt skilið við sínar myntir og svo
tekið upp einhliða aðrar. Hvern-
ig útskýrir þú þá að 90 prósent
íslenska bankakerfisins voru í
annarri mynt en krónu? Íslenskt
atvinnulíf bar ekki krónuna og
vildi því frekar notast við aðra
mynt, þannig varð til fjármála-
kerfi og skuldbindingar í allt ann-
arri mynt en Seðlabankinn réði
yfir. Þegar svo er komið er lang-
hreinlegast að taka upp þá mynt
sem flestir notast við í fjármögn-
un sinni.
Með því að skipta út grunnmynt-
inni er gengisáhættu eytt. Með því
lækka vextir og verðbólga hverf-
ur. Með því eykst aðgangur að
fjármagni svo um munar og hægt
er að lyfta fjármagnshöftum.
Í dag eru tvær leiðir til að skipta
út grunnmynt. Annars vegar pólit-
ísk leið sem er að sækja um aðild
að myntsamstarfi, og hins vegar
markaðsleið, sem er hreinlega
að nota þá fjármuni sem til stað-
ar eru og skipta út myntinni ein-
hliða. Pólitíska leiðin tekur um
áratug, lengur ef IceSave verð-
ur samþykkt, en hin tekur nokkr-
ar vikur.
Vilhjálmur: Í frétt Financial
Times um skýrslu AGS varðandi
hraðupptöku evru í Austur-Evr-
ópu kemur fram að þar var um að
ræða evruupptöku í samvinnu við
ECB en án þess að ríkin fengju
sæti í bankaráði bankans og án
þess að uppfylla Maastricht-skil-
yrðin.
Ekki á vetur setjandi
Alvöru evruvæðing er góð, en
„evru væðing“ þar sem íslenskar
krónur eru skírðar nýju nafni er
ekki á vetur setjandi og lokar val-
kostum okkar til framtíðar.
Heiðar: Ég hef persónulega rætt
við yfirmann stækkunarmála
EMU, Massimo Suarvi, í Brussel.
Hann segir að ESB myndi aldrei
styðja einhliða upptöku, en það
væri lítið sem þeir gætu gert á
móti henni.
Michael Emmerson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri „fjármálaráðu-
neytis“ ESB og einn af arkitektum
regluverks fjármálamarkaðarins
hjá ESB, skrifaði grein í Frétta-
blaðið þar sem hann sagði að ESB
myndi aldrei styðja þetta opinber-
lega, en ekki heldur geta neitt gert
í málunum.
Eftir að hafa rætt við yfirmann
lagastofnunar ESB er alveg krist-
altært að það er ekkert í EES-
samningnum sem bannar okkur
að gera þetta og ekkert sem heim-
ilar riftun ESB ef Ísland tekur
upp evru einhliða. Það er engin
„alvöru“ og „plat“ evruvæðing.
Munurinn er bara sá hvort farin
er markaðsleið, sem tekur nokkr-
ar vikur, eða stjórnmálaleið sem
tekur meira en áratug.
Andri: Ég er ekki viss um að
nokkur geti með einföldu móti lýst
hér öllum kostum og göllum þess-
arar hugmyndar. Það helgast fyrst
og fremst af því að það eru ýmis
útfærsluatriði sem skipta miklu
máli og að til að skilja þessi atriði
þarf að sannreyna þau í dýnamísku
umhverfi þar sem aðilar kerfisins
bregðast við ákvörðunum.
Það er til einföld aðferðarfræði
sem myndi hjálpa til við þetta. Í
stað fyrirlestra og orðræðu til að
sannfæra fólk væri hægt að nota
vel reynda aðferðarfræði sem
byggist á því að hópur fólks sem
hefur ákveðnar vinnureglur og
skyldur kemur saman. Fyrst er
tryggt að allir skilji hvernig verk-
efnið fer fram. Svo eru settar af
stað ákveðnar aðstæður sem á að
bregðast við. Sérfræðingar og þátt-
takendur gefa síðan upplýsingar
um hvernig þeir myndu bregðast
við breyttri stöðu. Þannig mynd-
ast mjög góður grunnur um hvern-
ig svörunin yrði í raunveruleikan-
um – og ekki síst hvað það er sem
getur ýtt af stað keðjuverkandi
mistökum.
Ef það er raunverulegur áhugi
fyrir að meta þessa hugmynd um
einhliða upptöku evru gæti svona
verkefni leyft öllum að fara i gegn-
um ferlið án þess að þurfa að leggja
að veði hag landsins, og með tiltölu-
lega ódýrum hætti.
Heiðar: Ég er algerlega sammála
þessari hugmynd. Þá gæti Sam-
fylkingin líka afsannað að þeim
sé meira umhugað um ESB en hag
almennings. Charles Goodhart og
Charles Wyplosz, sem eru fremstu
peningahagfræðingar Evrópu,
væru örugglega tilbúnir að leggja
hönd á plóg. Svo væri hægt að nota
Daniel Gros, sem er sérfræðingur í
framkvæmdinni og er hér hvort eð
er reglulega að leggja Seðlabank-
anum heilt til.
FRÉTTASKÝRING: Einhliða upptaka evru
VEGIÐ OG METIÐ Möguleikar á einhliða upptöku evru hafa verið í umræðunni hjá fólki hér á landi lengi. NORDICPHOTOS/GETTY
FRAMHALD AF SÍÐU 30
Vilhjálmur Guðjónsson:
Ég er sammála um brýna nauðsyn
þess að Ísland taki upp aðra mynt,
og alla kosti þess, en tel að það
verði að gerast á réttan og viðeig-
andi hátt: með alvöru upptöku evru
og útskiptingu krónu í boði ECB.
Annað er bara óraunhæf spilaborg
sem getur ekki gengið í praxís.
Andri Haraldsson:
Væri mat Seðlabankans krónunni
í óhag þegar krónunum væri skipt
í evrur væri í raun verið að stela
peningum af almenningi. Ef það
væri evrum í hag myndi gjaldeyris-
forðinn hugsanlega tæmast.
Heiðar Guðjónsson:
Í dag eru tvær leiðir til að skipta út
grunnmynt. Annars vegar pólitísk
leið sem er að sækja um aðild
að myntsamstarfi, og hins vegar
markaðsleið, sem er hreinlega að
nota þá fjármuni sem til staðar eru
og skipta út myntinni einhliða.
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
LISTAVERKABÓK Á HEIMSMÆLIKVARÐA
KRISTINN E. HRAFNSSON
FRÉTTASKÝRING
BRJÁNN JÓNASSON
brjann@frettabladid.is