Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 109
FÖSTUDAGUR 11. desember 2009 81
FÓTBOLTI Þýska goðsögnin Matt-
hias Sammer segir að Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, beri ekki
næga virðingu fyrir Meistara-
deildinni og það hafi sýnt sig í
gær er hann tefldi fram því sem
Sammer kallar leikskólalið.
Ungir og óreyndir leikmenn
eins og Kerrea Gilbert, Kyle
Bartley, Jack Wilshere og Tom
Cruise fengu að reyna sig í gær
gegn Olympiakos. Arsenal tap-
aði, 1-0, en það breytti engu fyrir
liðið enda var það komið áfram.
Tapið gerði það aftur á móti að
verkum að gríska liðið komst
áfram á kostnað Standard Liege.
Sammer er afar ósáttur við
vinnubrögð Wengers og segir að
hann geri lítið úr deildinni með
háttalagi sínu.
„Ég er afar svekktur með
það sem Wenger gerði. Þetta er
Meistaradeildin, ein mikilvæg-
asta keppnin í heiminum, og hann
mætir til leiks með eitthvert leik-
skólalið,“ sagði Sammer hneyksl-
aður.
„Hann má það vissulega en
ég get ekki borið virðingu fyrir
þessari ákvörðun. Mönnum ber
að sýna meiri virðingu en þetta
fyrir keppninni.“ - hbg
Matthias Sammer:
Vanvirðing að
mæta með leik-
skólalið
WENGER Stjóri Arsenal er ekki allra.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Fari svo að Sol Campbell
gangi í raðir Manchester United
verður það ekki í fyrsta skipti sem
Sir Alex Ferguson tekur áhættu
með eldri leikmenn. Nánast alltaf
hefur Ferguson tekist að mjólka
þessa leikmenn allt fram á síðasta
söludag með góðum árangri.
Þessir leikmenn hafa hreinlega
blómstrað undir verndarvæng
Fergusons og spilað á toppnum
lengur en menn áttu von á. Á síð-
ustu árum hefur Ferguson veðjað
á leikmenn eins og Teddy Sher-
ingham, Henrik Larsson, Laurent
Blanc og Edwin van der Sar. Allir
voru þeir komnir yfir þrítugt er
Ferguson fékk þá á Old Trafford.
Sheringham fékk það erfiða
verkefni að leysa Eric Cantona af
hólmi árið 1997 er hann var 31 árs.
Hann blómstr-
aði hjá félaginu
þó svo að Unit-
ed hafi ekki
unnið neinn
titil fyrsta árið
hans hjá félag-
inu. Var Sher-
ingham meðal
annars valinn
leikmaður árs-
ins eitt árið en
flestir muna þó helst eftir jöfnun-
armarkinu hans gegn FC Bayern í
Meistaradeildinni árið 1999.
Van der Sar hefur verið frábær
frá því hann kom til félagsins en
hann var þá 34 ára. Henke Larsson
var 35 ára er hann kom á Old Traff-
ord. Hann staldraði ekki lengi við
en framlag hans var ómetanlegt og
United stóð uppi sem meistari.
Laurent Blanc var kannski ekki
eins farsæll og áðurnefndir leik-
menn; var nokkuð óstöðugur í
leik sínum en hann vann titil með
félaginu.
Nú er spurning hvort Sol Camp-
bell geti fetað í fótspor þessara
manna með sama sóma, fari svo
að hann fái tækifæri hjá Rauðu
djöflunum?
- hbg
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er óhræddur við að veðja á gamlar knattspyrnustjörnur:
Ellismellirnir blómstra alltaf hjá Sir Alex
TEDDY SHERINGHAM Átti ákaflega góðu
gengi að fagna hjá Manchester United,
rétt eins og Larsson. NORDIC PHOTOS/GETTY
HENRIK LARSSON
SKREYTUM HÚS
MEÐ MILLJÓNUM
Sexfaldur Lottópottur stefnir í 60 milljónir.
Leyfðu þér smá jóla-Lottó!
60
milljónir
FÓTBOLTI Rafael Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, segir
að liðið muni nú fyrst og fremst
leggja áherslu á að ná sem best-
um árangri í ensku úrvalsdeild-
inni. Liðið lauk í vikunni þátttöku
sinni í Meistaradeild Evrópu og
keppir í Evrópudeildinni eftir
áramót.
„Við munum taka Evrópu-
deildina alvarlega en aðalmálið
hjá okkur verður að lenda í hópi
fjögurra efstu liða í deildinni,“
sagði Benitez en aðeins þau lið
tryggja sér þátttökurétt í Meist-
aradeildinni fyrir næstu leiktíð.
„Þær ógöngur sem liðið lenti í
í Meistaradeildinni verða dýr-
mæt reynsla fyrir leikmenn og
gefa þeim styrk fyrir átökin fram
undan í úrvalsdeildinni.“
Liverpool mætir Arsenal í stór-
leik deildarinnar um helgina og
segir Benitez að leikmenn verði
nú að einbeita sér fyllilega að
þeim leik.
„Þeir Fernando Torres og
Alberto Aquilani eru báðir leik-
færir og munu æfa stíft fram að
leik. Þeir verða klárir í slaginn
þegar kemur að leiknum við Ars-
enal.“ - esá
Rafael Benitez, Liverpool:
Deildin skiptir
nú höfuðmáli
RAFA BENITEZ Segir aðalmálið að ná
góðum árangri í ensku úrvalsdeildinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY