Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 114
11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Menning:
Kolbrún Halldórsdóttir í helgar-
viðtali.
Beinta Maria Didriksen og Levi
Didriksen: Levi níu ára er stoð
og stytta tvíburasystur sinnar
sem er með sjúkdóm sem
aðeins fimm manns í heiminum
þjást af.
Íslensk hönnun eins og hún
gerist best. Húsgögn, arkitek-
túr og vöruhönnun í Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Þrjár óperufrumsýningar í maí.
Mest seldu bókmenntaverk
Evrópu í fyrra.
Íslenska ímyndin á viðreisnar-
árunum.
Allt um Listahátíðina.
HANDBOLTI Haukar unnu örugg-
an sigur á Akureyri í N-1 deild
karla í handbolta í gær. Með sigri
hefði Akureyri ekki bara sent
skýr skilaboð til annarra liða með
því að komast á topp deildarinn-
ar, heldur gefið sjálfstraustinu
góðan byr líka. Liðið kolféll aftur
á móti undir pressu sem hlýtur að
vera áhyggjuefni fyrir liðið. Sigur
Hauka var aldrei í hættu.
Þrátt fyrir pakkfullt hús og
góða stemningu í stúkunni í Höll-
inni var stemningin innan vallar
hjá Haukum. Þeir gáfu strax tón-
inn og komust í 0-3. Vörn gestanna
var frábær og Birkir Ívar góður í
markinu.
Á sama tíma var sókn Akureyr-
ar slök og hugmyndasnauð. Þeir
fóru illa með fín færi, meðal ann-
ars tvö víti, og gekk hreinlega
ekkert að skora. Sjö mörk liðsins
í fyrri hálfleik segja alla söguna.
Á meðan voru Haukar skynsam-
ir í sókninni, spiluðu langar sókn-
ir, en vörn Akureyrar gleymdi sér
oft. Markvarsla liðsins var ágæt.
Staðan var 7-15 í hálfleik.
Haukar komust mest tíu mörk-
um yfir í seinni hálfleik en slök-
uðu mikið á klónni undir lokin. Sig-
urinn var þó aldrei í hættu. Slakir
dómarar leiksins hjálpuðu Akur-
eyri ekki með mörgum dómum
sem féllu gegn þeim. Liðið eyddi þó
of mikilli orku í að pirra sig á dóm-
urunum en það var aldrei spurning
hvorum megin sigurinn lenti.
Það er þó óþarfi að leggjast ítar-
lega yfir af hverju Akureyri tap-
aði, Haukar eru einfaldlega með
betra lið. Akureyri gafst ekki upp
en reynsla Haukanna vegur þungt.
Liðið kann ekki bara að spila vel
heldur líka að pirra andstæðingana
á lúmskan hátt. Þeir verða einir á
toppnum í jólafríinu eftir sigurinn,
lokatölur 20-24 fyrir Íslandsmeist-
urunum.
„Það sem er efst í huga mínum er
lélegur handbolti. Við vorum með
allar kjöraðstæður til að spila frá-
bæran handboltaleik, en sýningin
var alveg ömurleg,“ sagði hrein-
skilinn Rúnar Sigtryggsson, þjálf-
ari Akureyrar.
„Menn bjuggu til pressu á sjálfan
sig fyrir leikinn en við bara stóð-
umst það ekki. Við þorum bara ekki
á toppinn. Ekki vorum við líklegir,
vorum aldrei nálægt því í dag. Það
þarf þá bara að vinna í því. Það sást
á öllum sviðum í dag að Haukarn-
ir eru betri, hugarfarslega og lík-
amlega. Þetta var eins og meist-
araflokkur gegn fjórða flokki. Það
þýðir þó ekkert að gráta þetta leng-
ur, þetta er búið og gert og maður
var bara feginn þegar það var flaut-
að til leiksloka.“
Haukarnir voru aftur á móti
brosmildir en Aron Kristjánsson
bjóst við meiru frá Akureyri. „Ég
verð að segja að ég bjóst við þeim
sterkari. Þeir eru með flott lið og
hafa verið að spila vel en við áttum
ágætis leik í dag. Mér fannst við
spila frábæran varnarleik og Birk-
ir var frábær í markinu. Við feng-
um mikið af hraðaupphlaupum og
það lagði grunninn að sigrinum.
Elías Már var stórkostlegur í fyrri
hálfleik og gerir það að verkum
að við erum með mikið rými. Sig-
urbergur náði sér engan veginn á
strik en samt sem áður erum við að
spila frábæran sóknarleik í fyrri
hálfleik. Í seinni hálfleik hleypum
við þessu upp í smá vitleysu undir
lokin, við ætluðum að gefa mönn-
um tækifæri til að sanna sig og því
miður fór sem fór. Við erum samt
sem áður gríðarlega ánægðir með
fjögurra marka sigur hér fyrir
norðan,“ sagði Aron. - hþh
Fegnir þegar flautað var af
Haukar lögðu grunninn að öruggum sigri gegn Akureyri með frábærum fyrri
hálfleik í gær. Þjálfari Akureyrar segir leikinn hafa verið eins og meistaraflokk
gegn fjórða flokki. Haukar verða á toppnum í jólafríinu.
EINAR ÖRN JÓNSSON Fer hér fram hjá varnarmönnum Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI HK-menn unnu öruggan
tíu marka sigur á Gróttu, 32-22, í
leik liðanna í 9. umferð N1 deildar
karla í handbolta í Digranesi í gær.
HK gerði út um leikinn í kringum
hálfleikinn og eftir það var aldrei
spurning um hvernig myndi fara.
„Þetta var frábær leikur hjá
okkur. Við vorum aðeins lengi í
gang og þá sérstaklega varnarlega.
Síðustu 40 mínúturnar voru hins-
vegar frábærar og ég var þá mjög
ánægður með liðsheildina. Vörn-
in var frábær og Bubbi var magn-
aður fyrir aftan í markinu,“ sagði
Gunnar Magnússon, þjálfari HK.
„Við erum að þjappa okkur saman
sem sterkari liðsheild og það eru
fleiri menn að taka ábyrgð og
annað. Þetta var mikilvægur sigur
því þetta var spurning um að vera
þremur stigum á eftir Gróttu eða
einu stigi á undan.”
HK-menn tóku frumkvæðið í
lok fyrri hálfleiks og voru fjór-
um mörkum yfir í hálfleik, 16-12.
HK byrjaði síðan seinni hálfleik-
inn af sama krafti og náði strax
sjö marka forustu með því að skora
þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks-
ins. Eftir það var sigurinn nánast í
höfn því Gróttumenn áttu fá svör.
HK-vörnin var í mjög góðum
gír þar sem Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson og Bjarki Már Gunn-
arsson hleyptu fáu í gegn og flest
allt sem slapp fram hjá þeim varði
Sveinbjörn í markinu. „Það eru
allir leikmenn í liðinu með hlut-
verk, bæði í sókn og vörn. Okkar
hlutverk er að vera svolítið geð-
bilaðir í vörninni, svolítið ýktir til
þess að fá menn með okkur,“ sagði
Vilhelm en hann og Bjarki vörðu
saman tíu skot í HK-vörninni í
gær. „Við vorum lengi í gang varn-
arlega. Eftir að við smullum varn-
arlega í gang þá held ég að þetta
hafi aldrei verið spurning.“
„Við vorum alls ekki á réttu róli
og við vorum ekki tilbúnir. Sóknar-
lega vorum við slakir og við áttum
mörg slök og illa ígrunduð skot á
markið,“ sagði Halldór Ingólfsson,
þjálfari Gróttu sem gat ekki verið
með vegna meiðsla. „Kannski sat
Víkingsleikurinn í mönnum. Það
var tvíframlengdur leikur og það
er stutt á milli leikja. Við höfum
ekki neina svakalega mikla breidd
og þetta var því erfitt.“ - óój
HK-menn unnu öruggan tíu marka sigur á Gróttu og komust upp í 4. sætið:
Verðum að vera svolítið geðbilaðir
HK-MÚRINN Bjarki Már (2) og Vilhelm
Gauti (33) verjast skoti Antons Rúnars-
sonar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Akureyri - Haukar 20-24 (7-15)
Mörk Akureyrar (skot): Oddur Grétarsson
7/3 (10/4), Jónatan Magnússon 4 (10/2), Geir
Guðmundsson 2 (4), Heimir Örn Árnason 2 (6),
Árni Þór Sigtryggsson 2 (8), Guðlaugur Arnarsson
1 (2), Andri Snær Stefánsson 1 (4), Guðmundur
H. Helgason 1 (8).
Varin skot: Hafþór Einarsson 11 (17) 65%, Hörð-
ur Flóki Ólafsson 8 (26) 31%.
Hraðaupphlaup: 2 (Oddur 2 ).
Fiskuð víti: 6 (Oddur 2, Heimir, Árni, Andri,
Hörður )
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Hauka: Elías Már Halldórsson 7 (9),
Björgvin Hólmgeirsson 6 (16), Einar Örn Jónsson
2 (2), Freyr Brynjarsson 2 (4), Pétur Pálsson 2
(6), Heimir Óli Heimisson 1 (1), Stefán Rafn
Sigurmannsson 1 (2), Guðmundur Árni Ólafsson
1 (4), Sigurbergur Sveinsson 1/1 (7).
Varin skot: Birkir Í. Guðmundss. 22/2 (42) 52%
Hraðaupphlaup: 4 (Elías 2, Freyr 2).
Fiskuð víti: 1 (Pétur)
Utan vallar: 6 mínútur.
HK - Grótta 32-22 (16-12)
Mörk HK (skot): Valdimar Þórsson 7/2 (11/2),
Jón B. Pétursson 6 (7), Ragnar Hjaltested 6/1
(9/2), Ólafur V. Ólafsson 5/1 (8/2), Vilhelm G.
Bergsveinsson 3 (4), Atli Ingólfsson 2 (3), Hákon
Bridde 2 (4), Bjarki Elíss. 1 (2), Hlynur Magnúss.
(3), Bjarki Gunnarss. (1), Halldór Haraldss. (1).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 18 (af 38/1),
Lárus Helgi Ólafsson 5 (af 7)
Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Jón Björgvin 3, Hákon
2, Bjarki, Ragnar)
Fiskuð víti: Ragnar 3, Atli 3, Jón Björgvin.
Utan vallar: 2 mínútur
Mörk Gróttu (skot): Anton Rúnarsson 7/1
(21/1), Hjalti Pálmason 6 (16), Atli Rúnar Stein-
þórsson 2 (2), Arnar Freyr Theodorsson 2 (5), Jón
Karl Björnsson 2 (5/1), Finnur Ingi Stefánsson 2
(6), Árni Benedikt Árnason 1 (5)
Varin skot: Gísli Guðm. 7 (af 22/3), Magnús Sig-
mundss. 5/1 (af 18/2), Einar Ingimarss. 1 (af 5).
Hraðaupphlaupsmörk: 2 (Jón Karl, Finnur)
Fiskuð víti: Anton, Hjalti.
Utan vallar: 6 mínútur
STAÐAN
Haukar 8 6 2 0 203-178 14
Valur 8 5 1 2 203-187 11
Akureyri 9 5 1 3 220-215 11
HK 8 4 1 3 208-201 9
FH 8 4 1 3 227-218 9
Grótta 9 4 0 5 229-237 8
Fram 8 1 0 7 201-222 2
Stjarnan 8 1 0 7 172-205 2
NÆSTU LEIKIR Í N1-DEILD KARLA
Valur - FH Á morgun kl. 16.00
Fram - Stjarnan Sunnudag kl. 16.00
HK - Valur Mánudag kl. 19.30
Eftir þessa leiki verður gert hlé á deildinni
vegna Evrópumeistaramótsins í Austurríki.
NÆSTU LEIKIR Í N1-DEILD KVENNA
Valur - HK Á morgun kl. 14.00
Fylkir - KA/Þór Á morgun kl. 16.00
Fram - Víkingur Sunnudag kl. 14.00
Haukar - KA/Þór Sunnudag kl. 16.00
ÚRSLIT