Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 12
12 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Hátt í 180 tilkynning-
ar frá frambjóðendum og flokk-
um höfðu borist Ríkisendurskoð-
un að loknum skrifstofutíma í gær,
þegar frestur stjórnmálamanna og
-flokka til að skila margvíslegum
upplýsingum um fjármál sín síð-
ustu árin rann út.
Samfylkingin var eini flokkur-
inn sem skilaði upplýsingum um
fjárhag sinn, en Framsóknarflokk-
urinn hafði boðað að upplýsingar
bærust. Ekkert hafði heyrst frá
öðrum flokkum.
Flokkar og frambjóðendur hafa
verið beðnir um að skila upplýsing-
um um öll bein framlög, sem nema
300 þúsund krónum eða meira. Þeir
sem eru undir þessu marki sleppa
með að skila einfaldri yfirlýsingu
um það. Enginn er þó skyldugur
til að greina frá fjármálum sínum
aftur í tímann, heldur segir í lög-
unum að Ríkisendurskoðun birti
upplýsingarnar að ósk frambjóð-
anda.
Stjórnmálaflokkar eiga að skila
inn fjárhagslegu yfirliti um tíma-
bilið 2002 til 2006.
Frambjóðendur í forvali eða
prófkjöri til alþingis- eða sveit-
arstjórnarkosninga sem buðu sig
fram árin 2006 og 2007 eiga einnig
að skila upplýsingum.
Þá skulu frambjóðendur til emb-
ættis formanns eða varaformanns
innan flokkanna frá 2005 til 2009
gera grein fyrir sér.
Ríkisendurskoðun á að birta upp-
lýsingarnar fyrir lok ársins.
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri hjá Ríkisendurskoðun, heldur
utan um þessi mál þar á bæ. Hann
hefur ekki fengið upplýsingar frá
öllum flokkum um heildarfjölda
frambjóðenda á þessum árum, það
er hversu háu hlutfalli þessar 180
tilkynningar sem borist hafa Rík-
isendurskoðun samsvara. Vonast
hafi verið eftir betri heimtum.
„Við höfum engar upplýsingar
um heildarfjöldann. Við erum bara
verkfæri til að taka þær saman,“
segir hann. Ríkisendurskoðun sé
ekki ætlað að sannreyna þessi gögn
frekar en önnur gögn frá stjórn-
málamönnum.
„Þetta var dauft framan af en
svo lifnaði nú yfir þessu síðustu
dagana,“ segir hann. Mest hafi
verið skilað inn af yfirlýsingum
um að frambjóðandi hafi verið með
framlög undir 300 þúsundum.
Lárus bendir á að margir kunni
að eiga erfitt með að gera grein
fyrir framlögum aftur í tímann.
Ekki sé víst að allir hafi haldið
utan um slík gögn.
Stofnunin mun taka við gögnum
áfram næstu daga, vilji fleiri láta
birta um sig upplýsingar.
klemens@frettabladid.is
Samfylkingin ein
skilar á réttum tíma
Frestur flokka og frambjóðenda til að skila gögnum til Ríkisendurskoðunar
rann út í gær. Gögnin innihalda upplýsingar um fjármál tengd stjórnmálastarfi
nokkur ár aftur í tímann. Nærri 180 skiluðu. Verri heimtur en vonast var til.
VIÐSKIPTI Fjárfestingarbankinn
Straumur hefur selt eignir fyrir
247 milljónir evra, jafnvirði um 45
milljarða króna, frá lokum mars
til septemberloka. Þar af fóru 183
milljónir evra í greiðslu skulda.
Þetta kom fram á fundi með kröfu-
höfum bankans í fyrradag.
Þar kom sömuleiðis fram að
eignir Straums námu rúmum 1,4
milljörðum evra í septemberlok.
Þær eru að nær öllu leyti erlendar,
þar á meðal er CB Holding, eigandi
enska úrvalsdeildarliðsins West
Ham. Kröfur í bú bankans nema
1,8 milljörðum evra. Forsvars-
menn Straums segja forgangs-
kröfur verða greiddar að fullu
en rúmur helmingur almennra
krafna. Ekki er útilokað að heimt-
ur nemi allt að áttatíu prósentum
í heildina.
Fréttablaðið greindi frá því í
sumar að gangi nauðasamningar
eftir verður Straumi skipt upp í tvö
fyrirtæki. Að því er enn stefnt. Ann-
ars vegar verður stofnaður fjárfest-
ingarbanki undir nýju nafni, sem
verður í eigu kröfuhafa, og eignar-
haldsfélag sem muni sjá um eign-
ir og skuldir núverandi fyrirtækis.
Reiknað er með að um helming-
ur eigna í eignastýringu bankans
verði eignir og kröfur eignarhalds-
félagsins. Búist er við að starfsmenn
beggja fyrirtækja verði um 63 tals-
ins, þar af fjörutíu hjá bankanum,
sem fær nýtt nafn. Ljóst þykir að
fjölga þarf hjá Straumi en starfs-
menn eru nú 45 talsins. - jab
Ekki útilokað að kröfuhafar Straums fái allt að áttatíu prósent krafna til baka:
Tvö fyrirtæki verða til úr einu
FYRRVERANDI FORSTJÓRI Búist er við
að tvö fyrirtæki rísi úr rústum Straums
snemma á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Tvítug kona og karl-
maður á þrítugsaldri hafa verið
ákærð fyrir að stela debetkorti
og svíkja vörur fyrir þúsundir
króna út á það.
Kortinu stálu hjúin í starfs-
mannaaðstöðu Mjólkursamsöl-
unnar á Selfossi. Þau sviku síðan
út á hið illa fengna kort í versl-
unum Nóatúns, Bónuss og Eur-
opris á Selfossi.
Í málinu er gerð krafa fyrir
hönd Bónuss og Léttkaupa ehf.
þess efnis að hjúin greiði skaða-
bætur sem nema verðmæti þess
varnings sem þau sviku út úr
viðkomandi verslunum.
- jss
Tvennt ákært fyrir fjársvik:
Sviku út á
stolið kort
KJÖRKASSINN Stjórnmálamenn eru flestir búnir að skila inn fjárhagsupplýsingum
vegna síðustu alþingiskosninga. Nú er mælst til þess að þeir og flokkarnir skili svip-
uðum upplýsingum allt aftur til ársins 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
· Stór snertiskjár
· 5MP myndavél
· Tónlistaspilari
· Spilar Divx kvikmyndir
· Styður 3G háhraðanet
Þinn fyrsti LG Glæsilegur farsími með snertiskjá
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
VERÐ: 149.900 kr.
LÉTTGREIÐSLUR Í 12 MÁNUÐI: 12.490 kr.
MÓTMÆLI Í BANGKOK Þessi kona
mætti með mynd af Thaksin Shina-
watra, fyrrverandi forsætisráðherra
Taílands, á mótmælafund stuðnings-
manna hans í Bangkok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP