Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 30
30 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Einhliða upptaka evru
Tekist á um einhliða upptöku evrunnar
Þótt umræður um krónuna
og upptöku evru hafi fallið
í skuggann af endalausu
þjarki um Icesave undan-
farnar vikur er málið síður
en svo útrætt. Bloggfærsla
Vilhjálms Þorsteinssonar
athafnamanns um einhliða
upptöku evru hefur vakið
mikla athygli, og ekki síður
fjörlegar umræður sem
skapast hafa á síðu hans í
kjölfarið. Fréttablaðið fékk
leyfi til að birta útdrátt af
umræðunum.
Vilhjálmur Þorsteinsson: Í til-
efni af umræðu um Daniel Gros,
bankaráðsmann í Seðlabanka
Íslands, leitaði ég mér upplýsinga
um einliða upptöku evru í Svart-
fjallalandi í upphafi árs 2002. Gros
mun hafa komið að því verkefni
sem ráðgjafi. Þeir sem helst hafa
talað fyrir einhliða upptöku evru
á Íslandi hafa nefnt þetta fordæmi
til vitnis um að einhliða upptaka sé
ekki mikið mál, hana megi „klára á
einni helgi“ og svo framvegis.
En þegar málið er skoðað betur
kemur í ljós að aðstæður Svartfell-
inga voru allt aðrar en hér. Grund-
vallarmunurinn er sá að þýska
markið var í reynd gjaldmiðill
Svartfellinga, en serbneski dínar-
inn var notaður í undantekningar-
tilvikum. Einhliða upptakan var
því ekki meiri einhliða upptaka en
svo, að gerður var samningur við
þýskan banka um að taka við þýsku
mörkunum og láta evrur í staðinn,
sem hann fékk svo aftur hjá Evr-
ópska seðlabankanum (ECU) sem
hluta af almennri upptöku evru og
útskiptingu þýska marksins.
Þetta er nákvæmlega það sem
myndi gerast á Íslandi ef við gengj-
um í Evrópusambandið (ESB) og
tækjum upp evru: íslenskar krónur
yrðu þá teknar til baka inn í Seðla-
banka Íslands og alvöru evrur látn-
ar í staðinn í boði ECB.
Tímabundið brjálæðiskast
Án stuðnings ECB yrðu ekki
fyrir hendi neinar alvöru evrur
til að skipta krónum í, nema þá í
mesta lagi seðlum og mynt sem er
hverfandi hluti peningamagns í
umferð, rétt rúm eitt prósent. Ein-
hliða upptöku-menn hafa reyndar
uppi áform um að deila í allar raf-
rænar krónur með 180 eða ein-
hverri álíka tölu og kalla niður-
stöðuna „evrur“. En þær „evrur“
væru ekki alvöru evrur útgefnar
af ECB og með samsvörun í inni-
stæðu íslenska Seðlabankans í
ECB, heldur bara tölur á blaði sem
Íslendingar streittust við að kalla
„evrur“. Enginn annar myndi nota
það nafn yfir fyrirbærið né taka
það gilt sem eitthvað annað en
íslenskar krónur með viðhengdu
almennu broti.
Seðlabankinn gæti, í tíma-
bundnu brjálæðiskasti, kosið að
bjóða landsmönnum að skipta
íslenskum „evrum“ í alvöru evrur,
á meðan gjaldeyrisforði hans ent-
ist. En um leið og forðinn væri
uppurinn, sem myndi gerast á
fyrsta sólarhringnum þar sem
allir vissu að ekki væru til alvöru
evrur fyrir öllum íslensku „evrun-
um“, þá væri leiknum lokið. Forð-
inn búinn og þeir sem ekki náðu
að skipta íslensku „evrunum“ sætu
eftir með sárt ennið og verðlausan
pappír – og ekki fullir þakklætis
gagnvart þeim stjórnmálamönnum
sem bæru ábyrgðina á dellunni.
Heiðar Guðjónsson: Svartfell-
ingar hefðu tekið upp evru ef hún
hefði verið til. Hún var einungis til
sem reiknieiningin ECU, en ekki
sem seðlar og mynt á þessum tíma.
Þýski seðlabankinn hjálpaði Svart-
fellingum að taka upp evru, því þeir
létu þá hafa þýsk mörk sem síðan
sjálfkrafa var skipt yfir í evrur um
leið og fyrsti dagur nýs árs kom og
skipt var út myntum þeirra landa
sem tóku upp evru á fyrsta degi.
Þetta er því rangt hjá þér Vilhjálm-
ur, og þú átt að vita það.
Platevrur í Kaliforníu?
Það er aumt að þú skulir viljandi
ákveða að afbaka sannleikann í
umfjöllun þinni um bankakerf-
ið. Eru evrur í Kaliforníu, sem er
fimmta stærsta hagkerfi heims,
bara platevrur því þeir eiga engan
seðlabanka? Heldur þú að pening-
ur í sjálfu sér hafi einhver verð-
mæti? Þeir eru ekkert annað en
skuldaviðurkenningar um afhendu
verðmæta.
Sumir vilja mæla heiminn í
tommum, aðrir í sentrimetrum.
Það breytir ekki stærð hlutanna
hvort er gert. Á nákvæmlega sama
hátt geta innistæður í bönkum
verið mældar í hvaða einingu sem
er, svo lengi sem báðir samnings-
aðilar eru því samþykkir.
Með því að taka upp einhliða
aðra mynt er hægt að afnema
verðtryggingu, lækka vexti um 70
prósent eða meira í einni svipan,
afnema fjármagnshöftin hraðar
en ella, laða til landsins fjármagn,
minnka óvissu í viðskiptum og
eyða verðbólguáhættu.
Krónan lagaði ekki samkeppn-
ishæfni Íslands þegar hún féll,
heldur gerði hún fyrirtæki og
almenning fátæk, eða gjaldþrota.
Hagkerfið hefur dregist saman um
um það bil sjö prósent á skömm-
um tíma, mælt í krónum. Mælt
í alþjóðlegum peningum, hefur
hagkerfið dregist saman um 60
prósent. Á meðan eru skuldirnar
óbreyttar, því enginn vildi taka
lán í krónum á okurvöxtum, held-
ur aðeins í verðtryggðum krónum
og erlendri mynt.
Best varða bankakerfi í heimi
Til viðbótar vil ég nefna að eina
landið sem stóð af sér gjaldeyris-
hrunið 1997 í Suðaustur-Asíu var
Hong Kong. Hong Kong er með
myntráð og þar hafa þeir engin
fjármagnshöft en ekki heldur eigin
peningastefnu. Þeir hafa tekið upp
amerískan dollar í gegnum mynt-
ráðið. Þar í landi er seðlabankinn
með um 25 prósent af öllum inni-
stæðum í varasjóði til að mæta
hugsanlegu bankaáhlaupi. Þetta er
fjórfalt það sem gerist í Bandaríkj-
unum, en þriðjungur af forðanum
sem bankinn hafði áður þegar um
fljótandi gjaldmiðil var að ræða
með öllu því óráði sem af hlaust.
Íslenski Seðlabankinn er með
um 440 milljarða forða og grunn-
mynt kerfisins er 83 milljarðar
samkvæmt tölum bankans. Hann
myndi því eiga eftir 360 milljarða,
eða meira en 25 prósent af öllum
innistæðum í landinu sem myndi
gera Ísland að best varða banka-
kerfi í heimi. Þessu til viðbótar
hefur Seðlabanki Íslands öll lán
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
á línunni, vel yfir 600 milljarða
króna, og þá er kerfið varið meira
en 75 prósent, og Ísland hefði gull-
tryggt bankakerfi, það tryggasta
í heimi. Með slíkt kerfi yrði fjár-
streymi til landsins, en ekkert
bankaáhlaup. Ef áhlaup ætti sér
stað væri ekkert mál að mæta því.
AGS er samþykkt þessari leið. Þá
þyrfti ekki að verja þessum lánum
í að reyna að fleyta haftakrónunni
aftur. Þá væri hægt að komast í
sóknarstellingar frekar en að vera
í varnarbaráttu í áratugi.
Vilhjálmur: Ég er ekki að afbaka
neinn sannleika, bara að segja
hann eins og hann er. Eins og fram
kemur í frétt BBC fengu Svartfell-
ingar farma af evrum senda frá
Þýskalandi, sem þeir keyptu fyrir
þýsku mörkin sem þeir áttu áður.
Hvort ECU var tímabundin milli-
eining í þessum viðskiptum skiptir
ekki máli efnislega. Þeir áttu gjald-
miðil sem var skiptanlegur í evru
í boði ECB og nýttu sér það. Þess
vegna er þeirra staða allt önnur en
okkar, sem erum með óskiptanleg-
an gjaldmiðil – íslensku krónuna.
Evrur „í Kaliforníu“ eru ekki
„í Kaliforníu“ nema þá sem seðl-
ar og mynt. Ef þú ert Kaliforn-
íubúi og átt evrur á bankareikn-
ingi, þá eru þær skuld viðkomandi
banka við þig, en evrurnar fær
bankinn upphaflega frá einhverj-
um aðildarbanka ESCB kerfisins.
Allar evrur eru á endanum hýstar
í ECB – alveg eins og allar krón-
ur eru á endanum hýstar í Seðla-
banka Íslands, hvort sem með þær
er sýslað í Kaliforníu, Cambridge
eða á Kópaskeri.
Íslenskar „evrur“ ekki gjaldgengar
Íslenskar krónur sem Seðlabanki
Íslands deilir í með 180 og kýs
að kalla „evrur“, eru ekki í þess-
ari keðju – þær eru ekki hýstar á
reikningi í aðildarbanka ECB. Þær
eru því ekki gjaldgengar í greiðslu-
kerfum og eru ekkert annað en
krónur undir nýju nafni.
Ég er sammála um brýna nauð-
syn þess að Ísland taki upp aðra
mynt, og alla kosti þess, en tel að
það verði að gerast á réttan og við-
eigandi hátt: með alvöru upptöku
evru og útskiptingu krónu í boði
ECB. Annað er bara óraunhæf
spilaborg sem getur ekki gengið
í praxís.
Heiðar: Í fyrsta lagi stóð alltaf til
að taka upp evru hjá Svartfelling-
um og það gerðu þeir einhliða, um
það er ekki deilt. Síðan hafa aðrar
þjóðir einnig gert þetta einhliða,
til dæmis El Salvador á nokkrum
vikum, Ekvador yfir helgi og svo
mætti áfram telja. Lengst er síðan
Panama gerði þetta, árið 1905.
Evrurnar sem eru í eign íslensku
bankanna eða Seðlabankans eru
nákvæmlega eins og evrurnar sem
einhver á í USA, eða annars staðar.
Ísland er því ekki með neinar plat-
evrur. Nettó gjaldeyrisforði Seðla-
bankans er eign hans, en ekki lán.
Hann dugar mörgum sinnum fyrir
skiptunum. Þá þarf ekki að draga á
AGS-lánin en með því að hafa þau
á hliðarlínunni, ódregin, er búið
að búa til tryggasta bankakerfi í
heimi.
Það þarf einungis að skipta um
grunnmynt í kerfinu. Grunnmynt
í íslenska kerfinu er 80 milljarðar.
Það hefur Seðlabankinn fimmfalt
í forða sínum í dag. Það sem eftir
stendur, má nota í að verja kerf-
ið og þá þarf ekki að taka frek-
ari lán. Heildarkerfið er þar með
evruvætt. Það talar enginn um
ítalskar eða írskar evrur í dag, og
ekki myndi nokkur maður tala um
íslenskar evrur sem eitthvað veit
um bankaviðskipti.
Menn tala fjálglega um lánveit-
anda til þrautarvara, en hann er
alltaf ríkið, ekki seðlabankinn,
EVRAN Í FORGRUNNI Risavaxið evru merki stendur fyrir framan Evrópska seðlabankann í Frankfurt í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÖKRÆÐA UM EINHLIÐA UPPTÖKU EVRU
Vilhjálmur Þorsteins-
son athafnamaður
er stjórnarformaður
tölvufyrirtækisins CCP
og fyrirtækisins Verne
Holding, sem hyggst
reisa gagnaver hér á
landi.
Heiðar Guðjónsson
hagfræðingur starfar
í Zürich í Sviss, en var
áður framkvæmda-
stjóri hjá Novator í
London.
Andri Haraldsson
er framkvæmdastjóri
tölvufyrirtækisins
Understand Corporat-
ion í Washington DC í
Bandaríkjunum.
FRAMHALD Á SÍÐU 32
Vilhjálmur Þorsteinsson
Seðlabankinn gæti, í tímabundnu
brjálæðiskasti, kosið að bjóða
landsmönnum að skipta íslensk-
um „evrum“ í alvöru evrur, á
meðan gjaldeyrisforði hans entist.
Heiðar Guðjónsson:
Sumir vilja mæla heiminn í tomm-
um, aðrir í sentrimetrum. Það
breytir ekki stærð hlutanna hvort
er gert. Á nákvæmlega sama hátt
geta innistæður í bönkum verið
mældar í hvaða einingu sem er,
svo lengi sem báðir samningsaðil-
ar eru því samþykkir.
Andri Haraldsson:
Ef það er raunverulegur áhugi
fyrir að meta þessa hugmynd
um einhliða upptöku evru gæti
svona verkefni leyft öllum að fara
í gegnum ferlið án þess að þurfa
að leggja að veði hag landsins, og
með tiltölulega ódýrum hætti.