Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 38
38 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
UMRÆÐAN
Svandís Svavarsdóttir
skrifar um lofts-
lagsráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna í
Kaupmannahöfn
Augu heimsins beinast nú að loftslagsráð-
stefnunni í Kaupmanna-
höfn þar sem fram fer
fimmtánda aðildarríkjaþing lofts-
lagssamnings Sameinuðu þjóð-
anna. Mismiklar vonir eru bundnar
við niðurstöðu fundarins en þó má
segja að allir séu sammála um mik-
ilvægi þess að þjóðir heims komi
að samkomulagi þar sem allir taki
að sér skuldbindingar til að snúa
við válegri þróun í loftslagsmálum.
Allir þurfa að koma að samninga-
borðinu, bæði stór og smá ríki, til
að leggja sitt að mörkum. Ísland vill
vera fullgildur þátttakandi að samn-
ingaviðræðunum, sýna ábyrgð og
vera raunverulega þjóð meðal þjóða.
Þannig skiptir þátttakan máli fyrir
sjálfsmynd og ásýnd Íslands í sam-
spili við aðrar þjóðir og á alþjóða-
vettvangi.
Ísland er nú aðili að loftslags-
samningi Sameinuðu þjóðanna og
um leið Kýótó-bókuninni við hann.
Markmið þessara samninga beggja
er að hægja á styrkaukningu gróður-
húsa lofttegunda í andrúmloftinu
svo koma megi í veg fyrir hættulega
röskun á loftslagskerfinu af manna
völdum. Ísland nýtur aukinna heim-
ilda til að losa koldíoxíð vegna hins
svonefnda íslenska ákvæðis Kýótó-
bókunar sem samþykkt var árið
2001. Ákvæðið, sem er háð skilyrð-
um, er bundið við losun vegna nýrr-
ar stóriðjustarfsemi eða stækkunar
starfandi stóriðjufyrirtækja.
Ísland er bundið ýmsum fleiri
reglum hvað losun gróðurhúsaloft-
tegunda varðar. Til að mynda erum
við aðilar að viðskiptakerfi ESB
með losunarheimildir sem er hluti
af EES-samningnum en að því verð-
ur vikið síðar.
Nýjar áherslur
Tímamót urðu í loftslagsstefnu
landsins 29. maí 2009 þegar lagt
var til að draga úr losun um a.m.k.
15% til 2020 miðað við árið 1990. Í
fyrsta sinn lýstu íslensk stjórnvöld
því yfir á alþjóðavettvangi að þau
væru tilbúin að taka á sig skuldbind-
ingar um að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda.
Ísland er sjálfstæður aðili í
loftslags samningunum,
á meðan ríki ESB semja
þar sem heild. Ísland
hefur sett fram mark-
mið um 15% samdrátt
í losun til 2020, sem er
annað markmið en ESB
hefur kynnt. Hins vegar
er ljóst að Ísland þarf að
stilla saman strengi við
ESB í loftslagsmálum út
af þeirri einföldu stað-
reynd að Ísland verður
virkur hluti af viðskiptakerfi ESB
um losunarheimildir árið 2012 sam-
kvæmt EES-samningnum. Þá mun
stór hluti losunar Íslands falla undir
samevrópskar reglur og við verðum
að taka tillit til þess. Ísland hefur
því vakið máls á þeim möguleika
að landið taki á sig sameiginlegar
skuldbindingar með ESB í nýjum
alþjóðasamningi og ESB hefur tekið
vel í þá málaleitan.
En hvað með stóriðjuna?
Losun frá stóriðju mun falla undir
viðskiptakerfi ESB árið 2013, sam-
kvæmt EES-samningnum. Þá verða
stóriðjufyrirtæki að fá heimild-
ir til losunar úr samevrópskum
potti, sem mun dragast saman um
21% í heild til ársins 2020. Heim-
ildum er útdeilt beint til fyrirtækj-
anna og Ísland mun í raun hafa lítil
afskipti af þeirri úthlutun. Ef Ísland
tekur á sig sameiginlegt markmið
með ESB gagnvart nýju loftslags-
samkomulagi verður losun héðan í
raun tvískipt.
Annars vegar er losun sem fellur
undir þetta samevrópska kerfi, frá
stóriðju og flugi, og sú losun er ekki
bókfærð hjá einstökum ríkjum.
Hins vegar þurfum við að draga úr
losun frá öðrum sviðum – frá sam-
göngum, sjávarútvegi, landbúnaði
o.s.frv. – um líklega rúmlega 20%
frá 2005 til 2020. Ef hér kemur ný
stóriðja þarf hún að afla sér heim-
ilda innan viðskiptakerfis ESB og
stjórnvöld koma þar ekki nærri.
Þetta er lagalega staðan, en svo
er annað mál hvort við teljum æski-
legt að auka hér enn við stóriðju eða
reyna að nýta orkulindir okkar til
hreinni iðju, svo sem gagnavera eða
til framleiðslu rafmagns eða vetnis í
framtíðinni fyrir bílaflotann.
Horfurnar í Kaupmannahöfn
Markmiðið með nýju samkomulagi
er að stöðva hlýnun jarðar við 2° C
en það er nauðsyn til að tryggja að
ekki verði afdrifaríkar breytingar á
lífsskilyrðum jarðar með breytingu
á veðri, vistkerfum, bráðnun jökla
og hækkun sjávarborðs.
Í ljósi þess að lifnaðarhættir
Vesturlanda eru helsta orsök lofts-
lagsbreytinganna er eðlilegt að þau
gangi á undan með góðu fordæmi en
allir helstu losendur gróðurhúsaloft-
tegunda leggi sitt af mörkum, þar
með talin ört vaxandi þróunarríki
eins og Kína og Indland. Á það ber
að líta að fátækustu ríki heims verða
verst úti af völdum loftslagsbreyt-
inganna og því verður samkomulag-
ið að einkennast af sanngirni að því
er varðar skiptingu byrða þar sem
tekið er tillit til efnahags, stærðar
ríkja og möguleika á sveigjanleika.
Ljóst er að enn ber mikið á milli
hjá helstu ríkjum og ríkjahópum, en
ég vil vera bjartsýn á árangur. Fyrir
liggur þó að ekki verður gengið frá
fullbúnu lagalega bindandi sam-
komulagi eins og að var stefnt, en
ég vonast til að við munum höggva
á helstu hnúta og ganga frá sterku
pólitísku samkomulagi um að draga
úr losun bæði frá þróuðum ríkj-
um og frá stóru þróunarríkjunum
og með þátttöku Bandaríkjanna.
Það væri í sjálfu sér gríðarlega
stórt skref og svo verður vonandi
samþykkt umboð til þess að færa
Kaupmannahafnarsamkomulagið
í lagalegan búning, helst fyrir lok
næsta árs. Yfir 100 leiðtogar ríkja
mæta á loftslagsfundinn, sem sýnir
hve háan sess loftslagsmálin skipa í
alþjóðlegri umræðu.
Hvað getum við gert?
Verkefnisstjórn um aðgerðaáætlun
í loftslagsmálum, sem ég skipaði sl.
sumar, er nýbúin að kynna fyrstu
drög að áætlun. Þar eru lagðar til
átta meginaðgerðir, sem samtals
eiga að tryggja að Ísland geti staðið
við þær skuldbindingar sem er lík-
legt að við tökum á okkur gagnvart
alþjóðasamfélaginu og samkvæmt
EES-samningnum.
Það er fyrst og fremst á sviði
samgangna og sjávarútvegs sem við
getum dregið úr losun. Þar er bent
á aðgerðir eins og að breyta skött-
um og gjöldum þannig að hvatt sé
til notkunar sparneytnari bíla og
loftslagsvæns eldsneytis. Slík þróun
hefur beinlínis sparnað í för með sér
fyrir þjóðarbúið, samkvæmt niður-
stöðum sérfræðinganefndar sem
kannaði kostnað við aðgerðir.
Einnig er lagt til að bæta stíga og
hvetja á annan hátt til meiri göngu
og hjólreiða. Þetta er einn helsti
samgöngumátinn í Kaupmanna-
höfn, þar sem loftslagsráðstefnan
er haldin, og við getum án efa bætt
okkur hvað það varðar þrátt fyrir
rysjóttara veðurfar.
Einnig er lagt til að skoða þann
möguleika að nota jurtaolíu á
fiskiskipaflotann og að rafvæða
fiskimjölsverksmiðjur. Þá liggur
fyrir að hér eru mjög miklir mögu-
leikar á að binda kolefni úr and-
rúmslofti með skógrækt og land-
græðslu, auk þess sem Ísland hefur
lagt til í samningaviðræðunum að
einnig verði hægt að telja endur-
heimt votlendis til tekna í loftslags-
bókhaldinu, en það er veruleg losun
frá framræstum mýrum.
Umtalsverðir möguleikar eru á að
minnka losun og auka bindingu og
margt af því kostar lítið eða borgar
sig jafnvel. En það þarf markvissa
stefnu, pólitískan vilja og vitundar-
vakningu til að hrinda því í fram-
kvæmd.
Til að snúa vörn í sókn þarf að
auka umtalsvert fræðslu, þekkingu
og umræðu um loftslagsmál. Hver
einasti maður þarf að leggja sitt af
mörkum. Við megum engan tíma
missa. Við verðum að tryggja að
jörðin verði byggileg um ókomna tíð.
Þar fara hagsmunir Íslands saman
við hagsmuni jarðarbúa allra.
Við stöndum frammi fyrir stærsta
einstaka verkefni nokkurrar kyn-
slóðar og nú þarf kjark og samstöðu
til að brjóta blað. Vesturlöndin eru
þau lönd sem mest þurfa að líta í
eigin barm og endurskoða sína lifn-
aðarhætti og laga þá betur að hags-
munum framtíðar og umhverfis.
Með þessa heildarhagsmuni að
leiðarljósi vonumst við til þess að
ná árangri í Kaupmannahöfn.
Höfundur er umhverfisráðherra.
Þjóð meðal þjóða
UMRÆÐAN
Halldór Reynisson
skrifar um loftslags-
ráðstefnuna í Kaup-
mannahöfn
Í tilefni af loftslagsráð-stefnu Sameinuðu þjóð-
anna sem nú stendur yfir
í Kaupmannahöfn verður
kirkjuklukkum víða um
heim hringt 350 sinnum nk. sunnu-
dag 13. desember kl. 15 að staðar-
tíma til að minna á þá umhverfisvá
sem steðjar að jarðarbúum vegna
hlýnunar andrúmsloftsins. Hér
á landi verður klukkum hringt í
mörgum kirkjum landsins.
Hringingin á að tákna þrennt:
Í fyrsta lagi þá vá sem steðjar að
mannkyni í loftslagsmálum vegna
hlýnunar andrúmsloftsins; í öðru
lagi vonina sem kristið fólk um allan
heim vill minna á frammi fyrir því
er ógnar öllu lífi; og í þriðja lagi
athafnir sem þarf að grípa til svo
að snúa megi þessari óheillaþróun
við.
Af hverju 350 sinnum? Það er
álit margra vísindamanna og lofts-
lagsfræðinga að magn koltvíildis
(CO2) í andrúmsloftinu megi ekki
fara yfir 350 hluta á móti milljón
(350 prómill). Ef magnið er komið
upp fyrir það hlýnar andrúmsloftið
með þeim afleiðingum að
jöklar bráðna og heimshöfin
hækka. Fyrir 200 árum var
magn koltvíildis í andrúms-
loftinu 275 hlutar af millj-
ón en nú þegar er það komið
upp í 387 hluta. Það merkir
að minnka þarf losun kol-
tvíildis úr andrúmsloftinu
frá því sem nú er.
Núna á sunnudaginn
þegar loftslagsráðstefna
Sameinuðu þjóðanna
stendur sem hæst í Kaupmanna-
höfn verður klukkum Frúarkirkju
hringt 350 sinnum við lok guðsþjón-
ustu þar, svo og í mörgum kirkjum
í Danmörku. Reyndar hefst þessi
táknræna athöfn á Fiji-eyjum í
Kyrrahafi klukkan þrjú að staðar-
tíma þar sem blásið verður í kuð-
unga sem eru hefðbundin hljóðfæri
eyjarskeggja. Síðan berst hljóðið í
vesturátt, klukkum er hringt, blás-
ið í lúðra, barðar bumbur eða slegið
á hljóðfæri eftir venju hvers lands
um sig.
Með þessari táknrænu athöfn vilja
kristnar kirkjur um allan heim taka
undir frumkvæði dönsku kirknanna
og vara við umhverfisvánni en um
leið minna á þá von sem felst í því
að þjóðir heims grípi til nauðsyn-
legra athafna til að draga úr áhrif-
um manneskjunnar á náttúruna.
Höfundur er prestur.
Umhverfisvá –
350 klukknaslög
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
Til að snúa vörn í sókn þarf að
auka umtalsvert fræðslu, þekk-
ingu og umræðu um loftslags-
mál. Hver einasti maður þarf
að leggja sitt af mörkum. Við
megum engan tíma missa.
HALLDÓR
REYNISSON
Fado-söngur, suðrænn gítarsláttur
og ljóðrænn hiti í ljúfum félagsskap
a l l i r h j a r ta nl e g a v e l k o mn i r
Ingibjörg Haraldsdóttir les úr Ljóðasafni sínu
Sigurður Pálsson kynnir bók sína Ljóðorkuþörf
Helga E. Jónsdóttir leikkona les úr portúgölskum
ljóðaþýðingum Guðbergs Bergssonar, Öll dagsins glóð
Ingólfur Gíslason les úr ljóðabók Hauks Más
Helgasonar, Rigningin gerir ykkur frjáls
SKEMMTILEGT
ER MYRKRIÐ
Skammdegið er tími ljóðanna
Verið velkomin á fjölbreytt listakvöld
á Súfistanum, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20
VONARGLÆTA Í HÖFN „Það er fyrst og fremst á sviði samgangna og sjávarútvegs sem við getum dregið úr losun.“
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP