Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 46
46 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir!
Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára.
Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009.
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
59% 8,8%
32,2%
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á
samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup sýnir ótvírætt.
Allt sem þú þarft...
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
91%
lesenda
UMRÆÐAN
Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar
um aðskilnað ríkis og kirkju
Nú fyrir skömmu birtust stór-merkilegar tölur um viðhorf
þjóðarinnar til sambands ríkis og
kirkju. Samkvæmt Capacent Gallup
mælist nú 74% fylgi við aðskilnað.
Raunar hefur alltaf verið meirihluti
fyrir aðskilnaði og yfirleitt hafa um
tveir þriðju þjóðarinnar verið fylgj-
andi breyttu kirkjufyrirkomulagi.
Fyrir tveimur árum kom hins vegar
könnun þar sem fylgið mældist ein-
ungis 51%.
Þegar ég bar þessar tölur fyrst
saman í huganum datt mér helst í
hug að skýringin á þessum mikla
mun væri sú að meðalstuðningur
við aðskilnað væri bara um 66%
markið og munurinn fælist í því
innbyggðri ónákvæmni tölfræði-
rannsókna. En þegar tölurnar á bak
við tölurnar eru skoðaðar kemur í
ljós að nýrri talan er mun líklegri
til að vera rétt.
Í könnuninni frá 2007 sem fór
fram í hájólavertíðinni var úrtakið
rúmlega tólf hundruð manns. Í nýju
könnuninni var úrtakið nærri tvö-
falt stærra.
Um leið var svarhlutfall mikið
betra árið 2009 en 2007. Í fyrri
könnuninni svöruðu um 61% en í
þeirri seinni um 71%. Þessar tölur
benda allar til þess að stuðningur
við aðskilnað sé
mun nær 74% en
51%.
Capacent
Gallup gerði
sjálft fyrirvara
við niðurstöður
síðustu könnun-
ar enda var hún
á skjön við allt
sem áður hafði
fram komið.
Talið var líklegt að tímasetning-
in hefði mögulega skekkt niðurstöð-
una.
Ég tel þó reyndar ekki að það séu
færri hlynntari aðskilnaði þegar
jólavertíðin er í hámarki en ég tel
frekar að fólk sé ólíklegra til að
upplýsa þá afstöðu sína og þá sér-
staklega miðað við þá umræðu sem
var þá í samfélaginu. Vissulega má
segja að tímasetningin á nýju könn-
uninni gæti haft einhver áhrif. Mál
séra Gunnars er mikið búið að vera
í umræðunni. En aftur á móti þá
eru nær alltaf í gangi einhver erfið
deilumál innan kirkjunnar.
Það sem kemur líklega mest á
óvart við niðurstöður nýju könnun-
arinnar er mikið fylgi við aðskilnað
innan kirkjunnar sjálfrar. Hugsan-
lega mætti túlka þennan stuðning
við aðskilnað sem trú á að sjálfstæð
kirkja ætti auðveldara með að leysa
slíkar deilur.
En það er eitt ljóst. Þó að forsvars-
menn kirkjunnar reyni að afneita
niðurstöðunum með vísun í fáfræði
almennings þá getur ríkisvaldið ekki
lengur tafið. Við eigum að hætta að
rökræða um hvort eigi að skilja að
ríki og kirkju og fara þess í stað að
ræða um hvernig skuli staðið að
þessum löngu tímabæra aðskilnaði.
Höfundur er þjóðfræðingur.
Tölfræði aðskilnað-
ar ríkis og kirkju
Það sem kemur líklega mest
á óvart við niðurstöður nýju
könnunarinnar er mikið fylgi
við aðskilnað innan kirkjunnar
sjálfrar.
ÓLI GNEISTI
SÓLEYJARSON
UMRÆÐAN
Brynja Laxdal skrifar
um heilbrigðismál
Oft er sagt að heilbrigðis-kerfið á Íslandi sé dýrt,
en að sama skapi gleymist
að ræða það virði sem þjón-
ustan leiðir af sér eins og
betri lífsgæði samfélags-
þegna og þekkingasköpun starfs-
manna sem hvort tveggja skilar sér
til þjóðfélagsins. Heilbrigðiskerf-
ið þarf þó vitaskuld að hagræða í
rekstri rétt eins og aðrar skipulags-
heildir. Stjórnun og stefnumótun er
nokkuð háð fjárlögum og pólítík en
hagræðing stjórnast af skipulagi
innviða, gegnum mannauð og með
aukinni þátttöku og ábyrgð skjól-
stæðinga á eigin heilsu.
Að þessu sögðu eru ýmis tækifæri
til hagræðingar í heilbrigðiskerfinu,
til dæmis með aukinni rafrænni
þjónustu þar sem við á. Þá mætti
fjölga tekjustofnum með útseldri
ráðgjöf og sérþjónustu en áður yrði
að fá álit neytenda á þeirri þjónustu
sem þeir helst óska eftir og hversu
mikið þeir eru til í að borga fyrir
hvers kyns sérþjónustu.
Sem dæmi um hagræðingu sem
skapar ávinning til lengri tíma er
efling og jafnvel áherslubreyting
á lýðheilsu- og forvarnarþjónustu
heilsugæslunnar. Ávinningur er
minni lyfjanotkun, fækkun ótíma-
bærra sjúkdóma, minna vinnutap
og færri kostnaðarsamar innlagnir
á sjúkrahús eða meðferðastofnanir.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnun (2007) má rekja 60% heilsu-
farsvandamála í Evrópu til lífs-
stílssjúkdóma. American Institute
of Cancer Research segir í skýrslu
árið 2007 að með því að halda sér í
kjörþyngd sé hægt að minnka líkur
á krabbameini um 30-40%. Norræn-
ir félags- og heilbrigðismálaráðherr-
ar gáfu út yfirlýsingu í júní 2009
þess efnis að barátta gegn
lífsstílssjúkdómum væri á
forgangslista, ásamt því að
vinna sig út úr fjármála-
kreppunni.
Í könnun sem undirrit-
uð gerði í mars 2009 meðal
skjólstæðinga sex heilsu-
gæslustöðva á höfuðborg-
arsvæðinu komu fram vís-
bendingar um að fræðsla
eða hvatning heimilislækna og
hjúkrunarfræðinga mætti vera
meira afgerandi sem áhrifaþáttur
lífsstílsbreytinga miðað við gefn-
ar forsendur um hlutfall lífsstíls-
sjúkdóma af heilsufarsvandamál-
um. Þeir þættir í rannsókninni sem
voru tíundaðir sem áhrifaþættir
voru mataræði, hreyfing, reyking-
ar, neysla kofffíndrykkja eða önnur
heilsuspillandi iðja. Þá töldu svar-
endur ennfremur vanta alhiða (and-
lega og líkamlega) þjónustu og að
eftirfylgni væri ábótavant.
Ýmislegt hefur áhrif á neyslu
og lífsstíl eins og tískustraumar,
neyslustýring stjórnvalda, fræðsla,
frægar fyrirmyndir og áhrif vina
og fjölskyldu. Sú staða og ímynd
sem heilbrigði skapar fæst gegn-
um auðkennastjórnun lýðheilsu og
hún ásamt forvarnarstarfi í skóla
eru mjög mikilvægar. Áríðandi er
að samvinna ýmissa stétta sé nýtt
til hins ítrasta því á skólaaldri er
fræum forvarna sáð til komandi
kynslóða. Hafi sú vinna ekki tilætl-
uð áhrif er næsta skrefið að aðstoða
viðkomandi að breyta um lífs-
stíl, sé fyrirsjáanlegt að heilsunni
sé ógnað. Árangur persónulegra
tengsla, stuðnings og eftirfylgni er
mun meiri en markaðsherferða þó
þær þjóni vel sem vitundarvakning.
Í þessu samhengi telst heilsugæslan
í einstakri nálægð við íbúa og skóla-
samfélagið í þeim byggðakjarna sem
hún þjónar. Enda er það svo að mis-
munandi aðferðir og hvatning henta
hverjum og einum og skoða þarf lífs-
stíl út frá ýmsum forsendum eins og
ættarsögu. Lífsstílsbreyting er lang-
tíma ferli og veltur fyrst og síðast
á þátttöku hvers og eins. Erlendar
rannsóknir sýna að góð samskipta-
færni heilbrigðisstarfsfólks eykur
árangur lífsstílsbreytinga. Hér er
átt við kunnáttu til að fræða svo
boðskapurinn skiljist og sé með-
tekinn, viðmóti þess sem fræðir og
eftirfylgni.
Lýðheilsustöð hefur verið hvað
sýnilegust í forvarnarmálum og
skýrði nýlega frá niðurstöðum 17
ára rannsóknar á þyngd Íslendinga
en þar kemur fram að við höfum
þyngst jafnt og þétt, þrátt fyrir gríð-
arlegan áróður um áhrif holls mat-
aræðis og hreyfingar. Hér hljóta
menn að spyrja sig hvort verið sé að
beita réttum aðferðum við að koma
skilaboðum á framfæri eða skyldi
helsti hvatinn til lífsstílsbreytinga
felast í alvarlegri heilsufarslegri
viðvörun, áfalli eða hugsanlega
vegna álaga stjórnvalda á „óholl-
ustu“? Fjölrannsóknagreining á 48
markaðsherferðum í Bandaríkj-
unum gegn heilsuspillandi lífsstíl
sem byggðust á félagslegri nálg-
un sýndu 9% árangur ári eftir her-
ferð. Í mildari eða upplýsandi her-
ferðum var árangurinn aðeins 5%.
Árangur íslenska Reyksímans sem
er hugmyndasmíð hjúkrunarfræð-
inga er hins vegar um 36% ári eftir
upphaf meðferðar. Þennan frábæra
árangur sem og annan góðan ætti að
nota í markvissri hugmyndavinnu að
lýðheilsuþjónustu þar sem jafnframt
eru skoðuð tengsl markhópa og heil-
brigðisskilaboða ásamt áhrifaþátt-
um heilsupillandi hegðunar og lífs-
stílsbreytinga. Aðeins þannig lærum
við að yrkja jarðveginn og sá rétt-
um fræjum til að fá sem besta upp-
skeru.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og MS í markaðsfræði og alþjóða-
viðskiptum.
Virði heilbrigðisþjónustu
BRYNJA LAXDAL