Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 65

Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 65
11. desember föstudagur 9 hefur þá hjá sér í eldhúsinu og býr til framtíðarkokka og fyrirmynd- areiginmenn úr þeim. „Þeir hanga hvor á sinni borðbrúninni og fylgj- ast með. Þeim finnst ofboðslega gaman að vera með mér í eldhús- inu. Sérstaklega þeim eldri, sem er þriggja ára.“ Maðurinn hennar horfir líka stundum á, þótt hann hætti sér sjaldnast alla leið að skurðarbrettinu. „Ég held hann missi allt sjálfstraust við hliðina á mér í eldhúsinu. En hann er góður að setja í uppþvottavél. Svo hefur hann góðan smekk á mat, sem mér finnst mjög mikilvægt.“ PÓLITÍK FER MÉR EKKI Það var því greinilega engin til- viljun að Friðrika var beðin um að gerast sjónvarpskokkur, þótt sjón- varpsferillinn hafi hafist í Íslandi í dag. „Mér fannst voðalega gaman að vinna í Íslandi í dag, en það var mjög pólitískt umhverfi. Mér finnst skemmtilegra að taka við- töl við manneskjur og reyna að fá eitthvað jákvætt og skemmtilegt upp úr þeim heldur en að neyð- ast til að vera alvarleg og tala um pólitík. Það fer mér bara ekki. Svo finnst mér pólitík svolítið undar- legt fyrirbæri og mig langar ekk- ert að koma nálægt henni. Ég skal éta hattinn minn ef ég sést ein- hvern tímann í slagtogi með pól- itískum flokki.“ JÓLAMATREIÐSLUÞÁTTUR Áskrifendur Stöðvar 2 eiga eftir að sjá enn meira af Friðriku um jólin því hún er líka að vinna að hátíðarmatreiðsluþætti sem verð- ur sýndur sunnudagskvöldið 20. desember. Þar stendur alls ekki til að kenna fólki að matreiða jóla- steikina. „Fólk er vanafast með sínar jólahefðir. Ég er ekki að fara að kenna fólki að steikja sebra- hest fjórum dögum fyrir jól. Það sem við ætlum að gera eru frá- bærir réttir fyrir dagana á milli jóla og nýárs, þegar fólk er komið með ógeð á hangikjötinu og vill eitthvað einfalt en samt hátíðlegt og gott.“ Friðrika ætlar ekki að vera mið- punktur athyglinnar sjálf. Hún fær til sín þrjá góða gesti og verður þeirra hjálparhella í eldamennsk- unni, á meðan hún spjallar við þá um heima og geima. „Gói leikari verður fyrstur. Hann er rosalegur gleðigjafi, eiginlega bara eins og gangandi sólskin. Hann er sonur Karls biskups og barnabarn Sigur- björns biskups, svo það er gaman að vita hvernig hann heldur jólin og hvernig hefðirnar voru hjá honum í æsku. Svo fæ ég til mín átta ára strák sem á þann draum æðstan að verða sjónvarpskokk- ur. Hann er yndislegur og býr til flotta nammibita sem öll börn geta leikið eftir. Ef þessi strákur endar ekki í sjónvarpi eða á sviði verð ég hissa. Svo fæ ég Kristj- án Jóhannsson óperusöngvara til mín. Hann hefur eina mestu út- geislun sem ég hef kynnst. Kristj- án er alinn upp á Akureyri í stór- um systkinahópi og bjó lengi vel á Ítalíu og hefur frá mörgu að segja frá þessum tímum.“ ALLTAF HÚN SJÁLF Það er greinilegt að Friðrika er ánægð með hátíðarþáttinn, enda er hún sjálf mikið jólabarn. „Ég kemst í jólaskap strax í septemb- er þegar tekur að rökkva. Ég byrja alltaf á því að kveikja á smá jóla- ljósum á afmæli sonar míns 15. nóvember. Mér finnst þetta of- boðslega skemmtilegur tími. Allir eru í svo góðu skapi og gefa svo mikið af sér. Svo hittir maður vini sína og fjölskyldu oftar, svo þetta er jákvæður tími.“ Eftir áramótin taka síðan fleiri spennandi verkefni við hjá Frið- riku. Hún er ekki tilbúin að segja frá þeim strax, en það er á henni að heyra að sjónvarp, matreiðsla og skemmtilegt fólk komi við sögu. Um mataráhugann þarf ekki að spyrja. En hvernig kann hún við að vera sjónvarpsstjarna? „Mér líður vel fyrir framan mynda- vél og mun betur en í hópi hundr- að manns. Ég held að ég nái að vera ég sjálf í sjónvarpinu, því ég hugsa aldrei um hvort margir eiga eftir að horfa á mig. Mér líður allt- af eins og enginn viti hver ég er og mér líður best þannig.“ operated by v8 ehf CHECK OUT THE G-STAR STORE IN REYKJAVÍK, LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007 09214192 Adv Reykjavik - Frettabladis 25x15cm.indd 1 9/22/09 3:30:44 PM Opið föstudag, laugardag 11-21 og sunnudag 13-18 Full búð af nýjum vörum fyrir jólin A ug lý si ng as ím i – Mest lesið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.