Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 97
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
sími 561 0055 • www.ormstunga.is
Helgi Ingólfsson
Þegar kóngur kom
Litrík og spennandi Reykjavíkursaga frá 19. öld.
Í þessari sögulegu skáldsögu er endurskapað andrúm liðinna tíma, þegar menn
voru upprifnir af ættjarðarást og þó trúir sínum arfaherra. Þetta er saga af því
þegar Ísland komst fyrst í erlendar fréttir, þegar Frónbúar neyddust til að undirbúa
sína fyrstu stórhátíð, frásögn af kóngi og kotbýlingum, skólapiltum og skáldum,
embættismönnum og efristéttarkonum, þénustupíum og þurrabúðarkörlum.
Haraldur Bessason
Guðir og menn
Greinarnar sem hér birtast búa yfir óvenjulegum töfrum. Yfir þeim er andi
heiðríkjunnar þar sem saman fara fræði, innsæi og kímni. Þær tengjast gjarnan
hinu tímalausa í tilverunni og hjálpa okkur þannig til að hefja okkur yfir
ringulreiðina og komast í einhvers konar snertingu við kjarnann.
Stefán Sigurkarlsson
Raddir frá Hólmanesi
Hér segir af mannlífinu við Jökulflóa, einkum fólkinu í þorpinu Hólmanesi, leyndar-
dómum þess, sorgar- og gleðistundum, bæði heima og heiman.
„[…] býsna skemmtileg […] Ég á örugglega eftir að grípa oft í þessa bók.
– Þórdís Gísladóttir. Miðjan.is. 8. des. 2009.
Hlín Agnarsdóttir
Blómin frá Maó
Gráglettin saga um pólitíska einsýni og foringjadýrkun.
Þegar Sigurborg Eyfjörð félagsráðgjafi er að leita að hentugum potti fyrir
búsáhaldabyltinguna er hún beðin um að rifja upp ótrúlega fortíð sína í
Asparsamtökunum, en það voru ekki skógræktarsamtök heldur róttæk
byltingarsamtök á áttunda áratug tuttugustu aldar.
„[…] aldeilis verðugt söguefni sem Hlín tekst á við af þekkingu, innsæi og nettbeiskum
húmor.“
– Steinunn Inga Óttarsdóttir, Sunnudagsmogganum, 29. nóv. 2009
Guðmundur Óskarsson
Bankster
Meitluð saga úr bankahruninu.
Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna!
„[…] hreinræktuð kreppubók og hreinasta afbragð sem slík. Besta kreppubókin.“
– Árni Matthíasson, Sunnudagsmogganum, 15. nóv. 2009.
Úrvalsbækur eftir úrvalshöfunda