Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 98
70 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Tónlist ★★
The Bloody Core of It
Me, the Slumbering Napoleon
Fálmkennt
djamm
Þessi plata með reykvíska
rokktríóinu Me, the Slumb-
ering Napoleon eru mér
vonbrigði. Fimm-laga diskur-
inn Marske by the Sea sem
kom út í haust var nefnilega
ljómandi hressandi. Þar
mátti heyra ágæta stuðrokk-
ara eins og She‘s a Maniac
og titillagið. Svona í ljósi
þessarar EP-plötunnar var
maður því allspenntur fyrir
albúminu og ekki síður
vegna þess að það heyrðist
að bandið sækir greinilega í kraftmikið afgangsstærðarrokk sem amerísk
bönd eins og Flipper, Shellac og Jesus Lizard dældu yfir mann fyrir um
tuttugu árum.
Það er eins og hljómsveitin hafi uppgötvað amerísku hljómsveitina
The Minutemen áður en hún gerði þessa plötu því það eru yfirþyrmandi
Minutemen-áhrif á plötunni. Lög Minutemen voru örstutt og öðruvísi,
stundum pönkfönkuð og oftar en ekki með sniðugum og pólitískum
textum. Þó að lögin hljómi stundum eins og þau séu bara djamm og
að það sé enginn fókus á þeim, þá er yfirleitt eitthvað sem hangir á
spýtunni.
Hjá Me, the Slumbering Napoleon efast maður oftast um að það hangi
eitthvað á spýtunni og lýsingin „andlaust hjakk“ læðist oft að manni. Þótt
þeim finnist kannski sniðugt að fást við þessi riffkenndu reikningsdæmi
sem lögin eru, er vafaatriði hvort einhverjir aðrir nenni að spá í þessu.
Platan byrjar reyndar ágætlega en drabbast svo niður í fálmkennd leið-
indi. Nú er Minutemen-kafla bandsins vonandi lokið og bandið ætti að
sækja í aðra brunna næst. Þetta eru ágætis spilarar og ég hef fulla trú á
að þeir geti gert eitthvað af viti. - Dr. Gunni
Niðurstaða: Að stærstum hluta andlaust hjakk sem fer ekki neitt.
Megas og Senuþjófarn-
ir hafa staðið í ströngu í
Hljóðrita í Hafnarfirði.
Stefnan er sett á jólatón-
leika í Salnum í Kópavogi
16. desember.
„Það verða mörg glæný Megasar-
lög á efnisskránni og við erum
aðeins byrjaðir að taka þau upp
fyrir nýja plötu sem kemur á
næsta ári,“ segir Guðmundur
Kristinn Jónsson, gítarleikari
Senuþjófanna og innsti koppur í
búri Hljóðrita. „Svo erum við líka
að æfa upp „ný-gömul“ Megasar-
lög, eða sem sé lög sem Senu-
þjófarnir hafa aldrei spilað með
honum. Við vildum endilega end-
urnýja prógrammið.“
Meðal glænýju laganna er jóla-
lagið „Jólaeiturslangan“ og lagið
„Týndir túkall“, sem Guðmund-
ur segir að sé blanda af jóla- og
kreppulagi. „Ég sver það: þetta
er síðasta kreppulagið sem ég tek
upp! Þetta er orðið ágætt. Ég er
búinn að taka upp alveg nógu mörg
kreppulög,“ segir hann og dæsir.
„Við stefnum á að klára Jólaeitur-
slönguna um helgina og setja lagið
í spilun strax eftir helgi.“
Megas segir að Jólaeiturslangan
sé eins barnalegt jólalag og hægt
sé að hafa það. „Það úir og grúir
í viðlögum og þjóðlögum og alls
kyns jarðlögum í þessu lagi. Nei
nei, þetta verður ekkert á næstu
plötu, heldur bara svona fyrir
jólin.“
En það er sem sé stefnt að nýrri
plötu?
„Tja, stefnan liggur að minnsta
kosti ekki fram hjá næstu plötu,“
segir Megas.
Enn eru til miðar á jólatónleika
Megasar og Senuþjófanna í Saln-
um hinn sextánda en þeim fer
fækkandi. Þessir kappar skreppa
svo austur á land í dag og verða
með tónleika á Kaffihúsinu á Eski-
firði í kvöld. - drg
Jólaeiturslanga Megasar
Alexa Ray Joel, dóttir popparans
Billys Joel og fyrirsætunnar Christ-
ie Brinkley, var flutt á spítala fyrr
í vikunni, en talið er að hún hafi
reynt að svipta sig lífi. Brinkley
og Joel sendu frá sér tilkynningu á
miðvikudaginn þar sem þau sögðu
líðan dóttur sinnar eftir atvikum
og að hún væri útskrifuð af spítala
og dveldi nú á heimili móður sinn-
ar. New York Post hélt því fram að
Alexa Ray hefði innbyrt svefntöfl-
ur í kjölfar rifrildis við móður sína.
Brinkley og Joel vísa þessu á bug
og segja dóttur sína hafa „glímt við
ástarsorg“ en hún hætti nýlega með
kærasta sínum.
Glímir við
ástarsorg
Guðdóttir Amy Winehouse, vand-
ræðagemsans í bresku tónlist-
arlífi, hefur vísað því á bug að
hún sé tekin saman aftur við
Blake Fielder-Civil. Orðrómur
þess efnis fór á kreik í bresku
pressunni eftir að það spurðist
út að þau hefðu eytt nákvæm-
lega 36 klukkustundum saman
í íbúð í Sheffield. Dionne Brom-
field, umrædd guðdóttir, sagði
við Bang Showbiz þegar hún var
spurð út í þetta að sögusagnirnar
væru úr lausu lofti gripnar. „Hún
fór þangað til að segja Blake að
sambandi þeirra væri endanlega
lokið,“ er haft eftir Bromfield.
Hins vegar vildi Bromfield
ekki vísa því á bug að það væri
hugsanlega einhver annar í spil-
inu og sá væri mun skárri kostur
en tugthúslimurinn Blake. Amy
og Blake hafa hins vegar verið að
daðra hvort við annað á Facebook
og því hefur verið haldið fram að
þau séu að leggja á ráðin um að
giftast á ný. Brúðkaupið gæti hins
vegar ekki farið fram í London
því Blake má ekki stíga þar fæti
samkvæmt dómsúrskurði.
Enginn Blake
EKKI MEÐ BLAKE Guðdóttir Amy Wine-
house, Dionne Bromfield, vísar því á
bug að Amy og Blake séu að byrja aftur
saman. NORDIC PHOTOS/GETTY
Life & Style-tímaritið greinir frá því að
stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt
hafi fagnað því með rómantískum hætti
að þau væru búin að vera saman í fimm ár.
Og krakkaskarinn var víst skilinn eftir
heima, aldrei þessu vant. Ofurstjörn-
urnar gættu þess vandlega að enginn
myndi frétta af þessu afmæli sem átti
sér stað hinn 28. nóvember og tókst svo
vel til að þetta barst fyrst inn á borð
bandarískra slúðurblaða í vikunni.
Samkvæmt Life & Style gistu þau
á Chateau Marmont-hótelinu í Los
Angeles sem er fyrir löngu orðið
heimsfrægt fyrir þjónustu sína og
lúxus. Pitt setti það sem skilyrði að
hafa eingöngu samskipti við æðstu
menn hótelsins til að kvöldið yrði
ekki eyðilagt af aðdáendum og ljósmyndurum. Þau
gistu eina nótt í glæsilegri svítu hótels-
ins og höfðu útsýni yfir sundlaugina
og að sögn sjónarvotta héldust þau í
hendur nánast allan tímann. „Angel-
ina virtist vera mjög spennt og þau
voru mjög afslöppuð enda virt-
ust fáir vita af þeim þarna,“
segir einn sjónarvottur í
samtali við Life & Style-
tímaritið.
Rómantík hjá Jolie og Pitt
ÁSTFANGIN Loksins kom frétt
um Angelinu og Brad sem
snýst ekki um yfirvofandi
skilnað þeirra.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
Í HLJÓÐRITA Megas og Senuþjófarnir
taka upp í Hafnarfirði.
44 réttur
33 cl
psí dós
alltaf í leiðinni!
ÓDÝRT
ALLA DAGA!
19
og
PePepsídós fylgir
frítt m
eð
33 cl
Leikarinn Jude Law flutti fyrir
stuttu inn í nýja íbúð í New York
en svo óheppilega vildi til að við
hliðina á íbúðinni eru stúdenta-
íbúðir og nú hefur leikarinn
engan frið fyrir nágrönnum
sínum. Í hvert sinn sem leikarinn
fer út á svalir hópast nemendurn-
ir við glugga sína, margir hverjir
með sjónauka eða myndavélar.
„Það ríkir kaos í hvert sinn sem
hann stígur út. Fólk safnast af
gluggunum og kallar á hann og
það er greinilegt að hann heyr-
ir til okkar. Það er spennandi
að búa við hliðina á svona stórri
stjörnu,“ var haft eftir Priya Vij
sem býr í einni stúdentaíbúðinni.
Að sögn stúdenta notar Law sval-
irnar til að iðka jóga auk þess
sem hann sést oft leika við son
sinn úti á svölun-
um.
Jude fær eng-
an frið
FÆR ENGAN
FRIÐ Jude
Law fær
engan
frið frá
nágrönn-
um sínum
sem sitja um
hann.