Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 118
90 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Erla Sólveig Óskarsdóttir
2. Húsið er fjörtíu ára
3. George Papandreou
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. fræ, 6. belti, 8. farvegur, 9. hjör,
11. guð, 12. tjón, 14. gróðabrall, 16.
tímabil, 17. þörungur, 18. skarð, 20.
gelt, 21. málmur.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. tveir eins, 4. verkfæri, 5.
rjúka, 7. glæpur, 10. meiðsli, 13. loft,
15. gróft orð, 16. tímabils, 19. hljóta.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. frjó, 6. ól, 8. rás, 9. löm,
11. ra, 12. ógagn, 14. brask, 16. ár, 17.
söl, 18. rof, 20. gá, 21. stál.
LÓÐRÉTT: 1. póló, 3. rr, 4. járnsög, 5.
ósa, 7. lögbrot, 10. mar, 13. gas, 15.
klám, 16. árs, 19. fá.
„Við ætlum að forvitnast um þetta fyrirbæri,
íslensku krónuna. Þetta er minnsti gjaldmiðill
í heimi. Disney-dollarinn er stærri en íslenska
krónan,“ segir leikstjórinn og hagfræðingurinn
Garðar Stefánsson.
Garðar vinnur að heimildarmynd um íslensku
krónuna ásamt Atla Bollasyni, bókmenntafræð-
ingi og hljómborðsleikara Sprengjuhallarinnar.
Félagarnir fengu á dögunum styrk frá Kvik-
myndasjóði Íslands og stefna á að klára handrit-
ið í febrúar á næsta ári og hefja tökur í kjölfar-
ið.
„Hugmyndin er að fjalla um hagfræðina á bak
við íslensku krónuna og gjaldmiðla, peninga-
stefnu og stýrivexti og allt það – allt sem er í
fréttunum allan sólarhringinn – á skemmtilegan
og aðgengilegan hátt,“ segir Garðar. „Þetta er
nokkurs konar Jamie Oliver-pæling. Hann segir
í þáttunum sínum að allir geti eldað flóknar
máltíðir. Við ætlum að segja að allir geti skilið
hagfræði. Það er gert með þeim hætti að
einfalda dæmið aðeins, útskýra hugtökin
og nota skemmtilega grafík.“
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína
í gær úr 11% niður 10%. Garðar og Atli
hyggjast útskýra hvaða þýðingu slík
lækkun hefur fyrir fólkið í landinu. „Hvað
gerir Seðlabankinn? Stýrivextir er skamm-
tímalán sem eru lánuð til viðskipta-
bankanna. Þá sýnum við mynd-
rænt hvernig þetta ferli á sér stað
og hvernig 1% stýrivaxtalækkun
skilar sér í veski hins almenna
borgara. Hvaða áhrif það hefur
á launin þín,“ útskýrir Garðar
fyrir blaðamanni, sem skilur
hvorki upp né niður og bíður því
spenntur eftir myndinni, sem
þeir stefna á að frumsýna næsta
haust. - afb
Skemmtileg mynd um krónuna í bígerð
„Það eru ekki sambærilegir titlar
á markaðinum í ár, eins og í fyrra
þegar Páll Óskar var til dæmis
að selja gríðarlega vel,“ segir
Ásmundur Jónsson, formaður
Félags hljómplötuframleiðenda.
Páll Óskar Hjálmtýsson er ekki
með í jólaplötuflóðinu í ár, eins og
síðustu ár. Páll hefur selt plöturn-
ar Allt fyrir ástina og Silfursafn-
ið í meira en 32.000 eintökum síð-
ustu tvö ár og í fyrra voru plötur
hans þrjú prósent af öllum seldum
plötum. Fjarvera hans ætti því að
skila sér í dræmari plötusölu en
ella, þó að það megi ekki gera lítið
úr áhrifum kreppunnar.
Ásmundur telur að salan í ár
fari almennt seinna í gang en oft
áður. „En ég hef þá trú að hún
eflist mjög mikið síðustu þrjár
vikurnar fyrir jól. Mér finnst
þunginn hafa stigmagnast að und-
anförnu,“ segir hann. „Það á að
fara að veita Hjálmum gullplötu,
þannig að íslenskar plötur eru enn
þá að seljast í ágætis magni.“
Páll Óskar var að vonum hissa
og hrærður yfir áhrifamætti tón-
listar sinnar í samtali við Frétta-
blaðið.
„Ég vona svo sannarlega að fólk
flykkist í plötubúðir og splæsi í
plötur í jólagjöf – þetta eru hinar
bestu gjafir,“ segir hann og bendir
sérstaklega á nýjar plötur hljóm-
sveitanna Hjaltalín og Blood-
group. Þá segist hann búast við að
Vinalagaplata Friðriks Ómars og
Jógvans seljist vel, þar sem hún
höfðar til fjölbreytts hóps. Það
stendur heima, platan er ein sú
söluhæsta á árinu og gæti endað
á toppnum yfir árið.
Spurður hvort hann ætli að
demba sér aftur í slaginn á
næsta ári og gefa út plötu seg-
ist Páll Óskar vona það. „Auðvit-
að væri algjör draumur að geta
gefið út plötu í fullri lengd, en ég
ætla samt ekki að stressa mig á
því,“ segir hann. „Ég ætla frekar
að gefa út smáskífur með mynd-
böndum og sjá svo til hvort það
sé komið nóg af efni til að taka
þátt í jólaslagnum 2010. Mér ligg-
ur ekkert á. Ég vil ekki að næsta
plata komi út fyrr en hún verð-
ur orðin góð og þar verð ég að
treysta eigin dómgreind.“
atlifannar@frettabladid.is
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON: VONAR AÐ FÓLK FLYKKIST Í PLÖTUBÚÐIR
Fjarvera Páls Óskars
heggur skarð í plötusölu
ÚTSKÝRA HAGFRÆÐI Atli
og Garðar ætla að útskýra
flókin hugtök á skemmti-
legan hátt.
PALLI VINSÆLASTUR
Páll Óskar hefur selt meira en 32 þúsund
plötur frá árinu 2007 en er ekki með nýja
plötu í ár og það sést, plötusala fer hægar af
stað í ár en fyrri ár. Ásmundur Jónsson, for-
maður Félags hljómplötuframleiðenda, býst
þó við að salan eflist mjög mikið fyrir jól.
Spennan magnast fyrir kvikmynd-
inni Bjarnfreðarson, sem verður
lokakaflinn í sögunni um hina sár-
þjáðu Georg, Daníel og Ólaf Ragn-
ar. Leikstjórinn Ragnar Bragason
hefur dvalið í Lundúnum síðustu
daga og lagt lokahönd
á myndina og var
svo væntanlegur
til landsins í gær
með fyrsta sýning-
areintakið. Æstir
aðdáendur þre-
menninganna verða
þó að bíða til
26. desember
þegar myndin
verður frum-
sýnd.
Bubbi Morthens hefur átt lög í
öllum þáttaröðunum þremur,
Nætur-, Dag- og Fangavaktinni.
Nú velta menn því
fyrir sér hvort
og þá hvaða
Bubbalag verði í
Bjarnfreðarsyni.
Annars samdi
sjálfur Pétur Ben
tónlistina í mynd-
inni, en hann
hlaut mikið lof
fyrir tónlist sína í
myndunum Börn
og Foreldrar, en
þeim var einnig
leikstýrt af Ragn-
ari Bragasyni.
Og sagt var frá því í þessum dálki
í gær að rithöfundurinn Auður
Haralds væri á bak við hina
stórskemmtilegu auglýsingatexta
í bæklingum frá versluninni Tiger.
Það er ekki rétt, Auður hætti því
fyrir skömmu og við pennanum
tók Harpa Hlín Haraldsdóttir,
starfsmaður auglýsingastofunnar
Pipar/TBWA. Þar starfar hún meðal
annars með Birni Jör-
undi og Sævari
Sigurgeirssyni
úr Ljótu
hálfvitunum,
en hann
vinnur núna
að því að skrifa
áramótaskaupið
ásamt fleirum.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
„Mér finnst Gleym-mér-ei
borgarinn á Vitabar vera besti
bitinn í bænum.“
Þrándur Þórarinsson listmálari.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leik-
ur Stebba psycho, aðalhlutverkið í
kvikmyndinni Svartur á leik, sem
gerð er eftir bók Stefáns Mána.
Þorvaldur er sem kunnugt er í
námi við Julliard-skólann í New
York og því veltur nokkuð mikið
á að samræma stundaskrá hans
og kvikmyndarinnar. Þorvaldur
lék síðast í kvikmyndinni Reykja-
vik Whale Watching Massacre og
þótti standa sig nokkuð vel með
aflitaða hárið. Framleiðslufyrir-
tækin ZikZak og Filmus standa að
gerð myndarinnar en leikstjóri er
Óskar Axel Óskarsson.
Hann skrifar handritið að mynd-
inni ásamt Stefáni Mána en áætlað
er að tökur hefjist í byrjun næsta
árs. Arnar Knútsson, framleiðandi
hjá Filmus, staðfestir í samtali
við Fréttablaðið að góður gang-
ur sé nú á verkefninu, fjármögn-
un hennar sé í réttum farvegi og
því hylli nú undir að tökuvélarn-
ar byrji að rúlla. Filmus og ZikZak
keyptu kvikmyndaréttinn að bók-
inni árið 2005 en hún kom út fyrir
fimm árum.
„Þetta er búið að taka sinn
tíma,“ viðurkennir Arnar en bókin
vakti mikla athygli á sínum tíma
og skaut Stefáni upp á stjörnu-
himininn. Stefán, sem á miðviku-
daginn skrifaði undir samning við
Saga Film vegna kvikmyndarétt-
ar Ódáðahrauns, var að vonum
ánægður með að þetta verkefni
skuli loks verða að veruleika. „Og
það sem er merkilegt er að ég sá
alltaf Þorvald Davíð fyrir mér sem
Stebba.“ - fgg
Þorvaldur er Stebbi psycho
FYRSTI KOSTUR Þorvaldur Davíð var
fyrsti kostur Stefáns Mána sem Stebbi
Psycho, aðalpersónan í Svartur á leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR