Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 6
6 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARFÉLÖG „Við höfum veitt bæj-
arstjórn Álftaness frest til 20.
janúar næstkomandi til að koma
fjármálum sveitarfélagsins á rétt-
an kjöl,“ segir Kristján L. Möller
sveitarstjórnarráðherra.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í gær er fjárhagsstaða Álfta-
ness vonlítil. Bæjarstjórnin er í
samvinnu við eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga að reyna að
ráða fram úr vandanum. Kristj-
án segir það liggja skýrt fyrir í
sveitarstjórnarlögum hvað ger-
ist takist bæjarstjórninni ekki
að ráða fram úr vandanum áður
en fresturinn er á enda. „Komi
í ljós að greiðslubyrðin verði
áfram umfram greiðslugetu og
sé það mikil að ekki muni úr ræt-
ast í bráð höfum við heimild til að
skipa sveitarfélaginu fjárhalds-
stjórn,“ segir ráðherrann.
Skýrsla eftirlitsnefndarinnar
um Álftanes hefur enn ekki feng-
ist afhent. Mismunandi túlkanir
eru á því hvað teljist vera skuld-
ir sveitarfélagsins. Fulltrúar þess
meirihluta sem fór með völd í bæj-
arfélaginu frá því eftir kosningar
2006 og þar til í sumar segja til
dæmis skuldirnar nú standa í ríf-
lega 4 milljörðum króna.
Kristján L. Möller dregur hins
vegar upp aðra mynd af skulda-
stöðu Álftaness. „Skuldirnar eru
7,4 milljarðar,“ segir ráðherrann.
„Þar af eru skuldbindingar utan
efnahags tæpir þrír milljarðar
sem eru einkum vegna langtíma-
samninga við eignarhaldsfélagið
Fasteign.“
Pálmi Másson, bæjarstjóri
Álftaness, vill ekki tjá sig um
skuldastöðuna að svo stöddu. „Við
ráðgerum íbúafund, sennilega á
fimmtudag, þar sem farið verð-
ur yfir niðurstöður skýrslunnar,“
segir Pálmi.
Bæjarstjórinn kannast ekki við
að ráðuneytið hafi sett Álftanesi
formleg tímamörk. Pálmi, ásamt
Kristni Guðlaugssyni, forseta
bæjarstjórnar, og Margréti Jóns-
dóttur, formanni bæjarráðs, áttu
síðdegis í gær fund með fulltrú-
um eftirlitsnefndar með fjármál-
um sveitarfélaga. Pálmi segir við-
ræður halda áfram í dag. „Svo má
vænta þess að öðru hvorum megin
við helgi liggi fyrir eitthvert sam-
komulag milli bæjarstjórnar og
ráðuneytisins um þennan tíma
sem ráðherrann nefndi,“ segir
hann.
Sveitarstjórnarráðherra segir
að ákveðið hafi verið að Álftanes
fái fyrirframgreiðslu úr jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga til að geta
greitt laun og aðrar forgangskröf-
ur á næstu vikum.
Meðal úrræða sem Álftanes
hefur samkvæmt lögum er að
óska eftir leyfi ráðherra að hækka
álögur á íbúana um allt að 25 pró-
sent. Pálmi segir engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um slíkt af
hálfu bæjarstjórnar.
gar@frettabladid.is
tökum notuð barnaskíði og skó upp í ný
SKÍÐASKIPTIMARKAÐUR
Fá fimm vikur til að
bjarga fjármálunum
Sveitarstjórnarráðherra segist hafa veitt bæjarstjórn Álftaness frest til 20. janúar
til að laga fjárhagsstöðuna. Takist það ekki blasi við að ráðuneytið yfirtaki fjár-
reiður sveitarfélagsins. Bæjarstjórinn segir viðræður enn í gangi við ráðuneytið.
FORSVARSMENN ÁLFTANESS Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar Álftaness,
og Margrét Jónsdóttir, formaður bæjarráðs, koma ásamt Pálma Mássyni bæjarstjóra
af fundi með eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga í samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Vísitala mun að
öllum líkindum hækka um 0,6
prósentustig í desember og verð-
bólga fara úr 8,6 í 7,7 prósent í
mánuðinum, samkvæmt nýjustu
verðbólguspá Greiningar Íslands-
banka. Gangi þetta eftir hefur
verðbólga ekki verið lægri síðan
í kringum mars í fyrra.
Greiningardeildin bendir á að
gengi krónunnar hafi verið nokk-
uð stöðgut undanfarna mánuði og
séu áhrif gengishrunsins um mitt
síðasta ár enn að koma fram og
megi gera ráð fyrir að innfluttur
varningur hækki nú líkt og fyrri
mánuði.
Greiningardeildin gerir einn-
ig ráð fyrir að vöruverð muni
hækka fljótlega á næsta ári og
kunni verðbólga því að fara upp í
9,5 prósent undir lok fyrsta fjórð-
ungs. Í kjölfar nafnverðslækk-
unar á húsnæðisverði, hóflegrar
hækkunar launa og lítillar eftir-
spurnar í hagkerfinu muni hún
fara niður í allt að fjögur pró-
sent undir lok ársins og hugsan-
lega niður í 2,5 prósent undir lok
ársins 2011.
- jab
Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólga fari í 7,7 prósent í mánuðinum:
Lækkar fram á þarnæsta ár
20
15
10
5
0
%
Verðbólga frá febrúar 2008 - nóvember 2009
2008 2009
fe
b
m
ar ap
r
m
aí
jú
n jú
l
ág
ú
se
p
ok
t
nó
v
de
s
ja
n
fe
b
m
ar ap
r
m
aí
jú
n jú
l
ág
ú
se
p
ok
t
nó
v
18,6
14,0
6,8
8,6
12,2
VÍSINDI, AP Nýjar rannsóknir á risaeðlusteingerving-
um, sem fundust í Nýju-Mexíkó, hafa aukið til muna
skilning vísindamanna á uppruna og þróun þessara
stóru lífvera.
Meðal annars þykja þessar nýju upplýsingar renna
stoðum undir þá kenningu að risaeðlurnar hafi upp-
haflega komið frá Suður-Ameríku og breiðst þaðan út
um heiminn. Á þeim tíma höfðu heimsálfurnar ekki
greinst í sundur heldur voru saman í einum stórum
landfleka, þannig að dýr áttu auðvelt með að fara á
milli heimshluta.
Í nýjasta hefti tímaritsins Science er grein um nýju
rannsóknirnar. Steingervingarnir sem fundust í Nýju-
Mexíkó eru af risaeðlutegund sem hlotið hefur nafn-
ið Tawa Hallae. Þetta var tveggja til fjögurra metra
löng kjötæta sem fyrst kom fram á sjónarsviðið fyrir
um 213 milljón árum, en fyrstu risaeðlur veraldar eru
taldar hafa komið fram fyrir um 230 milljón árum.
„Þessi nýja risaeðla, Tawa Hallae, breytir skiln-
ingi okkar á samskiptum fyrstu risaeðlanna,“ segir
Randall Irmis, einn höfunda greinarinnar.
Yfirumsjón með nýju rannsóknunum hafði Sterling
J. Nesbitt, vísindamaður við Texas-háskóla í Austin.
- gb
Steingervingar frá Nýju-Mexíkó varpa ljósi á þróun risaeðlna:
Uppruni risaeðlanna í Suður-Ameríku
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
NÝJA RISAEÐLAN Tawa
Hallae er nefnd eftir
sólguðnum Tawa og
steingervingafræðingn-
um Ruth Hall.
DÓMSTÓLAR Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann á sjötugsaldri
fyrir Héraðsdómi Norðurlands
eystra fyrir að hafa barnaklám í
vörslum sínum.
Manninum er gefið að sök
að hafa haft á heimili sínu að
minnsta kosti frá því í júní til okt-
óber á þessu ári fjórtán hreyfi-
myndir sem sýna börn á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt.
Maðurinn var með efni sem tók
samtals um eina og hálfa klukku-
stund í spilun.
Ríkissaksóknari krefst þess að
hann verði dæmdur til refsingar
og til greiðslu alls sakarkostnað-
ar. - jss
Karlmaður á sjötugsaldri:
Barnakláms-
maður ákærður
Á ríkið að innheimta 400 millj-
ónir í skatt til að fjármagna
Samtök iðnaðarins?
Já 9,6
Nei 90,4
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að breytingar á lofts-
lagi kunni að ógna lífsskilyrðum
á Íslandi?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN