Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 58
50 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR Sopranos verða með jólatónleika í Hafnarborg í kvöld kl. 20. Tríóið Sopranos er landsmönnum að góðu kunnugt en það skipa söngkonurn- ar Hörn Hrafnsdóttir, Margrét Grétarsdóttir og Svana Berglind Karlsdóttir. Á tónleikunum verður bland af hátíðlegum gullmolum og léttum og skemmtilegum jólalög- um í útsetningu Sopranos og Egils Gunnarssonar og eins og stelpunum einum er lagið verður ekki langt í grínið. Gestasöngvarinn kemur heit- ur af fjölum íslensku óperunnar og er stórsöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson sem hefur glatt lands- menn undanfarið í Ástardrykkn- um. Hólmfríður Sigurðardóttir mun fara fimum fingrum um flygilinn þetta kvöld og Örnólfur Kristjáns- son strýkur sellóið af sinni alkunnu snilld. „Við erum upp að eyrum í söng á milli þess sem við gerum jólakon- fektið og sinnum börnum,“ segir Svana Berglind. „Ég á lítinn sjö vikna engil sem hlýtur að verða mikið jólabarn því að hún hlustar stóreygð á söngæfingar Sopranos og segir gúú annað slagið. Svo verð- um við að sjálfsögðu í jólaþorpinu í Hafnarfirði næstkomandi sunnu- dag og hlökkum mikið til þess enda jólin komin þegar þorpið opnar. Við höfum verið að grínast með það undanfarið að hér eftir bjóð- um við bara söngvurum að syngja með okkur ef þeir eru „búnir að meika það“. Fyrsti gestasöngvarinn okkar var Gissur Páll Gissurarson tenór, þá óþekktur og óskrifað blað á Íslandi en skaust upp á stjörnu- himininn stuttu eftir að hann söng með okkur. Sá næsti í röðinni var Hrólfur Sæmundsson baritón, sem er að slá í gegn í Þýskalandi í vetur og fyrir þessa jólatónleika okkar var löngu ákveðið að gesta- söngvarinn yrði Hafnfirðingur- inn og útvarpsmaðurinn góðkunni Ásgeir Páll Ásgeirsson sem hefur verið í útlandinu í söngnámi undan- farin misseri. Nema hvað að það er eins og við manninn mælt að þegar Ásgeir Páll var búinn að melda sig til okkar þá er honum boðinn samningur í Þýskalandi og meira virðist vera í pípunum þessa dag- ana hjá honum. Svo að Bjarni Thor er góður fengur því að hann er nú þegar með yfir 600 óperusýningar að baki, löngu búinn að slá í gegn eins og alþjóð veit og er þar að auki jólasveinalegur með afbrigðum og yfirmáta skemmtilegur, svo að þetta verður bara tóm gleði.“ Menningarmálanefnd Hafnar- fjarðar styrkir tónleikana. - pbb Sýningin Stjörnur eitt augnablik, heitir eftir samnefndri myndröð ljósmyndarans Laurents Friob sem hann tók á Íslandi, nánar tiltekið af Goðafossi árið 2008. Nú opnar Friob sýningu á verkum úr röðinni á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi. Um sýningu og við- fangsefnið segir Friob: „Ljósmynd- un er oft skilgreind sem vélræn eftirmynd raunveruleikans. Ljós- myndin er bútur sem er tekinn úr tíma og rúmi, pappírsbrot af óend- anlegri dýpt. Myndavélin starf- ar líkt og stundaglas úr ljósi sem flöktir milli heima. Í ljósmynd- un eru myndir baðaðar ljósi, ekki efni. Myndin frystir eitt augnablik af tímans óendanlega flæði. Það er eitthvað við myndatöku sem trufl- ar tímans takt; spenna milli skiln- ings og skynjunar. Ljósmyndun er því fyrir mér svipuð og aðrir gagnslausir en þó ævarandi hlut- ir. Hún sýnir þörf okkar fyrir eitt- hvað sem glitrar innra með okkur; hvernig ljósið ljómar, slokknar, titrar og springur.“ Laurent Friob er fæddur í Lúx- emborg, hinni gömlu vinaborg Íslendinga, en hann býr og starfar í Brussel. Hann er eðlisfræðingur og hljóðverkfræðingur að mennt en hefur ekki formlega listmennt- un að baki. Laurent hefur tekið þátt í sýningum víðs vegar og var til að mynda fulltrúi Lúxemborgar í European Month of Photography – ljósmyndahátíðinni árið 2006 og hafa myndir hans einnig birst í virtum ljósmyndatímaritum. Sýningin hefst 17. desember og er opin virka daga frá 12-19 og frá 13-17 um helgar. Hún verður uppi í Ljósmyndasafninu til 9. febrúar. Stjörnur eitt augnablik HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 16. desember 2009 ➜ Sýningar Sjöfn Eggertsdóttir hefur opnað sýn- inguna „Ein heima“ í Menningarmið- stöðinni Sláturhúsið við Kaupvang á Egilsstöðum. Opið virka daga kl. 14-22 og um helgar kl. 14-18. Marta María Jónsdóttir hefur opnað sýningu á málverkum og teikningum í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna við Þver- holt. Opið mán.-fös. kl. 12-19 og lau. kl. 12-15. Á veitingastaðnum Horninu við Hafn- arstræti 15, hefur verið opnuð sýning á málverkum Önnu Gunnlaugsdóttur. Opið alla daga kl. 11-24. ➜ Upplestur 12.00 Sigurður Gylfi Magnússon, Jón Karl Helgason og Oddný Eir Ævarsdóttir lesa úr bókum sínum í húsnæði Reykja- víkurAkademíunnar að Hringbraut 121 (4. hæð). Allir velkomnir. ➜ Uppistand 21.00 Iceland Christmas Comedy Festival, aþjóðleg grínhátíð á ensku og íslensku stendur yfir til 19. desember. Í kvöld verður haldin spunakeppni á Café Cultura við Hverfisgötu 18. Nánari upp- lýsingar á www.uppistand.is. ➜ Tónleikar 12.10 Sigga Beinteins og Grétar Örvars flytja jólalög á tónleikum í Guðríðar- kirkju í Grafarholti en þar verður einnig haldinn jólamarkaður. Þessir viðburðir eru í tengslum við hamingju-hádegi sem kirkjan býður upp á alla miðviku- daga í vetur. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. 20.00 Sópranós tríóið sem er skipað Hörn Hrafnsdóttur, Margréti Grétars- dóttur og Svönu Berglindi Karlsdóttur, verður með jólatónleika í Hafnarborg, Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarð- ar við Strandgötu. Gestasöngvari verður Bjarni Thor. 20.00 Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á efnisskránni eru verk eftir m.a. Beethoven, Mozart, Haydn og Mendelssohn. 20.30 Megas og senuþjófarnir verða með tónleika í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. 20.30 Útgáfutónleikar Uni fara fram í Iðnó við Vonarstræti. Húsið verður opnað kl. 20. 21.00 Bloodgroup, Mammút, Sykur, Lára og Foreign Monkeys koma fram á tónleikum á Sódóma Reykjavík við Tryggvagötu. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. LJÓSMYNDIR Ein mynda Friobs á sýn- ingu hans frá Goðafossi. MYND LAURENT FRIOB/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Sopranos í Hafnarborg TÓNLIST Tríóið Sopranos í jólabúningnum: Margrét Grétarsdóttir, Svana Berglind Karlsdóttir og Hörn Hrafnsdóttir. MYND SOPRANOS Tónlist ★★★★ Easy Music for Difficult People Kimono Flottar pælingar Easy Music for Difficult People er þriðja plata Kimono ef endurvinnsluplatan með Curver er undanskilin og fyrsta plata sveitarinnar með nýju efni síðan hin frábæra Arctic Death Ship kom út árið 2005. Í millitíð- inni hætti Halldór bassaleikari. Flestar hljómsveitir hefðu lagt ofuráherslu á að ráða nýjan bassaleikara, en þeir Alex, Gylfi og Kjartan ákváðu að taka slaginn þrír og sleppa bassanum. Aðalsmerki Kimono hefur alltaf verið frábært gítarsamspil Alex og Gylfa og þannig er það enn þá á Easy Music. Það eru níu lög á plötunni og þau sækja í djúpan brunn rokksögunnar, til dæmis í amerískt jaðarrokk og breskt post-pönk, en Kimono gerir hlutina á sinn hátt og þó að lögin séu nokkuð fjölbreytt þá er Kimono-stimpillinn á þeim öllum. Það eru bara góð lög á Easy Music en maður nær þeim misfljótt. Það sem einkennir tónlist plötunnar eru flottar pælingar í hljóðfæraleik og útsetningum. Gítararnir taka upp á einhverju skemmtilegu í öllum lögunum og svo er Kjartan líka hugmyndaríkur trommuleikari. Einn af skemmtilegustu rokktrommurum sinnar kynslóðar. Loks er vert að geta textanna sem eru fínir – aðallega í hversdagspælingadeildinni. Platan myndar nokkuð þétta heild og eins og áður segir er ekkert slæmt lag á henni, en mín uppáhaldslög eru Kente, Wire, Vienna og sérstaklega lokalagið Tomorrow. Það er eitt af þessum lögum sem maður verður að hækka vel í og spila alla vega þrisvar í röð. Á heildina er Easy Music fín Kimono-plata og auðveldlega ein af bestu plötum ársins. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Traust rokkplata sem hefur allt það sem góð Kimono-plata þarf að hafa – fínar lagasmíðar og flottar pælingar. Nýtt lag Jóns Þórs Birgissonar, Boy Lilikoi, af væntanlegri sóló- plötu hans fær mjög góða dóma á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchfork, eða 8 af 10 möguleg- um. Laginu er líkt við tónlist úr Disney-teiknimyndum á borð við Konung ljónanna og Litlu haf- meyjuna þar sem glaðværðin ræður ríkjum. „Strengjahljóð- færi, flautur, gítarar, bakgrunns- raddir, trommur og ýmislegt fleira byggja fullkomna skýjaborg og rödd Jónsa kryddar útkomuna. Hérna er enginn bölmóður til stað- ar,“ segir gagnrýnandinn og bætir við að lagið sé mjög upplífgandi. „Það kemur heldur ekki á óvart að textarnir eru afar einfaldir á sama tíma og lagið sjálft er mjög flókið.“ Upplífgandi skýjaborg JÓNSI Nýtt lag Jónsa fær mjög góða dóma á síðunni Pitchfork. MYND/LILJA BIRGISDÓTTIR Ráðhús Reykjavíkur Miðvikudag 16. des. kl. 20:30 Aðgangur ókeypis Stjórnandi: Stefán S. Stefánsson Einsöngvari og sérstakur gestur: Diddú Á árlegum jólatónleikum Stórsveitar Reykjavíkur verður flutt fjölbreytt dagskrá skemmtilegrar jólatónlistar í jazzútsetningum, innlendum og erlendum, nýjum og gömlum. & STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Á JÓLATÓNLEIKUM Diddú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.