Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 8
8 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 1. Hvað eru skuldir sveitarfé- lagsins Álftaness háar? 2. Hvaða gamla og þekkta hús í miðborg Reykjavíkur á að selja, samkvæmt fjárlagafrum- varpinu? 3. Háskóli hvaða ríkis í Banda- ríkjunum hefur gert Ólaf Ragn- ar Grímsson að heiðursdoktor? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70 DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjaness hefur fellt úr gildi árangurslaus fjárnám sem gerð voru hjá Klæðn- ingu að kvöldi 12. október síðastlið- inn. Fjárnámin voru alls 24 og hafa sextán þeirra þegar verið úrskurðuð ólögmæt vegna vinnubragða sýslu- mannsfulltrúans sem þau fram- kvæmdi. Fulltrúi Sýslumannsins í Kópa- vogi bankaði upp á hjá stjórnarfor- manni Klæðningar kvöldið 12. okt- óber vegna þess að hann hafði ekki sinnt ítrekuðum boðum um að mæta á skrifstofu sýslumanns til fjár- námsins, vegna samtals sextíu millj- óna króna skulda. Óskaði fulltrúinn eftir að stjórnarformaðurinn benti á eignir til að gera fjárnámið í. Stjórnarformaðurinn vísaði á fasteign að Íshellu í Hafnarfirði, sem hýsir höfuðstöðvar fyrirtæk- isins, og 62 milljóna kröfu sem Klæðning átti á nýlegan kaupanda að fasteigninni. Það taldi stjórnar- formaðurinn nóg. Fulltrúinn var ósammála og taldi eignina einskis virði, enda væri skráð fasteignamat hússins aðeins 12,3 milljónir en áhvílandi skuldir á því hins vegar 210 milljónir króna. Fulltrúinn lauk síðan fjárnáminu sem árangurslausu, sem þýðir að innan þriggja mánaða geta þeir sem kröfu eiga á félagið krafist þess að það verði tekið til gjaldþrotaskipta. Lögmaður Klæðningar kærði framgöngu fulltrúans með þeim rökum að honum hafi í fyrsta lagi borið að láta fara fram mat á eign- inni, í stað þess að styðjast við gögn annars staðar frá, og í öðru lagi hafi átt að gefa stjórnarformanninum kost á að benda á aðrar eignir til að gera fjárnám í. Á þessi rök féllst héraðsdómur, jafnvel þótt sýslumaður hafi mót- mælt þeim og bent á að lögum sam- kvæmt skuli sýslumannsembættið meta virði eignarinnar ef vafi er um það, og að fulltrúinn sem fór á stað- inn hafi búið yfir nægri þekkingu og hæfni til að framkvæma það mat. Héraðsdómur felldi fimm fjár- námanna úr gildi fyrir helgi og ell- efu til viðbótar í gær. Ekki fór fram munnlegur málflutningur í afgangi málanna og verður þeim lokið á næstunni. Magnús Guðlaugsson, lögmaður Klæðningar, segir ljóst að niðurstaðan þar verði sú sama. Magnús á von á að menn reyni í kjölfarið ný fjárnám hjá félaginu. stigur@frettabladid.is Brotið á Klæðningu Héraðsdómur hefur úrskurðað að Sýslumaðurinn í Kópavogi hafi staðið óeðlilega að verki þegar hann gerði 24 árangurslaus fjárnám hjá Klæðningu að kvöldlagi fyrir tveimur mánuðum. ÍSHELLA 7 Skráð fasteignamat þessarar eignar, sem hýsir Klæðningu, er 12,3 milljónir króna. Á henni hvíla hins vegar 210 milljóna króna skuldir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglunn- ar á Eskifirði á innbroti og þjófnaði úr steinasafninu á Teigarhorni við Djúpavog hefur engum árangri skil- að. Um 500 geislasteinum var stolið úr safninu um miðjan október að verðmæti fimmtán til tuttugu millj- ónir króna. Jónína Ingvarsdóttir, ábúandi á Teigarhorni og einn eig- enda steinasafnsins, segir að vonir hafi verið bundnar við að steinarn- ir kæmu fram vegna þess hversu umfang þeirra er mikið. Þyngsti steinninn sem var numinn á brott var tugir kílóa að þyngd. Sú kenn- ing að steinarnir hafi verið seldir úr landi eða þeim stolið fyrir erlendan steinasafnara, virðist líklegri með hverjum deginum, segir Jónína. Eins og sagt var frá í fréttum í október var brotist inn þegar ábú- endur á Teigarhorni voru fjarver- andi. Þeir sem þar voru á ferð tóku sér góðan tíma í safninu því stein- unum var pakkað inn til flutnings. „Þeir komu hingað til að taka stein- ana og voru vel undirbúnir. Hvaða þjófar tækju sér góðan tíma í að stela steinum en láta tómt íbúðar- hús eiga sig,“ spyr Jónína. Steinarnir voru ótryggðir og því er missirinn mikið fjárhagslegt áfall fyrir Jónínu og hennar fólk. Hins vegar er missirinn ekki minni fyrir íslenska þjóð. Steinarnir eru einstök náttúrugersemi á heimsvísu og hafa verið eftirsóttir af jarðvís- indamönnum, háskólum og áhuga- fólki um steindafræði í tugi ára. - shá Rannsókn á innbroti og þjófnaði á Teigarhorni við Djúpavog skilar engu: Geislasteinarnir gufaðir upp GEISLASTEINAR Steina frá Teigarhorni er að finna í öllum stærstu náttúruminja- söfnum heims. BRETLAND British Airways krefst lögbanns á tólf daga verkfall sem flugfreyjur þess hafa boðað frá 22. desember til 2. janúar. Níu af hverjum tíu flugfreyjum félags- ins studdu verkfallsboðun. Verkfallið myndi hafa áhrif á ferðir milljóna manna yfir hátíð- arnar. Félagið bendir á galla á verkfallsboðinu og fór fram á að það yrði dregið til baka. Þegar ekki var orðið við því var farið fram á lögbann. Verkfall yrði mikið áfall fyrir félagið og myndi kosta það milljónir sterlingspunda. Það tapar nú þegar 1,6 milljónum punda á dag. - ót British Airways vilja lögbann: Flugliðar boða verkfall um jól SAMKEPPNISMÁL Ekki er gerð athugasemd við kaup Reykja- nesbæjar á hlutafé í HS Veitum í nýrri ákvörðun Samkeppniseft- irlitsins. Um samruna er að ræða samkvæmt eftirlitinu, en ekki sé ástæða til að aðhafast frekar. Reykjanesbær seldi Geysi Green Energy 34 prósenta hlut sinn í HS Orku í október síðastliðnum, og fékk greitt með 32 prósenta hlut á HS Veitum. Samkeppniseftirlitið minnir í ákvörðun sinni á að Orku- veita Reykjavíkur eigi enn 16,6 prósenta hlut í HS Veitum, þrátt fyrir úrskurð eftirlitsins frá 16. apríl 2008 þar sem eign OR sé tak- mörkuð við tíu prósent. - bj Samkeppniseftirlitið: Ekki aðhafst vegna HS Orku SVISS, AP Öreindahraðall evrópsku kjarnarann- sóknastofnunarinnar CERN í Sviss hefur fram- kallað meira en 50 þúsund árekstra öreinda á hærra orkustigi en nokkru sinni hefur þekkst frá því hann var tekinn í notkun á ný í síðasta mánuði. Nokkuð útbreidd hræðsla greip um sig í fyrrahaust, þegar gangsetja átti hraðalinn, og töldu margir að hann myndi framkalla heims- enda. Hraðallinn mikli bilaði fljótlega eftir að hann var fyrst gangsettur fyrir rúmu ári, en hefur gengið hnökralaust undanfarnar vikur án þess að nokkur hafi orðið var við heimsenda. - gb Öreindahraðallinn í Sviss gengur nú hnökralaust: Enginn heimsendir enn ÖREINDIR Á FERÐ OG FLUGI DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest úrskurð Héraðsdóms Reykja- ness þess efnis að Catalina Mikue Ncogo sæti áfram gæsluvarðhaldi og einangrun til 22. desember. Við yfirheyrslur hefur Catalina neitað sök vegna rökstudds gruns um að stúlkur hafi verið flutt- ar hingað til lands til að stunda vændi á vegum hennar og að hún fái hluta hagnaðar. Hún hefur nú borið að hún starfi sem vændis- kona fyrir mann og að sá maður taki 50 prósent af tekjum hennar og stúlknanna. Við rannsókn málsins hafa stúlk- ur sagst starfa við vændi á vegum Catalinu og að hún fái hluta hagn- aðar. Þá hefur lögregla kann- að auglýsingar á Netinu í kjölfar upplýsinga um að nokkrar konur stunduðu vændi á heimili Catal- inu. Í auglýsingunum hafa verið myndir af hálfnöktum konum og vísbendingar um að hægt sé að hringja í símanúmer þeirra til að fá kynlíf. Lögregla kveður rannsókn máls- ins vera mjög umfangsmikla og í fullum gangi. Meðal annars eigi eftir að rannsaka ýmis gögn, svo sem tölvur, símagögn, bankagögn og fleira, sem varpað geti skýrara ljósi á málið. - jss Catalina situr áfram í gæsluvarðhaldi og einangrun: Segist starfa fyrir mann VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.