Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 78
70 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. bjálfi, 6. eftir hádegi, 8. tala, 9. neitun, 11. til, 12. kliður, 14. afhendir, 16. mun, 17. gerast, 18. fiskur, 20. tveir, 21. krafs. LÓÐRÉTT 1. snyrtilegur, 3. klaki, 4. fjarlægð, 5. gestrisni, 7. bleyða, 10. svelgur, 13. þakbrún, 15. límband, 16. klastur, 19. kusk. LAUSN LÁRÉTT: 2. fífl, 6. eh, 8. sjö, 9. nei, 11. að, 12. niður, 14. gafst, 16. ku, 17. ske, 18. áll, 20. ii, 21. klór. LÓÐRÉTT: 1. penn, 3. ís, 4. fjarski, 5. löð, 7. heigull, 10. iða, 13. ufs, 15. teip, 16. kák, 19. ló. „Þegar ég tek mér pásu frá ritstörfum hlusta ég gjarna á klassískt dauðarokk, og þá mjög hátt. Deicide er í sérstöku uppá- haldi. Svakalega hart og gott band. Bítlar hinna brjáluðu. Með svona klikkun á háum styrk aukast afköst hins vinnandi manns um 666%. Fólk sem kann ekki að meta dauðarokk á samúð mína alla. Hinir helvísku hljómar eru hámark stuðsins.“ Stefán Máni rithöfundur VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Álftanes skuldar 6,5 milljarða króna. 2 Selja á Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. 3 Ólafur Ragnar hefur verið gerður að heiðursdoktor ríkisháskól- ans í Ohio. Páll Ragnar Pálsson, gítarleik- arinn geðþekki úr Maus, varð faðir nýverið. Hann eignaðist son á mánudaginn og heilsast bæði móður og afkvæmi vel. Páll hefur verið við nám við tónlistarháskól- ann í Eistlandi en ef marka má heimasíðu hans verða breyt- ingar á þeim högum strax á næsta ári því þá mun hin unga fjölskylda halda til Svíþjóðar og setjast að í Gautlandi. Framleiðslufyrirtækið ZikZak á eitt handrit á hinum eftirsóknarverða Holllywood-blacklist sem blaða- maðurinn Frank Leonard hefur birt á vefsíðu sinni undanfarin ár. Það er Z for Zacharia sem Þórir Snær og félagar hafa verið að þróa ásamt Páli Grímssyni. Listinn samanstendur af hundrað handritum sem framleiðend- ur þar vestra telja lík- legt að verði að kvikmynd í Hollywood og þeir hafa hingað til haft nokkuð rétt fyrir sér. Og meira af skjólstæðingum ZikZak því óskabarn þjóðarinnar í kvik- myndagerð, Rúnar Rúnarsson, heldur áfram að gera það gott. Og nú eru Danir farnir að gera sig nokkuð breiða. Stuttmyndin Anna sem Rúnar gerði innan veggja danska kvikmyndaháskólans var nefnilega sýnd á DR 2 á mánu- dagskvöldinu á nokkuð góðum tíma, eða fimm mínútur fyrir tíu um kvöldið. Sagan segir að innan kvikmyndageirans hér heima bíði menn spenntir eftir næstu skrefum Rún- ars sem gæti verið kvikmynd í fullri lengd. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Heimildarmynd Helga Felixson- ar, Guð blessi Ísland, verður sýnd í sjónvarpi á öllum Norðurlöndun- um eftir áramót. Myndin verður sýnd á RÚV 2. janúar og verður síðan sýnd með skömmu millibili á ríkissjónvarpsstöðvum hinna Norðurlandaþjóðanna. Hinn 12. janúar verður hún sýnd á hinni sænsku SVT, 17. janúar verður hún í finnska sjónvarpinu, daginn eftir er hún sýnd í danska ríkis- sjónvarpinu, DR, og loks á TV2 í Noregi 26. janúar. Að sögn Helga verður hún sýnd á besta tíma á öllum þessum stöðvum. Helgi segir að yfir 44 sjónvarps- stöðvar um allan heim hafi sýnt áhuga á að sýna myndina og óskað eftir nýklipptri útgáfu af henni. „Síðan verður bara framhaldið að koma í ljós,“ segir Helgi en Guð blessi Ísland segir sögu nokkurra Íslendinga á meðan mestu ham- farirnar í fjármálalífinu gengu yfir landið. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og athafnamennirnir Jón Ásgeir Jóhannesson, Bjarni Ármannsson og Björgólfur Thor. Helgi segir að myndin hafi verið sýnd á sama tíma í bæði Þýskalandi og Frakklandi á NRD og Arte. Og kusu bæði áhorfendur og stjórn Arte hana bestu mynd mánaðarins. - fgg Guð blessi Ísland fer víða UM ALLA EVRÓPU Kvikmynd Helga Felixsonar, Guð blessi Ísland, hefur verið sýnd í bæði frönsku og þýsku sjónvarpi. Strax í janúar sýna svo allar sjónvarps- stöðvarnar á Norðurlöndunum myndina á besta tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þjófagengi braust inn á heimili Arnars Gauta Sverrissonar, fyrr- um sjónvarpsmanns og fram- kvæmdastjóra, í Melahvarfi á mánudag og hafði á brott með sér mikil verðmæti. Arnar efast ekki um að innbrotið hafi verið skipu- lagt í þaula og að þjófarnir hafi fylgst með húsinu í einhvern tíma. Hann var ekki tryggður og fær því tjónið ekki bætt. Arnar var nýkominn frá trygg- ingafélaginu þegar Fréttablað- ið náði tali af honum. „Við vorum að koma heim úr vinnunni og ætl- uðum að fara að baka piparkökur með börnunum þegar það var búið að taka allt,“ segir Arnar. „Sjón- varpið, tölvurnar, myndavélar, allir skartgripir konunnar, og jóla- gjafir barnanna sem lágu innpakk- aðar á hillunni voru teknar. Verst er þó að þeir stálu æsku barnanna minna því þeir tóku flakkarann sem var með öllum myndunum af börnunum okkar,“ segir Arnar Gauti sem er giftur Aðalbjörgu Einarsdóttur, en saman eiga þau Natalíu París, fimm ára, og Kiljan Gauta, tveggja ára. „Þeir rústuðu húsið og þetta var mikið áfall fyrir París. Herbergið hennar var í rúst og búið var að róta í öllum skúff- um.“ Arnar segir rannsóknarlög- regluna hafa komið innan skamms og tekið fingraför. Sjálfur er hann ekki í nokkrum vafa um að inn- brotið hafi verið skipulagt. „Það var pottþétt búið að fylgjast með húsinu í svolítinn tíma. Við búum í endagötu þar sem er ekki mikil umferð. Þeir hafa verið búnir að kynna sér aðstæður og finna út hvað þær ætluðu að gera því vænt- anlega hafa þeir þurft að bakka bíl þarna inn. Þeir fóru inn um stór- an glugga og út um svaladyrnar,“ útskýrir Arnar, en nágrannarn- ir tóku ekki eftir neinu. „Ég gekk sjálfur á milli nágranna í gær og einn þeirra sagði mér að vina- fólk hans sem býr aðeins lengra frá hafi verið rænt klukkan tíu að morgni fyrir skömmu. Það er því greinilega mikið um innbrot og menn gera þetta skipulega,“ segir hann. Arnar Gauti er ekki tryggður og fær því tjónið ekki bætt að neinu leyti. „Við erum nýflutt og vorum ekki búin að ganga frá trygginga- málunum. Fjárhagslegt tjón er samt minna en það tilfinninga- lega. Ég var með 16.500 mynd- ir af Parísi og Kiljan inni á tölv- unni sem við höfðum hugsað um að prenta út í skömmtum en fórum aldrei í það svo það er ekki til ein útprentuð mynd af Kiljan Gauta. Þetta kennir manni lexíu í þessu sambandi og að sjálfsögðu á maður að vera með öryggiskerfi,“ segir Arnar. „Nú vonast maður bara til að þetta finnist og að þess- ir menn verði stoppaðir svo þeir haldi þessu ekki áfram. Ég vona allavega að viðkomandi menn eða aðrir sem komast yfir flakkarann sjái allavega kærleik sinn í því að afrita myndirnar og koma þeim til okkar.“ alma@frettabladid.is ARNAR GAUTI SVERRISSON: RÆNDUR UM MIÐJAN DAG STÁLU ÆSKU BARNA MINNA ÖLLUM MYNDUNUM STOLIÐ Arnar Gauti ásamt eiginkonu sinni, Aðalbjörgu Einars- dóttur, og börnum þeirra, Natalíu París og Kiljan Gauta. Öllum barnamyndunum þeirra var stolið í innbrotinu, jólagjöfum og skartgripum. Arnar var ekki tryggður enda nýfluttur inn og átti eftir að ganga frá tryggingamálunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Heimir Ríkarðsson lögreglufulltrúi í rannsóknardeildinni í Kópavogi segir málið vera í rannsókn. „Við lítum það mjög alvarlegum augum þegar ráðist er svona inn til fólks. Það er ekki mikið um þetta, en þetta gerist alltaf annað slagið. Innbrotum hefur þó fækkað síðastliðna fjóra til fimm mánuð- ina,“ útskýrir Heimir og segir allan gang vera á því hvort mál af þessu tagi upplýsist. „Við skoðum hvort fingraförin eru nothæf og athugum hvort við erum með upplýsingar um viðkomandi aðila hjá okkur, svo getur komist upp um þetta í tengslum við önnur mál. Sem betur fer gerist það að við finnum þýfi sem við samkeyrum þá við upplýsingar sem við höfum og reynum í kjöl- farið að koma því til eiganda,“ segir Heimir. Þá hvetur hann fólk til að efla nágrannavörslu og bendir þeim sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband við Lögreglustjórann í Kópavogi í síma 4441130. LITIÐ ALVARLEGUM AUGUM „Það er alls ekki tækjadella sem dreif mig af stað, síður en svo. Ég er nefnilega lítið hrifinn af mótórknúnum farartækjum. Ætli þetta sé ekki fyrst og fremst þessi útivistaráhugi sem hefur ágerst að undanförnu,“ segir Óskar Jón- asson kvikmyndaleikstjóri en hann hóf nýver- ið nýliðaþjálfun hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Óskar er kannski ekki fyrsti maður- inn sem fólk ímyndar sér í appelsínugula björg- unargallanum og leikstjórinn viðurkennir að hann hafi komið sjálfum sér á óvart með þess- ari ákvörðun. „Vinur minn nefndi þetta bara við mig með skömmum fyrirvara og ég sló til. Ef ég hefði fengið einhvern smá umhugsunarfrest hefði ég sennilega flúið af hólmi,“ segir Óskar. Útivistaráhuginn sem Óskar nefnir er tiltölu- lega nývaknaður af löngum dvala. „Ég fór oft að veiða með pabba þegar ég var lítill en síðan fjaraði undan þessu þegar maður varð eldri og fór að hanga á kaffihúsum. Ég vissi samt alltaf í undirmeðvitundinni að ég ætti eftir að kanna ótroðnar slóðir,“ segir Óskar sem hefur farið einu sinni í viku í góðra vina hópi upp á Esju. „Við förum fyrir vinnu og höfum verið að hitt- ast um klukkan sex á morgnana, maður er bara með ennisljós á höfðinu svo maður sjái eitt- hvað.“ Óskar segir þetta nýliðanámskeið vera mjög praktískt, nemendurnir læra á áttavita, rötun og skyndihjálp og eftir áramót verður farið upp á jökul og sofið í snjóhúsi. Hann segist þó enn ekki vera farinn að sjá það fyrir sér að fara upp á fjöll til að bjarga fólki. Ætlar að láta það nægja að selja jólatré og flugelda í húsi Flug- björgunarsveitarinnar við Flugvallarveg. - fgg Óskar Jónasar í Flugbjörgunarsveitina SELUR JÓLATRÉ OG FLUGELDA Óskar Jónasson sækir nú nýliðanámskeið Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykja- vík og mun selja jólatré og flugelda við Flugvallarveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.