Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 52
44 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í síma 512 5000. Rithöfundurinn Huginn Þór Grétars- son hefur gefið út einar sjö barnabæk- ur á síðastliðnum tólf mánuðum og er þótt ótrúlegt sé með yfir hundrað í vinnslu. „Þetta hlýtur að vera Íslands- met,“ segir Huginn Þór glaður í bragði en bækurnar gefur hann út hjá Óðins- auga sem er hans eigin bókaútgáfa. Íslensk börn hafa tekið framtaks- semi Hugins Þórs vel og eru flestar bækurnar nær uppseldar auk þess sem þær hafa verið vinsælar á bókasöfn- um. „Nammigrísinn er samkvæmt út- lánum vinsælasta barnabókin sem kom út árið 2008 bæði á bókasöfnum á höf- uðborgarsvæðinu og á Akureyri,“ segir Huginn Þór. Fimm bóka Hugins Þórs komu út fyrir rétt tæpu ári og tvær fyrir þessi jól. Í fyrra voru það Nammigrísinn, Þjófaland, Riddarinn ógurlegi, Græni loftbelgsstrákurinn og Blómlegt fjöl- skyldulíf en sögurnar fela allar í sér sterkan boðskap. „Þjófaland er til að mynda ádeila á græðgi og efnishyggju og hvernig sumir hrifsa til sín eins mikið og þeir geta á meðan aðrir eiga ekki neitt. Bókin er eins konar spegil- mynd af Íslandi, græðginni og efnis- hyggjunni fyrir hrun en er jafnframt skrifuð með hliðsón af ástandinu í Perú þar sem mikil þjófahræðsla er viðloð- andi og veldur fólki hugarangri. Nýjustu bækur Hugins Þórs heita Litaleikurinn og Og þau lifðu ham- ingjusöm allt til æviloka, eða hvað? „Litaleikurinn er eins konar fjöl- skylduspil þar sem leikið er með liti og ýtt undir hugarflug barna en bókin gengur út á að nefna eins marga hluti og fólki dettur í hug sem bera ákveð- inn lit. Og þau lifðu hamingjusöm allt til æviloka... eða hvað? gerir síðan gys að sígildum ævintýrum sem enda í ein- tómum blóma. Í bókinni fáum við að sjá raunsærri mynd af veruleikanum á gamansaman hátt en prinsinn gengur í gegnum sprenghlægilegar hremming- ar og þó allt fari vel að lokum þá kemst til skila boðskapurinn um að taka ör- lögin í sínar hendur og að það skiptist á skin og skúrir í lífinu.“ Bækur Hugins þórs eru allar ríku- lega myndskreyttar en hann vinnur með listamönnum frá löndum þvers og kruss um heiminn. Einn þeirra er Phil Nibbelink en hann hefur til að mynda unnið með Steven Spielberg að Casper- draugamyndinni frá Disney. Huginn Þór er með eindæmum af- kastamikill og er að eigin sögn með 101 bók í vinnslu á ýmsum stigum. Þær bíða þess ýmist að verða fullunn- ar, myndskreyttar eða gefnar út. Sög- urnar hefur Huginn Þór að miklu leyti skrifað í frítíma sínum og þá meðal annars á meðan hann var í masters- námi í viðskiptafræði í Svíþjóð. „Þetta er í raun áhugamál sem hefur heltek- ið mig.“ Huginn Þór segir nokkrar nýjar bækur væntanlegar á næsta ári og eru tvær þeirra langt komnar í mynd- vinnslu. Þær fela eins og fyrri bækur hans í sér ákveðinn boðskap „Ein bókin er uppeldissaga sem ber á gamansam- an hátt saman uppeldi ungs stráks í Evrópu og stráks sem býr í Suður-Am- eríku og annarri er ætlað að ýta undir umhverfisvitund barna.“ vera@frettabladid.is HUGINN ÞÓR GRÉTARSSON: HEFUR GEFIÐ ÚT SJÖ BARNABÆKUR Á EINU ÁRI Er með yfir 100 bækur í vinnslu AFKASTAMIKILL Bækur Hugins hafa fengið góðar viðtökur hjá ungu kynslóðinni og eru mikið í útláni á bókasöfnum landsins. Hér er hann með dóttur sinni Ísabellu Sól. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MOSAIK Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, Attla Arnar Jensen Strikinu 10, Garðabæ, sem lést mánudaginn 30. nóvember sl. Þökkum sér- staklega starfsfólki St. Jósefsspítala fyrir sérlega hlýja og góða umönnun. Árni Valur Atlason Eydís Lúðvíksdóttir Markús Þór Atlason Katrín Yngvadóttir Jens Pétur Atlason Kristín Sigurbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þennan dag árið 1963 var Kópavogskirkja vígð af Sigurbirni Einarssyni þáverandi bisk- upi. Kirkjan, sem er í Borgarholti í vesturbæ Kópavogs, oft nefnt Kirkjuholt af íbúunum, er elsta kirkja Kópavogs. Grunnur hennar var helgaður 16. ágúst árið 1958 og hornsteinn lagður 20. nóvember 1959. Kirkjan var reist eftir teikningum frá emb- ætti húsameistara ríkisins sem Hörður Bjarnason veitti forstöðu á þeim tíma en Ragnar Emilsson, arkitekt hjá embættinu, kom ásamt húsameistara mikið að teikn- ingu hennar. Bogadregnar línur gera kirkjuna mjög sér- staka auk þess sem steindir gluggar lista- konunnar Gerðar Helgadóttur setja á hana sterkan svip. Kirkjan hefur lengi verið tákn Kópavogs og er mynd af henni á merki Kópavogsbæjar. ÞETTA GERÐIST: 16. DESEMBER ÁRIÐ 1963 Kópavogskirkja vígð MERKISATBURÐIR 1879 Ingibjörg Einarsdóttir, kona Jóns Sigurðssonar, deyr í Kaupmannahöfn 71 árs að aldri, aðeins níu dögum eftir and- lát Jóns. Þau voru jarð- sungin í Reykjavík 4. maí 1880. 1653 Oliver Cromwell gerist einvaldur á Englandi. 1916 Framsóknarflokkurinn er stofnaður. 1917 Einn mesti loftþrýsting- ur hér á landi mælist í Stykkishólmi, 1054,2 millibör. 1942 Utanþingsstjórn undir forsæti Björns Þórðar- sonar tekur við völdum. 1971 Bangladess fær sjálf- stæði frá Pakistan. 1991 Kasakstan fær sjálfstæði frá Sovétríkjunum. LUDWIG VAN BEETHOVEN (1770- 1827) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Gott skáld er dýrmætasti gimsteinn þjóðar.“ Beethoven var þýskt tón- skáld. Hann var í fararbroddi umskiptatímabils klassíkur og rómantíkur í tónlistinni. Meðal þekktra verka hans er Tunglskinssónatan. AFMÆLI LIV ULLMANN leikkona er 71 árs í dag. MIRANDA OTTO leikkona er 42 ára í dag. BENNY AND- ERSON tónlistar- maður er 63 ára í dag. BENJAMIN BRATT leikari er 46 ára í dag. Útsendingar bolvísku jólaút- varpsstöðvarinnar Lífæðar- innar nást að þessu sinni ekki einungis í Bolungarvík, heldur einnig á Ísafirði og um allan heim í gegnum Netið. Þetta kemur fram í frétt á fréttavef Bolvíkinga, Víkari.is. Þetta er í fjórða sinn sem Lífæðin sendir út í jólamánuð- inum. Stefnt er að því að senda út fjölbreytta dagskrá fram yfir áramótin. Lífæðin sendir út á tíðninni FM 92,7 í Bolung- arvík og FM 101,1 á Ísafirði auk þess sem heyra má útsend- ingar stöðvarinnar á Netinu á slóðinni mms://lifaedin.net- heimar.com. Bolvískt jólaútvarp í fjórða sinn JÓLAÚTVARP Elvar Logi Hannesson fjallar um menningu og listir á Lífæðinni. ÓLAFUR STÍGS- SON kn ttspyrnu- maður er 34 ára. EGILL FRIÐLEIFS- SON tón- mennta- kennari og kórstjóri er 69 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.