Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 14
 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR Ringjarar þurfa ekki skæri. Við sendum tilboð beint í símann. Tilboð dagsins: Gláp MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út Gildir í dag, miðvikudag E N N E M M / S ÍA / N M 4 0 16 3 50% afsláttur í bíó hjá Senu fyrir 1 Ringjarar fara inn á ring.is og óska eftir að fá MMS með tilboðum send í símann. Ath. Gildir ekki í lúxussal, á íslenskar myndir og myndir sýndar í digital þrívídd. Tilboðið gildir í tilteknum bíóum Senu: Ekkert vesen með afsláttarmiða, þú sýnir bara GSM símann í afgreiðslunni. Bíó á hálfvirði í dag á ring.is VIÐSKIPTI Ríkið mun að öllum lík- indum leggja Byr til tæpa ellefu milljarða króna eiginfjárframlag, gangi eftir samkomulag sem fjár- málaráðuneyti, stjórnendur Byrs, ráðgjafar Olivers Wyman og hluti fulltrúa erlendra kröfuhafa lögðu grunninn að í kringum miðnætti á mánudag. Drög að endurreisn sparisjóðsins lá fyrir á föstudag og var unnið að útfærslunni alla helgina. „Þetta var mikilvægur áfangi og jákvætt að málið er komið á þetta stig. Við erum sæmilega vongóð,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um niðurstöð- una en bætir við að málið sé á því stigi að hann geti ekki tjáð sig um það að öðru leyti. Steingrímur segir ríkisstjórn- ina hafa bundið vonir við að þegar málum stóru bankanna yrði lokið gæti mannskapurinn einbeitt sér að sparisjóðunum. „Það reyndist mikið verkefni, en við erum sátt,“ segir hann. Viðræðum við kröfuhafa er hvergi nærri lokið enda voru ekki fulltrúar allra þeirra viðstaddir samkomulagið á mánudag. Við- ræður við kröfuhafa halda áfram eftir áramót og útilokar Steingrím- ur ekki að næsta stóra áfanga í endurreisn Byrs verði náð í byrj- un árs. Í kjölfarið verður farið í að leggja nýjan fjárhagslegan grunn Sparisjóðirnir reistir við eftir áramótin Mikilvægur áfangi náðist í endurreisn Byrs á mánudag og mun ríkið leggja sparisjóðnum til tæpa ellefu milljarða króna. Óvíst er hvað verður um stofnfjár- eigendur sparisjóðanna sem standa eftir með milljónaskuldir á bakinu. að hinum sparisjóðunum sjö sem hafa óskað eftir eiginfjárframlagi. Eins og áður hefur komið fram eru aðeins tólf sparisjóðir eftir í land- inu og hafa fjórir ekki óskað eftir framlagi frá ríkinu. Stofnfjáreigendur Byrs munu eiga síðasta orðið um endurreisn sparisjóðsins. Málið hefur ekki verið lagt fyrir þá og óvíst hvort þeir muni eiga nokkurn hlut í bankanum að loknu eiginfjárfram- lagi ríkisins. Fjárhagsleg staða stofnfjáreig- enda Byrs er óljós í dag. Margir þeirra bera milljónaskuldir eftir hlutafjáraukningu í sparisjóðnum haustið 2007. Einhverjir juku stofn- fé sitt með sparifé en þeir sem tóku lán fyrir útgjöldunum standa margir illa. Þeir sem Fréttablað- ið hefur rætt við segja svo kunna að fara að verði stofnfjáreignin að engu kunni einhverjir þeirra að fara í þrot. jonab@frettabladid.is VIÐSKIPTANEFND Í SKUGGANUM Lítið er vitað hvað endurreisn Byrs felur í sér. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Finnbogasyni sparisjóðsstjóra mun eiginfjárhlutfall verða í kringum sextán prósent að eiginfjárfram- lagi ríkisins meðtöldu. Hann segir kröfuhafa þurfa að gefa nokkuð eftir en vill ekki segja hvað það kunni að verða mikið. Heyrst hefur að það geti orðið allt að sextíu prósent krafna. Jón segir stjórn Byrs hafa jafnframt lýst yfir eindregnum vilja sínum til þess, eftir að fjárhagslegri endur- skipulagningu sparisjóðsins lýkur, að skoða allar mögulegar leiðir til að efla frekara samstarf sparisjóðanna með það að markmiði að þeir verði fjárhagslega öflugri og samkeppnis- hæfari fjármálafyrirtæki. Guðlaugur Þór Þórðarson þing- maður sem sæti á í viðskiptanefnd Alþingi, segir engar upplýsingar um endurreisn sparisjóðanna hafa verið lagðar fyrir nefndina. Hann rak augun fyrst í drög að samkomulagi í netmiðlunum í gær. „Ég hafði ekki hugmynd um það. Það var einn fundur um þetta að okkar ósk fyrir nokkrum vikum,“ segir hann og hefur óskað eftir því að málið verði tekið upp hjá nefndinni. Hann bætir við að menn viti ekki hvernig sparisjóð- irnir eigi að líta út í framtíðinni og sé spurning hvort borgi sig að styðja við þá. „Menn eiga það til að ofmeta afkomu sparisjóðanna. Þetta er spennandi hugmynd en gengur ekki upp,“ segir hann. FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur J. Sigfússon bindur vonir við að endurreisn sparisjóðanna verði komin vel á veg fljótlega eftir áramótin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÖGREGLUMÁL „Þetta er mjög slæmt mál og við vonum að þessi einstakl- ingur finnist sem fyrst, hvort sem hann er löglegur í stéttinni eða ekki. Samkvæmt lýsingu lögreglu liggur fullt af mönnum undir grun.“ Þetta segir Ástgeir Þorsteins- son, formaður bifreiðastjórafé- lagsins Frama, um meint kynferð- isbrot leigubílstjóra gagnvart konu sem var ofurölvi aðfaranótt 29. nóv- ember. Ástgeir segir hafa borið á því að undanförnu að taxamerkjum sé stolið af bílum. Þarna gæti því hugsanlega verið á ferðinni ein- staklingur sem sé ólöglegur í leigu- bílaakstri. „Við höfum fylgst með þessu að undanförnu og það er heilmikið um að menn séu að stunda akst- ur án leyfis, og þá á ómerktum bílum að sjálfsögðu. Dags daglega myndi fólk ekki nota svona þjón- ustu en að næturlagi um helgar er það í alls konar ástandi, hugs- ar fyrst og fremst um að kom- ast heim og lætur því miður slag standa.“ Á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi eru 560 leyfishaf- ar, að sögn Ástgeirs. Hann segir menn ekki vera mikið að kíkja í kringum sig þegar vitlaust sé að gera um nætur. „En það yrði vissulega svartur blettur á stéttinni ef þarna reynd- ist vera um að ræða einstakling úr röðum leigubílstjóra.“ - jss Formaður Frama segir marga liggja undir grun um nauðgun samkvæmt lýsingu: Yrði svartur blettur á stéttinni LEIGUBÍLL Talsvert er um að taxamerkj- um sé stolið af leigubílum, að sögn formanns Frama.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.