Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 18
18 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR KVEIKT Í DEKKJUM Verkamenn í skipasmíðastöð í Varsjá í Póllandi kveiktu í dekkjum þegar efnt var til mótmælafundar í gær. Verkalýðsfélag- ið Solidarnosc stóð að mótmælunum til að krefjast starfsöryggis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NETHYL 2, SÍMI 5870600, WWW.TOMSTUNDAHUSID.IS NÝKOMINN SENDING AF PLASTMÓDELUM, GJAFASETTUM , LÍMI OG MÁLNINGU. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Með því að kaupa Miele þvottavél eða þurrkara leggur þú grunn að langtímasparnaði Sparaðu með Miele TILBOÐ A B  ára líftími = . klst. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Þvottavél W1634  sn/mín/6 kg/ísl. stjórnborð 179.950 Þvottavél W1714  sn/mín/6 kg/ ísl. stjórnborð 194.950 Þurrkari T7634 f. barka/6 kg/m. rakaskynjara 149.950 Þurrkari T7644C m. þétti/6 kg/m. rakaskynjara 164.950 Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast í . klst. Miele þvottavélar eru allar með íslensku stjórnborði, íslenskum leiðbeiningum, stóru hurðaopi Opið í dag laugardag frá kl. 11:00-15:00 SKATTAR. Bændasamtökin fá sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi tæpan milljarð króna í tekjur frá ríkis- sjóði, annars vegar vegna samn- ings við ríkið og hins vegar vegna sjóða sem samtökin reka í umboði ríkisins og fá tekjur af gjöldum sem bændum er skylt að greiða samkvæmt lögum. Bændur greiða 1,2 prósenta bún- aðargjald af veltu búvörufram- leiðslu sinnar. Gjaldið rennur í Búnaðarsjóð sem Bændasamtök Íslands varðveita. Úr þeim sjóði rennur gjaldið eftir ákveðnum reglum til ýmissa samtaka land- búnaðarins; bæði Bændasamtak- anna sjálfra, búnaðarsambanda og búgreinasamtaka, auk Bjargráða- sjóðs. Fjárlagafrumvarp næsta árs áætlar að 320 milljónir innheimtist af búnaðargjaldi í Búnaðarsjóðinn. Það er sama fjárhæð og áætluð var á síðasta ári en talsvert hærri en 2008, þegar sjóðurinn fékk 277,4 milljónir króna til ráðstöfunar. Bændasamtökin annast líka rekstur Framleiðnisjóðs land- búnaðarins. Hann fær 148 millj- óna króna ríkisframlag á fjárlög- um 2010, fékk 158,9 milljónir í fjárlögum 2009 en 100,3 milljón- ir árið 2008. Sjóðurinn á að styðja búháttabreytingar og efla ný við- fangsefni í landbúnaði. Loks gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir að ríkið greiði bænda- samtökunum 521,4 milljónir króna samkvæmt samningi um tiltekin verkefni sem ríkið felur Bænda- samtökunum að sinna á sinn kostn- að. Þetta eru m.a. ráðgjafaþjónusta og markaðsverkefni, sem hafa aukna sölu landbúnaðarafurða að markmiði. Í fjárlagafrumvarp- inu segir að 521,4 milljóna króna útgjöld næsta árs séu 117,2 millj- ónum króna lægri að raungildi en framlag þessa árs. Meðal annars á að spara 70 milljónir í ráðgjafa- þjónustu og 30 milljónir í þróun- ar- og markaðsverkefnum. Bænda- samtökin fengu um 750 milljónir á þessu ári, samkvæmt samning- um og ættu að fá 667,5 milljónir ef ekki kæmi til þessi skerðing. Í samtölum Fréttablaðsins við Jóhann Guðmundsson, aðstoðar- mann landbúnaðarráðherra, og Eirík Blöndal, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, kom fram að viðræður um endurnýjun samn- ingsins voru hafnar þegar hrunið varð á síðasta ári. Þær hafa síðan legið að mestu niðri. Eiríkur kveðst vonast til að viðræður hefjist fljót- lega á ný og kveðst þess fullviss að nýr samningur verði gerður. peturg@frettabladid.is Milljarður frá ríki til samtaka bænda Bændasamtök Íslands fá háar fjárhæðir frá ríkinu samkvæmt búvörusamningi og vegna laga um Búnaðarsjóð og Framleiðnisjóð landbúnaðarins. RÉTTIR Ríkið hefur með samningi, sem rennur út á næsta ári, falið Bændasamtökum Íslands að sinna ýmsum verkefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið, fyrir að hóta og áreita barnsmóður sína í kjölfar sambandsslita, svo og annan mann. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hella kóki inn um glugga hjá barns- móðurinni. Gusan lenti á tölvu og skrifborðsstól sem eyðilögðust. Þá var maðurinn sakfelldur fyrir hótun. Hann hringdi í hinn mann- inn og sagðist myndu mæta heim til hans, „brjóta á honum báða fæt- urna, fara síðan í vinnuna til hans og klára hann“. Síðar beindi maðurinn silfraðri skammbyssu, sem var loftbyssa, út um bílglugga að sama manni fyrir utan skemmtistað í Reykjavík. Barnsmóður sinni sendi hann eft- irfarandi sms: „Farðu til lögregl- unnar og kærðu mig, ég mun meiða þig meira.“ Maðurinn lét ekki staðar numið þar því enn mætti hann á heimili fólksins og gekk berserksgang með hafnaboltakylfu sem hann lét vaða í ljós í innkeyrslu, blómaker fyrir framan húsið, blómapott á palli við húsið og fleiri lausamuni. Sama dag las hann inn á símsvara að barns- móðirin og maðurinn „myndu deyja í dag“. - jss Karlmaður dæmdur fyrir að ganga berserksgang með hafnaboltakylfu: Hótaði og áreitti barnsmóður VIÐSKIPTI Skráning í Útflytjenda- handbókina, Iceland Trade Dir- ectory, hefur staðið yfir undan- farið og eru allir þeir sem stunda viðskipti við útlönd hvattir til að nýta sér þessa leið til kynningar á erlendum mörkuðum. Útflutningsráð Íslands vinnur að því að bæta skráningu í vöru- og þjónustuflokka fyrirtækja sem mun skila þeim mun betri árangri. Iceland Trade Directory er upp- lýsingarit og gagnabanki sem í eru skráð fjölmörg íslensk útflutnings- fyrirtæki og hátt í 400 vöruflokk- ar. Handbókin kemur út árlega. Bókin er gefin út af Heimi ehf. í samstarfi við Útflutningsráð. - shá Útflutningsráð Íslands: Safna saman útflytjendum BRETLAND Ný könnun sýnir að for- skot breska Íhaldsflokksins á Verka- mannaflokkinn hefur ekki verið minna í heilt ár. Breska blaðið The Guardian lét fyrirtækið ICM gera könnunina og kemur í ljós að forskot íhaldsmanna er aðeins níu prósent, en minni munur hefur ekki mælst í könnunum frá því í desember 2008. Blaðið telur ljóst að þetta auki lík- urnar á því að Gordon Brown forsæt- isráðherra Breta boði til kosninga fyrr en seinna. Níu prósenta munur ætti að duga David Cameron og félögum hans í íhaldsflokknum til þess að ná naum- um meirihluta en könnunin blæs Verkamannaflokknum samt von í brjóst um að ekki sé öll nótt úti enn fyrir flokkinn sem hefur hríðfallið í áliti almennings undanfarin miss- eri. Íhaldsflokkurinn mælist nú með 40 prósent atkvæða, Verkamannaflokk- urinn með 31 prósent og Frjálslynd- ir demókratar með 18 prósent. Fyrir tveimur mánuðum var bilið á milli stóru flokkanna tveggja 17 prósent. Talið er líklegt að blásið verði til kosninga 25. mars á næsta ári en hingað til hefur verið talið að 6. maí yrði fyrir valinu. Forsætisráðherrann ræður kjör- deginum alfarið sjálfur, svo lengi sem kosningarnar dragast ekki fram yfir 3. júní 2010. Talið líklegt að boðað verði til kosninga á Bretlandi í mars á næsta ári: Forskot Íhaldsflokksins minnkar FORSÆTISRÁÐHERRA BRETA Forskot Íhaldsmanna mælist nú níu prósent en minni munur hefur ekki mælst í könnunum frá því í desember 2008. NORDICPHOTOS/AFP HAFNABOLTAKYLFA Maðurinn braut og bramlaði með hafnaboltakylfu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.