Fréttablaðið - 16.12.2009, Side 10
10 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
HÚSALEIGA Í NÝJUM ÞJÓNUSTUÍBÚÐUM BORGARINNAR LANGSAMLEGA HÆST
Yfirlit yfir útleigðar þjónustuíbúðir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Einstaklingsíbúðir Fjöldi Meðalstærð Húsaleiga Hússjóður Þjónustugjald Samanlagt
Dalbraut 21 til 27 46 30 54.182 4.600 17.085 75.867
Fróðengi hjá Eir 2 40 95.000* 4.100 10.900 110.000
Furugerði 1 56 35 56.306 2.600 8.945 67.851
Langahlíð 3 32 35 56.306 4.600 8.945 69.851
Norðurbrún 1 53 35 56.303 2.700 8.945 67.948
Seljahlíð 42 42 23.893 0 17.085 40.978
Tveggja herbergja íbúðir Fjöldi Meðalstærð Húsaleiga Hússjóður Þjónustugjald Samanlagt
Dalbraut 21 til 27 12 60 85.027 5.000 19.393 109.420
Fróðengi hjá Eir 5 70 140.000* 4.100 10.900 155.000
Furugerði 1 14 60 85.036 2.900 10.290 98.226
Langahlíð 3 1 60 85.036 5.000 10.290 100.326
Lindargata 57 og 61 77 60 88.263 3.300 7.495 99.058
Norðurbrún 1 7 47 74.631 3.100 10.290 88.021
Seljahlíð 4 56 45.065 0 19.393 64.458
Heimild: Velferðarsvið og formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
*Notast er við áætlaða leigu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
SAMFÉLAGSMÁL Leiguverð á nýjum
þjónustuíbúðum fyrir aldraða í
Reykjavík er allt of hátt, og full-
komlega eðlilegt að borgin nið-
urgreiði leigu fyrir þennan hóp,
segir Helgi K. Hjálmarsson, for-
maður Landssambands eldri borg-
ara.
Velferðarsvið Reykjavíkur-
borgar hefur fengið til útleigu sjö
þjónustuíbúðir í húsnæði Hjúkr-
unarfélagsins Eirar við Fróðengi.
Áformað er að leiguverð í íbúðun-
um verði mun hærra en í öðrum
íbúðum borgarinnar, eins og sjá
má í meðfylgjandi töflu.
„Auðvitað eiga að vera til íbúð-
ir á skynsamlegu verði, sem er í
takt við tekjur sem eldri borgar-
ar hafa,“ segir Helgi. Hann segir
augljóst að verið sé að reikna
leiguverðið út frá byggingarkostn-
aði á þenslutímum, sem sé alger-
lega fráleit aðferðafræði.
„Það segir sig sjálft að eldri
borgarar hafa ekki efni á að borga
á annað hundrað þúsund krónum
í leigu,“ segir Helgi. Skilyrði til
að fá að leigja íbúðir borgarinnar
við Fróðengi er að leigjandinn eigi
ekki möguleika á að kaupa íbúð
eða fá búsetaíbúð.
brjann@frettabladid.is
Borgin niðurgreiði
íbúðir fyrir aldraða
Fráleitt er að reikna út leigu á þjónustuíbúðum fyrir aldraða út frá byggingar-
verði, segir formaður Landssambands eldri borgara. Segir eldri borgara ekki
hafa efni á að greiða háa leigu í nýjum íbúðum borgarinnar við Fróðengi.
ÞJÓNUSTUÍBÚÐ Eðlilegt væri að eldri borgarar sem þurfa á þjónustuíbúðum að halda geti leigt þær á viðráðanlegu verði, segir
formaður Landssambands eldri borgara. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Húsaleiga í nýjum íbúðum sem velferðarsvið Reykjavík-
urborgar býður eldri borgurum til leigu er rúmlega 150
prósentum hærri en í ódýrustu þjónustuíbúðunum sem
borgin leigir út.
Velferðarsvið er með sjö nýjar íbúðir til ráðstöfunar
í fyrsta áfanga í uppbyggingu öryggisíbúða Hjúkrun-
arheimilisins Eirar við Fróðengi. Alls var samið um að
sviðið fái 21 íbúð.
Leigan í nýju íbúðunum er umtalsvert dýrari en í
öðrum íbúðum sem velferðarsvið úthlutar. Áætlað er að
einstaklingsíbúðir við Fróðengi muni kosta leigjandann
110 þúsund á mánuði, en ódýrasta einstaklingsíbúðin
annars staðar kostar tæplega 41 þúsund krónur, og
munar því 69 þúsund krónum á mánuði.
Tveggja herbergja íbúðir við Fróðengi munu líklega
kosta um 155 þúsund krónur á mánuði, um 90.500
krónum meira en ódýrustu tveggja herbergja íbúðirnar,
sem kosta um 64.500 krónur á mánuði.
Rétt er að taka fram að ekki er tekið tillit til annarra
þátta en leiguverðs og kostnaðar við að búa í íbúðunum
í þessum samanburði. Gæði íbúða og þjónusta sem
íbúar njóta geta verið mismunandi milli íbúða.
SAMANBURÐUR NÝJU ÍBÚÐUNUM Í ÓHAG
Jólagjafir
fyrir börnin
TI
LB
OÐ
x5
LEGO-pakki
Fullt verð 9.990 kr.
4.990 kr.
auk 1.000 punkta
x2
Bratz - dúkka / hestur
Fullt verð 1.990 kr.
0 kr.
auk 1.000 punkta
HUNDAR ATAST Á hverjum föstudegi
gera margir íbúar í Kabúl, höfuðborg
Afganistans, sér ferð til að fylgjast með
hundaati. Grimmd hundanna er þó
líklega minni en mannanna sem gera
sér at þeirra að skemmtun.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kviknaði í bakaraofni
Eldur kom upp í íbúð við Flókagötu á
tíunda tímanum í gærmorgun. Í ljós
kom að kviknað hafði í bakaraofni.
Eldurinn var slökktur og íbúðin í kjöl-
farið reykræst. Engan sakaði.
SLÖKKVILIÐ
Sarkozy útvegar lán
Sarkozy Frakklandsforseti hefur kynnt
áform um að veita jafnvirði meira en
sex þúsund milljarða í ríkisábyrgð á
stórlánum til fjárfestinga í háskólum,
rafbílum og endurnýjanlegri orku.
FRAKKLAND
Barnaskóli seldur
Sveitarstjórnin á Hólmavík hefur
samþykkt að selja gamla barna-
skólann. Fjögur tilboð bárust, það
lægsta 110 þúsund krónur en það
hæsta 850 þúsund krónur, og verður
skólinn seldur á því verði. Húsið er 87
fermetrar og 95 ára gamalt.
HÓLMAVÍK
HEILBRIGÐISMÁL Haldnir hafa
verið fjórir sérstakir sparnað-
arfundir á hinum ýmsu deildum
Landspítalans að undanförnu.
Björn Zoëga, forstjóri LSH,
segir í pistli á heimasíðu spít-
alans að um byltingu í stjórn-
skipulagi spítalans sé að ræða.
„Valddreifing er lykilorðið og því
fylgir ábyrgð til þeirra sem fá
vald,“ segir Björn.
Skipulagsvinna vegna sparnað-
araðgerða næsta árs er í fullum
gangi og verður kynnt starfs-
mönnum von bráðar. Markmið-
ið er sem fyrr að ná sparnaði en
reyna að tryggja öryggi sjúk-
linga, segir Björn.
Á þriðjudag gekk fram-
kvæmdastjórn spítalans frá fyr-
irkomulagi um ábyrgðarsvið
stjórnenda. - shá
Fjórir sparnaðarfundir:
Stjórnskipulag
LSH skorið upp
EFNAHAGSMÁL Í Umsátrinu, bók
Styrmis Gunnarssonar um hrun
efnahagskerfisins, segir frá
skiptum skoðunum í Seðlabanka
Íslands og hjá AGS varðandi
stefnu í peningamálum og æski-
legt stýrivaxtastig, en sjóðurinn
hafi viljað halda hærra vaxta-
stigi. Bein afskipti forstjóra AGS
af vaxtamálum seint í janúar
segir Styrmir hafa komið í kjöl-
far tveggja tíma langs „harðs“
símtals milli Davíðs Oddsson-
ar, sem þá var seðlabankastjóri
og Marks Flanagan, yfirmanns
sendinefndar AGS.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í Seðlabankanum á mánu-
dag vegna loka á viðræðulotu
sendinefndarinnar vegna annarr-
ar endurskoðunar efnahagsáætl-
unarinnar staðfesti Flanagan að
samtalið hefði átt sér stað.
„Ef upptaka væri til þá myndi
ég á henni heyrast segja í sífellu:
Ég get ekki tekið þessa ákvörðun.
Þú ert seðlabankastjórinn!“ sagði
Flanagan á blaðamannafund-
inum. Hann áréttaði um leið að
Seðlabankinn hafi að hans mati
að lokum komist að réttri niður-
stöðu í vaxtaákvörðunum sínum.
Staðan hafi þó verið erfið og að
mörgu að hyggja.
„En þegar allt kemur til alls
er það Seðlabankinn og nú pen-
ingastefnunefnd hans, sem tekur
ákvörðun um stefnu peninga-
mála, ekki AGS. Við orðum hins
vegar skoðanir okkar og til þess
er líka ætlast.“
- óká
MARK FLANAGANDAVÍÐ ODDSSON
Yfirmaður sendinefndar AGS í símtali við seðlabankastjóra í janúar:
Áréttaði ákvörðunarvald bankans
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem slas-
aðist alvarlega þegar hann féll
niður í húsgrunn við sumarbú-
stað í nágrenni Flúða var fluttur
af gjörgæslu og á almenna deild
á Landspítala í gær, að sögn sér-
fræðings á spítalanum.
Skammt er liðið síðan maður-
inn vaknaði og losnaði hann úr
öndunarvél í fyrradag.
Hann var með fjölskyldu sinni
í sumarbústað við Flúðir þegar
slysið varð, aðfaranótt sunnu-
dagsins 22. nóvember. Hann hlaut
mjög alvarlega áverka þegar
hann féll ofan í húsgrunninn og
átta steypustyrktarjárn stungust
í hann. - jss
Slysið við Flúðir:
Maðurinn laus
úr öndunarvél