Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 12
12 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Arion banki býður
nú viðskiptavinum
með erlend og innlend
íbúðalán lausnir sem
lækka höfuðstól lána
og létta greiðslubyrði.
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Skoðaðu hvaða leið gæti hentað þér á arionbanki.is. Nánari upplýsingar fást
hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum Arion banka eða í síma 444 7000.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
40
9
12
/0
9
SVEITARSTJÓRNIR „Við verðum að ýta undir
dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir
þjóðarsálina,“ sagði Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri í gær við aðra umræðu
um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks kynnti í gær ýmsar ráðstaf-
anir undir yfirskriftinni „Forgangsraðað í
þágu barna og velferðar.“ Í breytingartillög-
um við frumvarpið að fjárhagsáætluninni sé
það gert án þess að hækka skatta eða gjöld á
grunnþjónustu.
Meðal annars á að hækka hámarksupp-
hæð fjárhagsaðstoðar úr 115.567 krónum á
mánuði í 125.506 eða um tæpar tíu þúsund
krónur. „Á þennan hátt vill Reykjavíkur-
borg tryggja betur grunnöryggisnetið fyrir
þá sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að
halda,“ segir í tilkynningu frá skrifstofu
borgarstjóra. Þessi viðbót á að
kosta 142 milljónir króna.
„Við verðum að fara sömu
leið og heimili og fyrirtæki
landsins, forgangsraða í þágu
þess sem mestu skiptir, hag-
ræða og spara,“ sagði Hanna
Birna í borgarstjórn í gær.
Hún sagði að reyndust útgjöld
vegna fjárhagsaðstoðar
og húsaleigubóta, sem
væru bundnir liðir, vera
of lágt áætluð myndi
borgarsjóður engu
að síður borga það
sem vantaði upp á.
„Þannig á enginn að
velkjast í vafa um að
við munum standa
við bakið á almenn-
ingi í borginni sem á rétt á þessum stuðn-
ingi,“ sagði borgarstjórinn.
Hanna Birna segir að rekstur borgar-
sjóðs eigi að vera hallalaus á næsta ári.
Þátt fyrir sparnað sé engin hagræðing-
arkrafa gerð á velferðarsvið og lægri
hagræðingarkrafa á menntasvið, leik-
skólasvið og íþrótta- og tómstundasvið en
önnur svið borgarinnar. Staðinn verði
vörður um grunnþjónustu, störf og
gjaldskrár. - gar
Borgarstjóri Reykjavíkur segir að ýta þurfi undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkenni þjóðarsálina:
Hækka framfærslustyrki um tíu þúsund
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Bborgarstjóri kynnti í gær tillögur um
auknar fjárveitingar til velferðarmála
og sagði frá 40 milljóna króna átaki
vegna atvinnuþróunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KULDINN BÍTUR Í Moskvuborg er kalt
þessa dagana, eins og stundum að
vetrarlagi. Frostið var komið niður í
25 gráður á mánudaginn þegar þessi
mynd var tekin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFNAHAGSMÁL Slitastjórn Lands-
banka Íslands hf. neitar að upplýsa
Alþingi um hversu margir Íslend-
ingar áttu inneignir á Icesave-
reikningum Landsbankans og um
fjárhæðir inneignanna.
Þetta kemur fram í svari Gylfa
Magnússonar, efnahags- og við-
skiptaráðherra, við fyrirspurn frá
Árna Þór Sigurðssyni.
Í svarinu segir að ráðuneytið hafi
hvorki undir höndum neinar upp-
lýsingar um starfsemi fyrirtækja á
fjármálamarkaði né um bankainn-
stæður einstakra viðskiptamanna
bankanna. Engu að síður hafi verið
leitað til slitastjórnar Landsbanka
Íslands hf. vegna fyrirspurnar þing-
mannsins. Slitastjórnin bar fyrir sig
bankaleynd og segir að við stofnun
á Icesave-reikningi hafi innstæðu-
eigendur þurft að uppfylla skilyrði
varðandi búsetu, persónuskilríki,
lánshæfi og aðra þætti til að koma í
veg fyrir svik og peningaþvætti.
„Þessum upplýsingum var safn-
að saman á þeirri forsendu að gætt
yrði að réttarvernd einstaklinga á
grunni persónuverndarlaga,“ segir
slitastjórnin. „Aðeins er hægt að
birta þær vegna lagalegra ástæðna,
þ.m.t. ef þar til bær stjórnvöld, s.s.
vegna rannsóknar sakamála eða
þ.u.l., hafa farið fram á það eða þá
á grundvelli skriflegs samþykkis
innstæðueigenda.“ - pg
Slitastjórn Landsbanka Íslands hf. neitar að veita Alþingi upplýsingar:
Upplýsa ekki um eignir Íslendinga
BANKALEYND Reglur um bankaleynd
koma í veg fyrir að Alþingi fái upplýsing-
ar um eignir Íslendinga á Icesave-reikn-
ingum Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarafli í síðasta
mánuði var 85.690 tonn samanbor-
ið við 117.837 tonn í sama mán-
uði árið 2008. Botnfiskafli dróst
saman um 3.600 tonn frá nóvem-
ber 2008 og nam tæpum 37.600
tonnum. Þar af nam þorskaflinn
rúmum 16.200 tonnum, sem er um
1.000 tonnum meira en árið áður.
Ýsuaflinn nam tæpum 5.300
tonnum sem er um 2.900 tonnum
minni afli en í nóvember 2008.
Afli uppsjávartegunda nam
tæpum 45.500 tonnum sem er
29.000 tonnum minni afli en í nóv-
ember 2008. Skýrist sú breyting
nær alfarið af minni síldarafla.
- shá
Afli í nóvember:
Afli minnkar
nokkuð milli ára
STJÓRNSÝSLA Stjórn Landssam-
taka sauðfjárbænda mótmælir
fyrirhugaðri sameiningu sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytis og iðnaðarráðuneytis.
Tvær ástæður búa að baki, segir
í ályktun. Annars vegar gegni
landbúnaður og sjávarútvegur
mikilvægara hlutverki en fyrr
við fæðuöryggi og gjaldeyrisöfl-
un og því þurfi að leggja meiri
áherslu á málaflokkinn en hitt.
Ekki boði gott að í drögum iðnað-
arráðuneytisins að byggðaáætlun
sé ekkert fjallað um landbúnað
og lítið um sjávarútveg.
Hins vegar sé óráðlegt að ráð-
ast í skipulagsbreytingar á sama
tíma og sótt er um aðild að Evr-
ópusambandinu. - bþs
Landssamtök sauðfjárbænda:
Andvíg samein-
ingu ráðuneyta