Fréttablaðið - 16.12.2009, Síða 60
52 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Lagið Hjálpum þeim verður flutt
í nýjum búning á tónlistarhátíð-
inni Jól Jólsson sem verður hald-
in á Hótel Íslandi á föstudags-
kvöld. Flestir söngvaranna sem
koma fram á hátíðinni munu flytja
lagið. Á meðal þeirra verða Daníel
Ágúst, Krummi, Egill Sæbjörns-
son, Rósa Birgitta Ísfeld, Lóa
Hjálmtýsdóttir og Davíð Bernd-
sen. Hjálpum þeim er eftir Axel
Einarsson við texta Jóhanns G.
Jóhannssonar, Gunnars Þórðar-
sonar og Eyþórs Gunnarssonar.
Það kom fyrst út árið 1986 og var
gefið út til styrktar vannærðum
börnum í Afríku.
Hjálpum þeim sungið á ný
DANÍEL ÁGÚST Daníel Ágúst verður einn
þeirra sem syngja Hjálpum þeim á Jól
Jólsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þungarokksveitin Bad Carburet-
or frá Egilsstöðum á lag á safn-
disknum Riot on Sunset Vol. 19
sem plötuútgáfan 272 Records í
Los Angeles gefur út.
Útgáfan sérhæfir sig í að finna
hljómsveitir á Netinu og safna
saman lögum frá þeim. Áður hafa
Atómstöðin og Vax, báðar frá
Egilsstöðum, átt lög á diskum í
röðinni sem og hljómsveitin For-
eign Monkeys frá Vestmannaeyj-
um. Bad Carburetor skipa þeir
Davíð Logi Hlynsson trommari,
Hafþór Máni Valsson, söngvari og
gítarleikari, og Ari Frank Inguson
bassaleikari og þeir ætla sér stóra
hluti í framtíðinni.
Egilsstaðarokk til LA
Í ÚTRÁS Bad Carburetor (Vondur blönd-
ungur) frá Egilsstöðum.
Á annan í jólum – sem er laugardagur – verða gömlu
vínyl-kassarnir dregnir fram og dansstemning frá
árdögum danssenunnar 1990 til dansársins mikla
1995 rifjuð upp á Jakobsen. Kvöldið gengur undir
nafninu Party Zone ´95 kvöld, enda stendur sam-
nefndur danstónlistarþáttur fyrir því.
„Við héldum svona á Jónsmessunótt í sumar og
það varð gjörsamlega allt vitlaust,“ segir Helgi Már
Bjarnason, annar Party Zone-félaganna. „Þetta gekk
svo langt að einn gesturinn fótbrotnaði á dansgólf-
inu þegar Hardfloor remixið af Yeke Yeke með Mory
Kante var sett á fóninn. Hann er orðinn heill og
búinn að staðfesta komu sína næst. Við höfum aldrei
fengið önnur eins viðbrögð við nokkru kvöldi sem við
höfum haldið, og höfum við þó haldið þau nokkur.“
Helgi segir að heiti kvöldsins sé rökrétt. „Árið
1995 er mikið ár í hugum danstónlistar- og partídýra
landsins. Party Zone ´95-diskurinn kom út um haust-
ið. Hann sat í þrjár vikur á toppi íslenska plötulist-
ans, sem verður að teljast einsdæmi fyrir safndisk
með danstónlist. Það segir margt um hvað dansbylgj-
an var sterk á þessum tíma.“
Á þessum árum voru Tunglið og Rósenberg-kjall-
arinn athvarf danstónlistarfíkla. „Dót eins og Master
at Work, Basement Jaxx, 808 State og Erick Morrillo
troðfylltu Tunglið helgi eftir helgi,“ segir Helgi.
„Ekki má gleyma eftirpartíunum og reif-partíunum
úti um allan bæ. Svo voru stórviðburðir eins og Björk
og Underworld í Laugardalshöll og Uxahátíðin um
verslunarmannahelgina. Það var allt í gangi!“
Nú, fimmtán árum síðar, ætla plötusnúðar eins og
Margeir, Árni E, Maggi Legó, Grétar G, Frímann
og Andrés Nielsen að blása í glæðurnar og nokkuð
sennilegt er að hljómsveitin T-World – Maggi Legó og
Biggi Veira úr GusGus – komi saman af þessu tilefni.
Miðasala er hafin á midi.is. - drg
Danstónlistarfíklar ranka við sér
GÖMLU DAGANA GEFÐU MÉR Helgi Már Bjarnason sveittur á
Party Zone ´95-kvöldinu í sumar. MYND/GÍSLI KRISTJÁNSSON
Jessicu Simpson varð um og ó þegar hún frétti af dem-
antshring sem fyrrum kærasti hennar, íþróttakappinn
Tony Romo, gaf nýju kærustu sinni, Candice Craw-
ford. Vinir söngkonunnar segja að hún hafi fylgst með
sambandi Romo og Crawford frá því að þau byrjuðu að
stinga saman nefjum. „Hún hefur verið að velta sér upp
úr hringnum sem Candice skartar. Jessica ótt-
ast að Tony muni biðja Candice innan skamms
og hún vonar bara að hún sjálf sé komin með
nýjan kærasta, eða eiginmann, upp á arminn
áður en það gerist. Henni finnst þetta sárt því
hún trúði því að hún ætti sjálf eftir að giftast
Tony,“ var haft eftir málglöðum vini söngkon-
unnar.
Langar í eiginmann
VILL GIFTAST
Jessica Simpson vill nýjan kærasta.
Tiger Woods sendi frá sér tilkynningu
fyrir helgi þar sem hann viðurkenn-
ir að hafa haldið framhjá eiginkonu
sinni og segist jafnframt ætla að taka
hlé frá atvinnumennsku um óákveð-
inn tíma svo hann geti sinnt fjölskyldu
sinni betur. „Ég er meðvitaður um
þann sársauka sem ég hef valdið konu
minni og börnum. Mig langar að biðj-
ast afsökunar og bið þess að mér verði
fyrirgefið,“ sagði Woods.
Nú velta menn því fyrir sér hvort
eiginkona Woods, Elin Nordegren,
muni verða um kyrrt hjá kylfingnum
eða sækja um skilnað. Breska tímarit-
ið News of the World heldur því fram
að Nordegren ætli að verja jólunum
með Woods barnanna vegna en flytji
til Svíþjóðar á nýju ári. Hún á að hafa
keypt hús á eyjunni Faglarö.
Til að bæta á áhyggjur hjónanna
fengu þau heimsókn frá barnavernd-
arnefnd í síðustu viku. Tímarit þar
vestra telja þó að yfirvöld hafi aðeins
verið að fylgja eftir reglum í kjölfar
bílslyssins. Auk þess hafa styrktarað-
ilar Woods verið að draga sig til baka
og má þar á meðal nefna Pepsi og Gill-
ette.
Nýlegar fréttir herma að Woods
haldi enn sambandi við Rachel Uch-
itel og að hún sé sannfærð um að þau
muni taka saman innan skamms. Hún
hefur grætt vel á öllu fjaðrafokinu en
slúðurblöð beggja vegna Atlantshafs-
ins bjóða henni gull og græna skóga
fyrir nokkur orð. Reyndar hafa viðtöl
við hjákonur Woods prýtt flest slúður-
tímarit vestanhafs undanfarna daga..
Tiger segir skilið við golfið í bili
ENDALOKIN Fjölmiðlar velta nú fyrir sér hvort
hjónaband Woods muni enda með skilnaði.
Tiger ætlar að taka sér ótímabundið frí frá golfi
vegna málsins. NORDICPHOTOS/GETTY
> HÆTT MEÐ RODRIGUEZ
Leikkonan Kate Hudson er hætt
með hafnaboltakappanum Alex
Rodriguez eftir sjö mánaða
samband. Þetta hafa kunn-
ingjar þeirra staðfest. Rodrigu-
ez sást nýverið láta vel að und-
urfagurri blondínu, annarri
en Hudson, á veitingastað á
Miami og því ljóst að hann er
strax farinn að leita á ný mið.
Andri Snær Magnason hef-
ur lifað lífi heimsborgarans
á árinu og verið á stöðugu
flandri undanfarna mánuði.
Hann er loks kominn heim
og hyggst taka sér smá frí
frá ferðalögum.
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason hefur verið á ferð og
flugi undanfarna mánuði við að
kynna hina vinsælu bók Drauma-
landið, sem kom nýverið út í Japan
og Danmörku, en auk þess var
barnabókin Blái hnötturinn gefin
út í Kína og Litháen fyrir stuttu.
Blái hnötturinn kom fyrst út árið
1999 en hefur verið uppseld hér-
lendis um nokkra hríð. Kvik-
myndin Draumalandið var að auki
frumsýnd í Amsterdam og í Berlín
í nóvember síðastliðnum. „Maður
hefur verið úti næstum mánaðar-
lega síðan í vor við að kynna eitt-
hvað. Ég ákvað að taka heims-
borgarann á þetta fyrst maður var
byrjaður. Þegar Blái hnötturinn
kom út í Japan á sínum tíma fór
ég ekki til að fylgja henni eftir
og þá er hætta á að bækurnar
sökkvi og hverfi. Ég ákvað því
þegar Draumalandið var gefin
út í Japan að fyrst bókin kæmi út
í einu stærsta hagkerfi heims þá
yrði ég að fara út,“ útskýrir Andri
Snær sem er nýkominn að utan.
Hann segir heimsóknina til Jap-
ans hafa verið einstaka upplifun
og Tókýó vera skemmtilegustu
borg sem hann hafi komið til. „Ég
var viðbúinn menningarsjokkinu
en mannmergðin var ótrúleg.
Tískan þarna er líka mjög öfgafull
og þarna er fjöldinn allur af stelp-
um klæddar eins og Lísa í Undra-
landi og hópar af strákum klædd-
ir eins og Elvis Presley, þetta fólk
er allt miklu svalara en við hérna
í Evrópu. Þarna eru upphitaðar
klósettsetur staðalbúnaður sem
við Evrópubúar erum algjörlega
að fara á mis við.“
Meðan á dvöl hans stóð kom
Andri Snær fram í fjölda sjón-
varps- og blaðaviðtala. Hann seg-
ist gjarnan hafa verið spurður út
í efnahagskreppuna á Íslandi í
viðtölunum og segir marga halda
að landið sé rjúkandi rústir eftir
bankahrunið. „Ég eyði miklum
tíma í að leiðrétta ranghugmyndir
um að þjóðin sé farin til fjandans
og það sé ástæða að hafa áhyggjur
af öðrum en okkur. En hins vegar
bendi ég á að Ísland sé gott sýni-
dæmi um hvernig hugmyndafræði
geti leitt fólk í ógöngur.“
Barnabók Andra Snæs, Blái
hnötturinn, hefur nú verið gefin
út í 21 landi og segist Andri Snær
hafa stefnt að því að gefa hana út
alls staðar í heiminum strax í
upphafi. „Þetta hljómar eins og
gorgeir af manni sem þá var að
skrifa sína fyrstu barnabók. En
ég vissi að hugmyndin var góð og
ef ég gæti landað henni rétt þá
yrði bókin góð. Sagan hefur verið
sett upp sem leiksýning víða um
heim og ég vissi fyrir víst að ég
var orðinn frægur þegar leikritið
var sett upp í alþjóðlegum skóla
í Pakistan,“ segir Andri Snær og
hlær.
Rithöfundurinn mun taka sér
frí frá ferðalögum þar til í byrj-
un næsta árs en þangað til ætlar
hann að nýta tímann í ritstörf.
Aðspurður segist hann vera með
tvær nýjar bækur í smíðum auk
leikrits sem hann skrifar ásamt
Þorleifi Erni Arnarsyni, en leik-
ritið er skrifað með aðstoð spjall-
rásar þar sem Þorleifur er stadd-
ur í Toronto. - sm
JAPANAR SVALARI EN VIÐ
HEIMSFRÆGUR RITHÖFUNDUR Andri Snær Magnason sagðist hafa vitað að bók
hans, Blái hnötturinn, yrði vinsæl áður en hann hóf að skrifa hana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Jólasveinninn getur keypt
Friendtex bangsa til styrktar
Krabbameinsfélaginu
hjá okkur á 1.000.- krónur
Opið í dag mán-fös kl. 11-18, lau 11-16
Útsala
30–50% afsláttur!
Mikið úrval af
fallegum fatnaði