Fréttablaðið - 16.12.2009, Side 64
56 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Sendu dularfull
póstkort í ár
ENN EITT KORTIÐ FER AF STAÐ Vera og Jara póstleggja óvænta sendingu út í heim.
MYND/MARÍA GUÐRÚN RÚNARSDÓTTIR
„Ég missti vinnuna svo núna er ég
bara að skapa mér atvinnutæki-
færi og lífga við þennan garð,“
segir Sigríður Friðriksdóttir sem
opnaði um helgina Græna kaffi-
húsið í lystigarðinum Hellisgerði
í Hafnarfirði. „Þetta er pínulít-
ið hús inni í garðinum sem var
byggt 1905. Það var upphaflega
byggt sem íbúðarhúsnæði og hér
bjó fjölskylda og rak kaffihús
Oddrúnar. Síðan hefur ekki mikið
verið gert þar,“ útskýrir Sigríður
sem ætlar að hafa álfa og huldu-
veruþema á kaffihúsinu auk þess
sem hún selur íslenskt handverk.
„Þetta er svona álfakaffihús,
svolítið dularfullt og öðruvísi.
Ragnhildur Jónsdóttir ætlar
meðal annars að bjóða upp á
lestur á tarot- eða álfaspilum og
álfaspilin sem hún hannar verða
til sölu, en hún er alin upp í lysti-
garðinum og sér álfana. Kaffihús-
ið er svo lítið að það er eiginlega
bara svona baðstofustemning þar
sem allir sitja saman og það eru
gærur á bekkjunum,“ segir hún
brosandi.
Á matseðli Græna kaffihúss-
ins kennir ýmissa grasa. „Ég er
til dæmis með belgískar vöfflur,
jólaglögg, heitt súkkulaði, stollen-
jólabrauð og heilsubúst-drykki.
Það er stílað svolítið inn á fólk
sem er í göngutúr og getur komið
og fengið eða tekið með sér álfa-
búst. Svo er ég með gott uppáhellt
lífrænt kaffi,“ bætir hún við. - ag
Opnar álfakaffihús í Hellisgerði
GRÆNA KAFFIHÚSIÐ Mikil jólastemning ríkir á Græna kaffihúsinu hjá Sigríði sem
opnaði í Hellisgerði í Hafnarfirði um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Madonna hefur verið andlit tískurisans Louis
Vuitton undanfarið, en nú hefur tískuhúsið ákveð-
ið að segja upp samningi sínum við söngkonuna
og ráða í hennar stað yngri fyrirsætu.
Fyrirsætan sem var valin til að vera andlit
Louis Vuitton er engin önnur en Lara Stone, kær-
asta Davids Williams, grínistans sem sló í gegn
með Little Britain.
„Eftir að hafa unnið með svo stórri stjörnu tóku
þeir ákvörðun um að vinna með fyrirsætu,“ var
haft eftir talsmanni tískuhússins.
SAGT UPP Madonna er ekki lengur
andlit Louis Vuitton.
Hjartaknúsarinn George Clooney
hefur fundið ástina í örmum hinn-
ar ítölsku Elisabettu Canalis. Þau
hafa verið saman frá því í sumar
og nýlega kynnti Clooney hana
fyrir móður sinni. Vinir leikarans
hafa þó tekið eftir því að Elisa-
betta lætur Clooney ekki stjana
mikið við sig. „Elisabetta þarf
ekki á peningum Georgs að halda,
hún á nóg af þeim sjálf, og hún er
ekki ein af þeim konum sem leyf-
ir karlmanninum að borga fyrir
allt. Hún er jafnoki hans,“ var haft
eftir einum kunningja Clooneys
sem bætir við að leikarinn kunni
að meta sjálfstæði kærustunnar.
„Elisabetta er frægari en Clooney
í heimalandi sínu þannig að hún
notar nafn sitt til að koma þeim að
á vinsælum veitingastöðum, hún
ræður ferðinni.“ Sögusagnirn-
ar herma að Elisabetta hafi neit-
að að flytja inn með Clooney í Los
Angeles og vill heldur leigja eigin
íbúð. „Clooney bauðst til að borga
leiguna fyrir hana en hún skellti
bara upp úr.“
Sjálfstæð kærasta
SJÁLFSTÆÐ KONA Ný kærasta Georges
Clooney vill ekki flytja inn með honum.
Vera Sölvadóttir og Jarþrúð-
ur Karlsdóttir fengu hugmynd á
kaffihúsi í sumarbyrjun 2008: Að
senda ókunnugu fólki úti um allan
heim póstkort, eitt á viku. Þær
stóðu við hugmyndina í heilt ár og
opna á morgun sýningu á verkefn-
inu.
„Við vorum að spá í þær breyt-
ingar sem hafa orðið í upplýsinga-
flæði og samskiptum fólks síðasta
rúma áratuginn,“ segir Vera. „Þó
að flest hafi breyst eru póstkort-
in enn á sínum stað. Við ákváð-
um að finna heimilisfang hjá ein-
hverri ókunnugri manneskju og
senda henni póstkort eins og við
myndum senda vini okkar. Engin
kynning á okkur, ekkert heimil-
isfang, bara einfalt vinalegt póst-
kort. Takmarkið var ekki annað
en að gleðja fólk, koma því á óvart
og hreyfa þannig við tilveru þess
með óvæntu póstkorti upp á gamla
mátann.“
Vera segir að auðvelt hafi verið
að grafa upp nöfn og heimilisföng
hjá alls konar fólki. „Sýningin fjall-
ar líka um að persónuupplýsing-
ar eru aðgengilegar hvar sem er,
hverjum sem er á Netinu. Heimur-
inn er smám saman að verða eins
og lítið íslenskt sjávarþorp þar
sem allir geta vitað allt um alla, ef
þeir kæra sig um. Við fundum til
að mynda japanskan vísindamann
sem heldur úti heimasíðu þar sem
fólk getur orðið sér úti um allar
hans persónuupplýsingar.
Við vorum með heimskort og
merktum inn á hvert póstkort-
in fóru. Reyndum að dreifa þessu
jafnt um allan heim, en helst var
vandasamt að finna fólk í Afríku,
eða Rússlandi og Asíu þar sem
annað letur er notað.“
Þar sem sendingarnar hófust
fyrir hrun segja póstkortin sögu
af sálarlífi Veru og Jöru. „Við
fórum frá umfjöllunum um mat-
arboð og sumarlíf yfir í vanga-
veltur um þjóðfélagsástandið,
efnahagskreppu og okkar nánasta
umhverfi,“ segir Vera. „Við tókum
svo myndir af öllum kortunum 52
og sýnum þær í réttri tímaröð. Við
lestur póstkortanna fær fólk því
innsýn inn í heim hversdagsfólks
í miðju efnahagshruni. Í gegnum
okkur sjálfar sýnum við atburða-
rás sem enginn gat séð fyrir.“
Sýningin hefst á morgun kl. 17,
og er í Þjóðmenningarhúsinu.
drgunni@frettabladid.is
Madonnu sagt upp
Nýjasta mynd George
Clooney, Up in the Air,
hlaut flestar tilnefningar
til Golden Globe-verðlaun-
anna. Íslendingar lögðu sitt
af mörkum til nokkurra
mynda sem voru tilnefndar.
Up in the Air hlaut sex Golden
Globe-tilnefningar, þar á meðal
sem besta dramatíska kvikmyndin,
auk þess sem George Clooney var
tilnefndur sem besti aðalleikarinn.
Aðrir myndir tilnefndar sem besta
dramatíska myndin voru Avatar,
The Hurt Locker, Inglorious Bast-
erds og Precious.
Söngleikurinn Nine fékk næst-
flestar tilnefningar, eða fimm
talsins. Nine var meðal annars til-
nefnd sem besta myndin í söng-
leikja- og gamanmyndaflokki.
Aðrar tilnefndar í þeim flokki voru
(500) Days Of Summer, The Hang-
over, It´s Complicated og Julie &
Julia. Tvær myndir hlutu fjórar
tilnefningar, ævintýramynd James
Cameron, Avatar, og stríðsópus
Quentins Tarantino, Inglourious
Basterds. Íslenski förðunarmeist-
arinn Heba Þórisdóttir annaðist
einmitt förðunina í síðarnefndu
myndinni.
Tilnefndar sem bestu aðal-
leikkonurnar í dramaflokki voru
Sandra Bullock fyrir The Prop-
osal, Marion Cotillard fyrir Nine,
Julia Roberts fyrir Duplicity og
loks fékk Meryl Streep tvær til-
nefningar fyrir It´s Complicated
og Julie & Julia.
Auk George Clooney voru til-
nefndir sem bestu aðalleikarar
í dramaflokki þeir Jeff Bridges
fyrir Crazy Heart, Colin Firth
fyrir A Single Man, Morgan
Freeman fyrir Invictus og Tobey
Maguire fyrir Brothers, sem Sig-
urjón Sighvatsson framleiðir. Sú
mynd hlaut eina tilnefningu til
viðbótar. Þar var á ferðinni hljóm-
sveitin U2 með aðallag myndarinn-
ar, Winter.
Auk Sigurjóns og Hebu tengist
einn Íslendingur til viðbótar Gold-
en Globe-verðlaununum í ár, eða
leikmyndahönnuðurinn Karl Júlí-
usson. Hann hannaði leikmynd-
ina fyrir stríðsmyndina The Hurt
Locker sem er tilnefnd sem besta
dramatíska myndin eins og áður
sagði. Honum tókst að láta borg-
ina Amman í Jórdaníu líta út fyrir
að vera á miðju ófriðarsvæðinu í
Bagdad í Írak.
Sjónvarpsþátturinn Glee hlaut
flestar tilnefningar til Golden
Globe, eða fjórar talsins. Næst-
ir á eftir honum með þrjár til-
nefningar komu 30 Rock, Big
Love, Damages, Dexter, Georgie
O´Keefe, Grey Gardens, Into the
Storm og Mad Man. Sumir þess-
ara þátta hafa verið sýndir á Stöð
2 og Skjá einum við miklar vin-
sældir.
Golden Globe-verðlaunin verða
afhent 17. janúar í Hollywood og
verður fróðlegt að sjá hvort ein-
hverjar „íslensku“ myndanna fari
heim með þessi virtu verðlaun.
Up In The Air með flestar
Golden Globe-tilnefningar
UP IN THE AIR
George Clooney fer
með aðalhlutverkið í
myndinni Up In The Air.
Karl Júlíusson hannaði
leikmyndina fyrir The Hurt
Locker, Heba Þórisdóttir
sá um förðun í Inglorious
Basterds og Sigurjón
Sighvatsson framleiðir
Brothers.
Veiðimann og Hrútaspilið eru frábær fjölnota
íslensk spil sem fást í Ísbirninum Laugavegi 38.