Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 66
58 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR „Þetta er ein af stærstu frumsýn- ingunum frá upphafi á Íslandi,“ segir Guðmundur Breiðfjörð hjá Senu. Kvikmyndin Avatar verður á föstudaginn frumsýnd í þrettán bíósölum í Reykjavík, Akureyri og Keflavík, bæði í tví- og þrívídd. Hátt í 24 þúsund sæti verða í boði fyrstu þrjá sýningardagana, enda býst Guðmundur við gríðarlegri aðsókn. „Við erum fullir sjálfs- trausts vegna þess að það er gríð- arlegur meðbyr með myndinni og dómarnir sem hún hefur fengið eru með ólíkindum. Ég er búinn að sjá hana í tvívídd og þetta er besta fantasíumynd sem ég hef séð síðan Lord of the Rings eitt. Svona bíó- mynd kemur bara á fimm til tíu ára fresti,“ segir hann og bætir við: „Ég hef ekki upplifað mig í bíói svona endurnærðan og fersk- an síðan á Lord of the Rings.“ Miðnætursýningar verða á myndinni annað kvöld og er miða- sala hafin á Midi.is. Miðaverð á tvívíddina er 1.150 krónur en eilít- ið dýrara er á þrívíddina, eða 1.400 krónur. Myndin verður einnig for- sýnd á vegum Nexus klukkan 20 í kvöld í Smárabíói. Avatar, sem James Cameron leikstýrir, gerist í framtíðinni á litlu tungli sem heitir Pandóra. Lamaður landgönguliði í banda- ríska flotanum að nafni Jake Sully býður sig fram til að lifa sem Avat- ar á Pandóru og njósna um ætt- bálkinn Na´vi fyrir herinn. Babb kemur í bátinn þegar hann verð- ur ástfanginn af Neytiri, fallegri Na’vi prinsessu. - fb Ein stærsta sýning sögunnar AVATAR Jake Sully og prinsessan Neytiri verða ástfangin á tunglinu Pandóru. Kvikmyndin The Hurt Locker, sem fjallar um sprengjusérfræðinga í Írak, var kjörin besta myndin af samtökum gagnrýnenda í Los Ang- eles. Leikstjóri myndar- innar, Kathryn Bigelow, fékk einnig viðurkenn- ingu. Þrátt fyrir góða dóma víðast hvar þegar myndin var sýnd í sumar fékk hún heldur dræma aðsókn og þén- aði aðeins þrettán millj- ónir dollara vestanhafs. Jeff Bridges var kjör- inn besti leikarinn sem sveitasöngvari í mynd- inni Crazy Heart og í kvennaflokki vann hin belgíska Yolande Moreau fyrir hlutverk sitt í Seraphine. Austurríski leikarinn Christoph Waltz var valinn besti leikarinn í aukahlutverki fyrir eftirminnilega frammistöðu í Ing- lorious Basterds og Mo´Nique var kjörin besta leikkonan í aukahlut- verki fyrir myndina Precious. The Hurt Locker var einnig valin ein af tíu bestu myndum ársins af Kvikmyndastofnun Bandaríkjanna. Aðrar myndir sem urðu fyrir valinu voru: Coraline, The Hangover, The Messenger, Precious, A Serious Man, A Single Man, Sugar, Up og Up in the Air. Hurt Locker best THE HURT LOCKER Kvikmyndin The Hurt Locker var kjörin best af samtökum gagnrýnenda í Los Angeles. Spænska leikkonan Penelope Cruz gerir hvað hún getur til að halda fjölmiðlum fjarri ástar- sambandi sínu með leikaran- um Javier Bardem. Hún óttast að sam- bandið versni um leið og hún fer að tjá sig opin- berlega. „Allir vita að ég er í sambandi. Ég vil ekki tala um það vegna þess að ég vil vernda það því þetta samband skiptir mig miklu máli. Svo ein- falt er málið,“ sagði Cruz. Talið er að hún hafi þegar trúlofast Bardem en hún vill ekkert segja um hringinn sem hún ber á baug- fingrinum. „Það er eitthvað sem ég vil halda fyrir sjálfa mig.“ Talið er að Cruz og Bardem hafi byrjað saman eftir tökur á mynd- inni Vicky Cristina Barcelona árið 2007. Tjáir sig ekki við fjölmiðla PENELOPE CRUZ Leikkonan vill halda ástarsambandi sínu fjarri fjölmiðlum. Söngkonan Courtney Love, ekkja rokkarans Kurts Cobain, hefur misst forræðið yfir dóttur þeirra, Frances Bean Cobain. Dómstóll í Los Angeles úrskurðaði um þetta á dögunum. Það verður móðir Kurts, Wendy O´Connor, og syst- ir hans, Kimberly Dawn Cobain, sem öðlast forræðið yfir Frances, sem er sautján ára. Ekki er vitað hvers vegna Love missti forræðið en und- anfarin ár hefur hún átt við vímuefna- vandamál að stríða. Kurt Cob ain fyrirfór sér árið 1994 eftir að hafa nokkrum árum áður slegið í gegn með hljómsveit- inni Nir- vana. Love missti forræðið MÆÐGUR Courtney Love ásamt dóttur sinni, Frances Bean, fyrir tveimur árum. ÓSKABÓK SKOTVEIÐIMANNSINS Þúsundir landsmanna stunda skotveiði sér til ánægju og yndisauka. Í þessari bók er komið víða við og stemming skotveiðinnar svífur yfir vötnum. Nokkrir af snjallari skotveiðimönnum landsins segja sögur og rifja upp skemmtileg atvik. Einnig frásagnir, allt aftur til ársins 1912, veiðidagbækur og eldri greinar sem sýna breytta tíma. Bókin er ríkulega myndskreytt. ÁRBÓK VEIÐIMANNSINS komin í verslanir Ómissandi heimilda- og skemmtirit fyrir veiðimanninn. Frábærar sögur frá veiðisumrinu 2009, ýmsar fréttir og fjöldi mynda skreyta bókina. Stórglæs ileg bók um skot veiði í máli og myndum Einn sem hefur verið hvað lengst í skotveiðibransanum er Ásgeir Heiðar. Maður sem f lestir veiðimenn hafa heyrt getið um, veiðimaður af lífi og sál og fyrrverandi atvinnumaður í skotveiði. Hjá honum snýst lífið um veiðiskap og gagnstætt því sem margur heldur, þá stendur skotveiðin honum mun nær heldur en stangaveiðin, hún er í hans huga mun meira krefjandi. „Ég fór aðallega út í stangaveiði vegna þess að ég heyrði á einhverju fólki að það væri hægt að hafa svo góð laun þar og fyrir mér var hún bara easy as pie,“ segir Ásgeir. Ásgeir segir okkur í upphafi viðtalsins, að það séu engin veiðigen í fjölskyldu hans og kveði svo rammt af því að það hafi verið sagt í gríni manna í millum að ef til vill hafi einhverjum starfskrafti á fæðingardeild skjátlast á sínum tíma og sent foreldra hans heim með vitlaust barn. Ásgeir Heiðar eignaðist fyrstu byssuna áður en hann eignaðist bíl. Hann starfaði hjá I. Guðmundsson o/co sem er heildsali á sviði stanga- og skotveiði og einn góðan veðurdag nældi hann í byssuna, Winchester 370 einhleypu. Byssuna á hann ennþá og þegar viðtalið fer fram á heimili hans á Vatnsendablettinum, stendur hann upp úr stofu- sófa og gengur að byssuskáp sem er að sjálfsögðu í stofunni, opnar hann, tekur byssuna út og mundar hana með velþóknunarsvip. „Góð byssa, dugði mér vel“, segir hann. 17 ára gamall var ég byrjaður og fór þá gjarnan þegar rjúpna- veiðitíminn var byrjaður með strætó upp á Lögberg og þræddi mig upp með Heiðmerkurgirðingunni. Byssuna tók ég í sundur, setti hana í poka og geymdi pokann á bak við strætóskýlið þar upp frá. Þarna var mikið af fugli og aldrei í sjálfu sér að ásækja mann að fara inn fyrir Heiðmerkurgirðinguna, því nóg var af fugli þar sem mátti skjóta hann É k t í ýði Margar sopnar fjörur Ásgeirs Heiðars 104 Axel Kristjánsson hæstaréttarlögm aður er skotveiði mað- ur af lífi og sál. Rjúp ur, gæsir og síðast e n ekki síst hreindýr eru bráðin hans. Það er hreind ýraskytteríið sem s tendur þar hæst, en hann fór fyrst á slíkar veiðar árið 1963. Þá var öl din önnur, enda lið in um 46 ár síðan. Styttist sem s agt í hálfa öld. Axel er ríflega áttræður s karfur í dag og viti menn, hann er enn að. Fer enn árlega á hreindýr. H ann hefur því lifað tímana tven na og heldur betur s tigið öldurnar á heið um Aust- fjarðarhálendisins. Við ætlum að hald a okkur við hreind ýraútgerð Axels, ek ki hvað síst vegna þess að ha nn hefur haldið ma gnaðar veiðidagbæk ur allt frá fyrstu ferð. Eru þæ r svo magnaðar og skemmtilegar að þe ir sem þær sjá hljóta að óska þ ess að þeir hefðu s jálfir nennt að stan da í dag- bókarskriftum, því þegar menn líta um öxl, mörgum árum eftir að þeir byrjuðu finna þeir að minnið getu r byrjað að svíkja, á r og túrar renna saman, dýr g leymast og þá vita menn betur en fyr r að það er fátt sem jafnast á vi ð minningarnar. Ætlunin er að birta nokkuð úr dagbók um Axels, rifja upp nokkra veiðitúra. Þeir eru e kki aðeins mergjaða r og skemmtilegar v eiðisögur, heldur nokkurs ko nar aldarspegill í leiðinni. Í dag fer enginn án breytts jeppa, GPS, farsíma og guð má vita hvað ekki. Í þ á daga var ekkert svoleiðis. Þá voru menn á „tút tum“ og helst að m enn hefði sjónauka, auk sko tvopnanna. Viftur eimar slitnuðu, va tn lak af vatnskössum og me nn gistu annað hvo rt í tjöldum eða fen gu að kasta sér í hlöðum bæn da. Í dagbókum A xels er enn fremu r að finna nærgætna en jafnfr amt kímniríka lýsin gu á persónum og l eikendum í kringum veiðiferð irnar og þá er ekki a ðeins átt við veiðifé laga hans, heldur sveitamenn , bæði bændur o g þá hjálparkokka sem að ferðunum komu. Axel segist hafa ve rið heillaður af sko tvopnum frá því á ungl- ingsárum, en á hás kólaárunum hafi vo pnaskakið hafist fy rir alvöru, þó með þeim annm örkum sem Axel lý sir, að „candidatar juris árið 1954 höfðu lítið f é á milli handann a.“ Axel kynntist Vilhjálmi heitnum Lúðvíkssy ni á þessum árum og voru þeir samst iga í byssu- dellunni. „Þessi sk otveiði okkar var m jög losaraleg í fyrs tu, vorum bara með einhverja hólka, en árið 196 0 heilluðumst við a lgerlega af Remington 1100 ha glabyssu sem við sá um í Bandarísku tí mariti. Við vorum nógu vitlau sir til að panta tvö stykki . Þessar by ssur urðu síðan geysivinsælar og byssan mín virk ar enn prýðilega. M eð þessum nýju byssum hófu st nýir tímar hjá okkur og við fóru m í fjölda veiðitúra sem stóðu allt frá dagsparti o g upp í 3–4 daga. V eiðin var ekki til að hrópa hú rra fyrir og ef við n áðum 2–3 fuglum v orum við alsælir. En það brey tti engu, þetta er ba ktería og hún vatt u pp á sig og það hratt. Vilhjálm ur var mikill vinur minn. Ég átti forlát a veiðibíl á þeirra tíma mælik varða, sem var Wi llis Station, en Vil li eignaðist f ljótlega Austin Gi psy. En það leið ek ki á löngu áður en gæsa- og rjúpnatúrar dugðu okkur engan veginn og árið 1962 bauð Þorsteinn S. Thorarensen okk ur með sér á hreind ýr austur á land næ sta ár. Við vorum gríðarlega upp með okkur, Þ orsteinn var í veið igengi, en ákvað að breyta til og fá okkur til liðs við sig. 1963 var fy rsti túrinn og það var eitt að s egja og annað að g era að undirbúa fe rð af þessu tagi, því margt var öðru vísi þá en nú. Fyrstu fjögur árin m á heita að þetta hafi verið býs na frjálslegt, en síð ar fór reglugerðarfa rganið að tröllríða öllu þanni g að á stundum viss i maður varla hvort maður var að koma eða fara. S em dæmi um reglu gerðirnar má nefna , að nú má fara til veiða á bíl, en ekki sexhjóli. Se xhjólið má að vísu hafa með uppi á kerru, en þe gar á hólminn er k omið má ekki taka sexhjólið niður fyrr en veiði e r fengin og þá aðein s aka merktar slóðir . Eiginlega má segja, að sexhjó lið megi vera með í för, en hvorki vera á slóðunum eða utan þeirra! En maður lætur það ek ki spilla ánægjunni . Þorsteinn sagði okkur að það tæki heilt ár að und irbúa hreindýratúr og það var Axel Kristjánsson : Aldarspegill af h reindýraveiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.