Fréttablaðið - 16.12.2009, Page 70
62 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
SKÍÐAGANGA Skíðagöngukappinn
Snorri Einarsson mun keppa fyrir
hönd Noregs í vetur eins og hann
hefur gert á undanförnum árum.
Hann hefur búið í Noregi lengst
af og vakið verðskuldaða athygli
fyrir góða frammistöðu í 10 og 15
km göngu, bæði með hefðbundinni
og frjálsri aðferð.
Birgir Gunnarsson, formað-
ur skíðagöngunefndar Skíðasam-
bands Íslands, segir að til greina
hafi komið að Snorri myndi keppa
á vetrarólympíuleikunum í Van-
couver í vetur sem fulltrúi Íslands.
Það hafi hins vegar ekki gengið
eftir.
„Bæði skíðasambönd Nor-
egs og Íslands voru búin að sam-
þykkja það fyrir sitt leyti en FIS,
alþjóðlega skíðasambandið, bann-
aði honum að skipta um landslið
á miðju tímabili,“ sagði Birgir.
„Við munum því skoða málið aftur
síðar.“
Snorri segir sjálfur í samtali við
Fréttablaðið að það hafi ekki verið
erfitt val fyrir sig að velja Noreg
fyrst Ólympíuleikarnir voru ekki
inni í myndinni hjá sér. Hann mun
taka þátt í stóru móti, Skandinav-
isk Cup, sem Norðmaður.
„Ég hef verið að ná ágætum
árangri en tel mjög litlar líkur á
því að ég komist í norska lands-
liðið fyrir Ólympíuleikana,“ segir
Snorri.
Hann segir enn fremur að ef
hann myndi ákveða að keppa
fyrir hönd Íslands gæti hann ekki
keppt aftur sem fulltrúi Noregs að
Ólympíuleikunum loknum.
„Það er einu sinni þannig að það
er mun meira um peninga í norska
skíðasambandinu sem þýðir meira
öryggi fyrir mig. Það vegur þungt
í minni ákvörðun.“
Snorri er 23 ára gamall og býr í
Tromsö. Hann keppti í tvö ár fyrir
háskólalið Utah í Bandaríkjunum
en hefur að undanförnu náð á verð-
launapall í norsku mótaröðinni.
„Hann hefur náð virkilega
góðum árangri og hefur verið að
banka á dyrnar hjá norska lands-
liðinu,“ sagði Birgir.
Snorri á íslenskan föður og
norska móður. eirikur@frettabladid.is
Valdi Noreg frek-
ar en Ísland í bili
Skíðagöngukappinn Snorri Einarsson mun áfram
keppa undir merkjum Noregs í vetur og fer því ekki
á Ólympíuleikana í Vancouver fyrir Íslands hönd.
SNORRI EINARSSON Hefur náð góðum árangri í skíðagöngu í Noregi.
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur enn ekki fengið bót
meina sinna en hún hefur átt við meiðsli að stríða
í vöðvum aftan í báðum lærunum. Hún hefur hitt
fjölda lækna, bæði hér heima og í Svíþjóð, en enn
ekki fengið viðundandi svör.
„Það er í raun ekkert nýtt að frétta af þessu
máli. Þetta er bara enn í skoðun og vinnslu,“
sagði Margrét Lára við Fréttablaðið í gær. „Nú er
ég bara komin heim í jólafrí og ætla að reyna að
slaka á.“
Hún hefur enn ekki ákveðið hvar hún muni spila á
næstu leiktíð en henni standa margir kostir til boða. Hún
hefur ekki áhyggjur af því að hún sé að falla á tíma. „Nei, ég
held ekki. Það getur vel verið að meiðslin séu vegna álags
og þá verði ég bara að hvíla. Ég reyni því að vinna undir sárs-
aukamörkum og sjá hvað það gefur mér. Ég hef annars litlar
áhyggjur af næsta tímabili. Það getur vel verið að ég missi
eitthvað af undirbúningstímabilinu en ég stefni á að vera
orðin klár í slaginn með vorinu þegar nýtt tímabil hefst.“
Margrét Lára lék fyrst með Linköping og svo Kristianstad í sænsku
úrvalsdeildinni í sumar og getur vel hugsað sér að halda
áfram hjá síðarnefnda félaginu.
„Mér leið mjög vel þar og mér finnst ef til vill líka að
ég hafi enn eitthvað að sanna í Svíþjóð. En ég hef
líka fengið boð frá félögum í Þýskalandi, Banda-
ríkjunum og Noregi sem ég er mjög spennt fyrir.
Freistingarnar eru margar og þetta getur því
verið flókið. Ég hef verið að skoða þessi mál og
fara yfir það sem er í boði. Aðalmálið er þó að ná
mér góðri og halda mér í standi fram að næsta
tímabili.“
Hún stefnir þó að því að vera búin að ákveða sig
fyrir áramót svo hún hafi tíma til að koma sér fyrir.
„En það eru þrjár góðar vikur fram að áramótum og
þangað til ætla að ég vera í góðu yfirlæti á besta stað
í heimi – Vestmannaeyjum. Hér er frábært að vera og
ég vona að sjávarloftið geri mér svo gott að það lækni
meiðslin.“
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR: MEÐ TILBOÐ FRÁ FÉLÖGUM Í FJÓRUM LÖNDUM
Mun vonandi ákveða mig fyrir áramótin
> Stóðst læknisskoðun hjá Reading
Gunnar Heiðar Þorvaldsson gekkst í dag undir læknis-
skoðun hjá enska B-deildarfélaginu Reading og stóðst
hana. Þetta staðfesti Gunnar Heiðar í samtali við
Fréttablaðið í gær. Hann á von á því að skrifað verði
undir samning á morgun. „Umboðsmaðurinn minn
er að vinna í samningsmálunum og það er
verið að ganga frá síðustu smáatriðunum,“
sagði Gunnar Heiðar. Hann er á mála
hjá danska félaginu Esbjerg sem hefur
samþykkt að lána Gunnar Heiðar til
Reading út leiktíðina.
FÓTBOLTI Fjórir leikir fara fram
í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Mörg topplið verða í eldlínunni
en bæði Chelsea og Arsenal mæta
liðum í neðri hluta deildarinnar. Þá
eigast við Tottenham og Manchest-
er City í mikilvægum leik og
að síðustu tekur Liverpool á
móti Wigan.
Gengi Liverpool það sem af
er tímabili hefur verið langt
undir væntingum stuðn-
ingsmanna félagsins
og er nú svo komið
að liðið þarf nauð-
synlega á sigri að
halda gegn Wigan í kvöld ætli liðið
sér ekki að missa hin liðin í topp-
baráttunni enn lengra frá sér.
„Hver einasti leikur hjá okkur er
leikur sem við verðum að vinna,“
sagði Benitez á blaðamannafundi í
gær. „Okkar viðhorf er að reyna að
vinna hvern einasta leik. Stund-
um er það hægt og stundum ekki.
En það þýðir ekki að vera nei-
kvæður heldur þarf að hugsa um
hið jákvæða.“ - esá
Rafa Benitez er bjartsýnn fyrir leik Liverpool í kvöld:
Hugsa um það jákvæða
RAFA BENITEZ
Knattspyrnustjóri Liverpool.
NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Stelpurnar hans Þóris
Hergeirssonar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum á HM í Kína með
því að vinna 27-24 sigur á Spáni í
lokaleik milliriðilsins í gær. Noreg-
ur mætir Rússlandi í undanúrslit-
um en í hinum leiknum spila Frakk-
ar og Spánverjar.
Það stefndi í allt annað en norsk-
an sigur þegar Þórir settist niður
með sínum stelpum í hálfleik.
Norska liðið tapaði síðustu 18 mín-
útum fyrri hálfleiksins 2-9 og
möguleikinn á verðlaunasæti var að
renna liðinu úr greipum enda liðið
sex mörkum undir, 8-14, þegar liðin
gengu til hálfleiks.
Hálfleiksræða Þóris tókst greini-
lega fullkomlega því honum tókst
að kveikja í sínum stelpum. Norsku
stelpurnar skoruðu 6 af fyrstu 7
mörkum seinni hálfleiks og komu
sér á ný inn í leikinn.
„Þetta er mjög sætur sigur. Stelp-
urnar spiluðu stórkostlega í seinni
hálfleik. Við erum með eitt mottó
og það er að vera yfir þegar loka-
flautið gellur,“ sagði Þórir við TV2
eftir leik en norska liðið vann seinni
hálfleikinn 19-10 og leikinn þar af
leiðandi með þremur mörkum. En
hvað gerðist í hálfleiknum?
„Við gerðum smá lagfæring-
ar en aðallega snerist þetta bara
um að hafa meira gaman af þessu
og sleppa sér aðeins. Við bættum
vörnina en mesta breytingin var
að stelpurnar fóru að brosa aðeins
meira,“ sagði Þórir.
Þórir fékk líka hrós frá Marit
Breivik, fyrrum þjálfara liðsins,
í sjónvarpsútsendingu TV2. „Mér
fannst mikið til liðsins koma. Þetta
var ótrúlega gott hjá þeim,“ sagði
Breivik um leikinn í gær.
Með sigrinum tryggði norska
liðið sér sigur í riðlinum og mætir
Rússum í undanúrslitunum en Rúss-
ar tryggðu sér annað sætið í hinum
riðlinum með því að vinna Dani 30-
25. Undanúrslitaleikirnir fara fram
á föstudaginn og úrslitaleikurinn er
síðan spilaður á sunnudaginn.
- óój
Þórir Hergeirsson kom norska kvennalandsliðinu í undanúrslitin á HM í Kína:
Hálfleiksræðan kveikti í liðinu
SPILA UM VERÐLAUN Norska liðið
fagnar sigri í gær. MYND/AFP
Fumsýnd 11. desember
í Háskólabíói
Græna ljósið er á
Facebook.com/graenaljosid
14 ÁRA GAMLIR GERÐU ÞEIR SAMNING UM ROKKA SAMAN AÐ EILÍFU - ÞEIM VAR FULL ALVARA!
„MEISTARAVERK!“ - EMPIRE
„ÉG BUGTA MIG OG BEYGI
FYRIR ANVIL!“
- KEANU REEVES
„BESTA HEIMILDARMYND SEM
ÉG HEF SÉÐ Í ÁRARAÐIR!“
- MICHAEL MOORE
„BESTA MYND SEM GERÐ
HEFUR VERIÐ UM ROKK OG RÓL!“
- UNCUT