Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 107

Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 107
FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 67 „Ég hef aldrei séð eins flott pró- gram. Þetta verða gríðarlega flottir tónleikar,“ segir tenórinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Hann, ásamt tenórunum Kolbeini Ketilssyni og Snorra Wium, syng- ur á stórtónleikum í Háskólabíói 3. janúar. Með þeim á sviðinu verð- ur Sinfóníuhljómsveit Íslands og karlakórinn Fóstbræður. Tenórarnir þrír hafa undanfarin tíu ár haldið tónleika saman hér á landi en aldrei eins stóra og þessa og aldrei í byrjun ársins. „Það er búinn að vera draumur lengi að gera þetta svona glæsilega. Við höfum oft verið spurðir hvenær við verðum með Sinfóníunni en það hefur ekki orðið. En þetta eru frambærilegustu tenórar þjóðar- innar í dag, það er engin spurn- ing. Þetta eru mennirnir sem eru að gera hvað mest erlendis,“ segir Jóhann Friðgeir. Snorri Wium er nýfluttur heim eftir að hafa búið í Þýskalandi undanfarin ár og Kol- beinn Ketilsson býr í Köln í Þýska- landi. Jóhann sjálfur hefur verið heima á Íslandi síðustu tvö ár en stefnir á ýmis verkefni í Evrópu á næsta ári. En eru íslensku tenórarnir jafn- góðir og Pavarotti, Domingo og Carreras þegar þeir voru og hétu? „Þú verður að láta aðra dæma um það. Það fer eftir því hvort hljóð- mennirnir verða duglegir að búa til gott sánd en við gerum okkar besta,“ segir Jóhann og brosir. - fb Þrír tenórar með stórtónleika TENÓRARNIR ÞRÍR Snorri Wium, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Kolbeinn Ketilsson halda stórtónleika í Háskólabíói 3. janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Leikstjórinn Steven Spielberg hefur keypt kvikmyndaréttinn að skáldsögunni Warhorse eftir Michael Morpurgo sem kom út árið 1982. Bókin fjallar um samband ungs drengs og hestsins hans meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stendur. Lee Hall mun skrifa handrit myndarinnar en hann hefur á ferilskránni handritið að hinni vinsælu Billy Elliott. „Um leið og ég las bókina vissi ég að mig langaði að gera þessa mynd. Boðskapur myndarinnar ætti að höfða til fólks um allan heim,“ sagði Spielberg, sem hefur áður tekist á við síðari heims- styrjöldina í myndunum Saving Private Ryan og Schindler´s List, auk sjónvarpsþáttanna Band of Brothers. Kaupir skáldsögu STEVEN SPIELBERG Leikstjórinn hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að skáldsögunni Warhorse. Fótboltakappinn David Beckham var viðmælandi í spjallþætti George Lopez í vikunni. Aðspurð- ur sagði hann það vera martröð líkast stundum að snæða með Tom Cruise og eiginkonu hans Katie Holmes. „Eitt kvöldið fórum við hjónin út með Tom og Katie og allt í einu ákváðu þau að fara í söngleik. Að syngja á almannafæri væri mín versta martröð,“ sagði Beckham og bætir við að hann hafi sem betur fer séð vin sinn innar í saln- um og sent honum skila- boð þar sem hann bað hann um að bjóða honum yfir til sín. „Ég sendi honum skilaboð og sagði: „Gerðu það, bjóddu mér yfir á þitt borð.“ MARTRÖÐ David Beck- ham segir það stundum martröð líkast að snæða úti með Tom Cruise og frú. Martröð Beckhams Heather Graham segist ekki geta beðið eftir að leika í fram- haldsmynd af kvikmyndinni The Hangover. Leikkonan segist eiga eftir að sjá handritið, en hlakkar til að leika óléttan strippara. Í viðtali við vefsíðuna Eonline.com segist leikkonan þegar vera farin að gefa handritshöfundinum Todd Phillips hugmyndir fyrir karakter sinn, Jade. „Ég held að Stu ætti að barna hana og svo ætti hún að dansa óléttu-strippdans,“ segir hún og brosir. „Ég veit að það hljómar illa, en það er samt svo rétt,“ bætir hún við. Þá segist hún gjarnan vilja sjá gæsun í næstu mynd í stað steggjunar. „Ég held að það væri mjög skemmti- legt. Það þarf einhver að skrifa handrit að þeirri mynd,“ segir Graham. Spennt fyrir Hangover 2 HANGOVER 2 Heather Graham segist spennt fyrir framhaldsmynd af The Hangover og er þegar komin með hug- myndir fyrir karakter sinn. ÓSKABÓK SKOTVEIÐIMANNSINS Þúsundir landsmanna stunda skotveiði sér til ánægju og yndisauka. Í þessari bók er komið víða við og stemming skotveiðinnar svífur yfir vötnum. Nokkrir af snjallari skotveiðimönnum landsins segja sögur og rifja upp skemmtileg atvik. Einnig frásagnir, allt aftur til ársins 1912, veiðidagbækur og eldri greinar sem sýna breytta tíma. Bókin er ríkulega myndskreytt. ÁRBÓK VEIÐIMANNSINS komin í verslanir Ómissandi heimilda- og skemmtirit fyrir veiðimanninn. Frábærar sögur frá veiðisumrinu 2009, ýmsar fréttir og fjöldi mynda skreyta bókina. Stórglæs ileg bók um skot veiði í máli og myndum Einn sem hefur verið hvað lengst í skotveiðibransanum er Ásgeir Heiðar. Maður sem f lestir veiðimenn hafa heyrt getið um, veiðimaður af lífi og sál og fyrrverandi atvinnumaður í skotveiði. Hjá honum snýst lífið um veiðiskap og gagnstætt því sem margur heldur, þá stendur skotveiðin honum mun nær heldur en stangaveiðin, hún er í hans huga mun meira krefjandi. „Ég fór aðallega út í stangaveiði vegna þess að ég heyrði á einhverju fólki að það væri hægt að hafa svo góð laun þar og fyrir mér var hún bara easy as pie,“ segir Ásgeir. Ásgeir segir okkur í upphafi viðtalsins, að það séu engin veiðigen í fjölskyldu hans og kveði svo rammt af því að það hafi verið sagt í gríni manna í millum að ef til vill hafi einhverjum starfskrafti á fæðingardeild skjátlast á sínum tíma og sent foreldra hans heim með vitlaust barn. Ásgeir Heiðar eignaðist fyrstu byssuna áður en hann eignaðist bíl. Hann starfaði hjá I. Guðmundsson o/co sem er heildsali á sviði stanga- og skotveiði og einn góðan veðurdag nældi hann í byssuna, Winchester 370 einhleypu. Byssuna á hann ennþá og þegar viðtalið fer fram á heimili hans á Vatnsendablettinum, stendur hann upp úr stofu- sófa og gengur að byssuskáp sem er að sjálfsögðu í stofunni, opnar hann, tekur byssuna út og mundar hana með velþóknunarsvip. „Góð byssa, dugði mér vel“, segir hann. 17 ára gamall var ég byrjaður og fór þá gjarnan þegar rjúpna- veiðitíminn var byrjaður með strætó upp á Lögberg og þræddi mig upp með Heiðmerkurgirðingunni. Byssuna tók ég í sundur, setti hana í poka og geymdi pokann á bak við strætóskýlið þar upp frá. Þarna var mikið af fugli og aldrei í sjálfu sér að ásækja mann að fara inn fyrir Heiðmerkurgirðinguna, því nóg var af fugli þar sem mátti skjóta hann Ég k t í ýði Margar sopnar fjörur Ásgeirs Heiðars 104 Axel Kristjánsson hæstaréttarlögm aður er skotveiði mað- ur af lífi og sál. Rjúp ur, gæsir og síðast e n ekki síst hreindýr eru bráðin hans. Það er hreind ýraskytteríið sem s tendur þar hæst, en hann fór fyrst á slíkar veiðar árið 1963. Þá var öl din önnur, enda lið in um 46 ár síðan. Styttist sem s agt í hálfa öld. Axel er ríflega áttræður s karfur í dag og viti menn, hann er enn að. Fer enn árlega á hreindýr. H ann hefur því lifað tímana tve nna og heldur betur stigið öldurnar á he iðum Aust- fjarðarhálendisins. Við ætlum að hald a okkur við hreind ýraútgerð Axels, ek ki hvað síst vegna þess að ha nn hefur haldið ma gnaðar veiðidagbæk ur allt frá fyrstu ferð. Eru þæ r svo magnaðar og skemmtilegar að þe ir sem þær sjá hljóta að óska þ ess að þeir hefðu s jálfir nennt að stan da í dag- bókarskriftum, því þegar menn líta um öxl, mörgum árum eftir að þeir byrjuðu finna þeir að minnið getu r byrjað að svíkja, á r og túrar renna saman, dýr g leymast og þá vita menn betur en fyr r að það er fátt sem jafnast á vi ð minningarnar. Ætlunin er að birta nokkuð úr dagbók um Axels, rifja upp nokkra veiðitúra. Þeir eru e kki aðeins mergjaða r og skemmtilegar v eiðisögur, heldur nokkurs ko nar aldarspegill í leiðinni. Í dag fer enginn án breytts jeppa, GPS, farsíma og guð má vita hvað ekki. Í þ á daga var ekkert svoleiðis. Þá voru menn á „tút tum“ og helst að m enn hefði sjónauka, auk sko tvopnanna. Viftur eimar slitnuðu, v atn lak af vatnskössum og me nn gistu annað hvo rt í tjöldum eða fen gu að kasta sér í hlöðum bæn da. Í dagbókum A xels er enn fremu r að finna nærgætna en jafnfr amt kímniríka lýsin gu á persónum og l eikendum í kringum veiðiferð irnar og þá er ekki a ðeins átt við veiðifé laga hans, heldur sveitamenn , bæði bændur o g þá hjálparkokka sem að ferðunum komu. Axel segist hafa ve rið heillaður af sko tvopnum frá því á ungl- ingsárum, en á hás kólaárunum hafi vo pnaskakið hafist fy rir alvöru, þó með þeim annm örkum sem Axel lý sir, að „candidatar juris árið 1954 höfðu lítið f é á milli handann a.“ Axel kynntist Vilhjálmi heitnum Lúðvíkssy ni á þessum árum og voru þeir samst iga í byssu- dellunni. „Þessi sk otveiði okkar var m jög losaraleg í fyrs tu, vorum bara með einhverja hólka, en árið 196 0 heilluðumst við a lgerlega af Remington 1100 ha glabyssu sem við sá um í Bandarísku tí mariti. Við vorum nógu vitlau sir til að panta tvö stykki . Þessar by ssur urðu síðan geysivinsælar og byssan mín virk ar enn prýðilega. M eð þessum nýju byssum hófu st nýir tímar hjá okkur og við fóru m í fjölda veiðitúra sem stóðu allt frá dagsparti o g upp í 3–4 daga. V eiðin var ekki til að hrópa hú rra fyrir og ef við n áðum 2–3 fuglum v orum við alsælir. En það brey tti engu, þetta er ba ktería og hún vatt u pp á sig og það hratt. Vilhjálm ur var mikill vinur minn. Ég átti forlát a veiðibíl á þeirra tíma mælik varða, sem var Wi llis Station, en Vil li eignaðist f ljótlega Austin Gi psy. En það leið ek ki á löngu áður en gæsa- og rjúpnatúrar dugðu okkur engan veginn og árið 1962 bauð Þorsteinn S. Thorarensen okk ur með sér á hreind ýr austur á land næ sta ár. Við vorum gríðarlega upp með okkur, Þ orsteinn var í veið igengi, en ákvað að breyta til og fá okkur til liðs við sig. 1963 var fy rsti túrinn og það var eitt að s egja og annað að g era að undirbúa fe rð af þessu tagi, því margt var öðru vísi þá en nú. Fyrstu fjögur árin m á heita að þetta hafi verið býs na frjálslegt, en síð ar fór reglugerðarfa rganið að tröllríða öllu þanni g að á stundum viss i maður varla hvort maður var að koma eða fara. S em dæmi um reglu gerðirnar má nefna , að nú má fara til veiða á bíl, en ekki sexhjóli. Se xhjólið má að vísu hafa með uppi á kerru, en þe gar á hólminn er k omið má ekki taka sexhjólið niður fyrr en veiði e r fengin og þá aðein s aka merktar slóðir . Eiginlega má segja, að sexhjó lið megi vera með í för, en hvorki vera á slóðunum eða utan þeirra! En maður lætur það ek ki spilla ánægjunni . Þorsteinn sagði okkur að það tæki heilt ár að und irbúa hreindýratúr og það var Axel Kristjánsson : Aldarspegill af h reindýraveiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.