Fréttablaðið - 18.12.2009, Side 122

Fréttablaðið - 18.12.2009, Side 122
82 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR HANDBOLTI Væntanlega verða fjór- ir íslenskir landsliðsmenn í þýska stórliðinu Rhein-Neckar Löwen á næstu leiktíð. Fyrir hjá félaginu eru þeir Guðjón Valur Sigurðs- son, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson og nú hefur Róbert Gunnarsson samið við liðið. „Þetta mál kom skjótt upp á og það var gengið frekar hratt frá þessu. Ég hugsaði mig auðvitað aðeins um en þegar eitt af þremur stóru félögunum hefur samband er eiginlega ekki hægt að segja nei. Maður er bara afar stoltur að svona lið vilji fá mann í sínar raðir,“ segir Róbert kátur en hann segir tilboð Löwen hafa komið á frábærum tíma fyrir sig. „Það er talsverð óvissa hjá Gummersbach. Það er mikil pólitík í gangi hjá stjórninni og svo eru einnig fjárhagsvandræði hjá félag- inu. Ég hefði því í raun ekki getað hugsað mér betri tíma til þess að fara héðan,“ segir Róbert en hann er að leika sitt fimmta tímabil með Gummersbach. „Annað sem er mjög ánægjulegt við að komast í þetta lið er að þetta er skandinavískt lið. Mig langaði alltaf að komast aftur í skand- inavískt lið,“ segir Róbert, sem ætlar sér stóra hluti hjá félaginu. „Ég hef metnað til þess að stefna hátt og þarna er mögu- leiki að ná mjög langt og vinna titla. Þetta er stórt félag með frá- bæra umgjörð. Ég mun svo deila stöðunni með öðrum línumanni og það er önnur áskorun fyrir mig. Ég mun þurfa að hafa vel fyrir þessu og það er mjög gott,“ segir Róbert, sem hefur verið einn um línustöðuna hjá Gummersbach og þurft að spila 60 mínútur í hverj- um leik. Hjá Löwen mun hann etja kappi við hinn öfluga Bjarte Myrhol um sæti í byrjunarliðinu. Róbert var í viðræðum við Lemgo þegar áhugi Löwen kom upp á borðið. „Ég bý í Köln og er orðinn vanur stórborgarlífi. Ég var því ekkert sérstaklega spennt- ur fyrir því að flytja til Lemgo, sem er nú ekkert sérstaklega spennandi staður þó svo að liðið sé gott,“ segir Róbert en hann þarf ekki að hafa áhyggjur af ein- hverri sveitastemningu hjá Löwen sem spilar í Mannheim. Þó svo að Róbert hafi verið með samning við Gummersbach var hann með klásúlu sem leyfir honum að komast frítt frá félag- inu. Hann segist þó ekki hækka mikið í launum. „Launahliðin er aðeins betri en það er enginn stjarnfræðileg- ur munur. Ég var ekki að skipta um félag út af peningum. Löwen er bara stærra félag með betri umgjörð og allt annað. Það var ekki hægt að segja nei við félagið,“ segir Róbert. henry@frettabladid.is ÞAÐ ER EIGINLEGA EKKI HÆGT AÐ SEGJA NEI VIÐ RHEIN-NECKAR LÖWEN Landsliðsmaðurinn Róbert Gunnarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen. Fyrir hjá liðinu eru þrír íslenskir landsliðsmenn. Róbert segir tilboðið hafa komið á hárréttum tíma fyrir sig. Hann yfirgefur Gummersbach næsta sumar eftir fimm ár í herbúðum félagsins. VEL GREIDDIR Róbert er hér í harðri baráttu við Christian Zeitz, leikmann Kiel, í leik Kiel og Gummersbach í vetur. NORDIC PHOTOS/BONGARTS GOLF Tiger Woods er sagður algerlega niðurbrotinn og í ein- angrun á einu heimila sinna þar sem hann gerir lítið annað en að borða morgunkorn og horfa á teiknimyndir. Eins og frægt er orðið hélt Tiger framhjá eiginkonu sinni, Elin Nordegren, með fjölda kvenna. Fram kemur í enska götublað- inu The Sun að Woods hafi skipt um farsímanúmer daginn eftir áreksturinn fræga fyrir utan heimili þeirra hjóna í Flórída. Þar með hafa vinir hans ekki náð sambandi við hann. „Vinir hans hafa miklar áhyggjur af því að Tiger sé að takast á við þetta á mjög óheil- brigðan máta,“ segir heimildar- maður blaðsins. „Ég hef verið að reyna að ná í hann og get það ekki. Það er afar pirrandi,“ er haft eftir körfu- boltastjörnunni Charles Barkley, vini Tigers. „Við viljum segja honum að okkur þykir vænt um hann og hann ætti að hringja í okkur.“ - esá Tiger Woods: Situr heima og horfir á teikni- myndir LEIÐINDI Tiger brosir bara að teikni- myndum þessa dagana. NORDIC PHOTOS/GETTY FORSETINN LOKSINS Á F M957 Nýr þáttur fe r í loftið kl. 7 :45 í dag SÆÆÆÆLL! !! Ólafur Ragnar Hannesson mættur á vaktina á FM957. Stútfullur þáttur af sjóðheitu efni. Hellingur af pizzum frá Eldsmiðjunni. Ískalt Coca Cola á kantinum. Og miðar á FM forsýningu á Bjarnfreðarson. Ekki missa af útvarpsþætti ársins kl. 7:45 í dag.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.