Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 104
64 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Hljómsveitin Worm is
Green frá Akranesi hefur
verið tilnefnd til hinna virtu
bandarísku tónlistarverð-
launa Independent Music
Awards fyrir plötu sína
Glow sem nýverið kom út.
„Þetta kom skemmtilega á óvart.
Þetta hjálpar aðeins við að kynna
plötuna,“ segir Bjarni Hannes-
son úr Worm is Green. Platan er
tilnefnd í flokki bestu dans/raf-
hljómplatna og verður tilkynnt um
sigurvegarann í janúar.
Fjórir aðrir flytjendur eru til-
nefndir í flokki Worm is Green,
þar á meðal Alaska in Winter sem
hefur spilað á Airwaves-hátíðinni
og Boys Noize, sem hefur endur-
hljóðblandað lög fyrir Snoop Dogg
og Röyksopp. Á meðal tilnefndra
sveita í öðrum flokkum eru … and
You Will Know Us By The Trail of
Death og Ra Ra Riot.
Bjarni óttast ekkert samkeppn-
ina í sínum flokki. „Við vorum til-
nefndir og eigum því alveg séns.
Maður verður að vera bjartsýnn en
þetta er fyrst og fremst rosalega
mikill heiður að fá tilnefningu.“
Fjölmargir þekktir aðilar úr tón-
listarbransanum eru í dómnefnd á
Independent Music Awards og þar
ber helstan að nefna Tom Waits.
Önnur stór nöfn eru Brian „Head“
Welch úr rokksveitinni Korn, Han-
son-bræður, Suzanne Vega, Markus
Hopus úr Blink 182 og Ken Jordan
úr The Chrystal Method.
Aðdáendur geta einnig haft sín
áhrif því þeir geta gefið hljómsveit-
um einkunn á Netinu. Sú sem fær
hæsta meðaleinkunn fær sérstaka
viðurkenningu. Sigurvegarinn fær
kynningu á sinni tónlist í heilt ár á
vegum IMA sem ætti að hjálpa tón-
listarmönnum að komast að með
efni sitt í sjónvarpi, kvikmyndum
og útvarpi, auk þess sem auðveld-
ara verður að bóka tónleikaferðir.
Íslendingar geta stutt við bakið á
Worm is Green á síðunni Independ-
entmusicawards.com.
Plötuna Glow er hægt að nálg-
ast í stafrænu formi á heimasíð-
unni Wormisgreen.com. Sveitin er
einnig að gefa út röð af stuttskífum
sem innihalda endurhljóðblandan-
ir af öllum lögum plötunnar ásamt
b-hliðar-lögum. Stuttskífurnar
verða níu talsins, ein fyrir hvert
lag, og kemur ein út í hverjum
mánuði. Stuttskífan The Politician
EP er þegar komin út og sú næsta,
Hopeful EP, er væntanleg á næstu
dögum. freyr@frettabladid.is
Worm is Green tilnefnd
til bandarískra verðlauna
„Markmiðið er að þarna fái ungt
fólk að selja sitt eigið handverk
og hönnun,“ segir Berglind Sunna
Stefánsdóttir hjá upplýsingamið-
stöð Hins hússins, miðstöð ungs
fólks. Þar fer fram jólamarkaður
á morgun milli klukkan 14 og 18, í
Pósthússtræti 3-5.
„Á markaðnum viljum við að
ungt fólk komi á framfæri því
sem það er gera því að kostnað-
arlausu og ekki er verra ef hægt
er að græða smá á því sem það er
að búa til. Þarna verður fólk að
selja eigin tónlist og fatahönnun,
svo sem kraga og boli, jólakort og
málverk svo eitthvað sé nefnt. Við
setjum ekkert fyrir okkur hvað
þau koma með, þau ráða því sjálf
og verðleggja eigin vöru,“ segir
hún og býst við góðri mætingu á
markaðinn. „Við vorum með sams
konar markað í fyrra. Við vissum
ekki alveg við hverju var að búast
en það var rosalega góð mæting og
gekk vonum framar. Markaðurinn
í ár er jafnvel nær jólum en síðast
svo það verður eflaust fleira fólk
í miðbænum og margir sem eiga
eftir að detta inn,“ segir Berg-
lind. „Þetta er kjörið tækifæri til
að kaupa litla og persónulega hluti
til að gefa í jólagjafir. Fólk getur
komið inn og hlýjað sér og við
ætlum að bjóða heitt súkkulaði og
piparkökur,“ bætir hún við. - ag
Jólamarkaður í Hinu húsinu
HANDVERK OG HÖNNUN Berglind
Sunna segir um tíu ungmenni ætla að
selja handverk sitt og hönnun í Hinu
húsinu á morgun milli klukkan 14 og 18.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í Háteigskirkju í kvöld ætla
ungir og framsæknir listamenn
að koma saman og flytja frum-
samið efni. Þetta eru hljómsveit-
irnar Útidúr og Stórsveit Mukka-
ló, söngvaskáldið Júníus Meyvant
og ljóðskáldið Ingunn Huld.
Útidúr hefur verið að hrista
upp í reykvísku grasrótarsenunni
undanfarið með illskilgreinan-
legri gleðitónlist og líflegri svið-
framkomu. Í tónlist sveitarinnar
mætast bossanova, sígaunabrag-
ur, jaðarrokk og diskó eins og
ekkert sé sjálfsagðara.
Bandið skipa venjulega tólf
manns en í kvöld munu þau bæta
við sig ýmsum hljóðfæraleikur-
um sem munu vafalaust magna
hinn sérstaka seið sveitarinnar
til muna.
Stórsveit Mukkaló er ný sjö
manna sveit úr Reykjavík sem
spilar lágstemmt þjóðlagaskotið
jaðarpopp í anda tónlistarmanna
á borð við Bright Eyes, Noah and
the Whale og Sufjan Stevens.
Mukkaló málar sína björtu hljóð-
mynd með kassagíturum, tromm-
um, fiðlum, harmonikku og síló-
fón. Textarnir eru ýmist á ensku
eða íslensku, en eiga það sameig-
inlegt að fjalla á einlægan hátt um
ástina, lífið og æðri máttarvöld.
Júníus Meyvant er ungt söngva-
skáld úr Vestmanneyjum. Hann
hefur áður spilað með rokksveit-
inni Jack London, sem hefur ferð-
ast víða um veröldina. Í kvöld
verður Júníus hins vegar á rólegri
nótum en áður, með kassagítarinn
að vopni. Tónlistina mætti kalla
blúsað kassagítarpopp, en með
ýmsum bragðbætiefnum þó.
Háteigskirkja opnar fyrir
gesti klukkan 19.30, en tónleik-
arnir hefjast stundvíslega hálf-
tíma síðar og standa í tvo tíma.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur og
allir aldurshópar eru velkomnir.
Indí í Háteigskirkju
TÓLFMANNA ÚTIDÚR Illskilgreinanleg gleðitónlist.
WORM IS GREEN Hljómsveitin Worm is
Green hefur verið tilnefnd til Independent
Music Awards fyrir plötuna Glow.
Norðrið nefnist tónleikaröð sem Útflutningsskrifstofa
íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) og Iceland Express standa saman
að. Nú er auglýst eftir upphitunaratriði fyrir fjórðu tónleika-
ferðina, sem leidd verður af hljómsveitinni Seabear. Markmið-
ið er að styðja við bakið á íslenskum tón-
listarmönnum og hljómsveitum sem
eru að hasla sér völl í Þýskalandi.
GusGus, Helgi Hrafn og Kira
Kira eru meðal þeirra sem nú
þegar hafa þrætt tónleikastaði á
vegum Norðursins. Spilað verð-
ur á átta stöðum í ferð Sea-
bear. Ferðin verður farin um
mánaðamótin febrúar/mars.
Áhugasamir ættu að skrifa til
nordrid@icelandmusic.is.
Það er annars helst af Seabear
að frétta að nýja platan We Built
a Fire er tilbúin og kemur út í
mars. Nú leggja allir sjö meðlim-
irnir í lagapúkkið, en ekki bara
forsprakkinn Sindri Már Sigfús-
son, eins og til þessa. Seabear
hitar upp fyrir múm á heim-
komutónleikum þeirra í
Iðnó í kvöld. Seabear
hefur verið að hita upp
fyrir múm úti í heimi
að undanförnu og
hafði meðal annars það
upp úr krafsinu að David
Fricke, blaðamaður Rolling
Stone, kallaði Sindra Má
„hinn íslenska Beck“.
Seabear lýsir
eftir upphitun
Tinni
690 kr.
Smáratorgi + Kópavogi
Sími 580 0000 + www.a4.is
Ótrúleg
t verð!
Bækur
frá Fjöl
va
frá 290
kr.
til 690 k
r.
Ungbarnaleðurskórnir
komnir aftur
Sokkabúðin Kringlunni
Sími 553 7014