Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 116
76 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Um mitt síðasta sumar
samdi hinn átján ára HK-ingur
Hólmar Örn Eyjólfsson við enska
úrvalsdeildarfélagið til þriggja
ára með möguleika á tveggja ára
framlengingu. Eins og flestum
ætti að vera kunnugt um hefur
margt breyst síðan en félagið var
þá í eigu Björgólfs Guðmunds-
sonar. Staða Hólmars hefur þó
ekkert breyst og segist hann lítið
verða var við hvað eigi sér stað
hjá yfirstjórn West Ham.
„Þetta hefur gengið mjög vel
hjá mér í vetur,“ sagði Hólmar
Örn við Fréttablaðið í gær. „Ég
er bara sáttur og er jákvæður á
framhaldið hjá West Ham. Ég bíð
bara spenntur eftir framtíðinni.“
Enskir fjölmiðlar fjalla um
erfiða stöðu West Ham og mögu-
lega sölu félagsins upp á nánast
hvern dag en Hólmar segir að
það hafi engin áhrif á leikmenn
félagsins.
„Nei, það er alltaf jafn mikið
fjör á æfingum og góður andi í
liðinu. Þessi stjórn er svo fjar-
læg leikmönnum og maður þekk-
ir ekkert til þess hvað gerist hjá
henni. Ég mæti bara í mína vinnu
og sé um að sinna mínu,“ segir
Hólmar, sem segist ekki líða
fyrir það að vera Íslendingur hjá
liðsfélögunum sínum.
„Nei, alls ekki,“ segir hann og
hlær. „Það eru einhverjir sem
virðast halda að Íslendingar búi í
snjóhúsum en þeir eru lítið að spá
í fjármálin.“
Þjálfararnir ánægðir með mig
Hann segist hafa fengið jákvæð
viðbrögð frá þjálfurum liðsins,
sérstaklega eftir að hann sneri
aftur til félagsins eftir að hafa
verið einn mánuð í láni hjá enska
D-deildarliðinu Cheltenham. Þar
spilaði hann í fjórum leikjum.
„Þjálfararnir hafa sagt mér að
þeir séu ánægðir með mig, sér-
staklega eftir að ég kom til baka
eftir lánið. Það er svo undir mér
komið að fylgja því eftir,“ segir
hann.
„En það þarf margt að ganga
upp og smá heppni líka, sérstak-
lega þar sem ég er varnarmað-
ur. Þeir færu varla að setja menn
eins og Matthew Upson, byrjunar-
liðsmann hjá enska landsliðinu, út
úr liðinu hjá West Ham bara til að
prófa eitthvað nýtt.“
Sem fyrr segir á Hólmar að
minnsta kosti eitt og hálft ár eftir
af sínum samningi við West Ham
og honum litist vel á að halda
áfram hjá félaginu.
„En svo er auðvitað aldrei að
vita. Það getur margt breyst á
einum degi. En ég væri vissulega
spenntur fyrir því að fá að spila
í ensku úrvalsdeildinni,“ segir
Hólmar.
„Pabbastrákurinn“ í landsliðinu
Hann hefur einnig verið fastamað-
ur í yngri landsliðum Íslands og á
þegar tólf leiki að baki með U-21
landsliðinu. Alls hefur hann spil-
að 32 leiki með yngri landsliðum
Íslands.
Hólmar er þó í nokkuð sérstakri
stöðu þar sem faðir hans, Eyjólf-
ur Sverrisson, er þjálfari U-21
liðsins.
„Ég er verulega ánægður með
gengi U-21 liðsins og það væri
auðvitað algjör draumur að
komast í sjálfa úrslitakeppnina,“
segir Hólmar en Ísland er sem
stendur í öðru sæti síns riðils í
undankeppni EM 2011.
„Þetta er auðvitað svolítið sér-
stök staða fyrir mig og maður fær
stundum að heyra það frá strák-
unum í liðinu. Þeim finnst það til
að mynda mjög „óvænt“ þegar ég
er í byrjunarliðinu,“ segir hann
og hlær.
Og hann reynir því að sleppa
því að kalla þjálfarann pabba á
æfingum. „Nei, ég forðast það
eins og ég get að kalla yfirleitt á
hann á æfingum,“ segir hann og
skellir upp úr. eirikur@frettabladid.is
Jákvæður á framhaldið hjá West Ham
Hólmar Örn Eyjólfsson er á mála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham. Hann hefur verið fyrirliði
varaliðs félagsins og líst vel á framtíð sína í Lundúnum. „Getur þó verið fljótt að breytast,“ segir hann.
FYRSTA LANDSLIÐSMARKIÐ Hólmar Örn Eyjólfsson á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands en skoraði sitt fyrsta
landsliðsmark í 8-0 sigri U-21 liðsins á San Marínó á Laugardalsvelli í október síðastliðnum. Hér fagnar hann markinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari þýska liðsins Kassel sem fór í
greiðslustöðvun á dögunum, skoðar framtíðarmöguleika sína
þessa dagana. Honum stendur til boða að vera áfram með
Kassel en hann er þrátt fyrir það að skoða aðra möguleika.
„Ég hef verið í viðræðum við tvö félög í 2. deildinni og það
ætti að koma í ljós fljótlega hvort eitthvað verður úr því.
Ef það gengur ekki geri ég ráð fyrir að vera áfram hjá
Kassel. Hér get ég verið áfram á aðeins lægri launum
en öðrum forsendum enda litlir peningar til og margir
leikmenn farnir,“ sagði Aðalsteinn en hann hefur
misst sex leikmenn úr byrjunarliðinu síðan félagið
fór á hausinn.
„Það er reyndar alveg magnað að við höfum
ekki tapað leik síðan við fórum á hausinn. Það voru
náttúrlega miklar væntingar fyrir tímabilið og það
er eins og þungu fargi hafi verið létt af mönnum.
Nú spila þeir pressulaust og njóta þess að spila. Eða
kannski var ég bara að velja vitlaust byrjunarlið,“ sagði
Aðalsteinn léttur.
Þegar Aðalsteinn kom til félagsins hafði félagið gríðarlega
sterkan bakhjarl í stóru tryggingafyrirtæki. Eigandi þess mokaði
peningum í Kassel-liðið og ætlaði sér að koma því upp í efstu
deild á mettíma.
Sá náungi fór lóðrétt á hausinn með fyrirtæki sínu en hann
var mikill glamúrgosi þegar hann átti peninga og ferðaðist
meðal annars í sérmerktri þyrlu á milli staða.
„Hann er flúinn til Tyrklands. Það er ekki búið að
kæra hann en samt búið að tæma húsið hans og
einhver málaferli í gangi. Hann hefur greinilega
búist við því versta og flúið til Tyrklands en það
er ekki hægt að framselja menn frá Tyrklandi
til Þýskalands,“ sagði Aðalsteinn en þessi þýski
útrásarvíkingur lofaði Aðalsteini því á sínum
tíma að hann myndi fá Porsche-glæsibifreið ef
hann kæmi liðinu upp um deild.
„Hann sagði að daginn eftir myndi ég vakna og í
hlaðinu yrði nýr Porsche. Það var notaleg tilhugsun en
ég tel engar líkur vera á því að ég fái Porsche úr þessu.“
HANDBOLTAÞJÁLFARINN AÐALSTEINN EYJÓLFSSON: HUGSANLEGA AÐ HÆKKA SIG UPP UM EINA DEILD
Það eru engar líkur á að ég fái Porsche úr þessu
HANDBOLTI Framarinn fyrrverandi
Jóhann Gunnar Einarsson er milli
steins og sleggju þessa dagana.
Honum stendur til boða að vera
áfram hjá hinu gjaldþrota Kass-
el-liði sem hann er ekki spenntur
fyrir. Svo hafa íslensk og skand-
inavísk lið falast eftir kröftum
hans.
Ekki er heldur loku fyrir það
skotið að hann komist að hjá liði
Björgvins Páls Gústavssonar, Kad-
etten Schaffhausen, en hann var til
reynslu hjá liðinu í síðustu viku.
„Ég fór og æfði með bæði Kad-
etten sem og Amicitia Zürich sem
Kári Kristjánsson spilar með. Ég
fór reyndar ekki á góðum tíma þar
sem bæði lið voru með leiki hand-
an við hornið og því ekki góðar
æfingar til þess að sanna sig. Ég
var nú ekki sérstaklega spenntur
fyrir Zürich sem Kári er sjálfur
ekki ánægður með. Þar eru líka
peningavandræði og ég nenni ekki
í annað svoleiðis dæmi. Kadetten
vill aftur á móti skoða mig betur
og hefur boðið mér að koma aftur
út í janúar,“ segir Jóhann Gunnar
en danska liðið Viborg og sænska
liðið Skövde eru á meðal þeirra
liða í Skandinavíu sem hafa sýnt
honum áhuga.
„Svo hringdi Ólafur Gíslason í
mig fyrir Haugaland en hann var
að athuga stöðuna á mér. Svo hafa
lið á Íslandi verið að hringja í mig
líka. Það er frekar mikið í gangi
og ég er alltaf í símanum,“ segir
Jóhann Gunnar, sem kann ekki vel
við að lifa í óvissunni.
„Þetta er frekar pirrandi staða
en samt þægileg. Það er nefnilega
betra að hafa einhverja mögu-
leika en enga. Ég get líka verið
hér áfram hjá Kassel en er nú ekk-
ert rosalega spenntur fyrir því.
Það verður bara fínt að komast
heim um jólin, slappa aðeins af og
fara svo að skoða málin af fullum
krafti aftur,“ segir Jóhann Gunnar
Einarsson. - hbg
Örvhenta skyttan Jóhann Gunnar Einarsson í mikilli óvissu með framtíð sína í handboltanum:
Þægilegra að eiga nokkra möguleika en enga
HARÐAR MÓTTÖKUR Jóhann Gunnar fær hér hraustlegar móttökur í leik gegn Hauk-
um sem eru taldir hafa áhuga á Jóhanni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Þó svo að Reading hafi í
fyrradag rekið Brendan Rogers
úr starfi knattspyrnustjóra hefur
það engin áhrif á stöðu Gunnars
Heiðars Þorvaldssonar hjá
félaginu.
Þetta segir Ólafur Garðarsson,
umboðsmaður Gunnars Heiðars,
við Fréttablaðið. Danska úrvals-
deildarfélagið Esbjerg hefur sam-
þykkt að lána Gunnar Heiðar til
Reading til loka leiktíðarinnar en
málið hefur tafist aðeins vegna
brottvikningar Rogers.
„Við höfum þó fengið símtal
og verið fullvissaðir um að þetta
breyti engu,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði enn fremur að þar
sem yfirnjósnari félagsins, Brian
McDermott, myndi stýra liðinu
þar til nýr stjóri yrði ráðinn hefði
hann litlar áhyggjur. „Hann er sá
sem þekkir langbest til Gunnars
hjá félaginu,“ sagði Ólafur. - esá
Enn um Gunnar Heiðar:
Stjóraskipti
hafa ekki áhrif
GUNNAR HEIÐAR Hér í leik með íslenska
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Enska götublaðið The
Sun fullyrti í gær að Eiður Smári
Guðjohnsen vildi aftur komast í
ensku úrvalsdeildina.
Enn fremur heldur blaðið því
fram að Eiði hafi sinnast við Guy
Lacombe, stjóra Monaco. Fullyrt
er að samskipti þeirra tveggja
séu við frostmark.
Eiður gekk í raðir Monaco í
haust en hefur ekki náð sér á
strik. Hann var ekki valinn í leik-
mannahóp liðsins fyrir leik þess
gegn Stade Rennais í frönsku
úrvalsdeildinni í fyrradag.
Hann er sagður vilja komast
sem allra fyrst aftur til Englands
þar sem hann lék með Chelsea
og Bolton á sínum tíma. Félaga-
skiptaglugginn verður opnaður
um næstu áramót. - esá
Enska pressan um Eið Smára:
Vill aftur
til Englands
EIÐUR SMÁRI Kampakátur á æfingu
íslenska landsliðsins fyrr á árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Deildarbikarinn í Strandgötu
Ákveðið hefur verið að deildarbikarkeppnin í ár fari
fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Leikirnir fara fram dagana 27. og 28. desember
næstkomandi. Fyrri daginn eru undanúrslit-
in bæði hjá körlunum og konunum. Fyrsti
leikurinn er klukkan tólf á hádegi en sá
síðasti klukkan 18 um kvöldið. Úrslita-
leikirnir fara svo fram á mánu-
dagskvöldinu, klukkan 18 og 20.
Fram kom í tilkynningu frá HSÍ í
gær að keppnin myndi í ár bera
nafn Flugfélags Íslands.