Vikan


Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 8

Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 8
1 futlri atvöru; Þegar sumarleyfið verður ofraun Það er ekki ýkjalangt síðan a8 sumarleyfi voru okkur me-8 öllu ó- þekkt friðindi; menn þurfa ekki að vera gamlir í starfi til þess að muna sitt fyrsta, fastákveðna sumarleyfi. Og enn eldra fóik man ekki annað en linnulaust puð og strit myrkranna á milli, dag eftir dag aílan ársins hring, þegar fólk þakkaði bæði guði sínum og húsbændlum fyrir að fá að þræla — og aliir urðu að þræla frá vöggu til grafar, nema æðstu höfðingjar og landshornaflakkarar. Það var einmitt i þann tíð, að prestarnir tóku iðjuleysi a'mennings til l>æna í annari hvorri stól- ræðu, og kváðu letina eittlivert liið skaðlegasta arfafræ djöfulsins, og aideilis furðulegt hvað það skyti allstaðar rótum. Sem betur fer er sá glórulausi þrældónmr úr sögunni, og mun enginn óska hans yfir sig aftur. Jafnvel þeir bændur, sem liarðast verðia úti fyrir þróunina — eða öfugþróunina — í atvinnulifi okkar og atvinnu- háttum síðasta áratuginn, veita sér þó tóm ti! að líta upp frá starfinu endrum og eins, þótt ekki þekki ])eir sumarlcyfi eða annað reglubmndið leyfi frástörfum, ncma af afspurn. SenniV'ga eru ])að húsmæðurnar sumar hverjar, sem minnstan tíma hafa li! að Iíta upp úr hversdags- stritinu, og sizt geta vænt sér sumarleyfis, og veitti þeim þó sannar- lega ekki af, því að vart getur einhæfara og síendurleknara starf, en einmitt þeirra. Og þannig er það með mörg slik friðindi — þeir njóta þeirra sízt, sem mesta þörfina hafa fyrir þau. En þetta er ekki nema einn þátt.ur málsins. Og annar er sá; hvað þeim verður úr sumarleyfi sinu, sem mega njóta þess, reglubundið og áhyggjulaust. Að sjálfsögðu hefur ákvæðunum um regluhundið sumarleyfi verið komið á í því skyni, að bæta úr þörf mannsins fyr'r hvíld og uppiyft- ingu frá hversdagslegu og einhæfu eða erfiðu starfi — og þá um leið til þess ætlast að hann komi endurnærður, hress og kátur til starfsins aftur að sumarieyfinu loknu. En einmitt hvað þetta snertir, vill verða nokkur misbrestur á. Það eru nefnilega fæstir, sem enn kunna að njóta sumarleyfis; kunna að notfæra sér þessi sjálfsögðu og þörfu fríðindi þannig, að þau verS’i þeim að gagni og veiti þeim varanlega ánægju — og þá hvild fyrst og fremst. Og þeir eru því miður margir, sem misnota þau herfilega, svo þeim væri jafnvel betra að eiga þeirra ekki völ. Auðvitað er ekkert við þvf að segja, þótt fólk noti sumarleyfi sitt til ferðalaga. Ekkert er eðlilegra; ekkert betri hvild og upplyfting frá frábreytileik og einhæfni hversdagsanna en ioma í nýtt umhverfi, vera í hópi með nýju fólki, njóta frjálsræðisins og áhyggjuleysisins i scm ríkustum mæli. En að ferðast og ferðast er sitt hvað. Og menn eru misjafnlega undir vissa ferðaháttu húnir, hæði likamlegu og ekki hváð sízt efnahagslega. Þarna er einmitt sú flis. sem við rís; menn verða að kunna að haga sumarleyfisferðalögum sínum í samræmi við aldur sinn, heilsufar — og pyngju sína. Þótt það kunni að virðast einkennilegt í fljótu bragði, er ungu fólki ekki eins hætt við að misnota sumarleyfi sitt sér til skaðræðis og miðV- aldra fólki. Þetta kemur þó ekki af þvi, að það kunni þeim eldri betuf með sumarleyfi að fara, svona yfirleitt; orsökin cr sú, að það er hraustara og fljótafa að jafna síg, og þarf að íiafa eins þilngar áhyggjur af því eftir á, þótt þyngjan hafi tæmst, En þegar miðaldra menn og koniír telja sér trú um, að þau standi þar ungu kynslóðinni jafnt að vígi, er alltaf hætt við að sumarleyfið verði þeim hermdargjöf. Þegar miðaldra skrifstofumaður eða afgreiðslu- kona, sem lítið eða ekkert hafa líkamlega á sig reynt í hartnær ár, takast á hendur erfið sumarleyfisferðalög upp um fjöll og firnindi — í hópi með ungii og hraustu fólki — og leggja þar við metnað sinn, að dragast hvergi aftur úr þeim yngri, er ákaflega líklegt, að þau komi þreyttari heim úr sumarleyfi sinu en þaU fóru, og það taki þau langan tíma að „hvíla sig eftir hvíldina.“ Þess eru jafnvel dæmi, að slikt fólk hefur hlotið varanlegt niein af þessum „hvíldarþrekraunum." Og sízt er það betra, þegar fólk á þessum aldri lætur freistast af auglýsingunum frá ferðaskrifstofunum, og tekur sér á hendur lang- ferðir út í lönd, sem það í rauninni hefur ails ekki efni á og biður seint bælur efnahagslega. Lakast er þó, að þessi freisting er að sömu leyti ekki ósvipuð áfengisnautninni — þegar fólk hefur einu sinni fallið fyrir henni, hefur það ekki fyrr sigrast nokkurnveginn á afleiðingun- um, en það fellur fyrir henni aftur, jafnvel ])óti ])ví sé það þvert um geð og viti sig alls ekki fært um að taka afleiðingunum einu sinni enn. En sem sagt — þetta stendur til bóta. Smám saman lærum við að hagnýta okkurþarfar liagsbætur og nauðsynleg fríðindi okkur til gagns, líka sumarleyfin, svo þau komi okkur að tilætluðum notum. Drómundur. B VIKAN Sr. Jón AuSuns: Ég lít svo á, aö sjálf- sagt sé aö rísa úr sæt- um, þar sem forsetinn kemur — sem forseti ís- lands. Á því veröur vit- anlega aö gera greinar- mun, hvort hann kemur fram sem „prívatmaÖur“ eöa forseti landsins. Hon- um er aö sjálfsögöu ekki persónulega sýnd nein viröing meö því aö rísa úr sætum, heldur þjóö- inni, sem hann er fulltrúi fyrir. Þetta er frá mér aö sjá mjög skylt því, aö sjálfsagt er aö sýna virö- ing fána landsins og þjóösöng ihans. Sólveig Eggerz Pétursdóttir: Þessari spurningu, — hvort fölk eigi aö standa á fætur, þegar forsetinn gengur inn, — svara ég eindregiö játandi, vegna þess aö l fyrsta lagi er þaö almenn kurteisi, og álmenn kurteisi skaö- ar engan, heldur upp- hefur mann, — og í ööru lagi á aö bera viröingu fyrir em- bættinu í sjálfu sér, þar sem viö erum aö ímynda okkur, aö viö getum veriö sjálfstæö þjóö meö okkar lýörœði, er viö höfum kosið, — ja, kannski ekki ég eöa þú, en þjóöin l heild. Sem sagt, úrskuröurinn var sá, aö þeirri persónu, sem kosin er forseti Islands, beri okkur um leiö að sýna viröingu sem tákni þess embættis, er hann gegnir, — og um leiö viröingu lýöveldi okkar og sjálfstæöi. Og ég fyrir mitt leyti tel hörmulegt, aö nolckrir menn skyldu vera svo skammsýnir aö œtla aö koma persónulegum skoöunum sínum á framfæri meö því aö sýna forseta Islands eöa öörum óviröingu og aö standa ekki á fætur, því aö þaö er æskunni ekki gott fordœmi. Ég á fjögur börn, se még vil reyna aö ála vel upp. Og viö erum öll í heild skyldug aö gefa börnum okkar, börnum vina okkar og kunningja og börnum þeirra, sem viö þekkjúm ekki, eins gott fordœmi og okkur er unnt, — einkum og sér í lagi því fólki, sem telur sig vera kristiö og hefur látiö ferma sig. Á þeim grundvelli tökum viö aö okkur skyldu aö reyna aö koma þannig fram, aö þaö sé okkur og öörum til sóma. \ Jónas Kristjánsson: Ég er mótfállinn þessum siö, tel hann ekki vera í samrœmi viö jafnréttishugsjón og stórlyndi okkar Islendinga. Ég tel vel fara á því, aö staöiö sé upp fyrir erlendum konungum, þegar þeir birtast í sam- komusal, sökum þess aö viö embœtti þeirra eru tengdir fjölmargir fornir hirösiöir og lcurteisisvenjur. En embætti forseta Islands er ungt og á aö vera alþýölegt eins og önnur œöstu embœtti islenzku þjóö- arinnar, t. a. m. embætti forsætisráöherra og biskups. Því vil ég, aö þessi siöur sé látinn niöur falla. En ég vil ekki sýna forseta Islands óviröingu, og því mun ég jafnan standa upp fyrir honum, ef um al- menna þátttöku er aö ræöa. h

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.