Vikan


Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 22

Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 22
Klukkan var hálftólf og fólkið byrjaði að tínast inn, mest allt hljóð- færaleikarar, söngvarar, og aðrir á- hugamenn um hljómlist. Það hafði frétzt að nokkrir ágætir menn ætl- uðu að spila niðri í Storkklúbbi, og það eintóman jazz. Og fregnin barst, eins og eldur í sinu, hljómlistarunn- endur ætluðu nú ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér ganga, og hlusta nú á almennilega hljómlist, en flestir hljóðfæraleikarar hafa megna fyrirlitningu á rokki eða öðru þess háttar, sem þeir berja inn í áheyrend- ur á kvöldi hverju. Einhver heyrðist segja, að þetta væri fyrsti vísirinn að næturklúbb hér á landi. Og vist var um það, að fólkið skemmti sér. Karl- menn voru í yfirgnæfandi meiri hluta, þó kvenmaður sæist á stöku stað, og jazzinn flóði í kapp við góðar veigar. Auðséð var að áheyrendur höfðu flestir mikið vit á því, sem fór fram, en eins og allir vita, hlusta jazzunn- endur, ekki aðeins með eyrunum, heldur öllum líkamanum, augnaráðið verður annarlegt, og þeir eru allir á valdi taktsins. Jazzinn er þeim nokk- urs konar nautnalyf, sem blandast blóði þeirra. Eftir tilþrifamikil sóló, eða sérstaklega skemmtilegar improvi sjónir, klappa þeir af mikilli hrifn- ingu, og þeir klappa ósjálfrátt, ekki af því að nú sé lagið búið og nú eigi að klappa, heldur af því þá langar til þess. Þetta er því nokkuð ólíkt venjuleg- um hljómleikum, eða dansleikjum, allt er mikið frjálslegra, áheyrendur og hljóðfæraleikarar eru í nánu sam- bandi við hverja aðra, og það er eigin- lega ekki nóg að segja að mennirnir spili, heldur leika þeir sér að tónun- um, af mikilli snilld. líkt og þeir ætli að missa Þá öðru hverju, en grípa þá alltaf aftur af mikilli leikni og mýkt. En nóg um það, djammið stóð til fimm, því marga fýsti að spila og æ fleiri góðir menn úr salnum tindust upp á sviðið og spiluðu öllum til mik- illar hrifningar. Við höfum uppi á einum af for- stöðumönnum klúbbsins, Tómasi A. Tómassyni, og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar. — Hvað er langt síðan þessi klúbb- ur var stofnaður, Tómas? —- Ja, hann var fyrst stofnaður ár- ið 1949 eða 50, og ég Þori ekki alveg að fara með það, og Það var Svavar Gests, sem stóð fyrir því. Hann sá einnig lengi vel um útgáfu Jazzblaðs- ins. — Og hefur klúbburinn starfað af fullum krafti síðan? — Nei, svo dó hann í millitíðinni, en var endurreistur árið 1958, og hefur verið við lífi síðan. — Hverjir voru þá aðalforystumenn hans? — Það voru hinir og þessir, eins og Kristinn Vilhelmsson, Jón Páll Bjarnason og fleiri góðir menn. Bn Tveir forkólfar í hljómlistarlífi bæjarins I klúbb svona þremur mánuðum eftir þessa endurreisn var haldin formlegur aðalfundur og var ég þá kosinn formaður. — En hefur ekki farið heldur lítið fyrir starfseminni í vetur? .—, Jú, veturna 58, 59 og 60 störfuðum við reglulega,' en í vetur hefur nokkur deyfð verið yfir þessu. Við erum orðnir gamlir og líka orðnir þreyttir á þessu. Það vantar nýja menn, unga og áhugasama, því grundvöllurinn fyrir jazzklúbb hér er góður, það vantar aðeins mikið framtak. —- Þið voruð með þetta á eftirmiðdögunum í fyrravetur, var ekki svo? —• Jú, en það hefur gefizt heldur illa. Stemmingin verður aldrei eins góð, og svo reynist einnig erfitt að ná saman hljóðfæraleikurum á þessum tíma dags, sem annars er nú auðveldasta hlið málsins. Á kvöldin er alltaf hægt að fá fullt af mönnum til að spila, en þeir eru ekki beinlínis upplagðir um miðjan daginn, kannski nývaknaðir. — Hvað selduð þið inn þá? Ársgjaldið var 120 kr. En þar að auki borguðu menn 5 kr. fyrir gesti. —■ Þetta hefur að minnsta kosti ekki verið dýrt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.