Vikan


Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 33

Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 33
síðar myrða okkur bæði í heíndar- skyni. Og ef þú myrtir hann, •— þá væri öll okkar fórn til einskis færð, og við fengjum ekki grænan eyri fyrir allt það sálarstrið og niðurlægingu, sem ég hef orðið að þola. Það hefði verið sök sér, ef þú hefðir myrt hann strax.“ Hún dró ábreiðuna yfir höf- uð sér. „Og nú fer ég að sofa,“ tuldr- aði hún. Þannig leið hver vikan af ann- arri. Uppreisnarmenn leituðu Gomez- ar i næstu húsum, en kom ekki til hugar að leita í húsi Delgados. Á kvöldin sátu þau hjónin og horfðu á sjónvarpið, þangað til tími var til þess kominn, að hann — eða hann og hún — héldu niður í kjallarann. Þetta var eiginlega allt komið i fastar skorður, en vitanlega vofði sú hætta altlaf yfir, að einhver af þjónustu- fólkinu yrði ferða þeirra var eða tæki að gruna eitthvað, og Delgado var því stöðugt á verði. „Ertu viss um, að enginn af þjón- ustufólkinu hafi farið niður í vín- kjallarann i dag?“ spurði hann konu sína eitt kvöldið, þegar hann hafði verið þar á eftirlitsferð. Hún virti hann fyrir sér andartak, áður en hún svaraði. „Já, það er ég viss um. Ég hef stöðugt vakandi auga á því. En hvers vegna spyrðu?“ „Hlustaðu nú á mig,“ sagði Delgado, „því að þetta er ákaflega mikilvægt. Ein vínflaskan hefur verið hreyfð til ...“ Caróla hló dátt. „Ein vinflaska af mörg hundruð, — nei, nú er ég hrædd um, að taugar þínar séu farnar að bila! Hvernig í ósköpunum heldurðu, að þú getir séð það?“ „Þetta er siður en svo hlægilegt," mælti Delgado. „Það er rétt að vísu, að þarna var um að ræða aðeins eina vínflösku af mörg hundruð, — en það hittist svo á, að sú flaska stendur einmitt þar á steinhillunni, sem hægri hendinni er stutt, þegar leynidyrnar eru opnaðar. Það er ég, sem hef sett hana þar — til marks. Og nú hefur hún verið færð um nokkra þuml- unga." „Imyndun," svaraði Carola. „Hver ætti svo sem að hafa gert Þaö? Þú veizt, að ég geymi sjálf lyklana að vínkjallaranum, þá, sem þú gengur ekki með á þér, og ekki hef ég látið þá af hendi við neinn ...“ „Furðulegt," varð Delgado að orði. „Alls ekki, vinur minn. Það er ekki nema eðlilegt, að þetta ástand sé farið að taka á taugar okkar beggja. En eins og þú hefur knnski veitt athygli, þá hefur ekki verið minnzt einu orði á Gomez eða flótta hans i sjónvarpinu i meir en viku. Það þýðir, að þeir eru farnir að slaka á. Fyrr en varir, verður hann allur á bak og burt og martröð okkar lokið. Og þá verður þú milljónari, vinur minn ...“ lANN starði á hana. „Getur þú •J-i sætt þig við þá tilhugsun?“ * spurði hann. „Hún er mér að minnsta kosti ekki ógeðfelld." „Það er meira en ég get sagt. Ég þigg aldrei svo mikið sem grænan eyri úr hendi þessa erkibófa. Þegar við loksins losnum við hann, skulum við gera allt, sem okkur er unnt, til að gleyma því, að hann hafi nokkru sinni hér verið, og aldrei nefna hann á nafn ...“ „Vertu nú skynsamur, vinur minn. Milljón dala er drjúgur skildingur, og þótt þér finnist kannski, að mér beri að þola allt það, sem ég hef orð- ið að þola, án þess að nokkrar bætur komi fyrir, er ekki alveg víst, að ég sé sömu skoðunar." — Henni varð litið á frönsku klukkuna á arinhill- unni. — „Það er víst kominn tími til, að ég búi mig undir að fara nið- ur,“ varð Carólu að orði, um leið og hún reis á fætur og smeygði sér fram hjá eiginmanni sínum inn í bað- herbergið. „Fáðu þér konjaksstaup, vinur minn. Þér veitlr ekki af að styrkja taugarnar." Þegar Delgado hafði sótt konu sina 'V* * •• 'K'- : t* f'- . ' t. ■ . ■ % ’y ; _ ’ * .***. ’■% • • * *. ' •'•’ •> ' '* ? ’ •V/ •'; ."..'i•••',;■_ t,-\ 'ý’.: •• ;• ‘v. Serial »<>★.31«. . SaiTlMH GOOD H® EREEFWS nSIM! <£ wja fMJvreu WIUÍC 01 *0»t! 0» ímKEKl*! II »01 I* (OHIORMIT! wt!H !M wiiiiuii'S siuoun CLOZONE er grófkornað þvottaefni sem náð hefur miklum vinsældum hér sem erlendis. CLOZONE hefur hlotið viðurkenningu sem úrvals framleiðsla. CLOZONE er drjúgt og kraftmikið — sléttfull matskeið nægir í 4,5 lítra vatns. CLOZONE er þvottaefnið sem leysir vandan með ullarföt og viðkvæni efni. CLOZONE fer vel með hendur yðar. CLOZONE gerir þvott yðar hvítan sem mjöll. CLOZONE ER HVÍTAST. Heildsölubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F. Sími 11400 inn í fylgsnið klukkan þrjú um nótt- ina, stráði hann dufti á steinhilluna og iagði kassafjöl á gólfið við þrösk- uld leynidyranna. Og þegar hann kom niður í kjallarann kvöldið eftir, komst hann að raun um, að duftið hafði verið strokið af hillunni, en kassafjölin lá úti á gólfi, alllangt frá þröskuldinum ... Næsta kvöld fylgdi hann eiginkonu sinni niður í fylgsnið, eins og ekkert hefði i skorizt, veitti Þvi athygli, live hún var létt og hröð í spori inn fyrir þröskuldinn, lokaði síðan leynidyrun- um. Þegar hann kom inn í ibúð þeirra hjóna, fór hann að ráðleggingu konu sinnar og fékk sér staup af konjaki, — fleiri en eitt og fleiri en tvö. Árla morguns, áður en nokkur af þjón- ustufólkinu var á fótum, ók hann á brott í kádilják sínum og kom ekki heim aftur fyrr en síðla kvölds. Hann tilkynnti ráðskonunni, að hringt hefði verið til þeirra hjóna um nóttina, móðir Carólu hefði skyndilega veikzt hættulega og þau hefðu tafarlaust Framliald á næstu blaðsíðu. VIK4M 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.