Vikan - 17.08.1961, Qupperneq 23
— Nei, og eins og ég sagði áðan er grundvöllurinn fýrir jazzklúbb hér
mjög góður, hann Þarf aðeins að vera á kvöldin, og auðvitað allra helzt
á næturna, og í umsjá góðra manna sem væru t. d. smellnir i sambandi
við auglýsingar, fjármál og annað þess háttað.
— Og þetta var sem sagt lokasessionin í vetur.
•— Já, það má segja það, við héldum að vísu eina um áramótin, svona
nokkurs konar áramótafagnað, en það var líka allt og sumt.
Við þökkum Tómasi fyrir upplýsingarnar og vonum að veturinn 62 verði
Jazzklúbbur Reykjavíkur starfandi af fullum krafti í umsjá dugmikilla
manna, en þeir sem hefðu hug á þessum málum, þurfa ekki annað en að
snúa sér til Tómasar eða einhverra þeirra manna, sem verið hafa í stjórn
klúbbsins, þeir munu veita þeim allar nauðsynlegar upplýsingar.
Eiginlega er það furðulegt að jazzklúbbur skuli ekki þegar hafa fest
varanlegri rætur hér, þar sem hann er einn hlekkur skemmtanalífsins,
sem ekki má vanta. Erlendis eru jazzklúbbar og margs konar aðrir klúbb-
ar vinsælli og betur sóttari en dansleikir eða kvikmyndahús. Og unglingar
hér ættu að grípa fegins hendi það tækifæri að geta hitzt einhvers
staðar annars staðar, en á rúntinum og í fjórum eða fimm samkomuhúsum,
þar sem sama fólkið dansar við hvort annað kvöld eftir kvöld. En þennan
félagsþroska, sem hingað til hefur þótt vantá í íslenzka unglinga, og Is-
lendinga yfirleitt hljótum við að geta áunnið okkur með tíð og tíma.
Örn Markússon
Óli Gaukur
Stefán Jónsson
Hans Krager