Vikan - 17.08.1961, Qupperneq 24
1 litlum garði er lítill gangstígur,
sem liggur fram hjá litlum bekk, og
bak við bekkinn er götuljósið, sem
ég ætla að segja ykkur frá.
Þetta var fínt, grænmálað götuljós,
og þegar kveikt var á því, lýsti það
vel yfir bekkinn og dálítið niður eft-
ir gangstígnum.
Það var nýfarið að dimma að
kveldi og búið var að kveikja á götu-
ljósinu. Enga manneskju var að sjá
nokkurs staðar, jafnvel ekki smá-
hund, og götuljósið stóð þarna eitt
og lét sér leiðast.
— Hvað á ég að gera af mér?
sagði það við sjálft sig. Það er ekk-
ert varið í það að standa hér og lýsa
engum að gagni.
Eftir skamma stund kom þangað
maður. Hann settist á bekkinn, tók
fram litla bók og byrjaði að lesa í
henni.
— Kannski ég ætti að láta slokkna
á mér, hugsaði götuljósið með sér.
Það væri gaman að sjá, hvað mað-
urinn gerir. Og götuljósið hló með
sjálfu sér. Einn, tveir og þrír, — það
varð allt dimmt.
— Þetta var undarlegt sagði mað-
urinn á bekknujn. Hann tók af sér
gleraugun og fægði þau, en það bætti
ekki sakirnar. Síðan sat hann örlitia
stúnd og beið, og allt í einu kviknaði
aftur.
— Hi, hí, tísti í götuljósinu.
— Jæja, hugsaði maðurinn með
sér, ijósið hefur bara aðeins farið
úr sambandi. Svo byrjaði hann að
lesa aftur, en þá slokknaði á ljósinu
í annað skipti, og Þá varð hann svo
vondur, að hann stakk bókinni í
vasann og fór sína leið.
Svo stóð götuljósið aftur eitt og
lét sér leiðast. Það leit í kringum
sig til allra hliða, en ekkert gerð-
ist. — Ó, hvað mér leiðist, sagði það
og geispaði.
En allt í einu heyrðist eitthvað.
Götuljósið sperrti eyrun og hlustaði,
hvað var þetta?
Jú, þarna komu nokkur börn hlaup-
andi. Þau voru í boltaleik og hlógu
og hrópuðu. Og nú kunni götuljósið
vel við sig, því að það hafði fengið
félagsskap. Það gægðist niður á börn-
in, og þá langaði það allt í einu svo
lifandi skelfing mikið að glettast dá-
lítið, það bókstaflega klæjaði. Og
einn, tveir og Þrír, — ljósið hvarf.
Rétt strax kviknaði á því aftur, og
þannig hélt það áfram að kvikna
og slokkna og kvikna og slokkna, og
þvi meir sem það blikkaði, Því reið-
ari urðu börnin. Að lokum kastaði
einn drengjanna boltanum beint I
höfuðið á götuljósinu, svo að það
mölbrotnaði.
— Þessu hafðirðu gott af, heimska
ljós, hrópuðu krakkarnir og hlupu í
burtu.
— Bíðið þið bara, hugsaði götuljós-
ið með sér, þegar það hafði jafnað
sig dálítið. Það skal verða bjart aft-
ur. Andartak, svo skuluð þið sjá. Það
reyndi mörgum sinnum, en án þess
að nokkuð gerðist, því að það var
mölbrotið. Og nú varð götuljósið
reglulega leitt, — já, það var næstum
því farið að gráta. Nú sá það eftir
að hafa verið svo hrekkjótt. — Loks
eftir langa, langa nótt kom dagiu
að nýju. Sólin gægðist fram úr skýj-
unum, og fuglarnir byrjuðu að
syngja, og svo kom eftirlitsmaðurinn
og gerði við götuljósið. Hann settí
nýja og fína peru í það, og nú geisl-
aði það allt af gleði. Og frá og með
deginum I dag hefur það verið þægt
og ekki fundið upp á neinum hrekkja-
brögðum.
GATUR
1. Hvenær geturðu borið vatn í
sigti?
2. Hvar var landhelgissamningur-
inn undirritaður?
3. Hvenær er það, þegar fíll getur
setið á girðingu?
4. Hvaða tveir emberar eru það,
sem koma í enda árs?
5. Hvað fæðist með hala, en fóta-
laust, og deyr með fætur, en
halalaust?
Leggið lausnirnar í umslag og sendið Vikunni pósthólf 149.
Nafn: ..............................................
Heimili: ...........................................
Aldur: .............................................
Merkið umslögin með „Gátur“.
Hér eru fimm gátur, sem við ætlum ykkur að leysa, og við von-
um að þær séu ekki of þungar. Þau, sem hafa allar ráðningar réttar
fá verðlaxm. Fyrstu verðlaun eru: Vefstóll eða flugmódel. Mörg auka-
verðlaun.
Þið munið eftir henni Gullbrá og birnunum þremur. Hér eru
vinir hennar birnirnir, en þeir virðast vera I einhverjum vandræð-
um. Við verðum vlst að hjálpa þeim að finna það, sem þeir eru
að horfa á.
KALLI KOKKUR.
Nú ætlum við að búa til ávaxta- Kalli og Pétur, þið afhýðið eplið
drykk. !Þær ávaxtategundir, sem við og brytjið það i smábita. Og vandið
þurfum eru: 1 epli, 1 appelsínu, 1 ykkur dálítið, þannig að allur ávöxt-
banana, 2 plómur. Svo byrjum við. urinn fari ekki með hýðinu.
Nonni, þú afhýðir bananann og Nú blöndum við öllu saman og
skerð hann niður í þunnar sneiðar. setjum í fimm glös. Bætið dálitlu
Ég afhýði plómurnar og tek úr þeim vatni og appelsínusafa út 1, en ekki
steinana. öli. Lítur þetta ekki freistandi út?
24 VIKAN