Vikan - 17.08.1961, Blaðsíða 29
ný g!
Koðak o*
Pi
myndavél 9%
• Fyrir
• Taska
325,-
kr.
kr.
# Tekur 12 myndir
á 6x9 fiimu
Verzlun
Hans Petersen hf.
Bankastræti 4 - Sími 13213
Mér er auðsýndur sá heiður að^ bjóða frúnni að borði skipstjórans
— rið þorfum að lajja halla skipsins á bakborða.
II
4
'HUPioa r>
Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Þú skalt var-
ast að lenda í deilum við þér æðri menn i vinn-
unni, því að slíkt gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar í för með sér. Maður, sem fæddur er undir
Drekamerkinu kemur mikið við sögu kvenmanna
í þessarri viku. Fimmtudagurinn er dálítið varasamur, og
skaltu ekki vera á ferli eftir miðnætti þann dag.
NautsmerkiÖ (21. apr,-—21. mai): t>ú virðist
standa í stað þessa-dagana og taka ekki nein-
um framförum, og stafar það af því að þú van-
r.ietur sjálfan þig. Það er vissulega engin ástæða
til þessarrar minnimáttarkenndar, því að þér
getur einmitt orðið mikið úr verki um þessar mundir.
Taktu nú á þig rögg. Þú virðist alltaf dálítið tortrygginn
í garð ástvinar þíns.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Vikan verður
fremur tíðindalítil, en ef þú kannt að gera þér
—'at úr smáatvikum, getur útkoman orðið hin
___bszta. 1 sambandi við einhvern merkisatburð
innan fjölskyldunnar, mun einn hæfileiki þinn fá
að njóta sin svo um munar. Þú skalt gæta tungu þinnar í
vikunni og umfram allt ekki segja neinum leyndarmál það
sem þér var trúað fyrir.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú hefur einn
góðvin þinn fyrir rangri sök, og stafar það líklega
af því, að þú skilur ekki afstöðu hans til máls,
sem ykkur er báðum skylt. Þú munt skemmta
þér óvenjumikið í vikunni, og átt þú fyrir þvi,
því að siðustu vikur hafa verið dálítið erfiðar fyrir þig.
Skapið verður líkiega ekki sem bezt um helgina.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Samkomulagið á
vinnustað versnar eitthvað, og getur þú hæglega
orðið til þess að bæta úr því. Þú hefur vanrækt
einhverja skyldu þína undanfarið, og er tími til
kominn að kippa því í lag, svo að ekki fari illa.
Það er miikl rómantík yfir vikunni, og líklega lendir margt
fólk undir þrítugu í skemmtilegu ástarævintýri.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þetta verður
í alla staði hin ánægjulegasta vika. Líklega ræt-
ist nú gamall draumur þinn, og verður það til
þess að þú verður í sólskinsskapi alla vikuna.
Einhver gamall kunningi þinn kemur talsvert
við sögu um helgina. Hann gerir þér liklega einhvern grikk,
en það er aðeins græzkulaust gaman.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Það hefur bor-
>ð talsvert á eigingirni í fari þinu undanfarið, en
i þessari viku nær hún líklega hámarki sínu Þú
verður að reyna að læra að taka tillit til ann-
annarra. Þú lendir í skemmtilegu ævintýri lík-
lega á fimmtudag eða föstudag, og ætti það að geta orðið
þér dýrmæt reynsla. Varastu deilur við fjölskyldumeðlimi.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þér finnst far-
ið heldur illa með þig í vikunni og gengið' fram
hjá þér. Af hverju sem þetta nú stafar, er sann-
leikurinn samt sá, að þetta er ekki annað en
hugarburður þinn. Þú færð skemmtilega hug-
mynd í vikunni, en ekki er ráðlegt að hrinda henni í fram-
kvæmd fyrr en eftir svosem viku.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Það, sem þú
ætlaðir að gera 5 þessari viku verður víst að bíða
um sinn. Taktu það samt ekki of nærri þér, og
reyndu að sinna einhverju öðru á meðan. Vinur
þinn sýnir þáð í verki, að honum þykir mjög
vænt um þig, og á hann þakkir skilið fyrir. Konur, sem
vinna úti, munu lifa mikla hamingjudaga,
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan ): Það gerist
w; fremur fátt markvert í þessari viku. Þó er rétt
.r að leggja áherzlu á þriðjudaginn, því að þann
-w dag mun eitthvað gerast, sem gæti haft talsverð
áhrif á framtíð þína og breytt áformum þínum
til muna. Farðu varlega með peninga í vikunni. Þú munt
þarfnast þeirra áður en langt um líður.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Allt sem
nra þú segir og skrifar skiptir þig miklu í vikunni,
B'M einkum skaltu fara að öllu með gát, ef þú þarft
að skuldbinda þig til einhvers starfa Góðvinur
þinn, sem þú hefur ekki umgengizt lengi, kemur
nú aftur við sögu, og verða það miklir fagnaðarfundir.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Líkur eru á
því að eitt áform þitt fari út um þúfur — þér
gefst þó tækifæri til þess að bæta þetta upp, en
BBkfln ekki er ljóst á hvern hátt. Einhver neikvæður
eiginleiki í fari þinu er mjög áberandi þessa dag-
ana ,og veizt þú víst bezt sjálfur hver hann er. Þú verður
að útrýma þessum lesti hið fyrsta — fyrir fullt og allt.