Vikan


Vikan - 17.08.1961, Síða 39

Vikan - 17.08.1961, Síða 39
hugsa, að hún skuli ekki enn hafa sýnt yður herbergið yðar, mælti Kitty afsakandi. — Komið þér með mér, herra Cleveland. Þetta þolir að sjálfsögðu ekki samanburö við Copaeabana-gistihöllina, — en það hefur þó að minnsta kosti tekið hin- um ótrúlegustu stakkaskiptum, siðan við komum hingað. Þá var hvergi snefill af málningu. Og hann, sem skrifaði okkur, að þetta væri eitt af glæsilegustu gistihúsunum í allri Suður-Ameríku ... — Hann Terens, bróðir minn. Það var nú ekki neitt smáræði, sem hann ætlaði að gera og græða fé á, þegar hann hélt að heiman frá Irlandi fyrir tuttugu árum. Og ég var svo heimsk, að ég trúði öllu, sem hann skrifaði og var búin aö steingleyma því, hvað hann var alltaf ýkinn. Og þetta bless- að gistihús ... ►t/jOKKRU síðar sátu þau úti á ver- líl öndiimi og drukku te. Victor * Cleveland gerðist sérlega ræð- inn, og Marin bókstaflega drakk hvert orð af vörum hans. Það leið ekki á löngu, áður en hann hafði sagt þeim alla sina ævisögu. — For- eldrar hans voru látnir, en nánasti ættingi hans var systir, sem hann átti i Kanada, en hafði ekki séð í áratug. Um hrið hafði hann starfað við vá- tryggingafélag, en sleppt því starfi algerlega, þegar fyrsta leikrit hans var tekið til sýningar og hlaut hina beztu dóma. Það hét Söngur vorsins, sagði hann, og yfirleitt varð honum tiðræddast um það timabil ævi sinn- ar, sem fór á eftir þeim sigri. Hann virðist hafa einhverja gilda ástæðu til þess að fara sem fæstum orðum um það, sem þar á undan er gengið, hugsaði Lisa með sér. Aftur á móti var hann fjölorður tun New York, — leikhúsastrætið fræga, Breiðgötu, leiftrandi ljósaauglýsing- ar, hástemmt hrós i dagblöðunum, — sem sagt, Sigur, með stórum upp- hafsstaf, eins og hann komst að orði. — Það hlýtur að vera dásamlegt að sjá sitt eigið leikrit á sviði, mælti Marin, og hrifning hennar leyndi sér ekki. Hann hló. — Já, því verður ekki neitað, að það hefur sterk áhrif á mann að heyra lófaklappið og hrifn- ingarköllin og vita, að verk manns hefur öðlazt viðurkenningu, mælti hann ánægður. — Söngur vorsins var sýnt í tíu mánuði samfleytt i New York og alltaf fyrir fuUu húsi. — Og nú vinnið þér að nýju leikriti, sagði Kitty hrifin. — Ekkert skil ég í, hvernig þér farið að þessu. — Þetta er víst, nánast tUtekið, meðfæddur hæfileiki, svaraði rithöf- undurinn lítillátur, — annaðhvort getur maður þetta eða getur Það ekki, bætti hann við af rökfastri hreinskilni. — En sigurinn hefur líka nokkra hættu i för með sér. Ég geri mér Það vitanlega ljóst, að Það er ágætt að vera mikið auglýstur, og vitanlega verður maður að sýna aðdáendum sinum fyllstu tUlitssemi, en þó var svo komið um mig, að ég sá fram á, að ég yrði að flýja New York, ef mér ætti að takast að oin- beita mér að samningu nýs leikrits og fylgja sigrinum eftir, — flýja þangað, sem ég væri ekki eins þekkt- ur og frægur ... Marin starði á hann aðdáunaraug- um. — Og þess vegna fluguð Þér til Ríó? Hann kinkaði kolli. — Já, en það kom mér ekki að neinu haldi, því miður. Ég rakst þar þegar á nokkrar manneskjur, sem báru kennsl á mig, og þar með var úti friðurinn. Hann hló enn. — Og þá gerðist Það, að ég sendi út neyðarmerkið, sem þið svo svöruðuð. — Já, þér fáið áreiðanlega ró og næði til starfa hérna hjá okkur, mælti Kitty af sannfæringu. — Hér verður ekkert til að tefja yður eða trufla. — Þaö er nú það, mælti hann lágt NÝTT TÆKNIAFREK! HIN NÝJA NEC TRANSISTOR FISKSJÁ FER SIGUR- FÖR UM ALLT LAND SMÁBÁTAEIGENDUR. Með NEC-FISKSJÁNNI haf- ið þið tryggt aukinn afla og bætta afkomu. Hin handhæga og örugga NEC-FISKSJÁ, eykur stöðugt vinsældir sínar meðal smábátaeigenda í landinu. NEC Transistor fisksjáin vegur aðeins 1,6 kg. (fyrir utan lóð- stöngina), og er því lang minnsta og handhægasta fisksjá, sem framleidd liefur. verið til þessa. NEC Transistor fisksjáin er því sérlega heppileg fyrir trillubáta, aðstoðarbáta við síldveiðar og fyrir sportveiðibáta. NEC Fisksjáin er sjálfritandi, notar rakan pappír, og er hver rúlla 35 m/m breið og 2,5 metra löng. NEC Fisksjáin hefur 4 dýptarskala, 0—25 m, 20—45 m, 40—65 m og „Multi“ skala. Signal tíðni: 200 kílórið á sekúndu. NEC Fisksjáin gengur fyrir venjulegum vasaljósarafhlöðum. Verð compl. með nælontöskum fyrir mælirinn, botnstykkið, 12 pappírsrúllum, 1 sett af rafhlöð- um o. fl. Kr. 5.801,20. MARCO H.F. ASalstræti 6. — Símar 15953 og 13480. og eins og við sjálfan sig. En hann horfði á Marínu. Og hún heyrði, hvað hann sagði, enda ætlaðist hann áreiðanlega til þess. Hún varð kafrjóð í vöngum, enda þótt hún reyndi að taka undir við móður sína. — Nei, hér verður ekkert til að trufla yður, þvi að hér gerist aldrei neitt. Og hingað kemur aldrei neinn, — segi ég það ekki satt, Lísa? — Hingað til hefur verið dásamlega rólegt hérna, svaraði Lísa og lagði sérstaka áherzlu á fyrstu orðin. Sér' til gremju sá hún glettnisglampa bregða fyrir í augum Victors Cleve- lands. — Ég skal reyna að trufla ekki neinn, sagði hann með ýktri kurteisi, sem varð til þess, að reiðin blossaði aftur upp í huga hennar. Hún reis á fætur, bað þau hin hæ- versklega afsökunar og gekk inn í húsið, þar sem Mikki var í óðaönn að lagfæra og taka til í herberginu, sem Beryl var ætlað. Þegar hún kom inn, var hann að mála veggina ljós- bláa. Hann leit um öxl, þegar hann heyrði fótatak Lísu. — Það er gott, að þú kemur, sagði hann. — Hjálpaðu mér að ýta til skápnum þarna, en gættu þín, því að málningin er ekki þornuð. Bn svo bætti hann við: — Fyrirgefðu, ég mundi ekki eftir því, að þú ert komin í stássklæðin. Henni varð litið á kjólinn, sem hún hafði farið í, áður en hún fór að sækja nýja dvalargestinn. — Bíddu, á meðan ég skipti, sagði hún. — Það tekur enga stund. Framhald í næsta blaði. HVAR ER WALLENBERG? Framhald af bls. 17. hans, dirfsku hans og falslausan mannkærleika. En þóit margir grétu dauða Wallenbergs, var hahn á lífi ein- hvers staðar i Sovétrikjunum. tveimur árum síöar, sumariö 1947, barst mér tilkynning frá ,,Kat-pol,“ það er póli- tisku lögreglunni, þar sem ég var kvödd til að koma i stöðv- ár liennar. Slikar tilkynningar eru alltaf dá- litið óþægilegar, og ég var því i talsverðu uppuámi, þegar ég var leidd fyrir ungan lögregluliðsfor- ingja, Kalman að nafni. — Kannizt þér við Denes Benz- eredy? spurði hann. — Já, svaraði ég. Hann var yfir- maður gagnnjósnadeildar örva- krosshreyfingarinnar. Ég sat þar sem fangi í byrjun árs 1945. - Það kemur lieim, sagði þessi Kalman. — Einn af föngum okkar, Gabor Alapy, mótmælir þvi nefni- lega harðlega,, að hann skuli vera settur í sama klefa og þessi náungi, sem hann heldur fram, að hafi látið pynda sig. Og hann nefnir yður sem vitni. Þessar fréttir komu mér óþægi- lega á óvart. Gabor sat þá, eftir þessu að dæma í fangelsi. En ég fékk ekki ráðrúm til að brjóta heilann um það til lengdar, því að nú var ég krafin langra og flókinna útskýringa á sambandinu milli þess, að ég starfaði lijá Wall- enberg og að ég var tekin höndum af þeim i örvakrosshreyfingunni. Og brátt varð mér Ijóst, að það var eingöngu jietta, sem þeiin fannst máli skipta. Þegar þetta gerðist, hafði ég ekki minnstu hugm'ynd um það, að sænska ríkisstjórnin hafði afhent Framhald á bls. 42. VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.