Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.11.1961, Qupperneq 36

Vikan - 02.11.1961, Qupperneq 36
PONiMBD er bíll þeirra, sem hafa vit á að velja sér bíl - eini bíllinn sem sam- einar þægilegt rými fullstóru bílanna, sparneytni smábílanna og aksturs- kosti sportbílanna. PANHARD er bíllinn sem varð þrefaldur sigurveg- ari í Monte Carlo fyrir árið 1961. Góð vinnsla Panhard-bílsins yfir illfæra vegi íslenzks fjalllendis sannar gæði hans og kosti. í akstri um Vestfirði, Norðurland og Aust- firði reyndist benzíneyðsla aðeins rúmir 6 lítrar á hverja 100 km. Auk margra annarra gæða og þæg- inda má nefna loftkælingu, sem kælir vélina með stöðugum loft- straumum og notkun frostlögs því óþörf. Hámarksakstur í fulla 21 tíma, eins og átti sér stað í Le Mans keppninni, sannar bezt styrkleika og þol vélarinnar. örijggi Þfegindi hvndi Umboðsmenn: Björn Sc Ingvar Austurstræti 8. — P. 0. Box 204. — Sími 1460*. BLÓM Á HEIMILINU : Drekatré °g Mímósa eftir Paul V. Michelsen. « Stöðugt fjölgar grænu og marg- «f litu blaðaplöntunum hjá garð- yrkjumönnum, og Því meiru úr að velja fyrir húsmæður. Ein af þeim síðustu I safnið er Dracæna, en af henni eru allmörg afbrigði. Dracæna, eða Drekatré, eins og jurtin er nefnd á íslenzku, er ættuð frá suð-austur Afríku. Algengasta tegundin hér er D,- fragans, sem hefir löng og breið, dökkgræn, ydd blöð. Hún getur orðið mjög stór og glæsileg gólf- planta. D. sanderiana er fíngerðari, hvít- röndótt og oft með lillablæ á jöðrum og löng ydd blöð. Kemur með marga hliðarsprota neðan frá, mjög falleg planta. D.deremensis warneckii, er mjög falleg hvítröndótt, frekar blaðstór og getur orðið glæsileg gólfplanta, eða I blómagrind. Drekatré eru frekar nægjusam- ar jurtir, en betra er þó að gefa þeim, eins og öðrum plöintum, blómaáburð einu sinni i viku yfir vaxtartímann. Þeim er fjölgað með rótarskotum. sem oftast kem- ur nóg af. Þær þurfa venjulega moldarblöndu, mikið vatn yfir sumarið, og er gott að úða yfir þær. Drekatré þrífast mjög vel i stofum og björtum norður eða austurgluggum. Blóm eru til margs nytsamleg, og geta prestar af stólnum lagt út af þeim í ræðum sínum. Því var það, að eitt sinn í sumar kom til mín prestur norðan úr landi og spurði eftir plöntu, sem heitir Mí- mósa, á íslenzku er hún nefnd „hreyf-mig-ei. Hann hafði í einni ræðu sinni lagt út af viðkvæmni plöntunnar, og kirkjugestir á eftir spurt um plöntuna, og nú var hann kominn til að fá eina, svo hann gæti sýnt söfnuði sínum. Mímósa er falleg, lítil, viðkvæm planta og sérlega skemmtileg. Þegar komið er við blöð hennar, eða blásið á þau, dregur hún blöð- in saman og verður þá mjög fyrir- ferðalítil. Mímósa blómstrar lilla- bláum blómhnoðrum, þarf góða birtu, en ekki of sterka sól, góðan og jafnan blómaáburð, þolir illa kulda og súg. Mímósa lifir af veturinn, er bezt að skera hana tölvert niður, og byrjar hún svo aftur með nýjar greinar. Börn hafa sérstaklega gaman af að eiga Mimósu, og leika sér að blöðum hennar. ^ 36 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.