Vikan


Vikan - 02.11.1961, Blaðsíða 43

Vikan - 02.11.1961, Blaðsíða 43
Gnangrið óetur 6EGN HJTA OG KULDA 20 Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgeiddan á fáum ár- um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun notalegri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). Lækjargötu . Hafnarfirði . Sími 50975. TL, YQ\a HVenJU Er* d£öUMLiE>lr>N Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Vikunnar. Herra draumráðningamaSur. Fyrir nokkru dreymdi mig að ég var á gangi niðri í bæ. Þá hitti ég pilt, sem ég var einu sinni með. Fannst mér hann vilja gefa mér hring og fannst mér við fara inn i skartgripaverzlun. Mér fannst ég velja mér hvítan hring með stórri slaufu eða fiðrildi á. Skömmu siðar dreymdi mig að sami pilturinn væri búinn að bjóða mér á ball og var ég i vafa hvort ég ætti að fara með lionum eða ekki. Þá fannst mér ég ganga fram hjá húsinu, sem hann var i. Og sá ég hann þá út i glugga og var hann í hvítri skyrtu. Þá finnst mér ég taka þá ákvörðun að fara með honum á ballið og fer ég heim og hef fataskifti. Þá finnst mér hann koma að sækja mig og var þá kominn i svarta skyrtu. Með fyrirfram þökk. Svar til A. B. Fyrri draumurinn þar sem þið gangið inn f skartgripaverzlun og elskhugi þinn fyrr- verandi gefur þér kost á vali hrings með slaufu eða fiðrildi bendir til skammvinnrar ástar. Slaufan gefur til kynna endir, þar sem hnútur táknar í þessu tilfelli endalok. Fiðr- ildið mundi hins vegar vera tákn um léttvæga ást þar sem það var á hringnum, en eins og alkunna er, er hringurinn tákn ástarinnar. — Síðari draumurinn er boðskapur til þín um að flagð búi oft undir fögru skinni. Kæri draumaráðandi. Mig dreymdi nýlega að ég ætti heima í húsi, sem var grátt að lit og mjög drungalegt. Mér fannst fleiri eiga þarna heima og var ég búin að eiga lítinn dreng í lausaleik og var önnur stúlka þarna i herberginu og var hún einnig búin að eiga dreng. Ég lá þarna í rúmi og var ég að gefa drengnum að drekka úr hægra brjósti minu, en svo sá ég mann standa við rúm- ið, ég sá hann svo ógreinilega, en nóg til þess að ég sá að þetta var barnsfaðir minn og fannst mér hann eiga heima í þessu húsi líka. Eftir þetta gekk ég niður i þorp þarna rétt hjá og til systur minnar. Móðir mín var þar og spurði hún mig hvort ég hefði nýlega verið með pilt- inum, en ég hvað nei við. Svo fór ég aftur heim, á leiðinni mætti ég barnsföður minum og var hann hár og ljóshærður og spurði hann mig hvort ég væri að fara heirn og hvort hann mætti þá verða samferða. En ég hikaði við að svara og ætlaði að biðja stelpur, sem voru þarna að koma með lilca, en hætti við það og lét tilleið- ast að fara með honum ein. Með fyrirfram þökk, Elfa. Svar til Elfu. Fyrir ógifta stúlku er það vissulega ekki efnilegt að dreyma slíkan draum, sem bend- ir til einhvers miður þægilegs atviks. Lausa- leiksbörn er flestum ungum stúlkum þyrnir í augum, sem vonlegt er, því venjulega neyð- ast þær til að giftast sér í óhag miðað við aðstöðu þeirra barnlausra. Túlkun draums- ins verður því sú að þú verðir fyrir sérleg- um óþægindum í ástarmólunum á næstunni, og ættir þú að varast að ganga of langt í þeim efnum. LÁTIÐ EKKI FRAMHJÁ YKKUR FAIÍA myndafrásögn á fimm síðum í næsta blaði úr ferðalagi, sem Vik- an bauð hinum noirænu fegurðar- drottningum í. Á meðfylgjandi mynd eru þær staddar við Öxarár- foss, en þær heimsóttu Þingvelli, komu við hjá Sogsfossum, hittu rekstrarmenn í Ölfusi, sáu gos og blómahús í Hveragerði og snæddu kóngamáltíð í Skíðaskálanum — allt í boði Vikunnar. Og myndir af þessu öllu saman sjáið þið eftir viku — í VIKUNNI. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.