Vikan - 14.12.1961, Síða 32
II
*
4
’HU pioqp
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Það verður
ýmislegt til þess að angra þig í þessari viku, en
þú getur sætt þig við, að ein ósk þin rætist, svo
að þú gleymir um leið öllu mótlaati. Vinur þinn
kemur óviljandi upp um leyndarmál, sem þið
eigið tveir. Þú skalt fara varlega með peningana í vikunni
— einkum ekki kaupa dýrt. Heillatala 4.
Nautsmerkið (21. apr.—21. mai): Þetta verður
ákaflega tilbreytingarlitil vika, og ekki verða
neinar stórviðburðir lesnir úr stjörnunum.' Þó
bendir ýmislegt til þess að sunnudagurinn verði
óvenjulegur dagur á einhvern hátt. Þú kannst
bezt við þig heima við í vikunni, og er það vel, því að heima
við nýtur þú lífsins bezt. Talan 4 skiptir kvenfólk miklu.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú virðist
alltof svartsýnn þessa dagana, en til þess er sann-
arlega engin ástæða, nema síður sé. Lánið virðist
leika við Þig i vikunni, og jafnvel gamall draum-
ur, sem þú varst búinn að sætta þig við að væri
ekki annað en draumur, rætist nú að einhverju leyti. Allt
bendir til Þess að laugardagurinn sé dálitið varasamúr
fyrir karlmenn.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júlí): Þetta verður
vika mikillar óvissu og óþolinmæði •— þú biður
eftir einhverju með óþreyju, en líklega fæst ekki
úr því skorið í þessari viku — því miður. Reyndu
heldur að gera þér mat úr smáatvikum hvers-
dagsins í stað þess að sitja og bíða éftir einhverju, sem ekki
kemur. Það ber annars yfirleitt mikið á óþolinmæði í fari
þínu þessa dagana.
LjónsmerJciÖ (24. júlí—23. ág.): Þú kynnist per-
sónu í vikunni, sem gæti orðið þér hinn hollasti
vinur, ef þú kannt að koma rétt fram við hana í
fyrstu. Láttu ekki eigingirni þína ráða of miklu
við ykkar fyrstu kynni. Þú gleymir einhverju,
sem þú varst fyrir löngu búinn að lofa, og kemur það sér
mjög illa fyrir marga. Heillatala 7.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Amor verður
mikið á ferðinni í vikunni, og kemur hann af stað
mörgum skemmtilegum ævintýrum. Taktu hann
bara ekki allt of alvarlega, svona fyrst í stað.
Þetta verður mikil heillavika fyrir konur undir
þrítugu — þótt eldri konur þurfi engu að kvíða. Vinur þinn
kemur þér i ljóta klípu um helgina, en hann bætir þér það
síðar upp. Heillatala 11.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú virðist vera
alltof þrálátur þessa dagana, og bitnar það verst
á fjölskyldu þinni. Þú verður að sætta þig við, að
þú getir líka stundum haft rangt fjrrir þér. Á
mánudag hittir þú persónu, sem þú rétt kannast
við, en þið eigið eitthvað sameiginlegt, svo að kynni ykkar
munu verða nánari næstu vikurnar.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú skalt varast
allt óhóf í vikunni, einkum hvað snertir mat og
drykk, og ekki skaltu vera lengi úti eftir mið-
nætti. Þér býðst girnilegt tækifæri í vikunni, en
ekki er víst að þú hafir nokkurn tíma til að sinna
þvi, svo að þú skalt hugsa Þig vandlega um, áður en þú nýtir
þér það.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þú átt í
einhverri baráttu við sjálfan þig og umhverfi þitt,
vegna einhvers, sem þú gerðir í vikunni sem leið.
Láttu þetta auðvitað þér að kenningu verða. en
vertu samt ekki að angra Þig með þessu lengur
— þetta er búið og gert, láttu það bara ekki koma fyrir
aftur. Helgin verður í alla staði óvenjuleg og skemmtileg.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Það verður lögð
fyrir þig gildra í vikunni, en þú stenzt Þá raun
með mestu prýði, og þannig munt þú vaxa I áliti
hjá fáeinum mönnum, sem ekki mátu þig mikils
til þessa. Þú skalt vanda allt það, sem þú sendir
frá þér skriflega í vikunni, einkum ef peningar eru í spili.
Vatnsberamerkiö (21. jan,—19. feb.): Þú leggur í
eitthvert fyrirtæki í vikunni, sem síðar mun
reynast þér ofviða, ef þú færð ekki einhvern I
lið með þér. Vinur þinn einn er vel hæfur til þess
•— þú veizt bezt sjálfur hver það er. Það ber dá-
lítið á afbrýðisemi í fari þínu þessa dagana — þótt einmitt
nú sé sizt ástæða til.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þú skalt vera
sem mest heima við í vikunni, því að þar bíður
þín mesta lífsánægjan. Ekki þar með sagt að þú
eigir að forðast að fara að heiman stundarkorn.
Þér eldri kona gerir þér ómetanlegan greiða, og
getur þú innan skamms endurgoldið henni þann greiða.
Heillatala 5.
EF ÞÉR ERUÐ
BIJIN AÐ KAUPA
JÓLAKÁPUNA, ÞÁ
GETIÐ ÞIÐ ALLTAF
FENGIÐ FALLEGA SLÆÐU
EÐA GÓÐA OG SMEKK-
LEGA HANZKA HJÁ OKKUR.
Qleðileg \ól!
ALLS KONAR
SNYRTIVÖRUR
UNDIRFÖT KVENNA
FALLEG HÁLSMEN OG
FLEIRA
• ••••••• «- » •
•.•.•••••. V.'.JK',*
•ÍW • • • —■• • •
SNYRTIVORUBUDZN
Klapparstíg 27. - Sími 12470.