Vikan - 28.12.1961, Síða 14
FLÆÐ
HÖFUÐHOF SEM KREFST BJÖRGUNAR: HIÐ
ÓGNVEKJANDI ABÚ SIMBEL.
Fjórar 67 feta háar myndir af Ramsesi öðrum, höggnar
í sandsteinsklöpp, stara fram á Níl og gæta inngangsins í
helgidóminn, þar sem prestar stjórnuðu helgiathöfnum.
Höfuðið hefur losnað af einni styttunni og hafnað á þrep-
unum fyrir neðan. í skjóli við risavaxna fæturna eru smærri
styttur af fjölskyldu Ramsesar. Efst á framhliðinni eru apa-
myndir meitlaðar í steininn. Heitið Abú Simbel merkir
„Faðir kornaxins".
DÝRÐ SÉ FARAÓ.
Við dyrnar á hofi Nefertari f Abú Simbel getur
að líta glæsilegar myndrúnir er hefja Ramses til
skýjanna. Á hinni 33 feta háu standmynd til hægri
ber hann hina tvöföldu kórónu efra og neðra
Egyptalands. Yfir dyrunum er hann önnum kafinn
við guðadýrkun. Þakið yfir honum morar í gler-
augnaslöngum.
Frá landi sfinxanna ómar nú neyðarkall, sem engar hliðstæður
á sér í sögunni. Allur heimurinn er beðinn aðstoðar við að
forða gereyðingu á menningarverðmætum, sem ógnar nú ýmsum
þeim minnismerkjum menningarinnar, sem mesta athygli hafa
vakið. Við Aswan hjá Nílarfljóti erú Egyptar að byggja nýja
áveitustíflu, er breyta mun 300 mílum af hinum sagnfræga Nú-
bíudal í 200 feta djúpt stöðuvatn. Þegar vatnið rís innan næstu
fimm ára, munu faraóarnir, sem þarna sitja höggnir í klettana
hverfa í kaf og eyðast síðan smámsaman vegna áhrifa vatnsins.
Yfir tvær tylftir fornmerkra staða munu þá lenda undir yfirborði
vatnsins — þar á meðal Sebúa-helgidómurinn með sfinxabraut-
inni frægu, klettavígi á borð við Semna, stórfenglegir helgistaðir
eins og Buhen og Gerf Hussein, skrautmáluð egypzk grafhýsi,
fornkristnar kirkjur og býsanskar borgarrústir.
Hjá þessu verður ekki komizt, nema því aðeins að heimurinn
gefi gaum að málaleitunum Arabíska sambandslýðveldisins og
Súdans, sem hafa nú hrint af stað stórfelldustu ráðstöfunum til
fornminjavarðveizlu, er sagan getur um. Með hjálp UNESCO
reyna þessi ríki nú að afla 75 milljóna dollara, sem að nokkru
leyti verður varið til að flytja 19 hinna fomu stórvirkja á hærri
staði, en fyrst og fremst til að vernda tvo markverðustu stað-
ina, Abú Simbel og Philae. Abú Simbel, hátignarlegustu muster-
samstæðu við Efri-Níl, er hægt að bjarga með þvi að beita ótrú-
legum möguleikum véltækninnar. Philae, hin heilaga eyja gyðj-
unnar ísis, er á milli stíflugarðnn tveggja — gömlu Aswanstifl-
unnar, sem byggð var 1902, og hástíflunnar nýju, sem fyrir fullt
og allt mun svelgja alla hina fornu merkisstaði. Fyrir 5.5 milljón-
ir dollara er hægt að koma upp flóðgörðum eða skrínstíflu til
verndunar hinum frábæm grisk-rómversku súlnaröðum á Philae.
Þýzka stjórnin hefur gefið eina milljón dollara til að flytja Kaia-
bsha-minjarnar á ömggari stað. 1 þeim tilgangi að afla fjár,
hefur fimrn fornhofum verið lofað til eignar hverjum þeim, er
leggi fram nógu háa f járhæð þeim til björgunar. Nokkrir döðlu-
ræklendur í Kaliforníu eru á höttunum eftir einu þeirra.
Meðan tæknifræðingar UNESCO eru önnum kafnir við að
ljósmynda öll minnismerki í réttri stærð og gera eftirlikingar af
lágmyndum og freskómálverkum, vinna aðrir að því að skýra
liti hinnar fomu málningar. Þeir skrá einnig myndleturstexta, er
innihaida suma merkustu stríðssöngva Egvpta. Eftir 1963 mun
vatnsflóðið hindra allan uppgröft á svæði, sem geymir forsögu-
legar minjar um þróun mannsins, ef til vill þar á meðal leiðar-
vísi að vitneskju um uppruna Egypta hinna fomu. Á þessum
slóðum mættust hvítir menn og svartir að líkindum í fyrsta sinn.
Til þess að hraða rannsóknunum hefur þeim, er vinna að upp-
greftrinum verið gefið leyfi til að eignast helming þeirra minja er
þeir afhjúpa.
Framhald á bls. 28.
14 VIKAN