Vikan


Vikan - 04.01.1962, Page 5

Vikan - 04.01.1962, Page 5
í fullri alvöru ,/Urdómsríb s Þaö gerCist í borg nokkurri suður á Italíu skömmu eftir fyrri heims- styrjöid, aö tveir stjórnmálaflokkar urðu þar svo hnifjafnir að völdum, að þeir sáu sér þann kost vænstan, enda æskilegast með tilliti til almenn- ingsvelferðar, að gera með sér sam- komulag og skipta með sér völdum að jöfnu. Það kom þó brátt i ljós að þetta var ekki eins auðvelt og i fljótu bragði kunni að virðast; það var til dæmis óframkvæmanlegt að skipa þannig i allar áhrifastöður og embætti að öruggt væri að á hvorugan hall- aði. Sem betur fer höfðu þó framá- menn ílokkanna beggja þann stjórn- málalega þroska, sem með þurfti til að ieysa það vandamál — og lausnin var jafn einföld og hún var örugg; með því að tvöfalda öll embætti og allar áhrifastöður, þannig að tveir menn, sinn úr hvorum flokki, gegndu nú hverjum slikum starfa sem einn hafði áður unnið, var báðum ílokk- unum tryggð nákvæmlega jöfn að- staða. Að vísu kom dálitið babb í bátinn varðandi embætti kirkjuorg- anistans, þar sem það kom á daginn að sá flokkurinn, sem hann taldist ekki til, átti engan organleikara innan sinna vébanda, en einnig það vanda- mál tókst að leysa fyrir stjórnmála- legan þroska og samstarfsvilja allra aðilja. Kirkjuorganistinn, sem vax aldraður maður og aldrei hafði skipt sér neitt af stjórnmálum, þótt hann teldist flokksbundinn, gerðist einnig flokksbundinn hjá andstæðingunum, samkvæmt tilmælum forystumanna úr Dáðum flokkum ... En svo dó hann, gamli maðurinn, og var jarðsunginn með mikilli við- höfn, borinn til grafar af framámönn- um úr báöum flokkum, þrem og þrem. Því miður reyndist eftirmaður hans, ungur og vel menntaður organleikari, sem oft hafði leikið á kirkjuorgelið i forföllum hins látna og taldist þvi nokkurnveginn sjálfkjörinn, fyrir- rennara sínum ekki jafn að stjórn- málalegum þroska. Kvað hann sann- færingu sína banna sér að fara að fordæmi gamla mannsins og gerast meðlimur í báðum flokkunum, og varð ekki um þokað, enda þótt hans eigin flokksforysta legði hart að hon- um og hótaði honum jafnvel brott- rekstri. Nú voru góð ráð dýr, samstarf flokkanna og um leið almenn velferð borgarbúa í veði. Forystumenn beggja flokkanna sátu á fundum langt fram á nótt, en ekkert gekk ... Loks datt þó einum forystumann- anna snjallræði í hug. Harmoniku- leikarinn, hrópaði hann upp yfir sig. Harmonikuleikarinn ... Harmonikuleikarinn í borginni var maöur á miðjum aldri, dálítið ölkær og ekki sérlega mikið gefinn, mein- leysingi, heldur laus á kostunum, en snjall harmonikuleikari. Enginn vissi til þess að hann heíði nokkurntíma haft nokkra skoðun i nokkru máli, og þar sem hann hafði misst kosninga- rétt sinn vegna einhvers klandurs, sem hann hafði lent i fyrir svo mörg- um árum að það var nú gleymt, hafði engum komið til hugar að flokks- merkja hann. Að visu þekkti hann ekki nótur og hafði eingöngu leikið á dansleikjum, en hann var ákaflega músikalskur maður, svo öruggt mátti teljast að hann kæmist fljótt upp á lag með að leika að minnsta kosti öli algengustu sálmalögin á kirkjuorgel- ið, eftir eyranu. Mestu máli skipti það þó vitalega, að hann var ekki ein- göngu óflokksbundinn báðum megin, heldur viðurkenndur skoðanaleysingi og óatkvæðisbær, svo jafnvægið milli flokkanna haggaðist ekki þótt hann væri skipaður i umrætt embætti. Þar með var vandinn leystur — fyrir stjórnmálalegan þroska, sam- starfsvilja og glöggan skilning á- byrgrar forystu beggja flokka á vel- ferð almennings. Harmonikuleikarinn var gerður að kirkjuorganista, en organleikarinn ,sem fyrr um ræðir, gerður flokksrækur öðrum til viðvör- unar. Er því við brugðið hvað harmonikuleikarinn komst fljótt upp á lag með að leika á kirkjuorgelið eftir eyranu — já, fyrir meðfædda listgáfu hans, sem ekki hafði verið fjötruð i viðjar náms og fræðilegrar sérkunnáttu, var sem hin gömlu og virðulegu sálmalög endursköpuðust i meðferð hans; fengju nýja hrynjandi og nýjan þrótt. Af organleikaranum er fátt að segja, enda kemur hann ekki bein- línis sögunni við eftir þetta. Honum varð litt til um starf, eftir að hon- um hafði verið vikið úr flokknum, og loks hafði hann það helzt fyrir atvinnu að leika á harmoniku á dans- samkomum, en lét það ekki vel; leik- ur hans þótti þunglamalegur og há- tiðlegur um of og ekki á neinn hátt sambærilegur list harmonikuleikar- ans, sem nú var orðinn kirkjuorgan- isti, og gat þvi, embættisvirðingar sinnar vegna, ekki lengur leikið fyr- ir dansi ... Drómundur. „Ferguson 1963“ — „öruggasti bíll í heimi“ — gegnumlýstur. PREHT. SIIÐJAN HILNIR HF RAUÐI ÞRÁÐURINN í viðskiptum yðar er viðleitnin til að efla og auka framgang fyrirtækisins og veita um leið viðskiptavinum yðar þá þjónustu og fyrirgreiðslu sem unnt er. HILNIR hf Samkeppnin á markaðnum verður æ meiri og krefst þess að staðið sé á verði gagn- vart þeim þáttum viðskiptalífsins er snerta á einhvern hátt fegurðarsmekk fólksins. HILNIRhh Vönduð vinna á öllum prentuðum gögnum fyrirtækisins ber því fagurt vitni, um leið og það vekur á sér athygli og örvar á þann hátt viðskiptin í hvívetna. HILNIRhh i » Vér höfum um árabil unnið í sívax- andi mæli að hvers kyns prenverki svo sem: Prentun bóka, blaða og um- búða, ásamt skrifstofu- og verzlunar- gögnuin ýmissa tegunda. Jafnframt því veitum vér viðskipta- vinum vorum alla þá aðstoð og leið- beiningar, sem með þarf þar að lút- andi. HILNIRhi i Skipholti 33. — Sími 35320. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.