Vikan - 11.01.1962, Blaðsíða 4
AMLMA
Bókuna rol'n
með Grilli
nit'íí Klukkurofn
Of; einnij;
með elprhurð
Ilraðsuðuplolur
með klukkurofa.
Ahlmann e'ldavélasamstæðan hefur nað
miklum vinsældum vegna þess, að hún:
Uppfylhr strongustu krofur yðar,
því nú er klukkurofmn bæði á
bökunarofni og eldunarplötum.
Hefur sjalfvirkan hitastilli á hrað-
suðuplötum, sem dregur úr hit-
anum við suðumark niður í hæfi-
legt hitunarstig.
Er úrvals Vestur-þýzk framleiðsla.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skiphoiti 15 — Sími 24133.
VIKAN
oq tæknin
Hlustað eftir tilkynn-
ingum utan úr geimn-
um
Víðsvegar um heim hefur verið
komið upp sérstökum stöðvum, sem
búnar eru hinum fullkomnustu
íækjum til að lilusta eftir tilkynn-
ingum og upplýsingum frá gervi-
hnöttum, bæði bandarískum og
rússneskum, og er haft um það ná-
ið, alþjóðlegt samstarf — þrátt fyrir
alla þá togstreitu, sem annars er
rikjandi á öllum sviðum og ekki
hvað sízt um sóknina til yfirráða
úti í geimnum. Eins og aliir vita,
hafa gervihnettir þessir innan-
borðs hin fjoibreyttustu rannsókn-
artæki, um ieið og þeir eru og búnir
senditækjum, sem koma upplýsing-
um írá þeim jafnóðum áleiðis til
hlustunarstöðvanna á jörðu niðri.
En þar sem bandarískar hlustunar-
stöðvar geta eingöngu numið til-
kynningar frá bandarískum gervi-
hnöttum þegar þá ber yfir Banda-
ríkin á baut sinni hverju sinni, og
sama máli gegnir um rússneskar
hlustunarstöðvar og rússneska
gervihnetti, mundi mikið af inerki-
legum upplýsingum fara forgörðum,
væri ekki lilustað eftir tilkynningum
þeirra víðar en í þessum tveim
íöndum. Fyrir bragðið hlusta ekki
aðeins bandarískir geimvísinda-
inenn iíka á tilkynningar frá rússn-
eskum, þegar þeir fara yfir Banda-
rikin, og rússneskir á tilkynningar
frá bandarísku gervihnöttunum,
þegar þeir fara yfir Sovétríkin,
heldur hefur og verið komið smám-
saman upp kerfi slíkra hlustunar-
stöðva um allan heim, þannig að nú
má heita tryggt að ekki fari neinar
slíkar upplýsingar forgörðum,
hvorki frá bandarískum né rúss-
neskum gervihnöttum, hvar sem þá
ber yfir á braut sinni.
En ekki er nóg að hlusta og heyra;
enginn gelur lagt sér á minnið hið
margbrotna merkjamál senditækj-
anna i öllum þeim gervihnöttum,
sem ganga nú braut sína umhverfis
jörðu, og því verður að skrásetja
þau jafnóðum til athugunar og úr-
lestrar hjá sérfræðingum síðar meir.
Til skrásetningarinnar eru notuð á-
kaflega fullkomin segulbandstæki, i
sjálfvirkri tengingu við hlustunar-
tækin og magnarana, en siðan eru
tekin eins mörg afrit og með þarf á
önnur segulbönd, sem send eru sér-
fræðingum til úrlestrar. Þar sem
segulbönd þessi skipta mánaðarlega
tugum kilómetra að lengd, er úr-
lesturinn að sjálfsögðu gifurlegt
verk; það er því eingöngu með að-
stoð rafeindaheilanna að það er
framkvæmanlegt, en þeir þýða
merkjadulmálið af segulböndunum,
annast umfangsmikinn samanburð
og útreikninga, og búa efnið þannig
i hendur sérfræðingunum til endan-
legrar úrvinnslu.
Það vakti gífurlega athygli um
heim allan, þegar tókst að skjóta á
loft fyrsta gervilinettinum og koma
honum á braut umhverfis jörðu —
og að vonum, því að þar var um
að ræða tæknilegt afrek, sem tákn-
aði upphaf nýrrar aldar i þróunar-
sögu mannsins. Nú er það orðið svo
hversdagslegt að ekki þykir lengur
neinum tíðindum sæta; jafnvel meiri.
tíðindi þegar slík tilraun misheppn-
ast en þegar alit gengur samkvæmt
áætlun, enda þótt það sé aðeins ann-
ar þeirra aðila, sem að gervihnatta-
skothríðinni standa, er iætur upp-
skátt um mistök sin. Og þar sem
gera má ráð fyrir, að einhverjum
sem ekki veit, kunni að þykja fróð-
legt að sjá og athuga lista yfir þá
gervihnetti, sem nú ganga sína af-
mörkuðu braut umhverfis jörðu og
senda sumir enn og stöðugt upplýs-
ingar til hlustunarstöðvanna, verða
þeir taldir upp hér á eftir, og er þá
miðað við þá, sem komnir voru á
braut fyrir 1. september síðastliðinn,
4 VIKAN